Dagur - 20.12.1994, Side 37

Dagur - 20.12.1994, Side 37
Björn Rögnvaldsson á sýslu- ^ mannskontórnum í Ólafsfirði. ^ Mynd: óþh Aliðnu sumri urðu sýslu- mannsskipti í Ólafsfirói. Kjartan Þorkelsson, sem verið hafði sýslumaður Ólafsfirðinga í nokkur ár, var ráðinn í embætti sýslu- nianns Húnvetninga eftir að Jón ísberg lét af því embætti. Við embætti sýslumanns í Ólafsfirði tók Björn Rögnvaldsson, fulltrúi við sýslumannsembættió á Akur- eyri. Blaðamaður heimsótti Björn á sýslumannskontórinn í Ólafs- fírði. „Eg kann mjög vel við mig í þessu starfi,“ sagði Björn. „Þetta er í sjálfu sér ekki svo mjög frá- brugðið starfi fulltrúa við sýslu- mannsembættió á Akureyri nema að hér fæst ég vió alla málallokka. Á Akureyri deilast verkefnin nið- ur á menn, fulltrúar sinna ákveön- um málaflokkum. Við embættið hér í Ólafsfirði er ekki löglærður fulltrúi og því verð ég að afgreiða öll þau mál sem þarfnast lögfræði- legrar afgreiðslu.“ Fjölbreytt og skemmtilegt starf - segir Björn Rögnvaldsson, sem tók við emb- cetti sýslumanns Ólafsfirðinga á liðnu sumri - Nú heyra sýslumenn beint undir dómsmálaráðuneytið. Ert þú undir járnaga ráðuneytisins? „Svo framarlega sem við förum aó lögum og reglum hefur ráðu- neytið lítil afskipti af okkur. En ráóuneytið gefur auðvitað út fyrir- mæli sem okkur ber að fara eftir. En aó öðru leyti styðjumst vió við lög og reglur án afskipta dóms- málaráóuneytisins.“ - Fylgja sýslumenn einhverjum sérstökum siðareglum? „Já, það má segja það. Það er starfandi félag sýslumanna, sem hefur sett sér ákveónar siðareglur. Viö veröum aó sýna fordæmi og okkar er að gæta þess aö eftir lög- um og reglum sé farið í viðkom- andi umdæmi.“ í mörg horn að Iíta - Jajhframt því að vera sýslumað- ur ertu líka lögreglustjóri. Hvern- ig er háttað daglegum samskiptum þínum við lögregluna? „Lögreglan lítur hingaó inn til mín í upphafi hverrar vaktar. Eins fæ ég afrit af dagbók lögreglunnar aó jafnaði einu sinni í viku og þannig fylgist ég vel með því sem er að gerast.“ - Er starf sýslumanns skemmti- legt? „Já, það get ég hiklaust sagt. Þetta er mjög fjölbrcytt og sér- staklega þar sem ég er hér eini löglærði starfsmaðurinn, þá öðlast ég mikla og góða reynslu. Við stóru sýslumannsembættin er hættan sú að lögfræðingar verði sérhæfðir í ákveðnum málaflokk- um cn hér þarf maður að fást við allt.“ - Hvernig er starfi sýslumanns háttað? Hversu langur er vinnu- dagurinn? „Ég skila dagvinnutíma og síð- an er ég alltaf á bakvakt, jafnt að degi sem á nóttu. Þurl'i lögreglan á liðsinni að halda leitar hún til mín, á hvaða tíma sólarhrings sem er." Full þörf fyrir embættið Mikil umræða varð fyrir nokkrum misserunt um að leggja bæri niður embætti sýslumanns í Ólafsfirði. Björn orðaði þaó svo að ekki væri útséð um það ennþá, en núna væru ekki uppi á borðinu tillögur í þá veru. Áð fenginni nokkurra mán- aða reynslu af starfi sýslumanns Ólafsfirðinga telur Björn aó full þörf sé fyrir þetta embætti. „Til þess að gera þessa einingu hag- kvæmari má vel hugsa sér að und- ir hana heyri Dalvík og Svarfaðar- dalur. Ég tel það alls ekki óraun- hæft, en þaö er auðvitað annarra að ákveða.“ I úttekt í einu dagblaðanna síðsumars kom fram að bróður- partur sýslumanna væri annað- hvort flokksbundnir sjálfstæöis- eða framsóknarmenn. Athygli vakti að Birni Rögnvaldssyni var hvorki skipað í bás sjálfstæðis- né framsóknarmanna. „Ég hef ekki gefið út að ég til- heyri ákveðnum stjórnmálaflokki. Ég lít á mínar pólitísku skoðanir sem mitt einkamál.“ Af mölinni út á land Bjöm Rögnvaldsson er Reykvík- ingur í húð og hár. Hann útskrif- aðist frá Menntaskólanum við Sund árið 1980 og síðan lá leiðin í lagadeild Háskóla íslands þaðan sem hann útskrifaöist í júní 1986. „Ég var ráðinn til starfa hjá Reykjavíkurborg og var þar fram i janúar 1987. Þá fór ég norður á Akureyri og fékk starf hjá sýslu- mannsembættinu þar.“ - Af hverju komstu hingað norður? „Mér fannst spennandi aó fara út á land, ég hafði alltaf verið á mölinni. Ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun og það er ckki á stefnu- skránni að fara aftur suöur.“ Björn segist ekki linna l'yrir því að hann sakni eins eóa neins úr skarkala stærri þéttbýlisstaða, en hins vegar sé þaó mikill kostur að ekki sé lengra en raun ber vitni til Akurcyrar. Leiðin þangað sé greið eftir að jarógöngin um Ólafsljarð- armúla kontu. KA-maðurinn í „Leiftursgryfju“ En hvernig koma Ölafsfiróingar Birni fyrir sjónir? Eru þeir á ein- hvem hátt frábrugðnir Akureyr- ingum eða Reykvíkingum? „Nei, það get ekki séð. Eini munurinn er ef til vill sá að Ólafs- fjörður er minna byggðarlag og þess vegna er hér rólegra yfir mannlífinu en á stærri þéttbýlis- stöðum.“ - Ertu kannski farinn að öskra „Afram Leiftur“ á kappleikjum? „Þaö fer að líða að því,“ sagði Björn og brosti, en þess má geta að hann var gjaldkeri knattspyrnu- deildar K.A. á Akureyri og þess vegna hefur hjartað slegið meó K.A. - En ertu kannski genginn í Rotaryklúbbinn hér í Olafsfirði. Mér skilst að hann sé afar öfiug- ur? „Nei, reyndar ekki. Ég er í klúbbum inni á Akureyri og reikna nteð aó starfa áfram í þeim.“ Eiginkona Björns er Siglfirð- ingurinn Auður Helena Hinriks- dóttir. Börn þeirra eru þrjú; Hafdís Huld 8 ára, Rögnvaldur 2ja ára og Andrés Helgi á fyrsta ári. óþh Hundahótelið á Nolli og Hundaskóli Súsönnu óska öllum hundaeigendum gleðilegtA jóU og farsældar á nýju ári. hökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. * Oskum öllum Hríseyingum svo og landsmönnum öllum nær og fjær gleðilegva jóU og farsældar á nýju ári. Þökkum liðið ár. $ Hreppsnefnd Hríseyjarhrepps. Afengisvarnanefnd Akureyrar óskar Akureyringum og öðrum Norðlendingum og farsæls komandi árs Án áfengis verða jólin hátíð gleði og friðar. Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegrA jólA og farsældar á komandi ári. hökkum viðskiptin. M METRO Furuvöllum 1 - Sími 12785. Oskum Eyfirðingum svo og landsmönnum öllum og farsældar á nýju ári. Búnaðarsamband Eyjafjarðar Óseyri 2 - Akureyri.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.