Dagur - 18.03.1995, Page 13
POPP
Laugardagur 18. mars 1995 - DAGUR -13
MAGNÚS CEIR GUÐMUNDSSON
Tímamótum fagnað
- hjá einni af þekktustu hljómsveitum Kanada
Rush. Tríó skipað sömu mönnunum í 20 ár.
Árið 1970 tóku þrír unglingspiltar
í Toronto í Kanada sig til og
stofnuðu hljómsveit. Fyrirmyndin
voru Led Zeppelin og aðrar bresk-
ar blúsrokkhljómsveitir, sem ráð-
andi voru í tónlistarheiminum.
Fyrstu þrjú árin voru lög þessara
fyrirmynda það sem félagamir
einbeittu sér fyrst og fremst að, en
árið 1973 höfðu þeir þó á skömm-
um tíma hljóóritað nægt frumsam-
ið efni til að fylla stóra plötu. Árið
eftir varð platan síðan að veru-
leika eftir að Mercuryútgáfan í
Kanada hafði tekið félagana þrjá
upp á sína arma.
Farsælir fulltrúar
Lýsingin hér á undan á við um
upphaf einnar af þekktustu, vin-
sælustu og örugglega langlífustu
rokkhljómsveitum Kanada fyrr og
síðar, Rush. Það sem svo meira er,
er að nú um þessar mundir fagnar
tríóið því að hafa verið eins skip-
að í tuttugu ár, eða frá því önnur
platan, Fly by night, kom út árið
1975. Voru það bassaleikarinn og
söngvarinn Geddy Lee, gítarleik-
arinn Alex Lifeson og trommu-
leikarinn John Rutsey, sem stofn-
uðu Rush og gerðu fyrstu sam-
nefndu plötuna, en á Fly by night
hafði Neil Peart hins vegar leyst
Rustey af hólmi og hefur tríóið
ekkert breyst síðan. Kom Peart
með nýja og fjölþætta reynslu inn
í hljómsveitina m.a. á sviði tækni
og textasmíða, geröi það að verk-
um að Rush þróaðist burt frá blús-
rokkinu yfir í „gáfumanna“ eða
listrokk, eins og stundum er sagt,
á borð vió það sem t.d. hinar
bresku Yes, Genesis og jafnvel
Pink Floyd. Sérstaóa Rush varð
þó samt sem áður fljótt ótvíræð og
er stíll þeirra á suman hátt e.t.v.
aðgengilegri en hjá t.d. Yes.
Næstu plötur, Caress of steel og
tónleikaplatan All the world’s a
stage, sýndu þessa stílmótun Rush
vel, en með plötunni A farewell to
kings, gætti hins vegar nokkurrar
stefnubreytingar þar sem poppað-
ari áhrifa kenndi. Sú þróun hélt
áfram á næstu plötu, Hemispher-
es, og hafa viss melódísk popp-
áhrif ætíð fylgt Rush síðan í hinni
sérstæðu en jafnframt nýjunga-
gjörnu og framsæknu rokktónlist-
arsköpun Rush. Áðurtaldar plötur,
en þó sérstaklega þær sem næst
komu á eftir, Permanent waves,
Moving pictures, tónleikaplatan
Exit stage left, Signals og Grace
under pressure (á tímabilinu 1980-
1984) seldust allar vel og færðu
Rush stigvaxandi frægð. Síðast-
töldu plötumar fimm náðu t.d. all-
ar inn á topp tíu bæði í Bretlandi
og Bandaríkjunum. Þær hafa svo í
ofanálag þótt hver annarri betri að
mati gagnrýnenda. Vegna þess
hversu plötumar hafa einmitt þótt
heilsteyptar, hafa einstök smá-
skífulög ekki orðið til þess aö
selja plötumar, en það hafa hins
vegar tilkomumiklar og glæstar
tónleikaferðir gert. Er það ekki
hvað síst fyrir hversu góð tón-
leikasveit Rush er, að hún hefur
öðlast þann orðstír sem raun ber
vitni. En það eru gömul sannindi
og ný að tónleikagæói tríóa séu
oft meiri en annarra. Segir þaó
raunar alla söguna unt Rush, að
tónleikaplöturnar eru eigi færri en
þrjár hingað til, síðast A show of
hands 1989 og nú mun víst vera
von á meiru svo góðu.
Fagna með sínum hætti
Líkt og í fleiru ætla þeir félagarnir
í Rush, Lifeson, Peart og Lee, að
fara sínar eigin leiðir í aó fagna
áðumefndum tímamótum á ferlin-
um. I stað þss að gefa út kassa eða
annars konar safndæmi, meö eða
án áður óútgefins eða nýs efnis,
eins og títt hefur verið á slíkum
tímamótum, hafa þeir þremenn-
ingamir í hyggju að útsetja og
taka upp að nýju nokkur af þeirra
bestu lögum með útgáfu á dagskrá
síðar á árinu. Og ekki bara það,
heldur langar þá líka að fara í sér-
staka afmælistónleikaferð, sem
reyndar myndi aðeins miðast viö
Ameríku og síðan tónleikaplata
gefin út í kjjölfarið. Þetta er óneit-
anlega nokkuð spennandi dæmi,
sem vonandi verður aó veruleika,
en nánari áætlun er ekki ennþá
ljós. Það er líka óvíst hvenær ný
hljóðversplata kemur næst frá
Rush, þar sem þeir þrír hafa haft í
nógu að snúast á eigin vegurn.
Meðal annars hefur Peart t.d. ver-
ið einn aðalmaðurinn á bak við
plötu til heiðurs minningu djass-
trommarans fræga Buddy Rich,
sem lést eigi alls fyrir löngu. Kom
þessi plata út fyrir skömmu og
heitir eftir því sem best er vitað,
Burning for Buddy.
Wet wet wet er stórtæk í gerð
nýjustu plötu sinnar.
„Þeir
votu“
velja líst
Það er ekki ofsögum sagt aó
skoska popphljómsveitin Wet
wet wct hafi stolió senunni á
síðasta ári I poppinu, allavega
hvað varðar vinsældir í Bret-
landi. Sat hún nefnilega sem
kunnugt cr með túlkun sína á
gamla Troggslaginu Love is
all around á toppnum í Brct-
landi í heila þrjá mánuði á síó-
asta ári, sem er met. Sló Wet
wet wet þar m.a. hinum maka-
lausu vinsældum Bryan Ad-
ams ntcð lagið sitt (Everything
I do) I do it for you úr bíó-
myndinni um Hróa hött við, en
það var líka vikum saman á
toppnum í Bretlandi árið 1993.
Wct wet wet, sem kentur frá
Glasgow, hefur hins vcgar
ekki sent frá sér nýtt efni síóan
1991, eða frá því High on the
happy side kom ÚL En á því er
að veróa bragarbót og er
reyndar oróin, því ný srná-
skífa, sem væntanlega á að
fylgja vinsældum Love is all
around, er nú nýkomin út með
laginu Hey Julia.
Listaverkapiata
I kjölfar hcnnar kemur svo ný
hljóðvcrsplata út í næsta mán-
uöi, sem hafa mun yfir sér
nokkuö sérstakt yfirbragð. Þar
er sérstaklega átt við útlit
piötunnar, cn þeir félagamir
fjórir í Wet wet wet hafa feng-
ió til liðs við sig hvorki lleiri
né færri en 18 skoska lista-
menn til hönnunar plötuum-
slagsins. Meðal annars munu
andlitsntyndir af sveitarnteó-
limunum og túlkanir myndlist-
armannanna á innihaldi lag-
anna prýóa plötuna og „bók-
ina“ sem jafnan fylgir
geislaplötunum. Síðan er sú
nýstárlega hugmynd uppi um
að sýningar á upprunalegu
málverkunum verði haldnar
víðsvegar í Evrópu og þá í
tengslum við tónleika hljóm-
sveitarinnar á viðkomandi
stöóunt. Hugmyndin er svo
cinnig sú að vcrkin setji á ein-
hvem hátt svip á sviósmynd
tónleikaferðarinnar. Það verð-
ur því líklega óhætt að segja
að um „Listavcrkaplötu“ sé að
ræða hjá Wet wet wet. Em það
að sögn margir af þekktustu
málurum Skota sem koma að
þessu verki fyrir hljóntsveit-
ina.
Punktar
Elton John enn á fullu
Gleraugnaglámurinn góðkunni,
Elton John, hefur ekki látið deig-
an síga í tónlistinni þótt fótbolta-
ævintýrið mcó Watford stæöi
stutt og að í einkalífinu hafi verið
vissir erfiðleikar. Heldur hann
áfram að senda frá sér vinsæl lög
og selja piötur sínar í ntilljónavís
cins og ckkert hafi í skorist Nýj-
asta smáskífulagið hans, Bclicve,
fór beint í sautjánda sæti breska
listans fyrir röskri viku, en það er
undanfari enn einnar nýrrar
plötunnar frá honum og þá
væntanlega meó vini sínum og
samstarfsmanni lengst af, texta-
smiðnum Bemie Taupin, sér til
fullþingis. Nefnist platan Made in
England og er ekki að efa að hún
muni sjást í efstu sætunt víða líkt
og flestar plötur Eltons hafa gert.
Stevie með „Friðarspjall“
Önnur stórstjama, engu síðri en
Elton John, sem líka spilar gjam-
an á píanó og er líka með gler-
augu, en svört þar sern hann er
blindur, Stevie Wondcr, er sömu-
leióis að senda frá sér nýja plötu.
Stevie Wonder í „syngjaiuli saniræðu“.
Elton John gcfur ekkert cftir.
Conversation piece kallast hún,
Friðarsamtal eða Friðarspjall. Af
henni er lagið For your love
nokkuð spilað á útvarpsstöðvum
þessa dagana.
Bíóplata
Eins og sagt var frá hér á síðunni
fyrir þálfum mánuði, á Unun nýtt
lag, Ég hata þig, í nýrri íslenskri
bíómynd, sem nefnist Ein stór
fjölskylda. Vcrður myndin frurn-
sýnd í lok þessa mánaðar og er
leikstjóri hennar með meiru,
Jóhann Sigmarsson, en hann varó
frægur á Islandi árið 1992 fyrir
aó gera hina geysivinsælu mynd
Veggfóður - Erótísk ástarsaga,
ásarnt Júlíusi Kemp. Nú eftir
helgina kemur hins vegar út sem
forskot á sæluna, sautján laga
geislaplata meö lögum úr mynd-
inni, þar sent auk Unun(ar)
Bubbi, Bubbleflies, Birthmark,
Texas Jesus, Kolrassa Krókríó-
andi, Lipstick lovers og Skárra en
ekkert, eiga hlut að máli. Eiga
þessi ntynd og platan cflaust eftir
aó vekja mikla athygli.
Ennþá týndur
Nú röskum einunt og hálfum
ntánuði eftir að hann hvarl', hefur
enn ekkert spurst til gítarleikara
Manic street preacers, Richey
James Edwards. Bifreið hans
fannst aó vísu fyrir rúmri viku, en
hvorki tangur né tetur af Jarnes.
Þannig aukast því miður líkumar
á aó hann hafi farið sér aó voða,
en frantanaf var ekki talin sérstök
ásueða til að halda þaö. Leit er þó
haldið stöðugt áfram.