Dagur - 28.02.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 28. febrúar 1995
FRÉTTIR
Stafrænum síma-
númerum fjölgar á
Akureyri 3. mars nk.:
Fjölbreytt sér-
þjónusta í staf-
ræna kerfinu
Aðfaranótt föstudagsins 3. mars
nk. verða öll símanúmer á Akur-
eyri sem eru númer 22000 til
23999 tengd yfir í stafrænt kerfi
og á þeim tíma má búast við
einhveijum truflunum. Með til-
komu stafræna kerfisins munu
símamál færast í betra horf og
símnotendur verða varir við
breyttan són, þ.e. lægri, og tónn
hans breytist.
Stafræna kerfió býður upp á
ýmsa þjónustu eins og vakningu,
símtalsflutning sem felst í því að
símnotandinn getur vísaó öllum
símtölum sem beint er í hans síma
í annan síma hvar sem er á land-
inu, hvort sem er í venjulegan
síma, farsíma eða boðtæki. Einnig
er hægt aö koma á símafundi meö
þremur þátttakendum o.fl.
Þau númer sem enn veróa hlið-
ræn eftir 3. mars nk. verða gerö
stafræn í júnímánuði nk. en 1. júní
nk. tekur gildi nýtt númerakerfi og
verður t.d. númer 24222 á Akur-
eyri aó 4624222 og númer 3599 á
ísafirði verður að 4563599. Hægt
er nú að hringja í fimm stafa núm-
er í Reykjavík meó því að bæta 55
fyrir framan númerið og í sex
stafa númer með því að bæta 5
fyrir framan númer, t.d. verður
91-25844 að 5525844 og 91-
609420 verður 5609420. GG
Æfingar eru nú í fullum gangi
hjá Leikfélagi Akureyrar á leik-
ritinu, Þar sem Djöflaeyjan rís,
leikgerð Kjartans Ragnarssonar
á skáldsögum Einars Kárasonar,
Þar sem Djöflaeyjan rís og Gull-
eyjan. Frumsýning verður í lok
mars.
Leikstjóri sýningarinnar er
Kolbrún K. Halldórsdóttir en hún
leikstýrði vinsælli sýningu LA á
óperettunni Leðurblökunni fyrir
tveimur árum. Djöflaeyjan hefur
að geyma óborganlegan sagna-
heim Einars Kárasonar um
Tomma og Línu, böm þeirra,
tengdaböm og bamabörn og aðra
þá sem þau hafa á framfæri sínu í
braggahverfi í Reykjavík á
bemskuárum íslenska lýðveldis-
ins. Þetta er litskrúóugt persónu-
safn, sem á sér þó styrka stoð í
raunveruleikanum.
Með hlutverk Línu og Tomma
fara þau Sigurveig Jónsdóttir og
Þráinn Karlsson. Meó önnur
veigamikil hlutverk fara Þórhallur
Gunnarsson (Baddi), Bergljót
Amalds (Dollý), Barði Guð-
Dagana 16. mars til 2. apríl
verða haldnir Norðlenskir dagar
í matvöruverslunum KEA á Ak-
ureyri, Dalvík, Ólafsfirði, Siglu-
firði, Grímsey, Hrísey og Greni-
vík. Þetta er þríðja árið í röð
sem staðið er fyrir Norðlenskum
dögum.
Góð þátttaka hefur verið í þau
tvö skipti sem Norðlenskir dagar
hafa verió haldnir og stefnir í að
þeir verði fastur liður í lífi Norð-
lendinga. Tilgangurinn með Norð-
lenskum dögum er að koma á
framfæri því sem er að gerast í
Sigurjón Benediktsson, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjóm Húsavíkur, hefur lagt fram
eftirfarandi tillögur vegna afurða-
sölumála fyrirtækja í sjávarútvegi
sem eru í meirihlutaeigu kaup-
staðarins: Bæjarráð Húsavíkur-
kaupstaðar fer fram á að fulltrúar
bæjarins í stjórnum Fiskiðjusam-
Iags Húsavíkur hf., Höfða hf. og
Ishafi hf., beiti sér fyrir eftirfar-
andi aðgerðum í stjómum fyrir-
tækjanna:
1. Athugun og úttekt á sölu-
málum fyrirtækjanna þannig að
besti kostur í slíkum málum liggi
fyrir.
2. Könnun áhuga og vilja aðila
sem starfa aó sölumálum fiskaf-
uróa á því að koma til Húsavíkur,
leggja fram hlutafé, koma inn í
nýsköpun og færa ný atvinnutæki-
mundsson (Grettir), Dofri Her-
mannsson (Danni), Sigurþór Al-
bert Heimisson (Grjóni), Rósa
Guöný Þórsdóttir (Þórgunnur),
Sunna Borg (Fía), Aðalsteinn
Bergdal (Tóti) og Guðmundur
Haraldsson (Dóri). Leikaramir
bregða sér síðan í fjölda annarra
hlutverka.
Tónlist frá sjötta áratugnum
setur mikinn svip á sýninguna og
er tónlistarstjóm í höndum Karls
Olgeirssonar. Leikmynd og bún-
inga gerir Axel Hallkell Jóhanns-
son og lýsingu hannar Ingvar
Bjömsson.
norólenskum matvæla- og iðnfyr-
irtækjum, stuðla aó uppbyggingu
þeirra og kynna sem flestum norð-
lenska vöru og þjónustu.
Ymislegt verður gert bæði til
fróðleiks og skemmtunar. Sérstakt
blað verður gefið út og því dreift á
Eyjafjarðarsvæðinu. í matvöru-
verslunum verða kynningar og til-
boð og þar mun listafólk sjá um
menningarviðburði af ýmsu tagi.
Enn er möguleiki fyrir þá er
áhuga hafa á að taka þátt. Er þeim
bent á að hafa samband við Sölu-
skrifstofu KEA og leita nánari
upplýsinga.
fæn inn á okkar atvinnusvæði.
3. Koma með tillögur sem geta
aukið áhuga fjárfesta til að fjár-
festa í þeim útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækjum sem hér um
ræðir.
4. Koma með Ullögu í stjómum
fyrirtækjanna um gerð framtíðar-
áætlunar fyrir sameinuð fyrirtæki
útgerðar og fiskvinnslu.
5. Kynna tillögur og niðurstöð-
ur athugana og úttekta fyrir bæjar-
ráði eins fljótt og mögulegt er.
Fjölmennur fundur, haldinn í
Sjálfstæóisfélagi Húsavíkur laug-
ardaginn 25. febrúar 1995, sam-
þykkir að beina því til bæjarfull-
trúa flokksins að ofangreind til-
laga sem bæjarstjóm vísaði aftur
til bæjarráós í síðast liðinni viku
verði tekin til umfjöllunar í bæjar-
ráði nú þegar. Fréltalilkynning
Ólafsfjörður:
iæjarmála-
punktar
■ Bæjarráð hefur ákveðið að
fresta fyrirhuguóum fundi með
fulltrúum frá Póst- og síma-
málastofnun, varðandi meintar
skemmdir á golfvellinum, þar
til snjóa hefur leyst á vellinum.
■ Bæjarráö hefur samþykkt að
hætta aó endurgreiða tann-
læknakostnað bama 6 ára og
yngri frá og með 1. janúar sl.
■ Bæjarráói hefur borist erindi
frá dómsmálaráðuneytinu, þar
sem leitað er eftir rökstuddri
umsögn bæjarstjómar Ólafs-
fjarðar, varðandi fyrirspum
bæjarstjóra Dalvíkur á aó
kannaðir verði möguleikar á að
Dalvíkurkaupstaður verði flutt-
ur milli stjómsýsluumdæma,
ffá sýslumannsembættinu á
Akureyri til sýslumannsemb-
ættisins á Ólafsfiröi.
■ Skólanefnd hefur beint því
til bæjarstjómar að nú þegar
lokið er byggingu íþróttahúss
verði farið aó huga að við-
byggingu Gagnfræðaskólans,
með þaó í huga að leysa vanda
tónskóla og bókasafns.
■ Ferðamálaráó mælir ein-
dregið með því við bæjarráð að
kannaður verði kostnaður við
að koma upp vatnsrennibraut á
stökkpallinum norðan sund-
laugar.
■ Ferðamálaráð hefur óskað
eftir því við bæjarstjóm að
upplýsingamiöstöð tyrir fcrða-
menn verði í íþróttamiðstöð-
inni.
■ Formanni ferðamálaráðs
hefur verið falið að kanna
áhuga hjá dorgveiðimönnum
um áframhaldandi dorgveiði-
dag á Ólafsfjarðarvatni í mars.
■ Félagsmálaráð er sammála
um að hefja undirbúning að
gerð jafnréttisáætlunar og væri
þá fyrsta skrefió að fá t.d. Val-
gerði Bjamadóttur frá Akurcyri
til að kynna þessi mál nánar
fyrir félagsmálaráði og bæjar-
stjóm.
■ Menningarmálanefnd leggur
til að Tónskólinn verði fenginn
til að halda tónleika í mars-
apríl í tilefni af 50 ára afmæli
bæjarfélagsins og um leið
verði minnst 30 ára afmælis
skólans. Einnig leggur nefndin
til að efht verði úl sérstakra
tónleika með listafólki sem
rætur á í Ólafsfirði.
■ Menningarmálanefnd sam-
þykkti að auglýsa eftir lista-
mönnum sem áhuga hafa á aó
taka þátt í samsýningu í sumar.
Einnig að lcita til Lcikfélags
Ólafsfjarðar um uppfærslu
sögulegs^ annáls, sem Guð-
mundur Olafsson leikari vinnur
nú að.
■ Mcnningarmálanefnd hcfur
samþykkt aó viðhafa sam-
keppni um myndskreytingu á
eitthvaó ákveðið hús í Ólafs-
firði, fáist samþykki viðkom-
andi húseiganda til þess.
Einnig að huga að miðnætur-
skcmmtun vestan við Ósinn,
með varðeldi og fleiru.
■ Menningarmálanefnd sam-
þykkti að athuga með uppá-
komu fyrir yngri kynslóðina
17, júní, t.d. væri hægt að leyfa
krökkunum aó teikna á plan
Tjamarborgar meó krítum. Þá
leggur nefndin til aó hugað
verói að því að koma upp út-
sýnisskífu í mynni Skeggja-
brekkudals.
Ragnar Steinbergsson látinn
Ragnar Steinbergsson, hæsta-
réttarlögmaður á Akureyri, lést
á hjúkrunarheimilinu Seli, sl.
sunnudag. Ragnar var 68 ára að
aldri.
Ragnar Steinbergsson fæddist
19. apríl árið 1927 á Siglufirði.
Foreldrar hans vom Steinberg
Jónsson, sölumaður, f.
17.11.1903 - d. 11.09.1984 og
Soffía Sigtryggsdóttir, f.
06.07.1903 - d. 28.08.1990.
Bræður hans: Hörður, f.
12.06.1928 og Jón Kristinn, f.
10.10.1933. - d.l 1.09.1984. Enn-
fremur átti hann tvo hálfbræður
samfeðra.
Ragnar kvæntist 02.07.1949
eftirlifandi eiginkonu sinni, Sig-
urlaugu Ingólfsdóttur, f.
02.04.1928 á Akureyri. Foreldrar
hennar voru Ingólfur Guðmunds-
son, Seyðfjörð og Ingibjörg Hall-
dórsdóttir, sem eru bæði látin.
Þau eignuðust fjórar dætur. Elst
þeirra er Guðbjörg Inga, f.
12.02.1952, læknaritari. Maki
hennar er Kristinn Tómasson.
Næst í rööinni er Soffía Guórún,
f. 18.11.1955, skrifstofumaður.
Maki hennar er Steindór Haukur
Sigurðsson. Þá kemur Ingibjörg,
f. 09.12.1957, sjúkranuddari.
Maki hennar er Axel Bragi
Bragason. Yngst systranna er
Ragna Sigurlaug, f. 24.02.1966,
þroskaþjálfi. Sambýlismaður
hennar er Guðfinnur Þór Pálsson.
Bamaböm Ragnars og Sigur-
laugar em átta.
Ragnar varð stúdent frá MA
17. júní árið 1947. Hann lauk
embættisprófi í lögfræði frá HI
árið 1952, hdl. 1954og hæstarétt-
arlögmaður frá 1965.
Hann starfaði hjá KEA 1952-
1953, var fulltrúi hjá Útvegs-
banka íslands á Akureyri 1954-
1968 og stundakennari í bók-
færslu frá 1958-1970. Ragnar var
forstjóri Sjúkrasamlags Akureyr-
ar 1970-1989, var í undirbúnings-
nefnd Læknamiðstöðvarinnar á
Akureyri og framkvæmdastjóri
hennar frá því hún tók til starfa
árið 1973 og síðan framkvæmda-
stjóri Heilsugæslustöðvarinnar á
Akureyri við sammna þeirra
1985-1990. Ragnar rak einnig
lögfræðiskrifstofu með öðmm
störfum. Hann var ráðinn lög-
fræðingur tryggingamála hjá
Sýslumanninum á Akureyri frá
1990.
Ragnar gegndi fjölmörgum
trúnaðarstörfum. Hann var for-
maður knattspymuráðs Akureyrar
1953-1956, formaður Stúdentafé-
lags Akureyrar 1958, formaður
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna á Norðurlandi 1955-1970,
í yfirkjörstjóm Norðurlandskjör-
dæmis eystra og formaður hennar
frá 1963. Ragnar var ritari Lions-
klúbbs Akureyrar 1964 og for-
maður 1965. Hann var varabæjar-
fulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á
Akureyri 1958-62, félagskjörinn
endurskoðandi hjá KEA frá 1973
og hjá Slippstöðinni hf. frá 1980.
Hann var í sóknamefnd Akureyr-
arkirkju frá 1985 og í stjóm
Kirkjugarða Akureyrar frá 1986.
Ragnar var formaður Golfklúbbs
Akureyrar frá 1989 til ársloka
1994. JÓH
Norðlenskir dagar í
matvöruverslunum KEA
Húsavík:
Sjáfstæðismenn vifija
bæjarráðsfund nú þegar