Dagur - 15.07.1995, Blaðsíða 5
Laugardagur 15. júlí 1995 - DAGUR - 5
KVl KMYNDI R
S/EVAR HREIÐARSSON
Borgarbíó sýnir:
Snillinginn
Appolo enn á toppnum
‘ýjasta stórverk Tom Hanks
gerir það gott í bíóhúsum í
Bandaríkjunum og um síð-
ustu helgi hélt myndin toppsætinu
yfir mest sóttu myndirnar. Rúmar
19 milljónir dollara bættust í kass-
ann á annarri sýningarhelgi og hef-
ur myndin nú fengið 65,5 milljónir
af þeim 175 sem stefnan var sett á.
Myndin Species var frumsýnd og
komst upp í annað sætið þegar um
17 milljónir dollara skiluðu sér frá
áhorfendum fyrstu sýningarhelgina
og kom það nokkuð á óvart. Þar
fara Ben Kingsley, Forest Whita-
ker og Michael Madsen með aðal-
hlutverkin en það er þó tvítug
kanadísk fyrirsæta sem stelur sen-
unni. Hún heitir Natasha Henstr-
idge og leikur stúlku sem búin hef-
ur verið til á rannsóknarstofu og er
sambland af mannveru og geim-
veru. Hún sleppur frá skapara sín-
um og reynir ákaft að vera frjósöm
og fjölga sér. Natasha hefur þegar
verið ráðin til að gera aðra mynd,
spennutryliinn Adrenaline, sem
sýndur verður á næsta ári.
í þriðja sæti í miðasölunni var
teiknimyndin Pocahontas þar sem
Mel Gibson lánar rödd sína og í
fjórða sæti var myndin First
Knight, sem frumsýnd var um
helgina. Sean Connery, Richard
Gere og Julia Ormond eru í aðal-
hlutverkum í þessari rómantísku
miðaldamynd. í fimmta sæti er
Batman Forever sem sýnd hefur
verið í fjórar vikur en hún verður
frumsýnd með prompi og prakt í
Borgarbíói í næstu viku.
Um næstu helgi verða tvær at-
hyglisverðar myndir frumsýndar
vestan hafs en það eru Clueless
með Alicia Silverstone í aðalhlut-
verki og Under Siege 2: Dark Ter-
ritory, nýjasta mynd Steven Seagal.
orgarbíó sýnir um þessar
.rnundir myndina IQ eða
Snillingurinn. Hér er á ferð-
inni rómantísk gamanmynd af
bestu gerð þar sem Albert Einstein
(Walter Matthau) er í lykilhlut-
verki. Myndin gerist árið 1955 og
segir frá tilraunum gáfnaljóssins
Einstein til að kveikja ástarblossa
milli frænku sinnar, Catherine
(Meg Ryan), og bflvirkjans Ed
(Tim Robbins). Catherine er glæsi-
leg og óeðlilega vitur námsmey á
meðan Ed er myndarlegur, einfald-
ur og óslípaður almúgamaður. Ed
fellur fyrir hinni undurfögru og
bráðgáfuðu Catherine og er yfir sig
ástfanginn en það er þó einn galli á
gjöf Njarðar. Catherine er trúlofuð
vísindamanninum ógeðfellda Jam-
es Moreland (Stephen Fry). Með
hjálp Einstein tekst Ed að sannfæra
Catherine að hann sé mikill fræði-
maður og fellur hún þá kylliflöt.
Meg Ryan og Tim Robbins fara
á kostum í þessari mynd enda eru
þau bæði leikarar í fremsta flokki.
Meg Ryan (heitir reyndar Margaret
Mary Emily Anne Hyra) byrjaði
ung að leika jafnframt því sem hún
nam fjölmiðlafræði við New York
háskóla. Hún hóf leikferilinn í
myndinni Rich and Famous og síð-
an eru komnar 22 myndir í sarpinn.
Þar á meðal eru myndirnar Top
Gun, Innerspace, D.O.A., The
Presidio, Joe Versus the Volcano,
The Doors, Prelude to a Kiss,
Flesh and Bone og When a Man
Loves a Woman. Mesta athygli
vakti þó leikur hennar í When
Harry Met Sally þar sem hún sýndi
snilli sína í að gera sér upp
fullnægingu. Hún komst í stjörnu-
flokk með leik sínum í myndinni
Sleepless in Seattle og er nú ein sú
eftirsóttasta í Hollywood. Eftir að
hún lék í IQ tóku við myndirnar
Restoration á móti Hugh Grant og
Robert Downey Jr. og French Kiss
þar sem hún leikur á móti Kevin
Kline og Timothy Hutton.
Eddy Murphy eins og hann lítur út í myndinni The Nutty Professor.
Murphy í stóru hlutverki
Natasha Henstridge er í stóru hlut-
verki í myndinni Species og henni
er spáö bjartri framtíð.
rínistinn Eddie Murphy hef-
»ur í nógu að snúast þessa
dagana og hefur stefnan ver-
ið sett á toppinn í kvikmynda-
heiminum á nýjan leik. Þessa dag-
ana standa yfir tökur á myndinni
The Nutty Professor og þar er
Murphy í heldur óvenjulegu hlut-
verki.
Murphy leikur spikfeitan fræði-
mann og fyllir vel út í hvíta tjald-
ið. Hann hefur verið gagnrýndur í
gegnum tíðina fyrir að vera fastur
í sama hlutverkinu í flestum
myndum sínum en nú er breyting
þar á. Murphy klæðist ?? kílóa
„fitugalla" og það tekur hann sex
klukkutíma á hverjum degi að
komast í gervið. Þetta hefur reynst
Murphy erfitt og þegar hann
klæddist „spikinu" í fyrsta sinn
munaði minnstu að hann félli í
yfirlið í hitanum í Hollywood.
Næsta mynd kappans kallast
Sandblast og mun hann þar reyna
fyrir sér í hasarmynd í fyrsta sinn.
Þar er Murphy í hlutverki
sprengjusérfræðings sem telur sig
vera að vinna fyrir herinn en
kemst síðar að því að kúnnamir
eru óforskammaðir krimmar sem
nota sér sakieysi hans. Tökur hefj-
ast í nóvember en í mars á næsta
ári tekur við gamanmyndin Metro,
þar sem hann snýr aftur í iöggu-
hlutverkið enn á ný. Þar leikur
hann sérfræðing lögreglunnar í
samningaviðræðum við mannræn-
ingja. Emmy-verðlauna leikstjór-
inn Thomas Carter hefur verið
fenginn til að leikstýra myndinni.
Tomas fékk Emmy verðlaunin
fyrir að stýra sjónvarpsþáttunum
Equal Justice, sem sýndir hafa
verið á Stöð 2. Hann er einnig
maðurinn á bak við þættina Hill
Street Blues, sem nutu mikilla
vinsælda fyrir örfáum árum.
Borgarbíó sýnir While You Were Sleeping:
Hver er þessi Pullman?
ill Pullman fer með annað
I aðalhlutverkið í myndinni
While You Were Sleeping,
sem nú er sýnd í Borgarbíói.
Flestir kannast við andlitið þegar
þeir sjá hann þó svo að fæstir viti
hver hann er.
Bill Pullman hefur oftast farið
með aukahlutverk í þeim myndum
sem hann hefur leikið í og jafnan
fengið hlutverk ólánssama og
þjakaða náungans. Hann á 26
myndir að baki, allt frá því hann
lék í Ruthless People árið 1986 til
While You Were Sleeping. Þar á
meðal eru myndirnar Spaceballs,
Singles, A League Of Their Own,
Sommersby, Sleepless in Seattle,
Mr. Jones, Malice, Wyatt Earp og
The Last Seduction.
Nú er honum loks treyst fyrir
aðalhlutverkunum og hefur tekist
vel upp. Hann fer með stórt hlut-
verk í myndinni Casper, sem nýt-
ur mikilla vinsælda og var tíunda
best sótta myndin í Bandaríkjun-
um um síðustu helgi eftir 7 vikur í
sýningu. Næst leikur hann á móti
Bill Pullman kann vel viö sig í aðal-
hlutverki.
sjónvarpsstjörnunni Ellen DeGen-
eres í hennar fyrstu kvikmynd,
Mr. Wrong, og því næst tekur við
myndin Independence Day þar
sem hann leikur á móti Jeff Gold-
blum og Will Smith. Þar er á ferð-
inni kostnaðarsöm framtíðannynd
sem ætlað er að verði sumarsmell-
urinn næsta sumar og er áætlað að
myndin verði frumsýnd á þjóðhá-
tíðardag Bandaríkjanna næsta
su.mar, 4. júlí. Pullman verður í
hlutverki forseta Bandaríkjanna í
þeirri mynd.
f
Kvikmynda-
punktar
Enn bætist á kostnaðinn
við Waterworld, nýjustu mynd
Kevin Costner. Stéttarfélag
kvikmyndagerðamanna hefur
úrskurðað að hver og einn
starfsmaður myndarinnar eigi
að fá 2000 krónur fyrir öll þau
skipti sem matartími tafðist um
korter. Samtals þurfa framleið-
endumir að borga 155 milljón-
ir króna aukalega vegna þessa.
Verkið er nú lang dýrasta kvik-
mynd sem framleidd hefur ver-
ið og má segja að þetta hafi
verið sem dropi í hafið í þeim
mikla kostnaði.
& Michael Jackson hefur
hug á að einbeita sér að leik-
listinni. Hann hefur nú skipt
um umboðsaðila sem mun
eingöngu sjá um kvikmynda-
feril hans. Það er kannski ekki
nema von því fyrrum umboðs-
skrifstofa hans nældi aldrei I
safarík hlutverk handa honurn.
Eitt af því sem honum bauðst
var mynd sem kallaðist Red
Hot og ijallaði um kappakst-
ursbfl sem breyttist í mannveru
í þeim göfuga tilgangi að
hjálpa litlu sveitarþorpi í bar-
áttunni við kölska.
Johnny Depp er kaldur
karl. Hann leikur nú í mynd-
inni Nick of Time, þar sem
hann mun reyna fyrir sér í
hetjuhlutverkinu í spennutrylli.
Depp vill hafa smá spennu í
þessu og bað ffamleiðendur
myndarinnar um að fá að leika
í nokkrum áhættuatriðum sjálf-
ur. Fyrsta verk hans var að
stökkva ffam af þaki Westin
Bonaventure hótelsins í Los
Angeles. Stökkið tókst vel
enda ekki nema sex hæða fall
og Depp fékk mjúka lendingu
á stórum loftpúða.
Pierce Brosnan kann vel
við sig í hlutverki Bond, James
Bond. Framleiðendum mynd-
arinnar Goldeneye, sem er
fyrsta Bond-mynd Brosnan,
voru yftr sig ánægðir og hafa
þegar boðið honum að leika í
næstu tveimur Bond-myndunt.
Hann fær 7,5 milljón dollara
fyrir næstu mynd og 10 millj-
ónir fyrir þá þriðju.
Emilio Estevez mun
leikstýra föður sínum, Martin
Sheen, og Kathy Bates f mynd-
inni The War At Horne. Mynd-
in segir frá baráttu foreldra við
son sinn og vankanta hans þeg-
ar stráksi snýr heim úr Víet-
nam-stríðinu. Sjálfur fer Este-
vez með hlutverk sonarins auk
þess að leikstýra. Myndin mun
kosta um 300 milljónir króna í
framleiðslu og segist Estevez
vera „í senn spenntur og
hræddur" við að leikstýra föð-
ur sínum.
☆ Myndin Forrest Gump
fór sigurför hvar sem hún var
sýnd ef undan er skilið eitt
land því þessi farsæla mynd
þótti algjörlega misheppnuð í
Kína. Myndin, sem halaði inn
nteira en 600 milljónir dala f
aðgangseyri á Vesturlöndum,
hefur verið sýnd í nær tómum
kvikmyndahúsum í Beijing og
Shanghai að undanfömu. Kín-
verjar hafa gert samning um að
sýna vestrænar stórmyndir og
Forrest Gump var ein af fjórum
sem sýndar hafa verið á þessu
ári. Hinar eru Rumble in the
Bronx, True Lies og bama-
myndin The Lion King. Sú síð-
astnefnda var ffumsýnd fyrr í
þessum mánuði og er búist við
að hún fái góðar viðtökur.