Dagur - 13.05.1995, Blaðsíða 15
Laugardagur 13. maí 1995 - DAGUR -15
UTAN LANDSTEINANNA
S/EVAR HREIÐARSSON
Winona Laura
Horowitz átti
ekki sjö dag-
ana sæia í
æsku.
Erfið œsknár
Stjömumar í Hollywood hafa
ekki alltaf verið vinsælar.
Leikkonan Winona Ryder segist
hafa átt erfiða æsku og að hún hafi
verið óvinsæl meðal skólasystkina.
„Bekkjarsystur mínar hentu oft
drasli í mig vegna þess aó ég var
burstaklippt og hlustaði á Sex Pi-
stols og einu sinni lumbruðu
nokkrir strákar á mér en þaó var
ekki svo slæmt. Eg var svo forfall-
inn kvikmyndaaðdáandi og ég lét
sem þetta væri atriði í hasar-
mynd,“ segir leikonan unga, sem
skírð er í höfuðið á heimabæ sín-
um, Winona í Minesota, og heitir
réttu nafni Winona Laura Horo-
witz. Annar frægur sem segist hafa
orðið fyrir ofsóknum á skólaárum
sínum er hinn síungi Harrison
Ford. „Ég var nokkurs konar aftur-
kreistingur og ég lék mér alltaf
með stelpunum. Það fór í pirrumar
á strákunum þannig að eftir hvern
skóladag hentu þeir mér yfir girð-
Harrison Ford var ekki mikið
hörkutól á yngri árum.
inguna, út af bílastæóinu og út í
illgresi. Aó lokum var þetta oróinn
fastur liður og ég mætti bara að
girðingunni og beið,“ segir Harri-
son um æskuárin.
Hœstlaunaða
fatafella heims
Leikkonan Demi Moore undirbýr sig nú af fullum
hug undir væntanlega stórmynd, Striptease, en
eins og nafnið ber með sér leikur hún nektardansmær
í þeirri mynd. Demi heimsótti fyrir skömmu þekkta
strippbúllu í New York, sem ber nafnið Scores en þar
var eiginmaður hennar, Bruce Willis, vanur aó
halda sig á kvöldin á meðan hún gekk með
þriðju dóttur þeirra fyrir tveimur ámm.
Starfstúlkumar á Scores voru ánægðar
með heimsóknina og sögðu Demi vera
örláta á þjórfé en leikkonan ætti að hafa
vel efni því þar sem hún fær um 850
milljónir fyrir leik sinn í myndinni.
„Hún spurði okkur allra réttu spum-
inganna, eins og t.d.: Líkar þér vinnan,
hvemig er sambandið við kúnnann og
er mikil samkeppni milli stúlkn-
anna?“ segir Sheri, nektardansmær
sem Demi spurði spjörunum úr á
Scores. „Við stúlkumar kunnum vel
að meta að hún hafði metnað í að
koma hingað og sjá hvemig þetta
væri í raun og vem,“ sagði Sheri.
Demi, sem reyndar heitir Demetria
Gene Guynes, skrapp síðan til
London í kynningarleiðangur þar
sem hún sást þramma um Soho
hverfið ásamt umboðsmanni sínum
og skoðaði vaming í gluggum kyn-
lífsbúða og fylgdist með hvemig
skyndikonur bám sig að við að næla í
kúnna að næturlagi.
Demi Moore ætti að vcra vel undirbúin fyrir næstu mynd sína enda
ckki óvön að fækka iötum.
Illmenni meðal indjána
Leikarinn Kevin Costner talar
með falskri tungu að sögn
Lakota Sioux indjánaættbálksins,
rétt eins og þeir sem níddust á
indjánunum í myndinni hans,
Dansað við Úlfa. Costner var
hetja meðal Sioux indjána eftir
að hafa leikið Lt. John Dunbar,
blástakk og einfara sem barðist
með indjánum í frelsisbaráttunni
undir lok síðustu aldar, en nú er
Hjartað brostið
Kirjarinn Julio Iglesias hefur tapað ást lífs síns, sjö ára grábröndóttum ketti, sem ber nafnið Mousty. Þaö
hefur hvorki sést tangur né tetur af Mousty síðan hann hvarf frá heimili þessa rómanska hjartaknúsara á
eyju undan strönd Florida um miðjan febrúar. Julio lagði í alls-
herjarleit ásamt ástkonu sinni, hollensku fegurðardísinni
Miröndu Rhysburger, og dreifðu þau veggspjaldi af Mousty
um allar trissur. „Eg geri ráð fyrir aö kona yfirgefi mig en
krúttið hann Mousty var alltaf svo tryggur. Hjarta mitt
er brostið," segir Julio. Margt stórmenna býr á eyjunni
og í nokkra daga gengu menn á borð við Don Shula,
ruðningsþjálfari Dolphins, kylfingurinn Raymond
Floyd, ryksugujöfurinn Herbert Hoover Jr. og arabíski
prinsinn Abdul Aziz um allt kallandi til kattarins í
von um aö Mousty stykki úr felum. Lögreglu-
yfirvöld telja ólíklegt að honum hafi ver
ið stolið í von unt lausnargjald þar
sem engar slíkar kröfur hafa enn
komið fram. Iglasias var tjáð að
Mousty myndi í það minnsta
ekki verða illa úti á eyjunni
sem er yfirfull af millj-
ónerum og eflaust væri
hann í góðu yfirlæti á
einhverju heimilinu.
„Ég vona bara að
hvar sem hann er,
fari vel um hann.
Hann er bara ósköp
hversdagslegur
heimilisköttur en
ég elska hann og
vill hann heim,“
sagði Iglesias
niðurlútur.
Julio Iglesias segist alltaf
búast við því að konur yfirgefi hann
en ekki kötturinn.
Kcvin Costner hefur ckki náð sér á
strik undanfarna mánuði en hann
hyggur á stóra hluti með spilavíti á
helgu svæði indjána.
annað hljóð í indjánunum. Þeir
telja hann hafa snúist gegn ind-
jánum en Costner hyggst byggja
spilavíti og skemmtigarð á land-
svæði í Suður- Dakota, sem La-
kota ættbálkurinn telur heilagt
land. Félagi stjömunnar í þessu
viðskiptaævintýri er eldri bróðir
hans, Dan, en þeir eiga nú þegar
spilavíti á einkalóð skammt frá.
Þeir Costner-bræður hafa auga-
stað á 240 hektara landsvæði fyr-
ir spilavítið sem mun kosta 120
milljónir dala fullbyggt með
glæsihóteli og 18 holu golfvelli.
Costner fékk 60 milljónir dollara
fyrir leik sinn í myndinni, sem
vann sjö Oskarsverðlaun og
hann hefur í hyggju að græða á
vinsældum myndarinnar og ætlar
að kalla dvalarstaðinn Dunbar,
eftir hetjunni á hvíta tjaldinu.
Sefm hjá svínum
íkissjónvarpið sýnir vikulega þættina ER eða Bráða-
XV vaktin, þar sem George Clooney fer með eitt aðalhlut-
verkið. Clooney þessi hefur verið við leiklist frá bamæsku
en hefur aldrei verið vinsælli en nú. Hann fær fjölda aðdá-
endabréfa og gæti eflaust valið úr pjásum til að fara með
heim á kvöldin en flestar nætur hefur hann deilt rúmi
með heimilissvíninu Max. Max keypti snoturt víet-
namskt ístmsvín af ræktunarmanni fyrir átta ámm. Ég
áttaði mig á því að Max og ég erum sem skapaðir fyrir
hvom annan. Þetta var ást við fyrstu sýn, var eitt sinn
haft eftir Clooney. Eftir að hafa leyft svíninu að sofa upp
í hjá sér eina kalda vetramótt er það frekar orðin venja
en undantekning að grísinn kúri hjá stjömunni. Svínið er
Clooney svo hjartfólgið að þegar jarðskjálftinn stóri reið
yfir Los Angeles á síðasta ári var Max það fyrsta sem
stjaman hugsaði um. Hann greip dýrið undir höndina og hljóp
út úr húsi sínu, nakinn. Nú berast þær fréttir frá Hollywood að
Clooney og norska fyrirsætan Vandela séu farin að rekkja saman
og er þá væntanlega svínið til fóta.
George Clooncy og svínið Max eiga vel saman.