Dagur - 06.04.1995, Qupperneq 12
12 - DAGUR - Fimmtudagur 6. apríl 1995
/Ufjinyislfosningarnar s. apriI nk.
Vandi ungra íbúðakaupenda
Framsóknarmcnn hafa valiö aö
ganga til komandi alþingiskosn-
inga undir kjörorðinu Fólk í fyrir-
rúmi. Meö því viljum viö leggja
áherslu á að stjórnmál snúast um
fólk, vclferð þcss og öryggi. Meö-
al mikilvægustu þátta í velferö
hvers einstaklings eru trygg at-
vinna, heimilisöryggi, réttur til
menntunar og öllug heilbrigöis-
þjónusta. A undanförnum fjórum
árum hefur verió vegiö aö öllum
þessurn þáttum íslenska velferö-
arkerílsins. Atvinnuleysi hefur
þrefaldast; mörg íslcnsk heimili
eiga viö gífurlega fjárhagsöröug-
leika aö etja; jafnrétti til náms er
ógnaó m.a. mcö breytingum á
reglum Lánasjóós íslenskra náms-
manna; og heilbrigóisstofnanir eru
settar í þvílíkt fjársvelti aö aðeins
er hægt að halda uppi lágmarks-
þjónustu, ásamt því aó hlutur
sjúklinga í lyfja- og lækniskostn-
aói er sífellt aukinn. A sama tíma
og þetta gerist er því haldið á lofti
að þjóðarhagur fari batnandi.
Vissulega hefur hagur þeirra best
settu batnað og skuldir margra at-
vinnufyrirtækja minnkað, þannig
aö hagur margra þeirra hefur citt-
hvaö vænkast. Auöurinn hel'ur
þannig safnast á fárra manna
hendur og hagur hinna verst settu
í þjóðfélaginu hefur enn versnaó.
Staða unga fólksins
Margt þaö unga fólk sem reynt
hefur aö fjárfesta í íbúöarhúsnæói
á síöustu árum á nú í gífurlegum
vandræóum meó aö standa í skil-
um sinna húsnæðislána. Jafnvel
þeir íbúöarkaupendur sem geróu
nákvæmar fjárhagsáætlanir og
fjárfestu skynsamlega meö tilliti
til launa, fjölskyldustærðar og
íbúöarverðs, eru nú í vanskilum
viö Húsnæöisstofnun ríkisins. Sú
staðreynd er uggvænleg aö nú eru
á milli 8 og 9 þúsund einstakling-
Ég vil hvetja kjós-
endur til að kynna
sér stefnu Fram-
sóknarflokksins og
veita framsóknar-
mönnum það
brautargengi í
kosningunum sem
þarf til að þeir
verði leiðandi í
næstu ríkisstjórn.
Höfum „fólk í
fyrirrúmi“.
ar með húsnæóislán sín í vanskil-
um. Þá er ekki síður uggvænlegt
aö skuldir heimilanna aukast nú
um I milljaró á mánuði hverjum
og voru í árslok 1993 orönar
AUGLÝSING
Mikil fylgisaukning Framsóknarflokksins:
Ánægjuleg og málefnaleg
kosningabarátta skilar árangri
- segir Guömundur Bjarnason, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra
Samkvæmt Gallupkönn-
un sem gerð var 1.-2.
apríl kemur fram að
Framsóknarflokkurinn
bætir við sig verulegu
fylgi frá síðustu könnun
sem gerð var 23.-28. mars
síðastliðinn og mælist nú
Framsóknarflokkurinn
með 23% fylgi á lands-
vísu.
„Ef við tökum mið af
fyrri kosningum þá er það
ljóst að verði Framsóknar-
flokkurinn með 23% fylgi á
landsvísu þýðir það mjög
góða kosningu hér í kjör-
dæminu,“ sagði Guðmund-
ur Bjarnason, alþingismað-
ur, í viðtali í gær. Guð-
mundur bætti við að þetta
staðfesti að þrátt fyrir að
búið sé að flytja eitt þing-
sæti úr kjördæminu til
Reykjaness, þá sé raun-
hæfur möguleiki að fram-
sóknarmenn haldi sínum
þrem þingsætum hér í
Norðurlandskjördæmi
eystra. Þetta hafa fyixi
skoðanakannanir sýnt og er
skemmst að minnast skoð-
anakönnunar sem gerð var
fyrir Norðurland eystra af
Gallup í febrúar síðastliðn-
um.
„Það gerist hins vegar
ekki nema allir sem vilja
veg Framsóknarflokksins
sem mestan leggist á eitt og
vinni vel þessa fáu daga
sem nú eru til kosninga,“
sagði Guðmundur Bjarna-
son að lokum
Hvert atkvœði skiptir máli!
Kampukátir þingmenn Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra virða fyrir sér nýjustu könnun
Gallups þar sem frain kemur að fylgi Framsóknar eykst jafnt og þétt. F.v. Valgerður Sverrisdóttir, Guðinundur
Bjarnason og Jóhannes Geir Sigurgeirsson. (Liósmynd: Páii)
Elsa B. Friðdnnsdóttir.
115% af ráöstöfunartekjum ársins.
Astæóur þessarar skuldasöfn-
unar eru margar. Þær helstu og
áhrifamestu eru:
• Afföll af húsbréfum uröu
mun meiri en ráð var fyrir gert,
eóa lengst af á bilinu 10-20%.
Ibúðakaupendur tóku á sig veru-
legan hluta þessara affalla.
• Vextir af eldri húsnæðislán-
um voru hækkaóir um allt að
1,5% á árinu 1991.
• Skattahlutfall í staðgreiðslu
hefur hækkað stöðugt ár frá ári
eða úr 39,79% árið 1991 í
41,39% á þessu ári. Auk þess hafa
ýmsir jaðarskattar hækkað, sem
kemur sérstaklega illa við ungt
bamafólk.
• Skattleysismörk hafa lækkaó
verulega, þrátt fyrir loforð um hió
gagnstæða.
• Atvinnuleysi hefur þrefald-
ast, auk þess sem tekjur heimil-
anna hafa í mörgum tilfellum
lækkaö vegna minni möguleika á
yfirvinnu.
Ibúðarkaupendur gátu ekki séð
þessar aðstæður fyrir, enda með
loforð ríkisstjórnarinnar upp á
vasann um andstæður þess sem aó
ofan greinir.
Hvað er til ráða?
Framsóknarmenn hafa lagt fram
ítarlega áætlun um hvernig bregð-
ast eigi við greiðsluvanda heimil-
anna. Þaö viróist óumflýjanlegt að
grípa til lengingar húsnæóislána,
greiðsluaðlögunar og jafnvel
greiðsluerfiðleikalána. Greiðslu-
aðlögunin verói með þeim hætti
að lánskjörum verði breytt til að
gera greiðslubyrói íbúðakaup-
enda léttari eða aó lán verði fryst
um ákveðinn tíma meðan lánþeg-
ar vinna sig út úr öðrum samhang-
andi vandamálum eins og
skammtímalánum og/eða atvinnu-
leysi. Þá leggja framsóknarmenn
einnig áherslu á aó bæta fólki þær
skattahækkanir og skerðingar bóta
sem það hefur mátt þola síðustu
ár. Þar má meðal annars nefna
nauðsyn á hækkun skattleysis-
marka, hækkun vaxtabóta, hækk-
un barnabóta, breytingar á vægi
launa í lánskjaravísitölu, og að
persónuafsláttur hjóna og sambýl-
isfólks verði millifæranlegur að
fullu.
Nú kann einhver að spyrja
hvar fá eigi fjármagn til allra þess-
ara úrbóta. Svarið er fyrst og
fremst í gegnum skattakerfið.
Alagning hátekjuskatts, og stór
hert eftirlit og vióurlög við skatt-
svikum eru meðal tillagna fram-
sóknarmanna. Þá má einnig nefna
skattlagningu peningalegra eigna
fari þær upp fyrir ákveðið lág-
mark. Það er erfitt að sjá réttlætið
í því að eignir manna, svo sem
húseignir, séu skattlagðar en ekki
peningalegar eignir. Með skatt-
íagningu slíkra eigna má ná fram
allt aó 2 milljörðum króna.
Síðast en ekki síst leggja fram-
sóknarmenn áherslu á bætt kjör
unga fólksins með því að skapa
því atvinnu vió hæfi. Þó ráðherrar
leyfi sér að tala um ásættanlegt
atvinnuleysi er ljóst aó í huga þess
sem atvinnulaus er, er ekkert sem
heitir ásættanlegt í þeim efnum.
Ungu fólki verður aldrei kleift aó
byggja upp heimili nema því
verði fyrst tryggð atvinna vió
hæfi, en það er og veróur besta
samhjálpin.
Lokaorð
I kosningunum 8. apríl verður
ekki hvað síst kosið um atvinnu-
mál og velferðarmál. Framsókn-
armenn hafa sett fram ítarlega at-
vinnustefnu og tillögur um hvem-
ig draga megi úr þeim vanda sem
mörg íslensk heimili standa
frammi fyrir. Eg vil hvetja kjós-
endur til að kynna sér stefnu
Framsóknarflokksins og veita
framsóknarmönnum það brautar-
gengi í kosningunum sem þarf til
að þeir verði leióandi í næstu rík-
isstjórn. Höfum fólk í fyrirrúmi.
Elsa B. Friðflnnsdóttir.
Höfundur er hjúkrunarfræöingur og lekt-
or í H.A., skipar 7. sæti á lista Framsókn-
arflokksins t' Noróurlandskjördæmi
eystra fyrir komandi kosningar.
FERÐAFÉLAG
AKUREYRAR
Snjóbíls- og skíðagönguferð
í Lamba, sem frestað var 18. mars, verður nk. laug-
ardag, 8. apríl. Brottför frá sorphaugum kl. 09.00.
Skrifstofa félagsins verður opin frá kl. 17.30-19.00
dagana 5.-7. apríl til skráningar í ferðina og upplýsinga
um hana.
Kjósum þegar við komum hress af Glerárdal.
Ferðanefnd.