Dagur - 20.12.1994, Side 17

Dagur - 20.12.1994, Side 17
Þriðjudagur 20. desember 1994 - DAGUR - B 1 / fe Sckrader var alltaf hjá mér - segir Anna Kristinsdóttir, sem bjó á Caroline Rest í 22 ár Anna Kristinsdóttir. Mynd: óþh Anna Kristinsdóttir bjó ásamt ijölskyldu sinni í Caroline Rest, eða Restinni eins og hún kallar húsið, í tuttugu og tvö ár, allar götur til ársins 1979, þegar það var rifíð. Anna segir að þar hafi sér alltaf liðið vel og hún fer ekki leynt með að það hafi verið henni mikil vonbrigði þegar ákveðið var að rífa húsið. „Maðurinn minn var Færeyingur og við fluttum til Færeyja og vor- um þar um tíma. Þegar við komum aftur heim vorum við húsnæðis- laus. Við fengum afdrep á Hótel Akureyri og það var ljóta grenið, drottinn minn dýri. Engu aó síður var ég fegin því að fá þar afdrep fyrir mig og börnin. Einn góðan veðurdag birtist sendinefnd til þess að skoöa aðbúnað á hótelinu. I henni voru Þorsteinn M. Jónsson, Jóhann Þorkelsson, héraðslæknir, og Elísabet Eiríksdóttir. Þeim hefur trúlega ekki litist meira en svo á aðbúnaðinn því upp úr þessari heimsókn kom Elísabet að máli við mig, tók mig með sér á Caroline Rest og spuröi mig hvort ég myndi geta sætt mig við búa þar. Eg get svo svarið það að mér fannst ég vera komin í kanslarahöll, mér fannst ég vera komin í paradís. Strax og ég kom þarna inn og gekk úr einu herberginu í annað, fann ég fyrir meiri og meiri yl í kringum mig. Eg skynjaði strax já- kvæða og hlýja strauma.“ Leið vel á Restinni „Mér leið alveg óskaplega vel á Restinni vegna þess að ég var þar aldrei ein. Mér hefur hvergi lióið betur. Schrader var alltaf hjá mér. Hann gerói mér viðvart ef eitthvað var að koma fyrir. Ég sá Schrader aldrei á lífi og ég hef heldur aldrei séó mynd af honum. En engu að síður lýsi ég honum á þann veg að hann var stór maður og herðabreið- ur, sérstaklega myndarlegur. Schrader var góður maður og hann rétti mér oft hjálparhönd ef ég þurfti á hjálp að halda. Þar átti ég hauk í horni.“ - Ertu skyggn? „Já, ætli ég sé ekki eitthvað svoleióis. Einhverju sinni þegar ég fór út og var að leita að einu barna minna, þá sá ég greinilega fyrir sunnan húsiö fallegan hest og hann sat kona, sem ég veit að var Caroline Rest. Ég sé þennan hest enn þann dag í dag. Hann var grásprengdur á lit og konan sem hann sat var í gulifallegri, rósóttri blússu og dökku pilsi.“ Mátti engu kosta til „Á jarðhæðinni var eingöngu hesthús cn á miðhæðinni voru eldhús og fjögur svefnherbergi sem áður höfðu greinilega verið gistiherbergi því á huröunum voru númer. Uppi á efri hæðinni voru þrjú herbergi auk eldhúss og baðs. Tvö svefnherbergi voru undir súó en austasta hlutann höfðum við fyrir stofu. Húsið var í slæmu ásigkomulagi. Þaö hafði ckkert verið gert fyrir það í langan tíma áður þegar við lluttum inn og það gekk illa að fá nokkuð gert, það mátti engu kosta til. Það var ítrekað hamrað á því að fá ýmislegt gert við húsið, en það mátti ekkert gera. Ég man þó hve glöö ég var að fá dúk á tvö gólf og smiðurinn, Benedikt að nafni, sem lagði dúkinn, stalst til að dúkleggja stofuna. Þegar ég kom heim og sá hvað hann hafði gert, sagði ég við hann: „Elsku Benedikt minn, nú verður þú rekinn úr vistinni.“ „Þaó verður þá bara að hafa það,“ svar- aði hann. En mikið óskaplega var ég feginn að fá líka nýjan dúk á stof- una. Það var frekar kalt á Restinni og þeir voru mér sérstaklega góðir í Kassagerðinni, þeir gáfu mér oft spýtur til að kynda. Á fyrstu árunum eftir að ég flutti á Restina var mjólk flutt í mjólkur- samlagið í Gilinu á sleöum og hestarnir, sem spenntir voru fyrir sleð- ana, voru settir inn í Restina. Eftir að ég heyrði að búið var aö taka alla hestana og ró færðist yfir fór ég alltaf nióur til þess að gá hvort húsinu hefði verið lokað og ég sæi glóð. Ég var og hef alltaf verið eldhrædd.“ Merkileg saga jöfnuð við jörðu „Mér fannst það voðaleg synd að Restin skyldi vera rifin til grunna og ég er ekki búin að sætta mig viö það enn. Menn eru að berjast fyrir því að varðveita hús hérna í bænum, en það hvarflaói ekki að mönnum aö varðveita þetta hús og sett var á oddinn að þarna vantaði bílastæði! Caroline Rest átti svo merkilega sögu að ég næ ekki upp í það enn þann dag í dag aö það skyldi vera rifið. En ég tek það fram að þegar búiö var að ákveða að rífa húsið, þá gengu þau Gísli Jónsson og Soffía Guðmundsdóttir fram í því að út- vega okkur íbúð á jarðhæó í Smárahlíð, þar sem ég bjó um tíma. Fyrir það er ég þeim þakklát.“ óþh Caroline Rest I' tímaritinu Súlum árið 1973 birtist eftirfarandi ljóð um Caroline Rest. Fram kemur að ekki sé vitað um höfund Ijóðsins. Hesthúsið hans Schraders undir háum stendur mel, það hefur ekki nokkur bygging komið sér eins vel, ég meina hér í Akureyrar unaðsríku borg, hvar ekki nokkur maður þekkir fátœkt eða sorg. Hér var enga hesthúsboru hugsanlegt aðfá í höfuðstaðnum norðanlands, þó mikið lœgi á, og öldungis var óbœrileg orðin hneisan slík, þóttýmsir vœru að tala um að ei mundi betra í Vík. Hér er engin hœtta á því að hestar fái kvef hreinn er þessi staður og alveg laus við þef, því allt, sem frá þeim fellur það flyzt burt rennum í að feykistórri gryfju, sem tekur móti því. Þar hefur sérhver hestur sinn bás og stall og band, já, byggingin hún verður sómi fyrir þetta land. Framar enginn þarf að setjast söðul votan í, því Schraders fína hesthúsið mun œtíð varna því. Reiðtygin sín geta menn nú geymt á tryggum stað og gleður sérhvern ferðamann að hafa vissu um það, að allt, sem með skal hafa, sé hreint og líka þurrt, er hann sér œtlar aftur aðfara þaðan burt. gerðastofnun, og gjald fyrir gistingu manna og hesta yrði ekki hækkað. Schrader lagði einnig blátt bann við auglýsingum í húsinu og bannaði að hengdar yrðu upp myndir eða annað veggskran umfram þaó sem fyrir væri til þess að varðveita útlit veggj- anna og byggingarinnar í heild. Kjörin var sérstök stjómamefnd fyrir „Caroline Rest“ og í fyrstu stjóm vom Stefán Stefánsson, frú Olga Jensson og Steingrímur Matt- híasson, læknir. Þar sem „Caroline Rest“ stóð áður í Grófargili, austan við austasta húsið sunnan götunnar, er nú bílastæði. Mynd: óþh samkvæmt fyrirliggjandi teikningum og áætlunum Sigtryggs bygginga- meistara Jónssonar. Byggingafram- kvæmdir við „Caroline Rest“ áttu að hafa forgang og þegar þær væru af- staðnar vildi Schrader að fátækir sjúklingar sætu fyrir um styrki úr sjóðnum. „Caroline Rest sjóðurinn“ Schrader stóð fyrir stofnun sérstaks sjóðs, „Caroline Rest sjóðsins". Hann sjálfur lagði drjúgan skilding í sjóðinn og hluti af andvirði bókanna Hestar og reiðmcnn á íslandi og Matreiðslubók Jóninnu Sigurðar- dóttur. Schrader lagói svo fyrir að bæjarstjóm Akureyrar ávaxtaði tekj- ur sjóðsins í vel tryggðum verðbréf- um þar til sjóðurinn væri orðinn nægilega digur til þess að mætti reisa eina hæð ofan á eystra hesthús- ið og inngang að „Caroline Rest“ Dauði Schraders Árið 1915, eftir rúmlega þriggja ára dvöl, afréð Schrader að halda á ný til föðurlandsins, Þýskalands. Stein- grímur Matthíasson útvegaði honum far áleiðis heim meö skipi Ásgeirs Péturssonar, „Helga magra“, en för þess var heitió á síldveiðar við Nor- egsstrendur. Stefán skipstjóri Jónas- son féllst á að flytja Schrader til Kristjánssunds í Noregi. Lagt var af staó að morgni 15. nóvember 1915. Samkvæmt grein Sigurðar Sigfússonar í Súlum bað Schrader um að kvöldi annars dags ferðarinnar að sér yrði hjálpað upp á þilfar og þar sat hann í stól bróður- part nætur. Undir morgun mun Schrader hafa beðið skipverja að sækja allt sitt hafurtask og lét henda í sjóinn öllum þeim skjölum sem þar vom. Að morgni 17. nóvember bað Schrader að honum yrði hjálpað nið- ur, en áður tók hann alla þá peninga sem hann hafði og skipti jafnt á milli skipverja. Síðan mun hann hafa ritað eftirfarandi bréf til Steingríms Matt- híassonar, læknis, en það birtist í 15. tölublaði íslendings árið 1916: „Kœri Steingrítmir lœknir! Gerið svo vel að stofna sjó- mannasjóð (Seamans Fund) meó innlögðum 50 krónunt og skal sjóð- urinn vera til styrktar ekkjum og bömum drukknaðra. Sjómennimir eiga við hart að búa og hafa unnið til þess að þeim sje hjálpað. Þjer megið þakka guði fyrir að þjer og konan yðar tókuó ekki far með „Helga rnagra". Þó jeg sje ekki sjóveikur líður mjer illa, því veðrið er svo slæmt, og sjóganginum er um að kenna að skrift mín er svo slæm. Allir skipverjar hafa verið mjög vin- gjamlegir vió mig og borið mikla umhyggju fyrir mjer og hefi jeg launað þeim fyrir þaó. Skipstjórinn er ágætismaður. Jeg þakka yður fyrir að þjer útveguðuð mjer farið þó jeg sakni ýmsra þæginda. Gerið svo vel að þakka Ásgeiri Pjeturssyni að hann leyfði mjer að fara með skipi sínu. Með bestu hamingjuóskum til ykkar allra og kærri kveðju til allrar fjölskyldu yðar. Yðar einlægur Geo. H. F. Schra- der.“ Bréfiö afhenti Schrader Stefáni skipstjóra og bað hann fyrir þaó til Steingríms læknis. Bréfið ber með sér að Schrader hafði tekið ákvörðun um að hans hlutverki væri lokið. Hann hafði tek- ið ákvörðun um að stytta sér aldur. Strax um nóttina, aðfaranótt 18. nóvember 1915, dró Schrader fram skambyssu sína, komst úr káetu upp á þilfar, hallaði sér út fyrir borð- stokkinn og hleypti af. Schrader féll í vota gröf, hans merka kafla í sögu Akureyrar var lokið. „Þegar fréttin barst heim til Ak- ureyrar, varó okkur krökkum og unglingum órótt innanbrjósts. Okkur féll illa að heyra, hver endalok hans urðu, dýra- og bamavinarins Schra- ders, útlendingsins, sem lét ser svo annt um útigönguhrossin á íslandi og vildi benda á úrbætur þessum blessuóum skepnum til hagsbóta og einnig gleðja bömin, sem hann sá hlaupa eftir götunum í litla bænum norður við hið ysta haf,“ segir Hulda Á. Stefánsdóttir í endurminningum sínum. Kaup Akureyrarbæjar á „Caroline Rest“ Sigurður Sigfússon segir í áður- nefndri grein sinni í Súlum að „Caroline Rest“ hafí verið rekin með svipuðu sniði næstu árin en fjótlega hafi farið að halla undan fæti, þörfin fyrir hesthúsið farið minnkandi sam- hliða aukinni vélmenningu og aukn- um kröfum um gistirými. Samhliða þessu hafi vegur og virðing „Caro- line Rest“ farið þverrandi. Þann 12. maí 1947 keypti Akur- eyrarbær síðan „Caroline Rest“ á matsverði og þar með lauk sögu góðgeróastofnunarinnar „Caroline Rest“ eins og frumkvöðullinn, Ge- orge H. F. Schrader hugsaði sér starfsemi hennar í upphafi. Allt til ársins 1979 bjó fólk í hús- inu. Fjármunir vom ekki lagðir í nauðsynlegt viðhald og það grotnaði niður í tímans rás. Hins vegar er ómögulegt að segja hvað gert hefði verið við „Caroline Rest“ í dag. Lík- lega hefði húsið verið gert upp og það fellt inn í það listsamfélag sem nú er að verða til í Grófargili. Hver veit nema þar hefði verið innréttað snoturt kaffihús og nefnt „Café Car- olina“ eða „Kaffihús Carolinu og Schraders“? .óþh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.