Dagur - 29.04.1995, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 29. apríl 1995
FRÉTTIR
Slagurinn um Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Jákvæður og góður fundur
- sagði Einar Njálsson, bæjarstjóri, eftir fund með SH í fyrrakvöld
„Þetta var jákvæður og góður
ftindur þar sem við skiptumst á
skoðunum. Næsta skref í málinu
verður að ég mun gera bæjarráði
grein fyrir umræðunum á fundi
á sunnudag. Þá verður tekin
ákvörðun um næsta skref í mál-
inu,“ sagði Einar Njálsson, bæj-
arstjóri á Húsavík, eftir fúnd
hans með forsvarsmönnum
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna í fyrrakvöld. Þar var rætt
um tilboð SH um kaup á nýju
hlutafé fyrir 100 milljónir króna
^RAR,K
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að
byggja birgðageymslu við Óseyri 9 á Akureyri.
Útboósgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns-
veitna ríkisins við Óseyri 9, Akureyri og Laugavegi
118, Reykjavík frá og meó mióvikudeginum 3. maí
1995 gegn kr. 10.000,- í skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna rík-
isins á Akureyri fyrir kl. 10.00, föstudaginn 19. maí
1995, og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóð-
enda, sem þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu:
„RARIK-95004 Akureyri - Útboð 2“
Verkinu á að vera fullu lokið laugardaginn 30. sept-
ember 1995.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS,
Laugavegi 118,105 Reykjavík.
í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur á
genginu 1,25. Aður höfðu fs-
lenskar sjávarafurðir boðist til
að kaupa nýtt hlutafé fyrir 75
milljónir króna á genginu 1,00.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
óskaði eftir fundinum í fyrrakvöld
strax eftir að hafa lagt fram sitt til-
boó. Að sögn Einars er skýring á
þessum stutta fyrirvara fundarins
sú að í næstu viku verða forsvars-
menn SH uppteknir við undirbún-
ing aðalfundar og því vildu þeir
koma strax á fundi meó bæjaryfir-
völdum.
Bæjaryfirvöld á Húsavík ræða
nú samhliða við sölusamtökin og
eru óbreytt^ áform um fund með
fulltrúum Islenskra sjávarafurða
næstkomandi þriðjudag. Eftir
þann fund er í fyrsta lagi hægt að
vænta þess að ákvörðun verði tek-
in um hvaða tilboði verður tekið.
„Við erum í viðræðum við IS
og munum leiða þær til lykta. Við
þurfum líka að taka ákvörðun fyrir
Ginar Njálsson.
19. maí hvort bærinn neytir for-
kaupsréttar á sínum hluta og við
munum stefna á að ljúka öllu mál-
inu fyrir þann tíma,“ sagði Einar.
JÓH
Háskólinn á Akureyri:
Eins og kom fram í Degi í
gær heldur Gerður G. Osk-
arsdóttir opinn fyrirlestur í
Háskólanum á Akureyri í
dag, laugardaginn 29. apríl. í
tilkynningunni í gær láðist
að geta um tímasetningu fyr-
irlestursins en hann hefst kl.
14.
í þcssum fyrirlcstri fjallar
dr. Gerður um áhrií' menntunar
á gengi og starfsaðstæöur ungs
l'ólks í atvinnulífinu. Leitaó er
svara vió spurningum eins og:
Hvaða áhrif hefur menntun á
iaun, virðingarstöðu starfa og
starfsánægju? Hvaða hæfhi
reynir á í starl'i og er rnunur á
menntunarhópum í því sam-
bandi? Hvers virði er menntun
viö ráöningar í störl' sem ckki
kreíjast sérstakrar slarfsmcnnt-
unar?
Hef verulegar áhyggjur
af þessu ástandi
- segir Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur
Aðalsteinn Baldursson, formað-
ur Verkalýðsfélags Húsavíkur,
segir því miður engin teikn á
HATIÐAHOLD
VERKALÝÐSFÉLAGANNA
Á AKUREYRI
MAI
13.30 Safnast saman við Alþýðuhúsið
14.00 Lagt upp í kröfugöngu undir leik
Lúðrasveitar Akureyrar
HÁTÍÐARDAGSKRÁ í ALÞÝÐUHÚSINU AÐ LOKINNI KRÖFUGÖNGU
ÁVARP 1. MAÍ NEFNDAR: Kristín Hjálmarsdóttir, formaður IÐJU
AÐALRÆÐA DAGSINS: Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ
ÁVARP: Matthildur Sigurjónsdóttir, fiskvinnsiukona
FJÖLBREYTT SKEMMTIDAGSKRÁ:
Þórhildur Örvarsdóttir og Karl Olgeirsson
Dansar og söngvar frá Filippseyjum
Sóri og Dofri, töfrar og fleira
Þórarinn Hjartarson - fjöldasöngur
KAFFIVEITINGAR í BOÐI VERKALÝÐSFÉLAGANNA
MERKI OG PENNAR VERÐA SELDIR í TILEFNI DAGSINS
SYNUM SAMSTOÐU OG SIGURVILJA!
lofti um að atvinnuástandið sé
að batna á félagssvæði Verka-
lýðsfélagsins. í ályktun aðal-
ftindar félagsins sl. fimmtudags-
kvöld er þess krafíst að stjórn-
völd „grípi nú þegar til sértækra
aðgerða til að efla atvinnu og
sporna við sívaxandi atvinnu-
leysi á Norðurlandi eystra.“
„Eg hef verulegar áhyggjur af
þessu atvinnuástandi og það er
ekki af ástæðulausu. Hér ganga
um að jafnaói 115 einstaklingar úr
stéttarfélögunum á Húsavík og
Suður-Þingeyjarsýslu án atvinnu.
Þar af er tæplega 100 manns í
Verkalýðsfélagi Húsavíkur. Auó-
vitað hafa menn stórar áhyggjur af
þessu ástandi. Aberandi er að at-
vinnuástandið í sveitum er að
versna og síðan hafa menn stórar
áhyggjur af því að unglingsstrákar
á aldrinum 16-20 ára eiga orðið
mjög erfítt með að fá vinnu,“
sagði Aðalsteinn. „Því miður sé
ég ekkert sem bendir til þess að
breytinga sé að vænta á þessu
ástandi. Þó hafa menn verið að
kaupa kvóta til Húsavíkur, en því
miður er margt annað sem eykur
manni ekki bjartsýni.“
í ályktun aðalfundar Verka-
lýðsfélags Húsavíkur sl. fímmtu-
dag um atvinnumál segir m.a.:
„Þetta alvarlega ástand kallar á
tafarlausar aógerðir. Aðgerðir sem
byggja á framlögum til arðbærra
opinberra framkvæmda, ásamt
áherslu á rannsókna- og markaðs-
starf.
Sérstakar ráðstafanir gagnvart
svæðum á Norðurlandi eystra þar
sem atvinnuleysi er mikið þarf aó
hafa forgang, samanber félags-
svæói verkalýðsfélaganna á Húsa-
vík og Suóur-Þingeyjarsýslu.“
Og síðar segir í ályktun aðal-
fundar Verkalýðsfélags Húsavík-
ur:
„Aóalfundurinn ítrekar þá
kröfu sína að stjómvöld hefjist nú
þegar handa við að efla atvinnu í
samvinnu við heimamenn á Húsa-
vík og Suður-Þingeyjarsýslu. Því
aðeins meó öflugu átaki hins opin-
bera er hægt að koma í veg fyrir
að æ fleiri vinnufúsar hendur, fé-
laga í Verkalýðsfélagi Húsavíkur
verði atvinnuleysisvofunni að
bráð.“ óþh
O HELGARVEÐRIÐ
Nú er það að koma, vorið. í
dag verður austlæg átt og
léttskýjað, hiti 0-7 stig. A
morgun hækkar hitastigið
aóeins, þá verður gola eða
kaldi, skýjað með köflum og
3-8 stiga hiti. Á mánudaginn
verður svipað veður en þó
aðeins hærri hiti eða 5-10
stig. Á þriðjudag er spáó
súld eða rigningu um ailt
land og 6-11 stiga hita.
Aðalfundur
Akureyrardeildar RKÍ
verður haldinn í húsnæði deildarinnar í Kaupang
sunnudaginn
7. maí nk. kl. 16.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.