Dagur - 15.07.1995, Qupperneq 12
12 - DAGUR - Laugardagur 15. júlí 1995
I VINNUNNI HJÁ RÚNARI CUÐLAUCS5YNI
Nokkuð víðfeðmt starf
Rúnar Guölaugsson í hópi hressra vinnuskólakrakka í Ólafsfiröi. Mynd: Halldór
Rúnar Guðlaugsson er félagsmála-
stjóri Óiafsfjarðarbæjar. Hann
hefur gegnt starfmu síðan til þess
var stofnað árið 1990 en var áður
kennari. Rúnar hefur búið í Ólafs-
firði sl. 11 ár en eiginkona hans,
Valgerður Sigurðardóttir, er ein-
mitt þaðan. Hann vill þó ekki við-
urkenna að hún hafi dregið sig til
bæjarins og jafnvel væri nær sanni
að tala um að hann hafi dregið
hana.
Starf félagsmálastjóra í Ólafs-
firði tekur að sögn Rúnars til ým-
issa þátta. „Ef við förum í stórum
dráttum yfir þá málaflokka sem
heyra undir þetta starf þá eru það
málefni barna og unglinga, þjón-
usta við aldraða, þjónusta við fatl-
aða, félagsleg heimaþjónusta, fjár-
hagsaðstoð, íþrótta- og æskulýðs-
mál og vinnumiðlun. Þetta er því
nokkuð víðfeðmt starf. Yfir sum-
artímann er vinnuskóiinn í gangi,
en hann fellur undir íþrótta- og
æskulýðsmálapakkann."
Almennt séð sagist hann telja
að bæjarlíf í Ólafsfirði væri á
góðu róli. „Ætli þetta sé ekki svip-
að og á öðrum sambærilegum
stöðum, hvorki verra né betra, án
þess að ég hafi nákvæman saman-
burð. Atvinnuástand er mjög gott,
það eru þrír á atvinnuleysisskrá í
dag og við náum að hreinsa það
upp í næstu viku.“
Eitt af því sem aðkomumenn á
Ólafsfirði taka eftir er hversu
íþróttaáhugi virðist vera almenn-
ur. Þetta hefur líka skilað sér í
góðum árangri á ýmsum sviðum,
en þó hvergi jafn glæsilegum og á
skíðum og nú hin síðari ár einnig í
knattspyrnu. Rúnar segist kannski
ekki geta gefið einhlíta skýringu á
þeim mikla íþróttaáhuga sem ríkir
í bænum, en bendir á að bæjaryfir-
völd, fyrirtækin og einstaklingar í
bænum hafi stutt mjög vel við
bakið á íþróttunum.
Góður árangur í íþróttum bygg-
ist ekki síst á góðum aðbúnaði að
yngri kynslóðinni og í því sam-
bandi bendir Rúnar á að nýja
íþróttahúsið hafi verið mikil lyfti-
stöng. Með tilkomu þess hafa
menn verið að fikra sig áfram með
að stunda íþróttagreinar sem fram
til þessa hefur ekki verið aðstaða
til að stunda, t.d. handbolta og
körfubolta. „Auðvitað er íþrótta-
húsið líka stór breyting fyrir fót-
boltann, því við stöndum oft
frammi fyrir því að geta ekki farið
út fyrr en einhvern tímann í maí.
Þá værum við illa settir ef við
gætum ekki spriklað inni. Málið
er að við þyrftum kannski að ná
almenningi meira inn í húsið en
það er eitthvað sem við þurfum að
vinna í rólegheitunum. Menn
þurfa kannski bara að átta sig á
því að aðstaðan er fyrir hendi.“
Upphaflega kom Rúnar til Ól-
afsfjarðar til að þjálfa Leifturslið-
ið í fótbolta og það gerði hann í
tvö sumur. „Það var 1979 og 1980
og þetta var það fyrsta sem ég
stoppaði hér.“ Þá strax sagist hann
hafa orðið var við hinn mikla fót-
boltaáhuga sem ríkti í bænum og
orðinn er landsfrægur, en Rúnar
segir hann þó enn hafa aukist mik-
ið frá þeim tíma. „Áhuginn hefur
farið vaxandi ár frá ári og hangir
auðvitað saman við árangurinn.“
- Er þá ekki gaman þegar
gengitr svona vel eins o% í sttmar?
„Það er auðvitað alltaf gaman
þegar vel gengur og um þessar
mundir er staðan eins góð og
bjartsýnustu menn vonuðu.“ Rún-
ar hefur raunar verið á kafi í starfi
knattspyrnudeildar Leifturs allan
þann tíma sem hann hefur búið í
Ólafsfirði en segir að í sumar sé
hann heldur lausari við en oft áð-
ur. „Það getur verið ágætt að hvíla
sig aðeins og kannski er það þess
vegna sem gengur svona vel.
Maður getur kannski notað það
sem ástæðu til að vera laus við
þetta aðeins lengur,“ sagði Rúnar í
léttum tón. HA
MATARKROKUR
Humarinn vinsælastur
Það er Matthildur Matthíasdóttir
frá Dalvík sem er í matarkrókn-
um að þessu sinni. Matthildur er
sem stendur í sumarleyfi frá
rækjuvinnslu en hún skúrar
einnig á pósthúsinu og hefur ver-
ið í afleysingum í bakaríinu á
Dalvík. Matthildur á tvö börn,
Sjöfn sem er fjögurra ára og Sæ-
þór tveggja ára. Hún er í sambúð
með Ólafi Traustasyni sjómanni.
Matthildur leggur til fjórar
uppskriftir og segir hún að
pönnusteikti humarinn sé vinsæl-
astur á sínu heimili. „Hvítlauks-
bollurnar eru líka vinsælar,“ seg-
ir hún. Auk þessara rétta er líka
uppskrift af matarsalati og
pönnusteiktri ýsu og eftirréttur-
inn sem Matthildur býður upp á
heitir Mokkafrauð. „Fljótlegur,
einfaldur og góður eftirréttur,"
segir hún.
Matthildur skorar á mágkonu
sína, Dórótheu Jóhannsdóttur,
sem er einnig frá Dalvík, til að
sjá um uppskriftir í næsta matar-
krók.
Pönnusteiktur Humar
ca. 40 humarhalar
50 g íslenskt smjör
Z tsk. salt
hvítlauksduft
2 dl rjómi
Z dl hvítvín (má sleppa)
Humarinn er skelflettur og brún-
aður í smjörinu. Kryddað með
salti og hvítlaukdufti. Hvítvíninu
hellt yfir og síðan rjómanum. Lát-
ið malla á pönnu í 1-2 mínútur.
Hvítlauksboilur
500 g nautahakk
2 eM
salt
4 hlautar brauðsneiðar
2 liiktir Ritzkex
3-4 msk. hveiti
I msk. kartöflumjöl
3 msk. rjómaostur
6 hvítlauksrif
Blandið öllu saman í eina skál
og hrærið vel saman. Litlar boll-
ur búnar til úr hrærunni og þær
steiktar á pönnu. Settar í eldfast
mót og sósunni hellt yfir. Hitað í
ofni í ca. 20 mínútur.
Sósa:
I laitkttr
1 paprika
1 dós niðurskornir tómatar
1-2 súputeningar
8-10 hvítlauksrif
Laukur og paprika skorið
smátt og steikt á pönnu. Tómat-
arnir, hvítlaukurinn og krafturinn
sett út á og þetta látið malla í 1-2
mínútur.
Matarsalat
Kínakál (1 hatts)
6 tómatar
1 rattð paprika
150 g sveppir
6 hc.rðsoðin egg
200 g skinka
1 steikt kjúklingahringa
svartar ólívur
200 g ostur
Grænmetið skorið smátt ásamt
skinkunni, eggjum, kjúklingi og
osti. Allt sett í skál og sósunni
síðan hellt yfir. Hrært vel saman
og salatið sett í ofn og hitað þar
til osturinn er vel bráðinn. Berið
fram með brauði.
Sósa:
6 msk. olívttolía
2 msk. edik
4 msk. tómatþykkni
6 pressttð hvítlauksrif
salt og pipar
Pönnusteikt ýsa í súrsætri sósu
2 ýsttjlök
1 egg
1 dl mjólk
6 msk. hveiti
salt og aromat
Eggin og mjólkin hrærð saman.
Ýsan er roðflett og skorin í
stykki og henni síðan velt upp úr
eggjahrærunni og krydduðu
hveitinu. Stykkin brúnuð á pönnu
og sósunni hellt yfir. Látið malla
í nokkrar mínútur.
Sósa:
Z dós ananssaji
4 msk. pútðursykur
4 msk. edik
2 msk. sojasósa
Z tsk. engifer
Allt sett í pott og soðið saman
í 2-3 mínútur. Ananasinn er sett-
ur síðast.
Gott með hrísgrjónum og
brauði.
Mokkafrauð
250 g siiðtisúkkulaði (Síríits)
25 g smjör
3 egg
1 msk. romm
2 tsk. Neskajji
/ msk. heitt vatn
Bræðið súkkulaðið yfir gufu.
Þeytið smjör, eggjarauður og
romm vel. Stífþeytið eggjahvít-
urnar og bætið varlega út í
súkkulaðiblönduna. Hellið í skál-
ar og skreytið með rjóma og
súkkulaðispónum. AI