Dagur - 27.05.1995, Page 4
4 - DAGUR - Laugardagur 27. maí 1995
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 96-24222 ■ SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON,(íþróttir),
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Fiskverðsdeila sjó-
manna og útvegsmanna
Það er átakanlegt að sjá fiskiskipin við bryggju á
sama tíma og mokveiðist í tegundum utan kvóta,
fyrst og fremst síld innan lögsögu Færeyja og út-
hafskarfa á Reykjaneshrygg. Hvern dag sem sjó-
menn eru í verkfalli tapar þjóðarbúið hundruðum
milljóna króna. Hagsmunirnir eru því gríðarlegir
og það er ólíðandi að deiluaðilar, útvegsmenn og
sjómenn, með kunnuglegri stífni, láti þetta
ástand vara lengi.
Þetta verkfall vekur upp spurningar um hvort
núgildandi kerfi sé ekki löngu búið að syngja sitt
síðasta. Af viðtölum við sjómenn og útgerðar-
menn í fjölmiðlum má ráða að það er bullandi
óánægja beggja vegna borðsins með þann hnút
sem þetta mál er nú komið í. Sjómenn segja hver
á fætur öðrum að þeir kæri sig ekkert um þetta
verkfall, þeir vilja semja beint við sína viðsemj-
endur heima í héraði og það vilja útgerðarmenn-
irnir í mörgum tilfellum einnig. Útgerðarfélag Ak-
ureyringa hf. samdi fyrir um tveim mánuðum síð-
an við sjómenn á ÚA-togurunum um að auka
markaðstengingu fiskverðs í áföngum á næstu
misserum. Um þetta náðist full samstaða stjórn-
enda fyrirtækisins og sjómanna, en engu að síður
er floti ÚA nú bundinn við bryggju eins og önnur
skip. Þetta er umhugsunarvert og vekur spurn-
ingar.
Það er alveg deginum ljósara að deiluaðilar
verða sjálfir að leiða þessa fiskverðsdeilu til lykta
og það verður að gerast strax. Yfirlýsingu Þor-
steins Pálssonar, sjávarútvegsráðherra, um að
ríkisvaldið grípi ekki inn í deiluna með lagasetn-
ingu, ber að fagna. Síðasta vinnudeila sjómanna
og útvegsmanna, í byrjun síðasta árs, var stöðv-
uð með lagaboði og fyrir vikið er málið aftur kom-
ið í harðan hnút. Þetta mál er þess eðlis að ríkis-
valdið á ekki og getur ekki leyst það. Það er út-
vegsmanna og sjómanna að leysa málið.
í UPPÁHALPI
Soínar eftir hálfa síðu
unnar Magn-
ús Guðmunds-
son,fram-
kvœmdastjóri
Sérleyfisbíla
Akureyrar, er
'ónnum kafinn þessa dag-
ana við að aka skólabörn-
um þar sem allir bílstjór-
ar hans eru í verkfalli.
Hann er þó ekkert að
kvarta enda ýmsu vanur
úr rútubransanum.
Gunnar sleit barnsskón-
um í Fiijóskadalnum.
Skólaganga hans hófst í
Stóru- Tjarnaskóla, síðan
lá leiðin í Héraðsskólann
á Laugum og loks í
Bœndaskólann að
Hvanneyri. Hann sneri
séralfarið að samgöngu-
málunum árið 1986 er
hann tók við starfifram-
kvœmdastjóra Sérleyfis-
bíla Akureyrar. Gunnar
er kvœntur Ernu Gunn-
arsdóttur, kennara og
söngkonu og eiga þau tvo
syni.
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
Lambahryggur.
Gunnar Magnús Guðmundsson.
Uppáhaldsdrykkur?
Vatn.
Hvaða heimilisstörffinnst þér
skemmtilegustlleiðinlegust?
Mér finnst skemmtilegast aó
vaska upp en leiðinlegast aö
þurrka af.
Stundar þú einhverja nmrkvissa
hreyfmgu eða líkamsrcekt?
Já, líkamsrækt á Bjargi.
Hvaða blöð og tímarit kaupir þú?
Aó sjálfsögóu Dag og svo Mogg-
ann og DV.
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
Engin. Þaó þýðir ekkert fyrir mig
að rcyna aö lcsa á kvöldin, cg er
alltaf sofnaóur cftir hálfa síðu.
/ hvaða stjörnumerki ert þú?
Nautinu.
Hvaða hljómsveit/tónlistarmaður er
í mestu uppáhaldi hjá þér?
Nýdönsk.
Uppáhaldsíþróttamaður?
Alfrcó Gíslason.
Hvað hoifir þú mest á í sjónvarpi?
Fréttir.
A hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mestálit?
Davíö Oddssyni.
Hver er að þínu mati fegursti staður
á íslandi?
Fnjóskadalur. Þar er ég uppalinn
og á mitt sumarhús.
Hvar vildirðu helst búa ef þú þyrftir
að flytja búferlum nú?
I Þýskalandi.
Hvaða hlut eða fasteign langar þig
mest til að eignast um þessar tnund-
ir?
Reiöhjól.
Hvernig vilt þú helst verja fristund-
um þínum?
Helst vil ég dvelja í sumarbú-
staðnum í Fnjóskadal eóa ferðast
innanlands.
Hvað œtlarðu aðgera um helgina?
Ætli ég vcrði ekki bara aö keyra
ef verkfallið leysist ekki.
MEÐ MORCUNKAFFINU
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON
Enn eitt boltasumaríð
Þá er fótboltinn farinn að rúlla á
nýjan lcik. Handboltinn er að
baki, guði sé lof, og þjóðin búin
að ná þokkalega góðri heilsu eftir
áfallið því samfara að vera send
stystu leið nióur í aðra deild í al-
þjóðlegum handbolta. Þetta var
náttúrlega hið versta mál, hreint
áfall. En þjóðin bar sig karlmann-
lega sem aldrei fyrr, hún hringdi
full samúðar í Þorberg í Þjóóar-
sálina og vottaði honum samúð
sína, sagði hann vera sinn mann
og strákamir yrðu áfram „strák-
amir okkar“ hvað sem á gengi.
Eg varð ósjálfrátt hræróur, tárin
brutust fram og féllu eitt af öðru
ofan í kartöflupottinn og þjóðern-
isvitundin náði sér á strik. Aldrei,
aldrei skulum við gefast upp! Við
erum bestir hvað sem hver segir!
Auóvitað getum við verið
hnarreistir þrátt fyrir allt. Vió
héldum jú þessa líka rosalega
fiottu heimsmeistarakeppni þann-
ig að fyrirmenn í handboltaheim-
inum héldu vart vatni og Jackson
Richardson, hippinn í liói Frakka,
sagði eftir úrslitaleikinn að Island
væri frábært land, „áfram ísland'1,
bætti hann við. Hvað viljum vió
meira?
Fótboltavertíðin hafín
Já, fótboltinn er farinn að rúlla.
Eitt tekur vió af öðru og aum-
ingja Bjami Fel. og félagar fá
ekki einu sinni einnar helgar
pásu.
Eins og venja er til uróu á vor-
dögum kunnuglegar umræður um
aðstöðuleysi knattspyrnumanna
hér norðan heiða. Margir vilja
halda því fram að slakur árangur
norðlenskra knattspyrnumanna á
undanfömum árum eigi rætur sín-
ar í dapurlegri aóstöðu fyrir
sparkmenn yfir vetrarmánuðina.
Þetta kann auðvitað að vera sann-
leikanum samkvæmt, en ég þori
ekki með nokkru móti að taka af-
stöðu í málinu. Best að halda sig
sem lengst frá íþróttunum. Frá
því aó ég fiuttist til Akureyrar
hefur mér tekist að standa utan
við bæói KA og Þór og fyrir vik-
ió hef ég oft ekki verið gjald-
gengur í bæjarmálaumræöunni.
Eg hafði þess vegna enga mögu-
leika á því að fá sæti á hugsanleg-
um framboðslista Þórsara fyrir
síðustu bæjarstjórnarkosningar og
þaðan aó síður hcf ég engan
mögulcika á því aö taka afstöðu
með eöa á móti íþróttahúsbygg-
ingu við Hámar vegna þess að
KA fékk svolciðið hús héma um
árið.
Annars er þessi félagarígur hér
á Akureyri lúmskt skemmtilegur
og hann er þrátt fyrir allt alveg
bráónauðsynlegur. Væru ekki tvö
íþróttafélög í bænum væri ekki til
staðar þessi létti íþróttakrytur.
Mér skilst reyndar á mér eldri
mönnum hér á Akureyri að rígur-
inn í dag sé hrein hátíð miðað við
það sem hann var hér á árum áð-
ur. Þá skiptust menn í tvær
greinilega aðskildar fylkingar á
knattspymuleikjum og það kom
ekki til greina að blanda geði við
andstæðingana nema í hreinni
neyð.
Hins vegar hefur það ekkert
breyst að menn styðja vel við
bakið á sínum mönnum og það er
auðvitað hið besta mál. En einu
mættu áhorfendur breyta og það
er að hætta að hrópa allskyns níð
og blótsyrði að dómurum. Dóm-
arar gera vissulega mistök ekkert
síður en leikmennirnir, en þaó er
ekki nokkur ástæða til þess aó út-
hrópa dómara mcð fúkyróum eins
og undirritaður hefur oft orðió
vitni að á knattspymuleikjum hér
á Akureyri.
Áfram Leiftur og ÍBA!
Hvort sem aðstöðuleysinu er um
að kenna eóa ekki er það auóvit-
r.ð miður að á Akureyri skuli
aðeins vera eitt fyrstu deildar lið í
fótbolta að þessu sinni. Þó að
önnur deildin sé orðin mjög stcrk,
er það nú svo að þar eru ekki
bestu liðin og því má búast við að
knattspyrnuáhuginn verði ekki
eins mikill á Akureyri og oft áð-
ur. En Leiftursmenn í Olafsfirði
og IBA-stelpurnar á Akureyri
veróa vonarneistar Norðlendinga
í sumar sem einu fyrstu deildar
liðin í þessum landsfjóróungi og
það má mikið vera ef Ólafsfirð-
ingar eiga ekki eftir að standa sig.
Þeir eru að minnsta kosii ckki
þekktir fyrir að gefast upp lyrr en
í fulla hncfana. Eg brá mér út í
Ólafsfjörð um síðustu helgi og ég
verð reyndar aó segja þaö alveg
eins og er að mér brá töluvert að
sjá allan snjóinn sem þar er. En
athygli vakti gott ásigkomulag
grasvallarins og þegar þetta var
skrifað benti ekkert til annars en
fyrsti heimaleikur Lciftursmanna
í dag gegn KR-ingum færi fram á
grasinu. Afram Leiftur og ÍBA!