Dagur - 30.12.1994, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Föstudagur 30. desember 1994
skyr með ijóma
ijómapönnukökur
kaffí með ijóma
ijómasósur
ávextir með ijóma
rjómatertur
vöfflur með ijóma
ijómaís
kakó með ijóma
ijómakökur
bláber með ijóma
ijóma......
uhmm!
ijóminn
gerir
gæða-
muninn
- líka á jólunum
Mjólkursamlag KEA
Mfnnísverðustu atburðfr ársins
Sigurjón Benediktsson:
Framdi lögbrot
með þingmönnum
„Eftirminnileg-
asta atvik ársins
í mínum huga er
þegar ég stóð
með þingmönn-
um kjördæmis-
ins og framdi
það dásamlega
lögbrot að
græða upp Hólasand,“ segir Sig-
urjón Benediktsson, tannlæknir og
bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
á Húsavík.
„Kosningasigur í sveitastjóm-
arkosningunum í vor og annar hé-
gómi kemst ekki nálægt því at-
viki. Kosningasigurinn í vor var
hins vegar sætur og stór og reynd-
ar of sætur fyrir suma. Einnig er
mér minnisstætt þegar ég fór í
fjárleitir með Andrési á Kvíabekk.
Við fórum sex menn saman ríð-
andi í Kvíabekksdal og komum
heim með fimm rollur.
Einnig er eftirminnilegt aó hafa
verið beóinn af Degi að segja
hvað mér fmnst eftirminnilegast á
árinu. Það er mikill heiður og er
mér því ofarlega í huga.
Af erlendum vettvangi er mér
minnisstæðast að hafa verið vió-
staddur þegar Hillary Clinton, for-
setafrú, flutti ræðu um nýtt heil-
brigóiskerfi í Bandaríkjunum og
ég hreifst mjög af, enda tókst
henni vel upp. Þá var ég staddur
einhvers staðar í Charlotte í
Bandaríkjunum." KK
Anna Kristín Gunnarsdóttir:
Sigurinn í bæjar-
stjórnarkosningunum
„Skemmtileg
kosningabarátta
og sigur Al-
þýðubandalags-
ins í bæjar-
stjórnarkosning-
unum á Sauðár-
króki í vor er
mér efst í huga,“
segir Anna Kristín Gunnarsdóttir,
kennari og bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins á Sauðárkróki.
„Þessi harða lífsbarátta sem
fólk þarf að heyja og fer alltaf
versnandi er mér ofarlega í huga.
Einnig hversu áberandi það er að
ráðist er að þeim sem eiga erfitt
með að verja sig. Ekki er hægt
annað en aó minnast á spillingar-
mál Alþýóuflokksins og allan
klíkuskapinn þar á bæ, sem virðist
engan enda ætla að taka. Þá hefur
verið furöulegt að horfa upp á
þennan blekkingarleik sem ríkis-
stjómin hefur uppi, um að bæta
eigi kjör hinna lægst launuðu og
forsætisráðherra hefur talað um í
nokkra mánuði.
Af erlendum vettvangi er mér
hugstæð umræðan sem oröið hef-
ur um Evrópusambandið í sumar
og hver reynsla annarra þjóða cr
af veru sinni í sambandinu, t.d.
varðandi mál sem skipta okkur
miklu máli. Ferjuslysið milli Sví-
þjóðar og Eistlands er eitt af því
sem ég man eftir og einnig
áframhaldandi stríðsrekstur í
Júgóslavíu.“ KK
Jakob Björnsson:
Breytingar á
mínum högum
„Sveitarstjórna-
kosningamar í
vor og ekki síst
þaó sem geróist
eftir þær, er mér
efst í huga. Þá
urðu verulegar
breytingar á
mínum högum,
eftir að hafa starfað lengi hjá sama
fyrirtækinu,“ segir Jakob Bjöms-
son, bæjarstjóri á Akureyri.
„Starf bæjarstjóra er mjög frá-
brugðið bæði starfinu hjá Skinna-
iðnaöi og reyndar öllu sem ég hef
komið nálægt áður.
Ferðin til Rússlands er mér
einnig mjög eftirminnileg, þar
sem við stofnuðum til vinabæja-
sambands viö Murmansk. Það var
mikil upplifun að koma þangað og
sjá hvernig þar er umhorfs og við
hvernig aöstæður fólkið þar býr.
Þá er mér einnig ofarlega í huga
hversu veðrið var gott á Akureyri
í sumar.
Það þykir kannski ekki við-
burður lengur að einhvers staðar
sé stríð en þessi þróun í fyrrver-
andi Júgóslavíu er alveg sorgleg
og ástandið þar kemur oft upp í
hugann. Það er með ólíkindum
hversu vanmáttug Vesturveldin
eru og hversu erfitt þau eiga meó
að grípa inn í stríósreksturinn þar
og koma málum til betri vegar.“
KK
Gunnar Jónsson:
Vel tókst tíl í
Sundlauginni
„Þetta mikla at-
vinnuleysi í
landinu og ekki
sér fyrir endann
á, er mér efst í
huga. Eg veró
töluvert var við
þetta ástand í
mínu starfi, þar
sem við erum meó ráðningarþjón-
ustu. Fólk kemur mikið hingað og
ræóir sín mál og þaó er ekki bjart-
sýnt,“ segir Gunnar Jónsson,
skrifstofustjóri hjá Endurskoóun
Akureyri hf.
„Þaó var mjög ánægjulegt að
ráðist var í framkvæntdir við
Sundlaug Akureyrar og lokiö við
fyrsta áfangann eftir langa mæðu.
Þar tókst mjög vel til að mínu
mati og mér skilst að það séu
flestir ánægðir nteð árangurinn.
Af erlendum vettvangi er mér
efst í huga þaó sem er að gerast í
Rússlandi og austurhluta Evrópu.
Þessi innrás Rússa nýlega inn í
Grosní í Tsjetsjníju gæti haft al-
varlegar afleiðingar. Þar gæti
leynst tímasprengja og menn því
átt von á frekari stríðsátökum, líkt
og í fyrrum Júgóslavíu. - Og
manni finnst þaö skrýtið að ekki
skuli hægt að stoppa allar þær
hörmungar sem eiga sér stað, í
næsta nágrenni okkar, eins og t.d.
í Júgóslavíu. Þarna heldur áfram
stríðsrekstur mánuó eftir mánuð
og menn standa hjálparvana og
horfa á allar hörmungarnar.“ KK
Þórarinn B. Jónsson:
Prófkjöríð
og kosningarnar
„Það sem að mér
sjálfum snýr er
prófkjörið og
kosningamar
þaó eftirminni-
legasta lrá ár-
inu,“ sagöi Þór-
arinn B. Jóns-
son, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins á Akur-
eyri og umboðsmaður Sjóvá-Al-
mennra.
„Eg var ákveðinn í að fara í
þennan slag, mér fannst full þörf á
því aö nýir menn kæmu inn í raðir
sjálfstæóismanna. Það sem af er
hefur þessi fyrsta pólitíska reynsla
verið afar lærdómsrík. Eg hef far-
iö mér hægt til þessa, ég hef verið
að læra.
Hér innanlands hefur mér fund-
ist áhugaverð þessi umræða um
Evrópusambandió og hvernig
menn hafa skipst í flokka gagnvart
því. Þá eru Smuguveiðamar og öll
umræðan um þær eftirminnileg.
Og það sem að mér snýr er vert að
geta óróans á tryggingamarkaðn-
um vegna Skandia. Hvað minn
flokk áhrærir, þá fmnst mér Davíð
Oddsson hafa verið aó styrkja sína
stöðu. Hins vegar er ég ekkert sér-
staklega bjartsýnn fyrir hönd
Sjálfstæðisflokksins á kosningam-
ar í apríl nk. Eg hygg aó flokkur-
inn sé í þeirri stöðu að halda sjó.
Og sem laxveiðimaður er ég held-
ur ekkert sérstaklega bjartsýnn á
laxveiöina næsta sumar. Eg tel að
seiðabúskapurinn í ánum sumarið
1993 gefi til kynna að ekki sé að
vænta stórlaxa næsta sumar. Eg
hugsa því aó maður haldi sig
meira á golfvellinum næsta sumar
en í laxveiðinni.
Af erlendum vettvangi er
merkilegt það sem er að gerast og
hefur verió að gerast í Rússlandi
og löndum Austur-Evrópu. Og
það eru jákvæð teikn á lofti um að
heimskreppan sé í rénum og það
mun skila sér á jákvæðan hátt í
okkar efnahagslífi.“ óþh
Auður Hörn Freysdóttir:
Flutti aftur
til Akureyrar
„Það sem stend-
ur upp úr hjá
mér persónulega
á árinu er að ég
ílutti aftur til
Akureyrar eftir
að hafa búið í
Reykjavík í 6 ár
og að ég hóf
störf hjá nýstofnaðri Skrifstofu at-
vinnulífsins á Norðurlandi um
mitt árið,“ sagði Auður Hörn
Freysdóttir, en hún veitir Skrif-
stofu atvinnulífsins forstöðu.
Af vettvangi þjóðmálanna
sagði hún margs að minnast. „Mér
eru Smuguveiðarnar minnisstæð-
ar, bæði vegna þeirra tekna sem
þær hafa skapað og einnig að þær
hafa orsakað deilu við vinaþjóð
okkar, Norómenn.
Þá er mér einnig Lýðveldisaf-
mælið minnistætt. Okkur er alltaf
hollt að minnast þess hversu hörð
og langvinn sjálfstæðisbarátta
okkar var á sínum tíma,“ sagði
Auður Hörn. HA
María Björk Ingvadóttir:
Gífurleg vinna og
óvæntar breytingar
„Þetta ár hefur
einkennst af gíf-
urlegri vinnu hjá
mér og ýmsum
óvæntum breyt-
ingurn," sagði
María Björk Ing-
vadóttir, frétta-
maður Ríkisút-
varpsins á Sauóárkróki.
„Þegar ég rifja upp atburði árs-
ins kemur fyrst upp í hugann opn-
un kaffihússins, Kaffi-Króks, sem
við hjónin settum á laggirnar í
byrjun sumars. Þá er einnig ofar-
lega í huga mikill undirbúningur
fyrir Sumarsælu Skagfirðinga í
júní, en af einhverjum ástæðum
dróst ég inn í þá viku sem varð í
raun að mörgunt mánuðum, því
ein Sæluvika er ekki hrist fram úr
erminni si svona. Þess vegna var
utanlandsferð fjölskyldunnar í
haust kærkomin afslöppun þar
sem orkustöðvarnar voru hlaðnar
á ný.
Þetta ár finnst mér hafa ein-
kennst af miklu umróti og breyt-
ingum bæói hér á landi og annars
staóar. Ég held að það eigi sér
staó miklar hreinsanir og við séurn
að ganga inn í nýtt tímabil eftir
allt of langa lognmollu. Ég held
1