Dagur - 27.05.1995, Blaðsíða 10

Dagur - 27.05.1995, Blaðsíða 10
10-DAGUR-Laugardagur 27. maí 1995 LETTIR JIKUREYRI Léttis verður á Hlíðarholtsvel' daginn 27. maí og liefst kl. Keppt verðu^j^ffcmur flbkl Barna- ogatíífmnaaflokki. láwÍM leldar veitin Irykkir ,una Girnilegt ltaffihlaðborð í SkeifunnirfSÍagsheimi 1 i Léttis, í Breiðholti að kcppni lokinni. Firmakeppnisnefnd Léttis. AKUREYRINGAR Lóðahreinsun og fegrunarvika Eigendur og umráðamenn lóða á Akureyri eru áminntir um að hreinsa af lóðum sínum allt sem er til óþrifnaðar og óprýði og hafa lokið því fyrir 3. júní nk. Hin árlega fegrunarvika á Akureyri er ákveðin 29. maí - 2. júní nk. Starfsmenn Akureyrarbæjar munu fjarlægja rusl sem hreinsað hefur verió af íbúðar- húsalóðum og sett er í hrúgur á götukanta framan við lóðir eftirgreinda daga. Mánudag 29. maí: Innbær og suðurbrekka sunn- an Þingvallastrætis og austan Mýrarvegar. Þriðjud. 30. maí: Lundahverfi og Gerðahverfi. Miðvikud. 31. maí: Miðbær, Oddeyri og Ytri- Brekka norðan Þingvallastrætis og austan Mýrarvegar. Fimmtud. 1. júní: Hlíðahverfi og Holtahverfi. Föstud. 2. júní: Síðuhverfi og Giljahverfi. Nánari upplýsingar varóandi hreinsunina veröa gefnar á skrifstofu heilbrigðiseftirlitsins, Gránufé- lagsgötu 6, sími 24431. Umráðamenn fyrirtækja eru hvattir til að taka þátt í hreinsunarátakinu, raða snyrtilega upp heillegum hlutum og henda því sem ónýtt er. Gámar fyrir rusl (ekki taö) verða staðsettir í hest- húsahverfunum í Breiðholti og við Lögmannshlíð þessa viku. Hestamenn eru hvattir til aö nýta sér þessa þjónustu. Athygli er vakin á því að heilbrigðisnefnd er heimilt að fjarlægja númerslausar bifreiðar og bílflök að undangenginni viðvörun með álímingarmiða. Heilbrigðisfulltrúi. - 1 Þrír golfarar við áttundu holu á golfvellínum á Sauðárkróki, golfkempurnar eru Haraldur Friðriksson, Steinar Skarphéðinsson og Magnús Rögnvaldsson, en þeir eru allir Sauðkrækingar. Golf og gísting á Sauðárkróki Það er næsta víst að margir golfarar bíða með óþreyju eftir því að golfvellir landsins komi undan snjónum og taki á sig grænan og gróskulegan lit. Ein- hverjir hafa þegar fundið auðan blett til að skjóta kúlum út í loftið og heyrst hafa dæmi um fóik sem lætur ekkert stöðva sig og spilar golf í snjósköflum. Golfklúbbur Sauóárkróks á níu holu golfvöil aó Hlíðarenda á nöf- unum fyrir ofan bæinn og þangaó verða golfarar hvaóanæva af land- inu velkomnir í sumar. Golfvöll- urinn er skemmtilega staósettur og útsýni einkar fagurt. Forsvarsmenn golfklúbbsins og Hótel Áning á Sauðárkróki hafa gert meö sér samstarfssamning um aó bjóöa golfáhugafólki upp á aögang aó golfvellinum og gist- ingu og fæði á hótelinu í einum pakka. Á hverju miðvikudagskvöldi verða svo haldin golfmót á vellin- um að Hlíðarenda, svo nefnd Án- ingarmót, og verða fyrstu verð- laun á mótunum kvöldverður fyrir tvo á Hótel Áningu. Forsvars- menn Golfklúbbsins og Hótelsins vonast eftir því að þetta nýja sam- komulag verði golfíþróttinni til framdráttar og bjóóa golfara vel- komna. KLJ/D.R. Vigfús Vigfússon og Björn Steinn Sveinsson innsigla samkomulagið milii Golfklúbbs Sauðárkróks Og Hótels Áningar. Mynd: Deborah Robinson. / Hj |f*i a Golfskáli Golfklúbbs Sauðár- ^ króks. Hótel Áning. Minjasafnið á Akureyri: Sýning á íslenskum bún- ingum o.fl. á sunnudaginn A morgun, sunnudag, verður Minjasafnið á Akureyri opið frá kl. 13-17. Þennan dag verður sérstök áhersla lögó á sýningu á íslenskum búningum og gripum þeim tilheyr- andi svo og sýningu á ýmis konar textílum. Er það gert í tengslum við Handverksdag á vegum Gilfé- lagsins sem fram fer í Deiglunni í dag, en þar verður handverk, gam- alt og nýtt til umræðu. Af þessu tilefni hafa sýningar á slíkum grip- um í Minjasafninu veriö endur- bættar. Sýning á verðlaunagripum úr minjagripasamkeppni Handverks- reynsluverkefnis hefur verið sett upp í Minjasafninu og stendur hún til 25. júní. Sýningin hefur þegar verið sýnd á nokkrum stöðum á landinu og vakið mikla athygli. Fimmtudaginn 1. júní hefst sumarstarfsemi Minjasafnsins og veröur safnið opið daglega frá kl. 11-17 fram til 15. september. Ým- islegt veróur um að vera á vegum safnsins í sumar og má þar t.d. nefna starfsdaga, gönguferðir og Söngvökur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.