Dagur - 13.05.1995, Blaðsíða 4
DAGUR - Laugardagur 13. maí 1995
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTIN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON.(íþróttir),
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Vor til lands og sjávar
Því miður fer lítið fyrir vorinu í veðrinu, hitinn fer
ekki langt upp fyrir núllið og kvikasilfurssúlan fer
niður fyrir frostmarkið á nóttunni. Á meðan svo er er
ekki að búast við því að snjóskaflarnir hverfi og í
sumum sveitum norðanlands er eins og yfir jökul að
líta. Þetta er ekki beint gæfulegt ástand um miðjan
maí, gerir bændum afar erfitt fyrir og er síst til þess
fallið að efla þeim bjartsýni um sumarið.
En þrátt fyrir kalt vor eru teikn á lofti um að það sé
loksins að vora í atvinnumálunum. í dag birtast í
Degi 11 atvinnuauglýsingar sem er meira en sést
hefur í einu tölublaði Dags í nokkur ár. Og um síð-
ustu helgi birtust í Mogganum fleiri atvinnuauglýs-
ingar en þar hafa birst mjög lengi.
Þetta gefur góðar vonir um að loksins sé að birta
til í atvinnumálunum, enda má merkja, í það minnsta
í sumum atvinnugreinum aukna bjartsýni. Hins veg-
ar er viðvarandi dökkt yfir byggingariðnaðinum, en
úr því ætti að geta ræst ef fyrirtækjunum er loksins
að takast að snúa taprekstri yfir í hagnað. Slíkur við-
snúningur ætti að geta leitt áður en mjög langt um
líður til fjárfestinga sem aftur ætti að hafa í för með
sér eftirspurn eftir starfsfólki. En vissulega eru
hættumerkin til staðar, vaxtabreytingar undanfarna
daga sýna svo ekki verður um villst að vaxtastigið er
viðkvæmt og lítið má út af bregða til þess að vextirn-
ir fari yfir hættumörkin. Ríkisvaldið verður að standa
betur á bremsunni en það hefur gert og reyna með
öllum ráðum að koma böndum á ríkissjóðshallann.
Takist að lækka hann umtalsvert færist sá bati strax
út í atvinnulífið vegna stöðugra vaxtastigs.
Eftir niðursveiflu undanfarinna ára er næsta víst
að atvinnulífið er betur í stakk búið að vinna rétt úr
batnum. Það hefur vonandi lært af offjárfestingu í
síðustu efnahagsuppsveiflu sem ekki síst varð til
þess að keyra fyrirtækin hvert af öðru í þrot. Væntan-
lega munu menn fara varlega og taka ekki of stór
skref í einu. Það er mikilvægt þegar til lengri tíma er
litið. Og það hefur vissulega mikið að segja um stöðu
efnahags- og atvinnumálanna þegar loðnubátarnir
koma einn af öðrum drekkhlaðnir til hafnar með síld
úr norsk-íslenska síldarstofninum. Það eru aldeilis já-
kvæð merki um vorið.
I UPPAHALDI
••
að er Dröfn Friðfinnsdótt-
ir, myndUstarmaður, sem
er i Uppáhaidi Dags í dag.
DrÖjh hefur verið búsett á
Akureyri frá því hún var
barn. Eiginntaður hennar er Guð-
mundur Óskar Guðmundsson,
kennari í Verkmenntaskólanum á
Akureyri, en þau hjónin eiga þrjár
uppkomnar dœtur. Dröfn nam
myndlist í Myndlista- og handíða-
skólanum í Reykjavik, Myndlista-
skólanum á Akureyri, í Danmörku
og í Finnlandi. Hún starfar í hluta-
starfi í Tómstundamiðstöðinni
Punktinum á Akureyri. Þar leið-
beinir hún þeim sem hafa áhuga á
að takast á við eitthvað sem tengist
myndlist og handverki síðdegis
alla virka daga og eitt kvöld í viku.
Þegar Punktinum sleppir er Dröfn
að störfum á sinni eigin vinnustofu
sem er að heimili hennar í Lerki-
lundi á Akureyri. Þessa dagana er
hún að undirbiia þátttöku t sam-
sýningum víða erlendis en hún
stefnir að því að halda nœstu
einkasýningu sína á nœsta ári.
Hún er einkum að fást við grafik-
verk, tréristur, en einnig málverk
og teikningar.
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjáþér?
„Matarsmekkurinn hefur breyst í
gegnum árin og nú finnst mér léttur
matur bestur, fiskur og grænmeti.“
Uppáhaldsdrykkur?
„Kaffi.“
Hvaða heimilisstörffinnst þér
skemmtilegustlleiðinlegust?
„Stundum er þetta alit ágætt en
stundum er það óskop leiðinlegt."
Stundarþú einhvetja markvissa
hreyfutgu eða líkamsrœkt?
„Ég á hund sem heitir Arto og við
Dröfii Friöfinnsdóttir.
förum saman í gönguferð á hverjum
dcgi.“
Ert þú í einhverjumklúbbi eðafé•
lagasamtökum?
„Eg er í myndlistarfélögum og
saumaklúbbi, sem hefur haldið vclli
alveg síðan við stöllurnar í klúbbn-
um vorum sautján, átján ára gamlar.“
Hvaða blöð og tímarit kaupir þú?
„Dag, hálfa áskrift af Mogganum og
tímarit 1 lausasölu þegar hugurinn
gimist.“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
„Óðurinn um Evu sem er eftir Manu-
ela Dunn Mascetti, mannfræóing.
Hún fjallar um konuna og er prýdd
fjölda fagurra listaverka."
/ hvaða stjörnumerki ert þú?
JÉg er fædd 21. mars óg er ýmist tal-
inn hrútur eða ftskur.“
Hvaða hljómsveit/tónlistarmaður er
í mestu uppáhaldi hjá þér?
„Þegar ég er að störfum í vinnustof-
unni hlusta ég á munkatónlist, Canto
Gregoriano, en annars höfðar öll fai-
leg og góð tónlist til mín.“
Uppálialdsíþróttamaður?
„Ég dáist að öllu íþróttafólki en það
er enginn sérstakur í uppáhaldi.“
Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi?
„Eg horfi mest á fréttir og íslenska
þætti.“
Hvað mundir þú gera efþú œtlaði
að dekra við sjálfa þig eina kvöld-
stund?
„Ég mundí til dæmís fara út að borða
á huggulegan veitingastað með
manninum mínum.“
Uppáhaldsleikari?
„Sean Connery.“
A hvaðastjórnmálamanniItefurðu
mestálit?
„Ég held ég hafi alltaf dáóst mest að
Ólafi Ragnari Grímssyni.“
Hver er að þínu matifegursti staður
áíslandi?
„Ailir staöir á íslandi eru fallegir í
yndislegu veöri.“
Hvar vildirðu helst búa ef þú þyrftir
að flytja búferlum?
„í Hafnarfiröi eða Garðabæ."
Hvaða hlut eðafasteign langar þig
mest til að eignast um þessar mundir?
„Stóra vinnustofu."
Hvernig vilt þú helst verjafrístund-
um þínum?
„Til ferðalaga og til aó vinna að
myndlistinni.“
Hvað œtlarðu að gera í sunmrfríinu
þínu?
„Ég ætla að vera í sumarbústaðnunt
mínum, Hamri, sem er cyðibýli í
Hörgárdal, þar er yndisiegt að vera.“
KLJ
POSTKORT FRA ÞYSKALANDI
HLYNUR HALLSSON
ÞAÐ ERU FIMMTIU AR FRA ÞVIAÐ
bandamenn frels-
uðu Þýskaland
undan nasistum.
Þann 8. maí sl.
voru fimmtíu ár frá
því aó Bretar
þrömmuóu inn í
Hannover eftir aó
hafa stoppað nas-
ista og bjargaó pól-
itískum föngum og
gyðingum í nokkr-
um fangabúóum í
nágrenninu. Tíma-
mótanna var
minnst meó nokkr-
um tugum af fyrir-
lestrum, guósþjón-
ustum, tónleikum,
minningarathöfn-
um, myndlistarsýn-
ingum, mótmæla-
aógeróum, sögu-
sýningum, sam-
komum og öórum
vióburöum. í há-
skólunum er líka
meira framboð en
eftirspurn af fyr-
irlestrum sem fjalla
um stríóiö og áhrif
þess.
Hver meðal
þjóðverji skammast
sín fyrir uppruna
sinn. Ekki vegna
þess að þeir tóku
þátt í bví aó drepa
eða kvelja fólk
heldur vegna þess
að þeir geta ekki
verið sannfærðir
um að þeir hefðu
barist gegn nasist-
um ef þeir hefðu
verið uppi á valda-
tíma Hitlers og fé-
laga. Það versta er
hinsvegar að enn
er til fólk sem lítur
undan og gerir
ekkert þegar ný-
nasistar ganga um
götur hrópandi
slagorð um að nú
þurfi að sparka hel-
vítis tyrkjunum i
burtu. Eða þegar
fólk er farió að
draga í efa aó það
hafi verió drepnir
svona margir gyð-
ingar í útrýming-
arbúóunum eða þá
að þær hafi yfir höf-
uó verió til. Það eru
líka dæmi um að
þegar nýnasistar í
Magdeburg gengu
um götur og hittu
nokkra frióarsinna
og útlendinga og
börðu þá til óbóta
þá hikuóu óbreyttir
vegfarendur ekki
vió aó Ijúga uþp í
myndatökuvélar
fjölmiðla því aö í
raun hafi þaó verið
útlendingarnir sem
byrjuóu. Sem betur
fer gátu sjónvarps-
stöðvarnar samt
sýnt fram á það
sem raunverulega
gerðist, þökk sé
myndbandsupp-
tökuvélavæóingu
heimilanna. Nú
hafa forsprakkar
nýnasista líka verið
dæmdir sam-
kvæmt lögum sem
segja fyrir um að
bannað sé aó falsa
staóreyndir eóa að
halda því fram aó
Auschwitz hafi bara
verió orlofsbúóir en
ekki útrýmingar-
búóir.
Þaó er ekki laust
við að maður verói
niðurdreginn af öll-
um þessum upprifj-
unum enda mynd-
irnar sem sýndar
eru í sjónvarpinu
allt annað en fagr-
ar. Frásagnir í dag-
blöðum og tímarit-
um snúast líka svo-
til eingöngu um
þessi mál. Stjórn-
málin auóvitaó líka.
Plútóníumsmyglið
frá Rússlandi eða
öllu heldur hver
vissi um hvað og
hvenær ráðherrar
og yfirmenn í leyni-
þjónustunni vissu
um málið hefur aö
vísu tekið smá
pláss í fréttatímun-
um líka. En samt er
þaö upprifjun á at-
buróum sem gerð-
ust fyrir rúmum
fimmtíu árum sem
er aðal atrióið alls
staóar. Núll stundin
er sá tímapunktur
sem okkar tímatal
er miðaó við og
þess vegna voru
áramót á mánu-
daginn 8. maí sl.
og árió fimmtíu tek-
ur við. Stunde Null
var þegar fáni nas-
istanna var rifinn
nióur í hinsta sinn
og upp komu fánar
Sovétríkjanna,
Bandaríkjanna,
Bretlands og
Frakklands í staó-
inn. Þjóðverjar
höfðu sem betur fer,
tapað stríóinu en í'
raun og veru tapa;
auðvitaó allir í stríói
nema vopnasalarn-
ir.
Sumarið er samtl
komió og vel til
þess fallið að draga
mann uppúr dapur-
legum hugleið-
ingum og leita að
stuttbuxunum ogi
mála veröndina og
taka til í garðinum
og slá grasflötina
sem er 4 fermetrar
og þykir stór ij
þessu verka-
mannahverfi. Kær-
ar kveójur heim.