Dagur


Dagur - 06.04.1995, Qupperneq 7

Dagur - 06.04.1995, Qupperneq 7
Fimmtudagur 6. apríl 1995 - DAGUR - 7 Þjóðvaki, ný von I í þá rúma þrjá áratugi sem ég hef haft kosningarétt, hefur oróiö „kosningaloforö“ haft þá sérstöku þýðingu í mínum eyrum, aö þaö væru loforó sem ekki þyrfti aö reikna meó aö yröu efnd. Orsök meintrar markleysu kosningalof- oröa stjómmálamanna er ekki sú, aó þeir séu ósannsögulli en gengur og gerist, heldur sú, aó sama sagan endurtekur sig æ ofaní æ. Strax eftir kosningar efna flokkamir til einskonar skipti- og þreifimarkaó- ar, sem kallast sjórnarmyndunar- viðræður. Þar taka stjómmála- mennirnir púlsinn hver á öðrum, falbjóóandi atkvæöi á þingi og breytta forgangsröðun eigin kosn- ingaloforða, í skiptum fyrir áhrif og völd. Málamiðlanir og moðsuða Vanir menn og mér reyndari segja, aö pólitík sé og gangi út á mála- miólanir og samkomulag. Gott og vel, en þegar maður veit ekki fyrirfram hver semur viö hvern, og reynslan sýnir, að þegar flokkar meó gjörólík grundvallar- sjónarmiö gera meó sér stjómar- sáttmála og rnynda ríkisstjórn, er stjórnarsáttmálinn yfirleitt slík moðsuöa, að varla stendur steinn ylir steini af þeim loforðunt og fýrirheitum sem lagt var upp meö. Eg tel einu Ieióina til að foróast þessa moðsuðu vera þá, aó stjóm- málaflokkamir sem kenna sig viö félags- eóa frjálshyggju, séu trúir grundvallarsjónarmióum sínum. Moósuóa úr hugmyndafræói fé- lagshyggju og frumskógalögmáli frjálshyggjunnar getur aldrei oróió annað en blekkingasúpa svikinna kosningaloforða. Þess vegna Þjóðvaki Þegar Jóhanna Sigurðardóttir, ein íslenskra stjórnmálamanna, sýndi þann fágæta drengskap og kjark aó segja sig úr ríkisstjórn og síöar sín- um gamla flokki, frekar en að sætta sig vió málamiðlanir sem voru langt frá því sem hún hafói lofað og barist fyrir, fannst mér strax sú hreyfing sem myndaóist í kringum hana, vera sá pólitíski vettvangur, þar sem þeim neyt- endamálum sem ég er aó berjast fyrir, væri best borgið. Það var ekki nokkur vafi í mínum huga, aö þama var kominn stjórnmálamaö- ur aö mínu skapi, kona sem var trú sinni sannfæringu. Þess vegna gerðist ég eins og svo margir aörir, liösmaður Þjóðvaka. Hreinar línur, orð og efndir Þjóóvaki er hreyfing félagshyggju- fólks sem vill breytingar í samfé- laginu. Viö vonum að hinir stjórn- málatlokkamir sem líka kenna sig viö jöfnuð og félagshyggju, hætti aó standa í biöröö eftir því að fá að hoppa uppí hjá Sjálfstæðisflokkn- um og semja sig óravegu frá hug- sjónum sínum og loforóum viö kjósendur. Við í Þjóðvaka viljum sjá þessa flokka samfylkja meö okkur í ríkisstjórn, því við eigum samleið á nær öllum sviðum. Yfir- lýsing okkar um að fara ekki í samstarf við Sjálfstæðisflokkinn að loknum kosningum, markar fyrsta skrefið á þeirri braut, aó kjósendur geti vitaó hvaóa megin línur í pólitík þeir eru aó styðja þegar þeir kjósa. Þannig verður sjórnmálaumræðan trúveróugri og valkostir okkar til framtíðar verða skoðaðir af meiri alvöru. Stjóm- málamennimir vcrða ábyrgari og efndir Ioforða og ábyrgð á störfum meiri og augljósari. Ég skora því á ykkur lesendur góðir, að kjósa J-listann, því við sem stöndum aó J-listanum, ætlum að láta orð og efndir fara saman. Vilhjálmur Ingi Árnason. Höfundur skipar annað sæti á lista Þjóðvaka í Norðurlandskjördæmi eystra fyrir alþingiskosn- ingarnar 8. apríl nk. Vilhjálmur Ingi Árnason. ...þarna var kominn stjóm- málamaður að mínu skapi, kona sem var trú sinni sannfær- ingu. Þess vegna gerðist ég eins og svo margir aðrir, liðsmaður Þjóðvaka. Auglýsendur! Skilafrestur auglýsinga í helgarblaðið okkar er til kl. 14.00 á fimmtudögum. - já 14.00 á fimmtudögum D auglýsingadeild, sími 96-24222. ^ Opið frá kl. 8.00-17.00. ^ — Hall Blönd - '*>* * Halldór Blöndal hefur uerið traustur málsuari bænda sem landbúnaðarráðherra Uið undirritaðir bændur lýsum yfir fyllsta trausti uið Halldór og skorum á aðra bændur og landsbyggðarfólk að styðja hann í áfram- haldandi setu í ríkisstjórn með þuí að tryggja lista hans öfluga kosningu Kári Árnason, Hallbjarnarstöðum, Tjörnesi Jóhanna Steingrímsdóttir, Ánnesi, Aðaldal Baldvin Kr. Baldvinsson, Tonfunesi Gunnan Hallgnímsson, Klambnaseli, Aðaldal Snæfníðun Njálsdóttin, Ánbót, Aðaldal Jón Jóhannsson, Víðiholti, Reykjahvenfi Guðný Buch, Einansstöðum, Reykjahvenfi Edda Hnönn Stefánsdóttir, Pónoddsstað, Ljósav.hn. Kolbnún Úlfsdóttin, Rauðuskriðu, Aðaldal Vigfús B. Jónsson, Laxamýni, Reykjahvenfi Þongeir Þónaninsson, Gnásíðu, Kelduhvenfi Aðalgein Egilsson, Mánárbakka, Tjönnesi Bnagi Benediktsson, Gnímsstöðum á Fjöllum Auðbjörn Kristinsson, Hlíð, Glæsibæjanhneppi Ánmann Ólafsson, Litla-Ganði, Eyjafjanðansveit Gunnan Jónasson, Rifkelsstöðum, Eyjafjanðarsveit Einíkun Helgason, Ytnagili, Eyjafjanðansveit Jóna Signún Sigurðardóttin, Gnísará, Eyjafjanðansveit Guðmundun Jón Guðmundsson, Holtseli, Eyjafj.sv. Aðalsteinn Hallgnímsson, Jódísanstöðum, Eyjafj.sv. Pétun Ó. Helgason, Hnanastöðum, Eyjafjanðansveit Þónðun Jónsson, Ósi, Annanneshneppi Sigman Bnagason, Bjöngum, Höngándal Gunnan Þóroddsson, Holti, Þistilfinði Þongils Gunnlaugsson, Sökku, Svanfaðandal Leifun Hallgnímsson, Vogum, Mývatnssveit - fyrir kjördæmid þitt!

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.