Dagur - 20.12.1994, Blaðsíða 18

Dagur - 20.12.1994, Blaðsíða 18
18 B - DAGUR - Þriðjudagur 20. desember 1994 Verslunarstaðurinn Kolkuós Þegar farið er um Skagafjörð austanverðan, kemst maður varla hjá því að renna augum til sjávar að þeim fagra stað, sem Kolbeinsá endar feril sinn um Viðvíkur- sveit, sem í Landnámu og fleiri fornum fræðum nefnist Kolbeinsárós. inn 11. september árið 1816 voru nokkrir staðir á Islandi löggiltir, sem verslunar- staóir, en nefnd sú er af konungi hafði verið skipuð til að gera tillögu í þessu máli áleit einróma að það mundi verða kaupstöðum þeim er fyrir voru til stórs hnekkis ef verslunarstöðum væri fjölgað. Til dæmis hafði á Siglufirói verió ein lítil versl- un síóan árið 1788. Með því að Siglufjöróur var ekki talinn með árið 1816, bar amtmaður fram fyrirspurn um það, hvort leggja skyldi niður verslunina á Siglufjarðareyri. Jafnframt mælti hann eindregið meó því, að svo yrði ekki gert heldur yrði staðurinn Iöggilt- ur, því að fjölgun löggiltra verslunarstaða í Norðuramtinu væri nauösynleg til aö efla at- vinnuvegina, auka framleiðslu afurða og bæta verslunina. Arangur fyrirspurnar amtmanns varð sá, að konungur brá hart við og löggilti Siglufjörð sem verslunarstað 20. maí árið 1818 og hefir sá dagur síðan verið haldinn hátíðlégur af Siglfirðingum á heimaslóð. Frá þessu sögusviði 18. aldarinnar og allt fram á þá 19. hafa komið fram á þingi hinar furðulegustu tillögur um löggildingu verslunarstaöa. Hermann Jónsson á Þingeyrum flutti t.d. árið 1905 frumvarp um löggildingu Lambhúsavíkur á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu. í ljós kom í tíma að flutningsmaður var ekki kunnugur málinu né staðháttum. Guólaugur Guð- mundsson, sýslumaóur, taldi að meinlaust gæti verið að löggilda höfn, sem enginn þekkir - ekki einu sinni flutningsmaður sjálfur eða er ekki einu sinni til í landinu. Fá hafnarmál hafa orðið að lögum jafn erfiðislítið og löggilding verslunarstaóar að Bakkabúð við Arnarfjörð árió 1907. Ekki verður séð hver hefir flutt málið, engin rök voru borin fram og enginn tók til máls um það. Samþykkt var þaó og meira að segja umræðu- laust. Suðureyri við Tálknafjörð hlaut aftur á móti löggildingu út á beiðni eigandans eina saman. Rökstuðningur fyrir löggildingu Breiðavíkur í Vestur-Barðastrandasýslu var aðal- lega sá, að löggildingin mundi hækka verðmæti jarðarinnar. Flutningsmaóur beggja þessara frumvarpa, Hákon Kristófersson í Haga á Barðaströnd, var ekki aðeins hjálpsamur í sínu kjördæmi. Þegar óskað var löggildingar á Siguróarstaðavík á Melrakkasléttu, var Hákon sá eini sem tók til máls og hafði þau einu rök „að þetta gæti ekki skaðað.“ Þessi mál voru afgreidd 1922 og 1929 án álits Alþingis. Nokkru áður hafði Kristján yfirdómari Jónsson sagt: „Vér höfum fyrir nokkrum árum löggilt höfn, sem nefnd var Kárahöfn - en sem enginn veit hvar er og ekki hefir fundist enn.“ Víkjum nú að upphafi og tilefni þessa greinarkoms sem er „Nokkrar minningar um Kolkuós“ eftir Asgrím Hartmannsson, fyrrverandi bæjarstjóra í Ólafsfirði, en hann fæddist á Kolkuósi 13. júlí 1911, sonur Hartmanns Asgrímssonar, kaupmanns þar og konu hans Krist- ínar Símonardóttur. Hartmann gekk í Möðmvallaskólann veturinn 1894. Þau hjónin fluttust að Kolkuósi og þar stofnaði Hartmann sína eigin verslun árið 1900. Ásgrímur sonur þeirra ólst upp í foreldrahúsum þar til hann fluttist til Ólafsfjarðar árið 1935 og kvæntist þar Helgu Sigurðardóttur frá Höfn. (Myndirnar sem fylgja eru úr myndasafni Ásgríms). Samantekt: Björn Dúason. Nokkrar minningar um Kolkuós „í þann tíma kom út skip í Kolbeinsárósi, hlaðið kvikfé, en þeim hvarf í Brimnesskógum unghryssi eitt; en Þórir dúfunef keypti vonina og fann síðan. Það var allra hrossa skjótast og kölluð Fluga.“ Kolkuós, sem fékk löggildingu sem verslunarstaður árið 1881. Ekki þjónaði staðurinn aðeins sem slíkur hcldur og einnig sem samkomustaður fyrir hreppsbúa enda mun Kolku- ósshúsið hafa verið eitt af stærri húsum sveitarinnar og húsið oft notað fyrir fundi og stærri samkvæmi. Sláturhúss- loftið var líka oft notað fyrir w leiksýningar og dans- ” skemmtanir. / A13. öld er Kolbeinsár- ós nefndur ein skag- firskra hafna með þeim tíu staða á land- inu, þar sem getió er um skipakomur. „Kolbeinsárós (Kolkuós) var löggiltur verslunar- staður áriö 1881. Jón Jónsson, landshöfðingjaritari, sem mælti fyrir frumvarpinu um löggildingu, segir að þetta væri ein elsta höfn landsins, hafi lengi verið aðalhöfn Hólabiskupa og að Jón Arason ætti þessari höfn að þakka bisk- upsdóm sinn.“ Þá eru taldar heimildir fyrir því að Líkaböng hafi verið skipað upp á Kolbeinsárós og flutt aó Hólum á vagni. Þá eða fyrr þurfti að ryója um Kolbeinsárós og Brimnesskóg til að greiða leiðina til Hóla, sem ritað er um í fornum heimildum. Vegur þessi ber enn nafnið Vagn- braut. „Kolbeinsárós (Kolkuós) í Vió- víkursveit var aðalhöfn og versl- unarstaður Skagfirðinga á Þjóð- veldistímanum og líklega allt fram undir siðaskiptin og þar hafði biskupsstóllinn á Hólum aðalupp- sátur fyrir skip sín því þar hafa án efa verið vörugeymslur og oft ver- ið þar mannmargt í kauptíðum. Talið er aó nokkru fyrir siða- skipti hafi kirkja eða bænhús verið reist í Kolbeinsárósi og hafi þaó verið eina bjálkakirkjan, sem reist varð á landi hér.“ Fyrir aldamótin voru fjögur verslunarhús í Kolkuósi, sem kaupmenn á Sauðárkróki áttu og auk þess eitt, sem var í eigu Pönt- unarfélags Skagfirðinga. Árið 1891 settist Tómas Isleifsson og kona hans Guðrún Jóelsdóttir að í Kolkuósi. Hann var söðlasmiður. Þau fluttu til Vesturheims árið 1903. Eins og sjá má, styður ofan- skráð þá ímynd að á þeim tíma hafi nokkur umsvif veriö í Kol- beinsárósi, auk vöruuppskipunar hafi verið róið til fisköflunar, skógurinn hafi verió nytjaður meðal annars til kolagerðar og sést ennþá móta fyrir viðarkola- gryfju. Um aldamótin 1900, þegar Hartmann Ásgrímsson hóf verslun þar, voru sjö kaupmenn sem stunduðu verslun í Kolkuósi, aðal- Iega á sumrin og er til mynd af þeim ásamt honum. Árið 1901 hóf Hartmann versl- un á Kolkuósi. Árió 1902 var reist hús yfir verslunina. Var það tveggja hæða timburhús byggt yfir steyptan kjallara. Það er ekki lengur til. Sama ár var byggð neðri hæð íbúðarhúss yfir kjallara og lauk þeirri byggingu áriö 1903. Ibúðarhúsið stendur enn og er hið reisulegasta, tveggja hæöa timbur- hús á hlöðnum kjallaraveggjum. Ekki hefur verió búið í því í nokk- ur ár og þarf nú lagfæringar við ef varðveitt verður. Húsið smíðaði Jón Björnsson frá Ljótsstöðum í Hofshreppi, þá ungur og lærður, eftirsóttur smið- ur. Ári síðar endurbyggði Jón Hofstaðakirkju og stendur sú kirkja ennþá. Árið 1913, reisti Hartmann sláturhús með rishæð úr stein- steypu, sem enn stendur og árið eftir réttarhús áfast vió að sunnan, úr sama efni. Ris var á því og þar svefnstaður manna sem unnu að slátrun. Réttarhúsið tók þrjú til fjögur hundruð fjár, en það var sá fjöldi sem hægt var að slátra yfir daginn. I norðurenda þess húss voru afþiljaðar geymslur, önnur fyrir gærur, hin fyrir salt. Réttarhúsið í Kolkuósi var merkileg framkvæmd á sinni tíð og sýnir hvaó Hartmann var á undan sinni samtíð á ýmsum svió- um. I áratugi eftir þetta voru engin réttarhús á Sauðárkróki. Jón Bjömsson, síðar bóndi á Ljótsstöðum, reisti öll hús á Kolkuósi eða var yfirsmióur. Árið 1902 fluttist Hartmann ásamt konu sinni Kristínu Símon- ardóttur til Kolkuóss og hófu þau þar nokkurn búskap og fljótlega umfangsmikla verslun, allt til árs- ins 1930. Árið 1912 sigldi Hart- mann til Skotlands, Danmerkur og Svíþjóðar í verslunarerindum. Þegar sími var lagður um Viðvík- urhrepp var Kolkuós gerður að síma- og póstþjónustustöó. Eftir að Eimskipafélag Islands var stofnað 1914 og flutningar um- hverfis landið hófust var Kolkuós viðkomustaður og við komu skipa

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.