Dagur - 15.07.1995, Síða 3
FRETTIR
Laugardagur 15. júlí 1995 - DAGUR - 3
Sveitastjórn Skútustaöahrepps tekur ákvörðun í skólamálinu:
Allt skólahald í Reykjahlíð
Á fundi sveitarstjórnar Skútu-
staðahrepps sl. fimmtudag var
samþykkt með þremur atkvæð-
um gegn tveimur að öli starf-
semi Grunnskóla Skútustaða-
hrepps fari framvegis fram í
Reykjahlíðarskóla. Afar ólíklegt
verður að teija að þetta séu
endalok málsins, því ef miðað er
við það sem á undan er gengið
er ekki við því að búast að íbúar
í suðursveit sætti sig við þessa
miðurstöðu, enda greiddu full-
trúar þeirra í sveitarstjórn at-
kvæði gegn tillögunni.
Fyrir tæpu ári síóan samþykkti
sveitarstjórn samskonar tillögu og
Fjallvegir:
Á góðri leið
Fjallvegir hafa nú ilestir verið
opnaðir og geta því óbyggða-
unnendur tekið gleði sína.
Skagafjarðarleið upp á Sprengi-
sand hefur verið opnuð og von
er til að Eyjaíjarðarleiðin opnist
í byrjun næstu viku.
Vegurinn upp úr Eyjafirði
skemmdist mikið í vatnavöxtun-
um fyrr í sumar, en Vegageröin
vinnur nú af kappi að viðgeró og
von er til að vegurinn verói fær í
næstu viku. Skagafjarðarleiðin var
opnuð í þessari viku og eins veg-
urinn yfir Þverárfjall. Óxarfjarðar-
heiði er fær, ágæt færð er um
Kjalveg, Uxahryggi og Kaldadal.
Að sögn vegaeftirlits er finasta
færi á þeim vegum sem opnir eru,
að vísu sé Sprengisandur grófur
norðan til, en vegurinn hefur svo
sem aldrei verið ætlaður smábíl-
um og um hann er vel akandi
jeppum og stórum bílum.
Enn er ófært í Flateyjardal og
Fjörður og Gæsavatnaleið er lok-
uð vegna snævar en hana á að
skoða eftir helgi. shv
þá risu upp miklar deilur þar sem
foreldrar í suðursveit sendu böm
sín ekki í skóla. Málin voru leyst
til bráðabirgða sl. vetur með for-
eldrareknu skólaseli á Skútustöð-
um. Þá var skipaður starfshópur
með fulltrúm beggja aðila í sveit-
inni og fulltrúa fræðsluskrifstofu
og menntamálaráðuneytisins, sem
leitaðist við að greina orsakir
vandans og benda á mögulegar
lausnir. Full samstaða náðist í
sveitarstjóm um að bera tillögu,
byggða á ábendingum hópsins,
undir samþykki foreldra, stjóm
foreldrafélags skólanna, kennara
og skólanefnd. Þar var gert ráð
fyrir tilraun til fjögurra ára, með
skólaseli á Skútustöðum fyrir
yngstu bekki tvö fyrri árin en öllu
skólahaldi í Reykjahlíð hin tvö
síðari. Foreldrar í suðursveit
felldu hins vegar tillöguna og því
kom að sveitarstjóm að taka af
skarið, sem hún gerði sl. fimmtu-
dag meó framangreindum hætti.
I greinargerð frá meirihluta
sveitarstjórnar kemur fram að
ítrekaðar tilraunir til að ná fram
skólaskipulagi sem frióur ríkir um
hafi reynst árangurslausar. Sam-
kvæmt grunnskólalögum beri
sveitarstjóm að ákveóa skóla-
skipulag í hreppnum. I greinar-
gerðinni er einnig vimað í niður-
\ '' 7 f a \ V. f nt'4*XH y fó. MÝVATN 1
:: Ss»<w»<«4h * AtM»«* H >: <í
skvringar , >«KW» — »«upm ■ „ „ m . - SHc ' ’C ■
)*»•«.»*« •<*«<•«»»«(*'* .*»•»****.—» ■Mww' * »V* *■**.♦»** "*
Þuríður Pétursdóttir í Baldurs-
heimi er í minnihluta í sveitar-
stjóm. Hún sagðist enn sem kom-
ið er lítið vera farin að hugsa um
framhaldið en átti von á að fólk í
suðursveit myndi ræða saman um
hvað gert verður, en það væri al-
veg Ijóst að fólki litist ekkert betur
á þessa niðurstöðu sveitarstjómar
nú en áður. Hún sagði fólki ekki
hafa litist á þá tillögu sem lögð
var fram á dögunum um tilraun til
fjögurra ára. „Fólk eiginlega
treysti ekki framhaldinu, taldi að
það væri ekki nóg að hafa þessi
fjögur ár í hendi og vita ekki hvað
tæki vió.“ Hún treysti sér ekki til
að segja um hvort gripið verði til
viðlíka aðgerða og sl. haust þegar
böm voru ekki send í skólann,
slíkt verói að koma í ljós þegar
nær dregur skólabyrjun. HA
Þuríður Pétursdóttir í Baldursheimi viidi í gær ekki segja til um hvernig
suðursveitungar myndu bregðast við þessari ákvörðun sveitarstjórnar.
stöðu skýrslu sem fræðsluskrif-
stofa umdæmisins vann og skilaöi
í febrúar 1993. Þar segir m.a.:
„Ljóst er að nemendafjöldi í sveit-
arfélaginu er ekki það mikill að
forsendur séu til þess að skipta
honum og ekki em fyrirsjáanlegar
Armann ráðinn að-
stoðarmaður Halldórs
Akureyringurinn Ármann Kr.
Olafsson hefur verið ráðinn að-
stoðarmaður Halldórs Blöndal,
samgönguráðherra.
Ármann er fæddur 1966. Hann
lauk stúdentprófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri og síðan nam
hann stjómmálafræði við Háskóla
Islands. Síðustu árin hefur hann
ásamt félögum sínum rekið aug-
lýsingastofuna Nonna og Manna í
Reykjavík.
Ármann var kosningastjóri
Sjálfstæðisflokksins á Norður-
landi eystra fyrir síðustu alþingis-
kosningar.
Ármann er í sambúð með
Huldu Pálsdóttur, klæðskera, sem
einnig er Akureyringur, og eiga
þau einn son. óþh
breytingar á nemendafjölda skóla-
hverfisins. Því er æskilegast,
skynsamlegast og hagkvæmast að
sameina skólana á einum stað.
Með eólilegu skipulagi skólaakst-
urs koma vegalengdir í sveitarfé-
laginu ekki í veg fyrir það, hvort
sem skólanum verður valinn stað-
ur í Reykjahlíð eða á Skútustöð-
um.“ Þá er minnt á samþykkt
sveitarstjómar frá sl. hausti þar
sem áréttað er „að ef einhverjir
íbúar Skútustaðahrepps sætta sig
ekki við það námsframboð sem
boðið verður skólaárið 1995-
1996, mun hún (sveitarstjórn,
innsk. blaóamanns) ekki hafa
forgöngu um lausn á því.“
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080
Afkomutölur Skagfiröings fyrir árið 1994:
Tapi snúið í hagnað
- miklu munaði um úthafsveiðar
í gær var haldinn aðalfundur
útgerðarfyrirtækisins Skagfirð-
ings hf. á Sauðárkróki fyrir árið
1994. Þar kom fram að afkoman
var talsvert betri en árið á und-
an og munar þar ekki síst um
úthafsveiðar sem skiluðu um
200 milljóna króna aflaverð-
mæti. Sem kunnugt er hafa
Skagfirðingur og Fiskiðjan nú
verið sameinuð formlega í eitt
fyrirtæki, en það gerist þann 1.
maí sl. og afkomutölurnar fyrir
árið 1994 taka því bara til út-
gerðarinnar.
Velta Skagfirðings árið 1994
var 819 milljónir á móti 553 árið
1993. Hagnaður án afskrifta og
fjármagnskostnaðar var 217 millj-
ónir á móti 141 árið á undan,
hagnaður af reglulegri starfsemi
var 16,5 milljónir á móti 8,3 millj-
óna tapi 1993 og þegar óreglulegir
liðir hafa verið teknir með, sölu-
hagnaður af eignum og annað, þá
er hagnaóur ársins 1994 samtals
58 milljónir en árið á undan var
tap 23,2 milljónir. Veltufé frá
rekstri, eða fjármunamyndun, var
166,4 milljónir á móti 88,9 árió á
undan. Þann 1. janúar 1994 voru
útgerðafyrirtækin Skjöldur og
Skagfirðingur sameinuð í eitt fyr-
irtæki þannig að árið 1994 eru
fjögur skip í rekstri á móti þremur
árið 1993.
Á aðalfundinum í gær kom
fram að úthafsveiðar skiluðu
Skagfirðingi hf. um 2000 tonnum,
sem gerðu um 200 milljónir kr. í
aflaverðmæti. Er þetta umtalsvert
meira en áætlanir gerðu ráð fyrir,
þar sem miðað var við hámarks
úthafsveiðiafla upp á 800 tonn.
Það sem af er þessu ári hafa
þær breytingar orðið að um ára-
mótin keypti Skagfirðingur frysti-
togarann Sjóla HF-1 og stofnaði
um hann útgerðina Djúphaf í
Hafnarfirði. Á aðalfundinum í gær
var staófest sameining Djúphafs
og Skagfirðings. Hefur skipið nú
verið skráð á Sauöárkróki og var í
gær gefið nafnið Málmey SK-1,
við hátíðlega athöfn að loknum
aðalfundinum. Þá var togarinn
Drangey seldur á þessu ári. Þann
1. maí sl. sameinuðust síðan Skag-
firðingur og Fiskiðjan í Fiskiðjuna
Skagfiróing og eru útgerð og fisk-
vinnsla þar með formlega komin
undir einn hatt. HA
Vemdaðu
augun
5KJRSIUR
Vörn fyrir speglun
Vörn fyrir geislun
Tilboðsverð
tClvutæki
Furuvöllum 5 • Akureyrl
Sími 462 6100
k_____________Á
Deildarmót I.D.L.
Dagsmótið
LETTIR
b
Aður auglýst mót hefst með knapafundi í Skeif-
unni laugardaginn 15. júlí kl. 9.
Mótið hefst með hindrunarstökki á Hlíðar-
holtsvelli kl. 10.
Nánari dagskrá auglýst í Skeifunni.
AÐGANGUR ÓKEYPIS.
Munið kvöldvökuna og grillveisluna í Skeifunni á laug-
ardagskvöldið.
i.d.l. IMUIE,
HÓTEL
^HÁRPA
Kaffiveitingar
í fögru umhverfi
í Kjarnaskógi
miðvikudaga til sunnudaga frá kl. 14-17.
HÓTEL HARPA
KJARNALUNDI