Dagur - 07.01.1995, Side 11
Laugardagur 7. janúar 1995 - DAGUR - 11
PÝRARÍKI ÍSLANDS
SICURÐUR Æ6ISSON
Hvalir 3. þáttur
Langreyður
(Balaenoptera physalus)
Skíöishvölum er deilt niöur í þrjár
meginættir, þ.e.a.s. reyóarhvali (6
tegundir), sléttbaka (3 tegundir)
og loks gráhvali (1 tegund).
Langreyöurin er af undirætt-
bálki skíðishvala, en ætt reyðar-
hvala, og telst vera næststærst
allra hvala. Lengd fullorðinna
dýra á suðurhveli er frá 24-26 m,
og þyngdin um 80 tonn, en á
norðurhveli eru þessar tölur mun
lægri. Við Islandsstrendur eru
karldýr t.d. um 18 m á lengd að
meðaltali, en kvendýr um 19,5 m.
Langreyðurin þekkist auðveld-
lega frá steypireyðinni á litnum,
því hún er grásvört að ofanverðu
og hvít að neðan, og eru glögg
skil á milli litasvæðanna á síðun-
um. Að auki eru sérkennilega
ósamhverfir flekkir utan á haus-
hliðunum, þannig, aó á
hægri kjálka er hún ljós-
gul "X-
eða hvít,
en vinstra
megin svört.
Hausinn er frammjórri og odd-
hvassari en á steypireyði og ofan á
honum einkennilegur kambur,
sem gerir hann ekki eins flatan og
hann annars myndi vera. Blásturs-
súlan getur náð 4-6 m, hæð.
Bægslin eru löng og mjó, bak-
hyman tiltölulega há, eða um 60
sm, og styrtlan mjóslegin og jafn-
vel þunn til hliðanna. Skíðin eru
oftast hvít og blýgrá að lit, 260-
480 talsins, og slúta niður úr sitt
hvorum kjafthelmingi, eða alls
520-960 í gininu öllu, sem þá er
meira en steypireyðurin hefur. Þau
geta orðið um 72 sm löng og 30
sm breið.
Langreyður er að mestu úthafs-
hvalur, en er þó aó fínna í öllum
heimshöfum, mest í heimskauta-
sjó og á kaldtempruðum svæðum.
Hún er farhvalur og dvelur í hlýrri
sjó á veturna, yfirleitt frá nóvem-
ber til janúar, þar sem dýrin maka
sig og bera. Meðgöngutíminn er
um 12 mánuðir og er kálfurinn um
6,5 m við fæðingu og vegur rúm-
lega 1,5 tonn. Hann er á spena
næstu 6-8 mánuðina a.m.k., og
tvöfaldar lengd sína á því tímabili,
og er þá líka orðinn rúmlega 13
tonn á þyngd. Hann verður svo
kynþroska 6-12 ára gamall og er
búinn að ná fullri lengd við 15 ára
aldurinn.
Að mökun og burði loknum er
svo haldió til kaldari sjávar á ný,
og þá jafnvel allt að hafísbrún, og
safnast í þyrpingar á bestu átu-
svæðunum. Eru helstu stórhóparn-
ir oftast nefndir stofnar, og er
greint á milli 7 slíkra á N- Atlants-
hafi. Þeir eru: 1) A-Grænlands-ís-
landsstofn, 2) N-Noregsstofn, 3)
V- Noregs-Færeyjastofn, 4) Spán-
ar-Portúgals-Bretlandseyjastofn,
5) V-Grænlandsstofn, 6) Ný-
fundnalands-Labradorsstofn, og 7)
Nova Scotiastofn.
Talið er að langreyðurin nærist
lítið á vetrarstöðvunum og er hún
því mögur, er hún kemur á
sumarstöðvamar. Meginfæðan er
dýrasvif, eða svokölluð áta eða
kríli, en einnig er mikið tekió af
ýmsum smávöxnum uppsjávar-
torfufiskum, einkum um fartím-
ann, og má nefna þar síld og
loðnu, auk blekfisks. Syndir lang-
reyðurin gjarnan á hliðinni, þegar
fæðu er aflað, og er það talið auð-
velda henni að loka gríðarstórum
kjaftinum. Fer hún allt niður á 300
m dýpi eftir bráð sinni, og getur
verið 10-15 mínútur í kafi í einu,
en þaó er meira en steypireyðurin
gerir, alla jafna a.m.k.
Langreyðurin er algengasta
stórhvalategundin hér við land.
Fyrstu dýrin birtast á norðurslóð
sunnan úr höfum í marsmánuði,
en það er svo ekki fyrr en í maí og
byrjun júní aó megingangan kem-
ur. I talningum hefur mest sést af
langreyði vestur af Islandi, um
landgrunnsbrúnina, en einnig tölu-
vert vió strendur A-Grænlands og
á svæðinu djúpt SV af íslandi. Sá
stofn er nefndur A-Grænlands-Is-
landsstofninn, og hefur ætíö verið
aðalveiðstofn landsmanna. Hann
er nú talinn vera a.m.k. 6.000-
8.000 fullorðin dýr.
Langreyðurin hefur, eins og
frænka hennar, steypireyðurin,
farið illa út úr kynnum sínum
við mannskepnuna. Veiðar
gátu þó fyrst hafist aö
ráði eftir að nútíma
hvalveiðiskip,
þ.e.a.s. gufu-
bátar, komu
til sögunn-
N ar, með
nægileg- \
um hraða til \
að eltast við þenn-
an sundgarp; en langreyðurin er
talin komast allra skíðishvala
hraðast, eða um 35 km á klst. og
leggja að baki allt að 300 km á
dag. Um miðja þessa öld voru
felld um 30.000 dýr samtals um
heim allan, mest þó á suðurhveli.
Arið 1976 Iögðust veiðar þar af og
eins í N-Kyrrahafi.
Hér á norðurslóðum voru
Norðmenn drýgstir í langreyöinni
og eyddu að mestu stofninum við
eigin strendur, á 40 ára tímabili,
eða frá því um 1850 og fram undir
síðustu aldamót. A Islandsmiðum
hófust veiðar þeirra árið 1883 og
náðu hámarki árið 1904, þegar
562 dýr voru felld. Eftir það fór
að draga úr. Arið 1913 gerði al-
þingi svo úti um þessar veiðar
Norðmanna, með því að setja lög
sem bönnuóu allar hvalveiðar frá
árinu 1915. Það bann stóð þó að-
eins í 14 ár, eða til ársins 1929. Þá
komu Norómenn aftur og veiddu
til ársins 1937.
Islendingar hófu nútímahval-
veiðar árið 1935 og voru að til
1939, og tóku svo þráðinn upp aft-
ur eftir seinni heimsstyrjöld, eða
árið 1948, og hafa allt til þessa
dags haldið þeim áfram; hin síðari
ár þó eingöngu í rannsóknarskyni.
Hefur langreyður frá upphafi ver-
ið meginuppistaða aflans; að með-
altali veiddust t.d. 236 dýr á ári á
tímabilinu 1948-1984, sem lætur
nærri að vera um 90% af heild-
arfjölda veiddra hvala.
Heildarstofnstærð langreyðar
er talin vera um 120.000 dýr,
þ.e.a.s. um 20.000 dýr á norður-
hveli jarðar og um 100.000 á suð-
urhveli. Þetta er talið vera fjórð-
ungur af því sem var, þegar nú-
tímahvalveiðar hófust. Ýmislegt
bendir þó til, að að dýrin á norður-
hveli séu fleiri en áætlað hefur
verið fram að þessu.
Og að síðustu er þess að geta,
að talió er að langreyóurin geti
orðið allt að 100 ára gömul.
H
H
ELGARll EIL ABR0T
Umsjón: GT
15. þáttur
Lausnir á bls. 16
Hvaða borg í Danmörku cr vinabær Akureyrar?
I Álaborg K1 Árósar
Randers
fl' Hvaða króna er verðmætust?
fB Sú danska Sú norska D Sú saenska
Hvað hét elsta dóttír Benito Mussolinis?
H Alessandra CT Edda
Evita
Hvað skilur þjöfnað frá gripdeild?
| Leynd
Ofbeldi
Verðmæti þýfis
Hvenær á forseti lýðveldísins, Vlgdís Finnbogadóttir, afmaeli?
15. april Q 17. júni
12. desember
6
Hvaða áhrlf hefur það á dýptarskerpu (þ.e. það svæði sem er i fókus hverju sinni) að minnka Ijósop linsu?
Engin áhrif Dýptarskerpan minnkar WM Dýptarskerpan eykst
Hvert eftírtalinna skálda er fætt á Þorláksmessu?
I Hannes Hafstein Matthías Johannessen
Vatnsenda-Rósa
Hvort er hærra í krónum - barnalífeyrir frá Tryggingastofnun ríkisins vegna eins bams eða meðlag með einu barni?
I Barnalifeyrir Q| Meðlag Q jafnhátt
Hver varð heimsmeistari þrátt fyrir að hafa ekið á keppinaut sinn i ástralska kappakstrinum í nóvember?
| Fivaio Briatore Damon Hill IH Michael Schumacher
10
Hvert er suðustig vatns á Fahrenheit?
32
212
Hvaða tungumá! var lengl eins konar alþjóðlegt íþróttamál, td. i fimleikum?
Enska ES Franska
Kínverska
Hver er forsætisráðherra Sviþjóðar?
D Carl Bildt
Ingvar Carlsson
Enginn
Hvar eru höfúðstöðvar Time Inc.?
| ÍAmsterdam
I Boston
í New York
CAMLA MYNDIN
M3-1 504 Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/
Minjasafnið á Akureyri
Hver
kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags þekkja ein-
hvem á þeim myndum sem hér
birtast eru þeir vinsamlegast
beðnir að snúa sér til Minja-
safnsins, annaó hvort með því að
senda bréf í pósthólf 341, 602
Akureyri eöa hringja í síma
24162 eða 12562 (símsvari).