Dagur - 08.12.1994, Qupperneq 16
Akureyri, fimmtudagur 8. desember 1994
^rmrtwn nllnv j]avíMr ng stæardlr MmsaMsa
• Tölvugataða
• Frostþolna
• Tölvuvogamiða
• Strikamerki
UMMIÐAR NORÐURLANDS HF.
Strandgötu 31 • 600 Akureyri • Sími 96-24166
Aðalfundur Höfða hf. á Húsavík:
Um 26 milljóna
króna hagnaður á
reikningstímabilinu
- „Þetta er orðið nokkuð gott fyrirtæki,“
segir Kristján Ásgeirsson, fr.kv.stjóri
Aðalfundur Höfða hf. var
haldinn sl. þriðjudag.
Heildarvelta félagsins nam
214,4 milljónum og hagnaður
tímabilsins 25,7 milljónum. Eig-
infjárstaða félagsins er neikvæð
um 17,2 milljónir. Veltufjár-
hlutfall var 1,03. Reikningsárið
að þessu sinni var frá 1. janúar
til 31. ágúst. Greiðslufjárstaða
félagsins var nokkuð góð á tíma-
bilinu, útgerðin gekk áfallalaust
og aflabrögð voru góð.
Höfði hf. rekur netaverkstæði
og gerir út rækjutogarann Júlíus
Havsteen og rækjubátana Aldey
og Kristey. Að meðaltali störfuóu
35 starfsmenn hjá fyrirtækinu og
heildarlaunagreióslur voru 77,3
milljónir.
A aðalfundinum var samþykkt
með meirihluta atkvæóa tillaga
um að vinna aó sameiningu út-
geróarfélaganna Ishafs og Höfða,
en sameiningin tæki gildi 1. sept-
ember 1995. Stjórnarformaður bar
fram frávísunartillögu á tillögu
Sigurjóns Benediktssonar um
framkvæmdarstjóraskipti hjá fé-
lögunum. Frávísunin var sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum nema atkvæðum þeim er
Sigurjón fór með.
I aðalstjórn Höfða eru nú: Ein-
ar Njálsson, Friðrik Sigurðsson,
Örlygur Hnefdl Jónsson, Gunnar
Magnússon og Þorgeir Hlöðvers-
son. I varastjórn var fjölgað um
tvo og í henni eru: Gunnar Bóas-
son, Hreiðar Karlsson, Stefán
Haraldsson, Jón Asberg Salóm-
onsson og Hilmar Þorvaldsson.
Samþykkt var á fundinum að
starfsmenn fengju áheyrnarfull-
trúa í stjórn.
„Ég er ánægður meó að veltu-
fjárhlutfall skuli vera komið yfir
einn. Þetta er allt á réttri leið og er
orðið nokkuð gott fyrirtæki. Það
var mál til komið að færi að hress-
ast yfir þessu,“ sagði Kristján As-
geirsson, framkvæmdastjóri, í
samtali við Dag. IM
Snjór, og sköpunarþráin fœr útrás,
Umhverfisráðuneyti úrskurðar að ráðning byggingafulltrúa Eyjafjarðarsvæðis skuli standa:
Ákveðinn í að vísa málinu
til umboðsmanns Alþingis
- segir Jónas Vigfússon, byggingaverkfræðingur, sem kærði ráðningu
bygginganefnda Eyjafjarðar sl. vor í starfið
Umhverfisráðuneytið hefur
úrskurðað að ráðning Jósa-
vins Gunnarssonar í starf bygg-
ingafulltrúa Eyjafjarðarsvæðis
skuli standa. Akvörðun svæðis-
bygginganefnda EyjaQarðar-
svæðis frá í vor um ráðningu
hans í starflð var umdeild og
kærði Jónas Vigfússon, bygg-
ingaverkfræðingur og einn um-
sækjenda um starfið, ráðning-
una til umhverfisráðuneytisins.
Kæran var studd þeim rökum
að Jósavin uppfylli ekki hæfis-
skilyrði til að gegna stöðunni.
Jónas Vigfússon segist ekki una
þessari niðurstöðu umhverfis-
ráðuneytisins og muni hann því
kæra málið til umboðsmanns
Alþingis.
Deilan um ráðningu í starf
byggingafulltrúa Eyjafjarðarsvæó-
O VEÐRIÐ
Veðurfræðingar spá all
hössu eða hvössu af suð-
austri í dag og rigningu með
köflum á Norðurlandi
eystra. Á Norðurlandi vestra
verður austan og norðaust-
an átt og skúrir. Hiti Norð-
anlands verður á bilinu eitt
til fimm stig. Um helgina er
hins vegar spáó hægri
breytilegri átt og tveggia til
átta stiga frosti.
isins hefur staðið lengi og hófst
hún raunar með ágreiningi milli
hcraösráós Eyjafjarðar og svæðis-
bygginganefndanna um á hvers
borði ráðning í starfið skyldi vera.
Við fráfall fyrrverandi bygginga-
fulltrúa árið 1991 tók Jósavin
Gunnarsson við starfinu en hann
hafói þá um 10 ára skeið verið aó-
stoóarmaður byggingafulltrúa.
Fram kemur í bréfi hans til um-
hverfisráðuneytisins í síðasta
mánuói að strax í ársbyrjun 1992
hafi hann óskað eftir úrskurði
ráðuneytisins á hæfni sinni til að
gegna starfinu. I svari ráðuneytis-
ins þá hafi ekki verið talin ástæða
til að gera athugasemd vió ráðn-
ingu hans í starfið til ársloka
1993. í ljósi þess hafi hann sótt
um stöðuna þegar hún var auglýst
í ársbyrjun og fengió hana.
I niðurstöðu ráðuneytisins er
bent á aó Jósavin hafi margsinnis
gegnt starfi byggingafulltrúa í for-
föllum hans á tímabilinu 1982 til
1985 og að sumarið 1993 hafi
bygginganefndarmenn svæðis-
bygginganefndanna lýst einróma
vilja til að hann gegni áfram starfi
byggingafulltrúa. Þó hann sé ekki
menntaður arkitekt eða verkfræð-
ingur hafi hann öðlast rétt með
starfsreynslu sinni og ekki sé því
efni til að hnekkja ákvörðun um
ráðingu Jósavins í starfið.
Strax í kjölfar ráðningar svæó-
isbygginganefndanna í maí í vor
brugðust fagfélög arkitekta og
verkfræðinga við og töldu að með
ráðningunni hafi verið gengið
framhjá umsækjendum sem
greinilega uppfylli kröfur um
menntun til starfsins. I framhald-
inu kæröi Jónas Vigfússon ráön-
inguna, eins og áður kemur fram.
Fiskverkun Haraldar Árna-
sonar á Skagaströnd er eina
fiskverkunin á Skagaströnd sem
vinnur og frystir bolfisk síðan
frystihús Hólanes hf. hætti
starfsemi. Milli 80 og 90% af
hráefni Hólaness kom af ísflsk-
togaranum Arnari en segja má
að frystingin hafi flust út á sjó
er nýr Arnar, frystitogari, kom
til landsins. Fiskverkunin er
mjög lítil í sniðum, aðeins þrír
starfsmenn, en hún hóf starf-
semi fyrir tveimur árum.
„Ég hef fengið fisk af færabát-
unum héma en ég hef keypt eftir
hendinni og eins hef ég verið að
kaupa aukfiski af rækjubátunum
sem landa hér á Skagaströnd. Við
frystum bæði á Ameríku- og Evr-
ópumarkað og er selt gegnum
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
Hann sagðist í samtali við blaðið í
gær vera óánægður með úrskurö
ráðuneytisins. Ekki séu að sínu
mati færó nægjanleg rök fyrir niö-
urstöðu ráðuneytisins og því muni
hann vísa málinu áfram til um-
boðsmanns Alþingis. JOH
Verðið hefur verið ágæt. Nú er
fremur lítió um fisk, litlu króka-
leyfisbátarnir eru komnir í stopp
út janúarmánuð og flestir að-
komurækjubátarnir er hættir,
komnir suöur. Ég kaupi ekki fisk
af fiskmarkaðnum hér, heldur
beint af bátunum en meirihlutan-
um af öðrum fiski er ekið suóur
og hann boðinn upp þar, þó gegn-
um fiskmarkaðinn á Skaga-
strönd,“ sagði Haraldur Árnason.
Vinnslu verður hætt 17. desem-
ber nk. en hefst aftur fljótlega eftir
áramót. Ekki er fyrirhugað að
auka umsvifin þrátt fyrir að hús-
næðið sé nógu stórt, en starfsemin
er í leiguhúsnæði, fyrrum salthúsi
Hólaness hf. Frystitækin á fyrir-
tækið sjálft en eftir vinnslu er
fiskikössunum komið fyrir í
frystigámi. GG
Skagaströnd:
Aðeins þrír starfsmenn
í einu bolfiskvinnslunni
Geysigóðar
karfasölur
í Þýskalandi
- hjá Björgúlfi EA og
Rauöanúpi ÞH
Togararnir Hegranes SK-2
frá Sauðárkróki og Rauði-
núpur ÞH-160 frá Raufarhöfn
sem áttu löndunardaga í Brem-
erhaven í Þýskalandi í gær og í
dag og Björgúlfur EA-312 frá
Dalvík sem átti löndunardag sl.
mánudag lönduðu þeim karfa
sem þeir öfluðu í gáma austur á
Fáskrúðsfirði og í Vestmanna-
eyjum, sem sendir voru síðan á
markað erlendis.
Mjög gott verð hefur fengist
fyrir karfann, Rauðinúpur ÞH
seldi 40 tonn og var meðalverð
156 kr/kg og Björgúlfur EA seldi
62 tonn, meóalverð 158 kr/kg.
Afli Hegraness SK verður seldur í
dag en skipið var í gær komið
með 20 tonn af karfa, sem settur
verður í gáma í Vestmannaeyjum
nk. föstudag. Með annan afla
verður siglt til Sauöárkróks til
vinnslu.
Múlaberg ÓF-32, scm er á
karfaveiðum fyrir sunnan land, á
söludag erlendis 14. desember nk.
en vegna brælu og aflatregóu eru
vaxandi líkur á aö ekki verði siglt
með aflann, heldur landaó í gáma
til útflutnings, líklega í Vest-
mannaeyjum. Drangey SK-1 frá
Sauöárkróki, sem á söludag 21.
desember nk., er við karfaveiðar
við Vestmannaeyjar og mun ekki
selja á áðurnefndum söludegi,
hcldur landa á Sauðárkróki til aö
halda uppi vinnu í frystihúsinu.
GG
“ “ n
Frábœrt
I verð á i
l
l
l
l
l
l
l
plastrimla-
gardínum
Stœrðir:
40x150-180x150
40x210-180x210
Sníðum eftir máii
KAUPLAND
Kaupangi - Sfmi 23565
INNANHUSS'
MÁLNING
10 lítrar
frá
kr. 3.990,-
KAUPLAND
Kaupangi ■ Sími 23565