Dagur - 15.07.1995, Síða 10
10-DAGUR-Laugardagur 15. júlí 1995
----------------------------------.
í siimar verður okkar stórglæsilega
17 sorta sveitahlaðborð
alla sunnudaga frá kl. 15-18
Frítt í sund og sauna fyrir kaffigesti
Verið velkomin
Hrafnagili • Sími 463 1400
\_________________________________________________/
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Öldrunarlækningadeild
Við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri verður hafin ný
starfsemi í öldrunarþjónustu í haust, en 1. október tek-
ur til starfa öldrunarlækningadeild. í fyrstu verður starf-
semi deildarinnar staðsett á báðum deildum Kristnes-
spítala. Núverandi öldrunardeild breytir um nafn og
mun verða hluti af öldrunarlækningadeild. Hlutverk
deildarinnar er að veita sérhæfða þjónustu í öldrunar-
lækningum, hjúkrun, endurhæfingu og félagsráðgjöf.
Einnig að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum, rannsókn-
um og kennslu. Markmið öldrunarlækningadeilda er að
vera leiðandi afl við að koma á fót nútímalegri öldrun-
arþjónustu og fjölbreyttu meðferðarformi. Lögð er
áhersla á teymisvinnu. Starfsmenn við þjálfun heyra
stjórnunarlega undir endurhæfingadeild en aðrir starís-
menn undir öldrunarlækningadeild.
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar og er um-
sóknarfrestur til 31. júlí 1995. Ráðið verður í allar
stöðurnar 15. september.
1. Verkefnastjóri hjúkrunar.
Staðan er 50% og er veitt í eitt ár.
Verkefni: Sjá um þátt hjúkrunar í undirbúningsvinnu og fram-
kvæmd við stofnun öldrunarlækningadeildar á Kristnesi og
vinna í öldrunarlæknisfræðilegu teymi. Við ráðningu verður
tekið tillit til faglegrar þekkingar, reynslu og menntunar um-
sækjenda.
Nánari upplýsingar gefur Ólína Torfadóttir, hjúkrunarforstjóri,
í síma 463 0271.
Umsóknir sendist hjúkrunarforstjóra.
2. Félagsráðgjafi.
Staðan er 75%.
Verkefni: Félagsráðgjöf fyrir öldrunarlækningadeild og endur-
hæfingardeild FSA.
Þekking og reynsla á sviði öldrunarþjónustu, tryggingamála
og réttinda fatlaðra eru mikilvæg, auk reynslu í samskiptum
við aðstandendur og starfsmenn heilbrigðisstétta.
Nánari upplýsingar veita Halldór Halldórsson, yfirlæknir öldr-
unarlækningadeildar og Stefán Ingvason, yfirlæknir endur-
hæfingadeildar í síma 463 1100. Umsóknir sendist yfirlækni
öldrunarlækningadeildar.
3. Sjúkraþjálfari.
Staðan er 100%.
Verkefni: Stjórn sjúkraþjálfunar á öldrunarlækningadeild.
Á FSA eru fyrir 6.5 stöðugildi sjúkraþjálfara.
Nánari upplýsingar veita Lucienne ten Hoeve, yfirsjúkraþjálf-
ari, í síma 463 0100 og Stefán Ingvason, yfirlæknir endur-
hæfingardeildar, í síma 463 1100.
Umsóknir sendist yfirsjúkraþjálfara.
4. Iðjuþjálfi.
Staðan er 100%.
Verkefni: Stjórn iðjuþjálfunar á öldrunarlækningadeild.
Á FSA eru fyrir 2 stöðugildi iðjuþjálfa.
Nánari upplýsingar veita Ólöf Leifsdóttir, yfiriðjuþjálfi og Stef-
án Ingvason, yfirlæknir endurhæfingardeildar, í síma 463
1100. Umsóknir sendist yfiriðjuþjálfa.
5. Aðstoðarmaður iðjuþjálfa.
Staðan er 100%.
Verkefni: Aðstoða og vinna með iðjuþjálfa á öldrunarlækn-
ingadeild.
Reynsla í samskiþtum við sjúklinga nauðsynleg. Starfið er
heppilegt fyrir þá, sem hafa áhuga á námi í iðjuþjálfun.
Nánari upplýsingar veita Ólöf Leifsdóttir, yfiriðjuþjálfi og Stef-
án Ingvason, yfirlæknir endurhæfingardeildar í síma 463
1100. Umsóknir sendist yfiriðjuþjálfa.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Tennískennsla í íþrótta
húsi Þelamerkurskóla
- Luigi Bartolozzi með námskeið eins og undanfarin ár
Eins og undanfarin tvö ár mun
ítalinn Luigi Bartolozzi vera
með tennisnámskeið á Norður-
landi í sumar. Nú er hann í sam-
starfi við Tennissamband Is-
lands og verður með námskeið í
íþróttahúsi Þelamerkurskóla
frá 25. júlí til 12. ágúst. Auk
þess mun Bartolozzi bjóða upp
á ókeypis kynningartíma laug-
ardaginn 22. júlí og er það ein-
stakt tækifæri til að prófa þessa
vinsælu íþrótt.
Luigi Bartolozzi er menntaður
tenniskennari og hefur starfað hjá
Tennissambandi Italíu. Hann var
með námskeið á eigin vegum á
Akureyri fyrir tveimur árum og
síðan í samráði við TBA í fyrra.
Þá var spilaó á völlum fyrir utan
Iþróttahöllina á Akureyri en nú er
það svæði undirlagt körfuknatt-
leiksvöllum og því hefur nám-
skeiðið verið fært í íþróttahús
Þelamerkurskóla. Þar hefur hópur
fólks spilað tennis í vetur og mun
áframhald vera á því næsta vetur.
Tennisíþróttin hefur átt fremur
erfitt uppdráttar á Akureyri en nú
er Tennissambandið komið inn í
dæmið og er vilji fyrir að byggja
íþróttina upp norðan heiða.
Iþrótta- og tómstundarráð Akur-
eyrar hefur tekið mál tennisleikara
fyrir og lýsir yfir vilja sínum á að
koma upp aðstöðu við Iþróttahöll-
ina næsta sumar og þar til aðstaóa
kemur við Sundlaug Akureyrar.
Námskeið Bartolozzi á síðustu
tveimur árum hafa verió vinsæl og
vel sótt og áhuginn viróist sífellt
meiri á íþróttinni. Luigi vonast til
þess að sem flestir nýti sér þetta
tækifæri að ná tökum á tennis-
íþróttinni, sem auk þess að vera
frábær hreyfing, er skemmtileg af-
þreying.
A námskeióin geta komið ungir
jafnt sem fullorðnir og eru þau
bæði fyrir algera byrjendur og
eins þá sem lengra eru komnir eða
lært hafa tennis og vilja bæta sig.
Boðið er bæði upp á 10 og 5 tíma
námskeið á tímabilinu 25. júlí til
12. ágúst. Börn og unglingar frá
8-17 ára verða í hópum 4-6 saman
og námskeiðið kostar 4.500 krón-
ur. Fullorðnir verða í hópum 4
saman og námskeiðið kostar 6.500
krónur. Bæði tennisspaðar og
boltar eru á staðnum og því þarf
ekki að kaupa það sérstaklega.
Á Þelamörk er góð aðstaða til
aö spila tennis og frábær sundað-
staóa og að sjálfsögðu er ókeypis í
sund eftir hvern tennistíma. Sl.
vetur kom hópur tennisspilara
saman í íþróttahúsi Þelamerkur-
skóla og möguleiki á áframhaldi á
því fyrir þá sem áhuga hafa.
Laugardaginn 22. júlí veróur
ókeypis kynning á tennistímunum
hjá Luigi og er fyrsti tíminn kl.
14-15, annar tíminn kl. 15-16 og
þriðji tíminn kl. 16-17.
Skráning og nánari upplýsingar
er hægt að fá í síma 588-2313 eða
462-4718.
Sæludagar í Vatnaskógi um
verslunarmannahelgina
Sæludagar verða haldnir í komandi verslunarmannahelgi, Á Sæludögum að þessu sinni
Vatnaskógi í Borgarfirði um dagana 4.-7. ágúst. verður margt á döfinni fyrir alla
aldurshópa; m.a. kvöidvökur,
varðeldur, kappróður á vindsæng-
um, koddaslagur úti á vatni,
krakkaklúbbar, gönguferðir og
ratleikur.
Ekki er um aó ræða „lókal“
KFUM-mót. Aðstandendur hátíð-
arinnar líta á hátíóina sem framlag
út á við og er dagskráin skipulögð
í samræmi við það. Undanfarin ár
hefur meirihluti gesta tilheyrt
þeim hópi sem telur sig ekki vera
mjög kirkju- eða trúrækinn.
Aðgangseyrir á Sæludaga er kr.
2.700. Börn yngri en 13 ára fá
ókeypis svo og 67 ára og eldri.
Boðið er upp á fjölskylduafslátt
þannig að foreldrar meö unglinga
undir 16 ára aldri greiða kr. 6 þús-
und fyrir alla fjölskylduna.
Aó Sæludögum standa heima-
menn í Vatnaskógi, Skógarmenn
KFUM, í samvinnu við einstak-
linga og hópa innan kirkjunnar.
Sæludagamir eru áfengislaus há-
tíó.
UTBOÐ
Stálþil - Krossanesi
Hafnarstjórn Akureyrar óskar eftir tilboðum í gerð
stálþilsbakka.
Verkefnið er fólgið í því að reka 106 m langt stálþil,
fylla um 8.000 rúmm. af fyllingarefni og ganga frá
þybbum á þili.
Verkinu skal lokið eigi síðan er 15. desember, 1995.
Útboðsgögn verða afhent á Vita- og hafnamálastofn-
un, Vesturvör 2, Kópavogi, og á skrifstofu Akureyrar-
hafnar frá og með þriðjudeginum 18. júlí, 1995 gegn
5.000 kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum fimmtudaginn 3.
ágúst, 1995, kl. 14.
Hafnarstjórn Akureyrar.