Dagur - 13.05.1995, Side 20
ÞREFALDUR
1. VINNINGUR
Landsleikurinn okkar!
undur besta Ijóðsins
Hjörtur Pálsson, skáld, hlaut
fyrstu verðlaun í Ijóðasam-
keppni dagblaðsins Dags og
Menningarsamtaka Norðlend-
inga, en niðurstaða dómnefndar
var kunngjörð í hófi á veitinga-
staðnum Fiðlaranum á Akureyri
síðdegis í gær. Ljóð sitt nefnir
Hjörtur „Farið um Vatnsdal“.
Dómnefnd, sem í áttu sæti séra
Bolli Gústavsson, vígslubiskup á
Hólum, Geirlaugur Magnússon,
kennari á Sauðárkróki, og Kristín
S. Arnadóttir, kennari á Akureyri,
var einróma sammála um að meta
ljóð Hjartar það besta í keppninni.
Hins vegar gal dómnefnd ekki gert
upp á mflíi tveggja ljóða til ann-
arra verðlauna og því var ákveðið
að þau hlytu bæði viðurkenningu.
Höfundur Ijóðsins ,,Hljóðaklettar“
er Hallgrímur Indriðason, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Eyfirðinga á Akureyri, og Jóhann
árelíuz, skáld í Bromma í Svíþjóð,
sem reyndar er Akureyringur að
ætt og uppruna, nefnir ljóð sitt
„Sumartungl".
Þeir Hjörtur og Hallgrímur
tóku við viðurkenningum sínum í
hófinu í gær en fulltrúi Jóhanns
var Björg Bjarnadóttir.
Gríðarleg þátttaka var í ljóða-
samkeppninni, sem er sú þriðja
HELGARVEÐRIÐ
Ekkert lát virðist vera á norð-
an- og norðaustlægum vind-
áttum næstu dagana. Spáð
er að hiti verði 0-4 stig á
Noröurlandi um helgina og
að mestu þurrt í veðri og
hægviðri. Urkomu gæti þó
gætt út við ströndina og
verður þá rigning eða jafnvel
slydduél. í langtímaveðurspá
Veðurstofu íslands er ekki
að heyra mikla breytingu.
sem Dagur og MENOR efna til.
Tæplega sextíu höfundar sendu
inn Ijóð.
Auk viðurkenningarskjala fengu
höfundar vegleg ritverk. Hjörtur
Pálsson fékk að launum safn rit-
verka Þorsteins Erlingssonar, þrjú
bindi í öskju, og Heimskringlu
Snorra Sturlusonar, einnig þrjú
bindi í öskju. Útgefandi beggja rit-
verka er Mál og menning.
Hallgrímur Indriðason og Jó-
hann árelíuz hlutu að launum
Kvæði og laust mál Jónasar Hall-
grímssonar, tveggja binda útgáfu
frá Iðunni.
Dagblaðið Dagur og Menning-
arsamtök Norðlendinga færa öll-
um þeim höfundum sem sendu
ljóð í ljóðasamkeppnina bestu
þakkir. Þau þrjú ljóð sem viður-
kenningu hlutu verða birt í Degi
nk. þriðjudag og þá verða einnig
birtar myndir úr hófinu á Fiðlaran-
um í gær. Næstkomandi laugardag
verða síðan birt í Degi viðtöl við
þá Hjört Pálsson, Hallgrím Indr-
iðason og Jóhann árelíuz. óþh
r Innanhúss- 1
málning
10 lítrar
kr. 4.640,-
0
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 23565
I
I
I
SUZUKI
AFL
OG
ÖRYGGI
Þrír krókabátar lönduðu 16 tonnum á Árskógssandi í gærmorgun:
Særún EA-291 með 42 tonn á hálfum mánuði
Þeir Gunnar Leósson t.v. og Konráð Sigurðsson skipstjóri að hefja löndun
úr drekkhlaðinni Særúnu í gærmorgun. Þeir voru svefnlitlir el'tir mikla törn
að undanförnu og voru þeir hvíldinni fegnir sem þriggja daga veiðibann
krókabáta veitti þeim.
Krókabátar og trillur hafa
undanfarnar vikur verið í
mokveiði vestur af Melrakka-
sléttu og aflinn ævintýri líkast-
ur. Yfirleitt er þetta hrygningar-
fiskur sem hrygnir á litlum
bleiðum þar sem botninn er
harðari og verður þá oft þröng á
þingi þegar margir bátar eru á
litlu svæði og hart barist um at-
hafnasvæði. í gær hófst þriggja
daga veiðibann á krókabátum
og komu þeir þá til heimahafna,
nær undantekningalaust með
fullfermi.
Særún EA-291 kom til Ár-
Þær voru handfljótar, konurnar í fiskverkun G. Ben hf. á Árskógssandi,
enda eins gott þegar svo mikill fiskur berst að til vinnslu. Myndir: GG
skógssands með um 6 tonn, en áð-
ur en haldið var að austan var
tveimur tonnum landað á Kópa-
skeri til að nýta tímann og afla
meira. Á sl. hálfum mánuði er afli
bátsins kominn í 42 tonn og gæti
verðmæti þess afla ef seldur væri
á fiskmarkaði verið um 3,6 millj-
ónir króna. Aflinn er unninn hjá
Sólrúnu hf. á Árskógssandi og
hefur honum verið ekið að austan
á bíl, ýmist frá Kópaskeri eða frá
Húsavík nú eftir að þungatak-
markanir tóku gildi í Öxarfirði og
Kelduhverfi. Tveir aðrir krókabát-
ar, Hafdís EA-19 og Þjarkur ÁR-
299, lönduðu einnig á Árskógs-
sandi í gærmorgun og var afli
allra bátanna um 16 tonn, sem fer
til vinnslu hjá Sólrúnu hf. og hjá
G. Ben hf. Starfsfólk fiskverkun-
arhúsanna hefur átt Iangan vinnu-
dag að undanfömu, byrjað klukk-
an sex á morgnana og oft lýkur
vinnudeginum ekki fyrr en 10-12
tímum seinna.
Auk þessa hafa fiskverkunar-
húsin verið að kaupa fisk af
Grímseyjarbátum, en dragnótabát-
ar hafa verið að fá góðan ufsa sem
nánast gefur sig upp í harða landi.
Ufsinn er flattur á Kandamarkað
en þar er hann þurrkaður, m.a. fyr-
ir Brasilíumarkað. GG
Ljóðasamkeppni dagblaðsins Dags og MENOR:
Hjörtur Pálsson höf-
FBUMSVNUM
laugardag 13. maí kl. 10-17 og sunnudag 14. maí kl 12-17
BALENO
Nýr hágœða japanskur
fjölskyldubíll í fullri stœrð.
Ótrúlega hagstœtt verð.
VITARA V6
Nýr og breyttur Vitara með
24 ventla, 4 knastása, V6 álvél.
BiS fc Laufásgötu 9, Akureyri, sími 96-26300
SUZUkÍ bílUí Skeifunni 17, Reykjavík, sími 568 5100
Þormóður rammi:
Gagngerar endur-
bætur á húsnæði
reykvinnslu
Nú standa yfir gagngerar
endurbætur á húsnæði
reykvinnslu Þormóðs ramma
á Siglufirði og segir Rúnar
Marteinsson, verkstjóri, að
ætlunin sé að auka hlut þess-
arar vinnslu í veltu fyrirtæk-
isins.
Á undanförnum árum hefur
Þormóður rammi verið með
reykingu á laxi fyrir Banda-
ríkjamarkað. Þessi framleiðsla
hei'ur líkað vcl og Þormóður
rammi gerir ekki bctur en að
anna eftirspurninni. Rúnar seg-
ir að undanfarinn mánuð hafi
vcrið unnið að gagngerum end-
urbótum á húsnæði þessarar
reykvinnslu og megi segja að
verið sé að byggja nýtl hús inni
í því gamla. „Við leggjum
auka áherslu á þessa vinnslu,
við viljum gera vel sem við er-
um að gcra," sagði Rúnar Mar-
teinsson. Hann sagðist reikna
með að lagfæringunum á hús-
inu verði ekki lokið fyiT en um
tniðjan júní.
Laxinn kaupir Þormóður
rammi frá Silfurstjömunni hf. í
Öxarfirði og segir Rúnar að
hráefnið sé afbragðs gott og
líki vel á veitingastöðunum
vcstur í Bandaríkjunum. Árs-
veltan í þessum hluta fram-
leiðslu Þormóðs ramma er að
sögn Rúnars ekki fjarri 80
milljónum króna og starfs-
mennirnir eru um 15. óþh