Dagur - 30.12.1994, Síða 24
Akureyri, föstudagur 30. desember 1994
Norðurland:
Skíðasvæðin
opnuð hvert
aföðru
Skíðaunnendur á Norðurlandi
geta farið að taka gleði sína
því þegar er byrjað að opna
skíðasvæði á nokkrum stöðum
og styttist í það hjá öðrum. Opn-
að hefur verið á Siglufirði, Dal-
vík og í Ólafsfirði. Skíðasvæði
Dalvíkinga í BöggvisstaðaQalli
var opnað í fyrradag og verður
síðan opið alla daga eins og veð-
ur og aðstæður leyfa. Nægur
snjór er kominn í skíðabrekk-
urnar á Dalvík og því geta jafnt
ungir sem aldnir drifið sig á
skíði.
í dag verður skíðasvæðið í Ól-
afsfirði opnað ef veður verður
hagstætt. „Við erum búnir að vera
með troðna göngubraut í um hálf-
an mánuð og héldum mót á annan
í jólum. Hins vegar hafa vindáttir
ekki verið hagstæðar fyrir fjallið
héma, en þetta er allt að koma,“
sagði Bjöm Þór Ólafsson í Ólafs-
firði.
A Siglufirði hefur skíðasvæðið
á Skarðsdal verið opnað, var
reyndar opnað fyrir jól. Þar er
nægur snjór. Þess má geta að nú
dvelur 15 manna hópur skíðafólks
frá Siglufirði í æfingabúóum í
Austurríki.
Ivar Sigmundsson, umsjónar-
maöur skíðasvæðisins í Hlíðar-
fjalli ofan Akureyrar, sagði enn
vanta snjó til að hægt sé að opna.
„Það vantar kannski ekki nema
eina góða snjókomu til að þetta
hafist og við látum örugglega frá
okkur heyra þegar verður opnað,“
sagði Ivar.
Húsvíkingar eiga sennilega
lengst í Iand með að geta drifið sig
á skíði í Húsavíkurfjalli. Sveinn
Hreinsson, tómstundafulltrúi á
Húsavík, sagði vindáttir hafa verið
óhagstæðar það sem af er og enn
væri snjórinn bara í sköflum. HA
íþróttamaður ársins vaiinn í 39. sinn:
Magnús Scheving
varð fyrir valinu
Magnús
Scheving,
þolfimimaður
úr Ármanni,
var í gær út-
nefndur
íþróttamaður
ársins 1994. Það
eru Samtök
íþróttafréttamanna sem að kjör-
inu standa og var þetta í 39. sinn
sem íþróttamaður ársins er
heiðraður. Magnús hlaut 395
stig, Arnór Guðjohnsen, knatt-
spyrnumaður með sænska liðinu
Örebro, hafnaði í öðru sæti með
280 stig og Martha Ernstsdóttir,
frjálsíþróttakona úr ÍR, í því
þriðja með 126 stig.
Skapti Hallgrímsson, formaður
Samtaka íþróttafréttamanna, lýsti
kjörinu í hófi á Hótel Loftleiðum í
gærkvöld og um Magnús sagói
hann m.a: „Magnús varð Islands-
meistari í þolfimi af miklu öryggi
snemma árs, þriðja árið í röð, síð-
an Evrópumeistari með miklum
yfirburðum og loks lenti hann í
öðru sæti á heimsmeistaramótinu í
Japan. Þar munaði aðeins hárs-
breidd á honum og heimsmeistar-
anum - 0,04 stigum en þeir voru í
algjörum sérflokki.
Síóla árs sigraði Magnús svo á
sterku boðsmóti í Suóur Kóreu.
Magnúsi hefir tekist að koma lítt
þekktri íþróttagrein á kortið hér á
landi, ef svo má segja; hefur gert
það með eftirminnilegunr hætti
enda glæsilegur og hæfileikaríkur
íþróttamaður á feró.“
Arnór Guójohnsen hefur lengi
verið í fremstu röð íslenskra
knattspyrnunranna og hann var
einmitt kjörinn íþróttamaður árs-
ins 1987. Arnór leikur sem at-
vinnumaður með sænska liðinu
Örebro og leikmenn sænsku úr-
valsdeildarinnar völdu hann leik-
mann mótsins í árlegri kosningu í
haust.
Martha Ernstsdóttir hefur lík-
lega aldrei staðið sig betur en á
þessu ári. Hún setti Islandsmet í
10.000 m hlaupi í Dublin og í
5.000 m hlaupi í Hollandi. Einnig
setti hún Islandsmet í hálfmara-
þoni í Reykjavíkurmaraþoninu og
Islandsmet í heilu maraþoni í
Frankfurt. Martha hefur því þegar
náð lágmarki í 5 og 10 km hlaupi
fyrir heimsmeistaramótið á næsta
ári.
Pétur Guðmundsson, frjáls-
íþróttamaður úr KR varö í 4. sæti,
Sigurður Sveinsson, handbolta-
maður í Víkingi í 5. sæti, Jón Am-
ar Magnússon, frjálsíþróttamaóur
úr UMSS í 6. sæti, Jóhannes R.
Jóhannesson, snókerspilari í 7.
sæti, Ásta B. Gunnlaugsdóttir
knattspyrnumaður úr UBK í 8.
sæti, Geir Sveinsson, handknatt-
leiksmaður í Val í 9. sæti og
Vanda Sigurgeirsdóttir, knatt-
spymumaður úr UBK í 10. sæti.
Alls hlutu um 40 íþróttamenn
atkvæði í kjörinu að þessu sinni.
Á meðal þeirra voru Vemharð
Þorleifsson, júdómaóur úr KA,
Þorvaldur Örlygsson, knattspymu-
maður hjá Stoke, Patrekur Jóhann-
esson, handknattleiksmaður úr
KA, Eyjólfur Sverrisson, knatt-
spymumaður hjá Besiktas og Sig-
urpáll Geir Sveinsson, kylfiingur
úr GA. KK
INNANHÚSS-
MÁLNING
Eldur í jólaskreytingu
olli miklu tjóni
Slökkviliðið á Akureyri var í gær um klukkan 16.30 kallað út að
Hraunholti 6 á Akureyri en þar var eldur laus. Mikið tjón varð á inn-
veggjum, innréttingum, innanstokksmunum og fatnaði. Talið er að kerta-
logi hafi kveikt í jólaskreytingu og frá henni breiddist eldurinn síðan út.
GG/Mynd:Robyn
Hlutabréfasalan hjá Kaupþingi Norðurlands:
Aukning frá desember-
mánuði í fyrra
Sala hlutabréfa nær hámarki i
dag hjá verðbréfasölum. Góð
sala hefur verið síðustu dagana
hjá Kaupþingi Norðurlands á
Akureyri og stefnir í sölu hluta-
bréfa fyrir 100 milljónir í desem-
ber, sem er aukning frá í fyrra.
Jón Hallur Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Noróur-
lands, var ánægóur með viðskiptin
við lokun í gær. Hann sagði söl-
una hafa aukist nú síðustu dagana
og eins og komið hefur fram horfa
norðlensku fjárfestarnir mest til
norðlenskra fyrirtækja.
Athygli vekur söluaukning
hlutabréfa frá desember í fyrra
þrátt fyrir aö reglur hafi breyst og
nú þurfi að kaupa fyrir hærri upp-
hæð en áður. Aðspurður sagði Jón
Hallur að skýringuna kunni að
vera að finna í því að nú standi yf-
ir útboð hjá Hlutabréfasjóði Norð-
urlands og Kaupfélagi Eyfirðinga
en einnig kunni skýringu að hluta
til að finna í greiðslukjörum sem
boðin eru við hlutabréfakaup. Þó
er sá möguleiki ekki notaóur í
verulegum mæli.
Jón Hallur reiknaði meö lífleg-
um viðskiptum í dag enda síðasti
virki dagur fyrir áramót. JÓH
Kaup KEA og Valbæjar á Viking Brugg:
Viking hf. tekur til starfa á mánudag
- Baldvin Valdemarsson ráðinn framkvæmdastjóri í
Igær var stofnað hlutafélagið
Viking hf. um rekstur sam-
nefndrar drykkjarvöruverk-
smiðju á Akureyri. Eigendur fé-
lagsins eru Kaupfélag Eyfirð-
inga og Valbær hf. en þessir aðil-
ar keyptu bjórverksmiðjuna Vik-
ing Brugg á dögunum. í fram-
haldi af stofnun félagsins var
Baldvin Valdemarsson ráðinn
framkvæmdastjóri Viking hf.
Baldvin Valdemarsson hefur
verið framkvæmdastjóri Foldu hf.
á Akureyri frá stofnun þess fyrir-
tækisins. I samtali við blaðið síó-
degis í gær sagði hann nýja félag-
ið taka við bjórverksmiðjunni á
mánudag, 2. janúar, en ekki sé
endanlega frágengið hvenær hann
ljúki störfum fyrir Foldu hf.
Stofnhlutafé Viking hf. er 40
milljónir króna, sem skiptist jafnt
milli KEA og Valbæjar. Hvor að-
ili um sig skipaói tvo menn í
stjórn og komu sér síðan saman
um fimmta mann. Stjórnarformað-
gær
ur verður Magnús Gauti Gauta-
son, kaupfélagsstjóri, og aðrir í
stjórninni veróa Hólmgeir
Valdemarsson, heildsali, Hóhn-
geir Karlsson, verkfræðingur,
Baldur Guðvinsson, viðskipta-
fræðingur og Bjarni Jónasson,
efnaverkfræðingur. JÓH
Samantekt á banaslysum árið 1994:
O ÁRAMÓTAVEÐRIÐ
Veður fer heldur kólnandi í dag og
verður allhvöss norðan átt og élja-
gangur fram eftir degi um allt Norður-
land en síðag veróur norðanáttin
hægari og dregur úr úrkomu síðdeg-
is, þó sýnu hvassast austast. Á laug-
ardag og sunnudag, þ.e. gamlársdag
og nýjársdag, verður fremur hæg
breytileg átt en sums staðar dálítil
éljagangur við ströndina, en léttskýj-
að inn til landsins. Frost verður 1 til 5
stig. Á mánudag mun hæg suðlæg
átt hafa tekið völdin og verður þá létt-
skýjað og vægt frost á Norðurlandi.
42 einstaklingar farist á árinu
Samkvæmt bráðabirgðaniður-
stöðum á samantekt Slysa-
varnafélags íslands á banaslys-
um fyrir árið 1994, sem miðast
við daginn í gær, 29. desember,
hafa 42 einstaklingar farist á ár-
inu; 33 karlar og 9 konur. Níu
útlendingar fórust af slysförum
hér á landi og einn íslendingur
fórst í umferðarslysi erlendis.
Flestir fórust í umferðarslysum,
alls 18 einstaklingar eða tæp 43%,
í sjóslysum eóa vegna drukknana
fórust 10 eða tæp 24%, í ýmiss
konar slysum fórust 10 eöa tæp
24% og í flugslysum 4 eða rúm
9%.
Á árinu 1994 hafa orðið bana-
slys í hverjum einasta mánuði,
flest í september eða 8, í ágúst 7, í
janúar 6 og í apríl 5. I mars og
október varð 1 banaslys í hvorum
mánuði fyrir sig.
Á síðastliðnum 10 árum hafa
banaslys ekki verið eins fá og í ár
en þó er rétt að geta þess að enn
eru tveir dagar eftir af árinu. Alls
hafa orðið 550 banaslys á síöustu
10 árum og þar af hafa 53 útlend-
ingar látist. Flest voru banaslysin
á þessu 10 ára tímabili, árið 1986,
eða 74 og 62 árið 1988. KK
10 lítrar
frá
kr. 3.990,
0
|J KAUPLAND HF.
1 ^ Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
Vöfflujárn frá 4.880,-
Kaffivél frá 2470,-
0
KAUPLAND HF.
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
RAFTÆKI
í MIKLU ÚRVALI