Dagur - 10.12.1994, Side 10
10 - DAGUR - Laugardagur 10. desember 1994
PÝRARÍKI Í5LANP5
SICURÐUR ÆdlSSON
Hvalir 2. þáttur
Steypíreyður
(Balaenoptera musculus)
Skíóishvölum er deilt niður í þrjár
meginættir, þ.e.a.s. reyðarhvali (6
tegundir), sléttbaka (3 tegundir),
og loks gráhvali (1 tegund).
Steypireyðurin er af undirætt-
bálki skíðishvala, en ætt reyóar-
hvala. Er hún jafnan talin vera
allra stærsta dýr, sem nokkum tím-
ann hefur lifað á þessari jörð. Hún
er nú á tímum ekki nema unt 25-
27 m á lengd að meðaltali, fullvax-
in, og unt 110-130 tonn að þyngd,
en áður fyrr gátu þessar tölur orðið
mun hærri. Arið 1909 veiddist t.d.
rúmlega 33 m langt kvendýr, sent
farið var með í hvalveióistöð í S-
Georgíufylki í Bandaríkjunum.
Ekki er vitað um þyngd ferlíkisins,
en áriö 1947 veiddist annað kven-
dýr, um 7 m styttra á lengdina, er
samt vóg um 190 tonn, eða 80
tonnum meir, en
þaó, sem almennt
er talið vera í
dag.
Steypireyðurin
er, eins og aörir
reyóarhvalir,
ákaflega spengi-
leg í vexti, ílöng
og grönn. Hún er
dökkgrá eða blá-
grá á lit að mestu,
og þá jafnt yfir og undir, og lítið
eitt ljósflikrótt á síðum. Höfuóið er
tiltölulega lítið og flatt; bægslin
löng og mjó, og reyndar hvít að
neðan; bakhyrnan mjög lítil, eða
ekki nema um 30 sm há, staðsett
aftarlega á búknum; en sporð-
blaðkan hins vegar mikil og breió,
og ákaflega kröftug. Kýr eru ívið
stærri en tarfar.
Að neðanverðu, eða m.ö.o. frá
hálsi og aftur undir nafla, er aó
fínna grófir eða rákir, 55-68 tals-
ins, er gera hvalnum mögulegt að
þenja út kviðinn, ef svo ber undir.
Er þessi fallastakkur eitt af ein-
kennum reyðarhvala.
Skíðishvalir eru tannlausir, en
hafa í staóinn geysiöllugt veiði-
tæki, einskonar síu, er gengur und-
ir nafninu skíði. Er þar um aó ræða
ntargfalda röð af þunnum og
ílöngum hyrniplötum, er slúta nið-
ur úr brún efri kjálka, sitt hvoru
megin. Fjöldi þessara platna og
lengd er breytileg eftir tegundum. I
steypireyðinni eru þær alls 520-
800, og svartar á litinn. Þær eru til-
tölulega sntáar, miðað við það,
sem er að finna í öðrum skíóis-
hvölum.
Steypircyðurin flytur sig til eftir
árstíðum, þ.e.a.s. fer á vorin urn
langan veg allt að ísröndinni, til að
éta og fita sig, en leitar aftur í átt
að miðbaug, í hlýrri sjó, þegar tek-
ur að kólna, og nærist þar lítið sem
ekkert, í 5-6 mánuði.
Dýrin maka sig á tímabilinu frá
maí til september, en þó mest um
hásumarið, og er meðgöngutíminn
10-11 mánuðir. Kálfurinn fæðist
því yfirleitt á vorin, þegar dýrin
eru á leið á fæðuslóðirnar. Hann er
þá um 7 m langur og vegur um 2'
tonn. Þegar hann svo er vaninn af
spena, um 8 mánaöa gamall, er
hann búinn að tvöfalda Iengd sína
og tífalda þyngdina, þ.e.a.s. er orð-
inn 15 m langur og 25 tonn á
þyngd. Samsvarar það um 90 kg
þyngdaraukningu á dag. Hann
verður svo kynþroska um 10 ára
gamall, að talió er. Kýmar bera
annað eða þriója hvert ár.
Fæðan er mestan partinn ljós-
áta, er þaó eru smávaxin krabba-
dýr, í líkingu við rækju, oft nefnd
kríli, en einnig mun hún leita eitt-
hvað í smávaxinn torfufísk, og
jafnvel blekfisk. Er hvalurinn
sagður blása 8-15 sinnum áður en
farið er í kaf, þar sem hann er síð-
an að jafnaði í 10-15 mínútur, á
50-100 m dýpi. Veióiaðferóin er
sú, að taka eina gúlfylli í einu af
áturíkum sjó, og kyngja því sem úr
henni verður eftir. Er haft fyrir
satt, aó hvert dýr geti innbyrt allt
að 8 tonnum af ljósátu á dag.
Einnig er það til marks um ótrú-
lega stærð og kraft þessa reyðar-
hvals, að blásturssúlan getur náð
allt aó 9 m hæð.
Steypireyóurin er úthafshvalur,
fremur stygg að eðlisfari, og er
oftast ein á ferð eða í samfloti nteð
2-3 dýmm. Sundhraóinn er 2-6.5
km á klst, á meö-
an fæðu er aflað,
en 5-14 km á
klst. í langferð-
um, og getur far-
ið upp í 30 km á
klst. sé dýrió á
flótta. Útbreiðsl-
an spannar öll
heimshöfin. Um
þrjá meginstofna
er aö ræða,
þ.e.a.s. einn í N-Kyrrahafi, annan í
N-Atlantshafi og hinn þriðja á suð-
urhveli jarðar. Steypireyðar á
norðurhveli jaróar eru nokkru
minni að vexti en þær á suður-
hveli, að talið er.
í S-Indlandshafí og S-Kyrrahafi
er að finna undirtegund steypi-
reyðar, er nefnd hefur verið dverg-
steypireyður. Hún er ljósgrá á lit,
og, eins og nafnið gefur til kynna,
öllu minni að vexti, þ.e.a.s. verður
að jafnaði ekki lengri en 24 m, og
um 70 tonn að þyngd. Auk þess
eru grófir á kvið fleiri, þ.e.a.s. 76-
94, skíðin í efri kjálka öllu stór-
gerðari, að eitthvað sé nefnt.
Steypireyður hefur farið mjög
illa út úr vióureign sinni við mann-
skepnuna, að ekki sé fastar að oröi
kveðið, og þá á öllum hafsvæðum.
Eftir gegndarlausa veiði Noró-
manna og Islendinga í norðurhöf-
um var hún frióuð loksins árið
1960, og svo um allan heint árið
1965. Nióurstöður talninga hér við
land benda til þess, að stofninn
eigi enn langt í þaö, að verða eins
sterkur og hann var fyrir síðustu
aldamót, þegar veiðamar uróu
hvað mestar, en sé þó engan veg-
inn í útrýmingarhættu. Hefur talan
1000 verið nefnd í þessu sam-
bandi, og þá 1500 í öllu N-Atlants-
hafinu. Þegar stofninn var upp á
sitt besta komu fyrstu hvalirnir að
A- og V-landinu, suður úr höfum,
í aprílmánuði, en aðalgöngumar í
maí-júní, og dreifðust allt um-
hverfis land. Ovíst er hvemig
göngum er háttað nú.
Alheimsstofninn, sem á 19. öld,
þ.e.a.s. áður en þær veiðar hófust,
sem nær gerðu út af við tegundina,
er áætlaður hafa verið um 300.000
dýr, er í dag talinn vera einungis
um 14.000 dýr.
Steypireyðurin á enga náttúm-
lega óvini, nú þegar mannskepnan
er úr sögunni, nema þá háhyming-
inn, sem vitað er til, að hefur lagst
á ýmis stórhveli og drepið. Slíkt
mun þó frekar heyra til undantekn-
inga, en að það sé regla.
Að endingu er það svo að
nefna, að steypireyðurin er talin
geta oróið a.m.k. 80 ára gömul.
(Balaenoptera musc-ulus).
H
H
ELGARXx EILABR0T
U2
Umsjón: GT
13. þáttur
Lausnir á bls. 14
Hver var höfundur sögunnar um Robinson Crusoe?
| Daniel Defoe Robert Louis Stevenson
Jules Verne
Fyrir hvað var Þórbergur Þórðarson dæmdur til 200 kr. sektar árið 1934?
I Fyrir að skrifa að Hitler væri sadisti Fyrir of hraða reið niður Laugaveg
Fyrir að mógða konung
Hvaðan er taiiö að pasta sé upprunnið?
Frá ítaliu Frá Kina
Frá Spáni
Hvaða áhrif hefur hækkun vaxta á verðbólgu að öðru óbreyttu?
I Verðbólga hækkar Q Verðbólga lækkar
Engin áhrif
Hvað hét Skt, Petersburg á vaidatíma kommúnista í Sovétríkjunum?
I Leningrad |Q Stalingrad
Volgograd
6
Hver fann upp lotukerflð?
I Dimitrij Mendelejev
Felix Mendelssohn-Bartholdy
Heinz Schubel
Hvar var landsmót hestamanna haldið 1982?
I Á Kaldármelum Q Á Melgerðismelum
Á Vindheimamelum
Hvaða danski
■1 P. A. Alberti
Carl Goos
var daemdur í fangelsi fyrir fjárdrátt og skjalafals?
Nellemann
v Hvað eru margar hita einingar (kkal) í 100 g af bjór ser n hefur 5,6% alkc ihól af rúmmáli?
' 11 47 n 8i Ð 247
(M)
Hver er einna frægastur súrrealista?
I Salvador Dali
Pablo Picasso
JosefZweig
Hvenær á í síðasta lagi að skila til Pósts og sima A-bréfapóstl sem á að ná til Evrópu fyrir jól?
ídag H 16. desember W}I 19. desember
12
Hvert var fæðingamafn (ættamafn) Karenar Blixen?
Dinesen CT Saxo
Sorensen
13
Hver lékiThe Giant?
I James Dean
Cary Grant
John Wayne
ÚAMLA MYNDIN
M3-1501 Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/ Minjasafnið á Akureyri
Hver
kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags þekkja einhvem
á þeim myndum sem hér birtast
eru þeir vinsamlegast beðnir að
snúa sér til Minjasafnsins, annaó
hvort með því að senda bréf í
pósthólf 341, 602 Akureyri eða
hringja í síma 24162 eða 12562
(símsvari).