Dagur - 21.12.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR
Fimmtudagur 21 .desember 1995 - DAGUR - 3
Engar ákvarðanir verið teknar um breyttan rekstur Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf. vegna mikils tapreksturs:
„Sé engan betri markað fyrir
bolfiskafurðir en Bandaríkin“
- segir Karl Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihús Ólafsíjarðar hf.
hefur verið rekið með umtals-
verðu tapi fyrstu 10 mánuði
þessa árs og að sögn Karls Guð-
mundssonar, framkvæmda-
stjóra, er verið að skoða til
hvaða ráðstafana sé hægt að
grma, meðal annars af stjórn
HÓ, en engar ákvarðanir verið
teknar til að snúa þessari þróun
við, hvorki um breytingar á
vinnslu eða að vinna aðrar fisk-
tegundir og þá jafnvel á aðra
markaði.
„Það verður eitthvað að gerast í
umhverfinu eða þá að grípa verður
til annarra ráðstafana, m.a. að leita
að öðrum mörkuðum fyrir afurðir
frystihússins. Þetta ástand er alls
ekki ásættanlegt. Ég held hins
vegar að við höfum ekki verið að
róa á vitlausa markaði. Hér er rek-
ið hefðbundið bolfiskfrystihús,
aðallega unninn þorskur og ýsa,
og ég sé engan betri markað fyrir
þær afurðir en Bandaríkin. Það
eru helst þeir sem senda sínar af-
urðir á markaði erlendis með flugi
sem hafa getað státað af betri af-
komu. En vegna fjarlægðar frá
flugvelli og m.a. stærðar fisksins
getum við ekki verið að senda fisk
á markaðinn með flugi,“ sagði
Karl Guðmundsson.
Verkefnastaða Slippstöðvarinnar-Odda hf. mjög góð til vors:
Fullbókað í flotkvína
til loka marsmánaðar
Dagarnir um jól og áramót er
mikill annatími í skipaviðgerð-
um og viðhaldi vegna þess að þá
eru mörg fiskiskip bundin við
bryggju vegna lögboðinna frí-
daga áhafna og því er þessi tími
hávertíð í viðgerðum á fiskiskip-
um. Verkefnastaða Slippstöðv-
arinnar-Odda hf. er mjög góð og
segist Ingi Björnsson, fram-
kvæmdastjóri, sjá fram á góða
verkefnastöðu allt til vors, vet-
urinn iofi góðu. Unnið verður
alla virka daga um jól og áramót
og vinna hefst strax 2. janúar á
nýju ári.
Mikil ásókn hefur verið í að
koma skipum í viðhald hjá Slipp-
stöðinni-Ödda hf. kringum jólin
en stöðina vantar jámiðnaðar-
menn og væri hægt að ráða um 20
jámiðnaðarmenn strax til tíma-
bundinna verkefna og álíka fjölda
verkamanna. Ekki er eingöngu
hægt að ráða verkamenn, að baki
ráðningu þeirra verður að vera
ákveðinn fjöldi iðnaðarmanna. Því
getur stöðin ekki ráðið verkamenn
til starfa þrátt fyrir verkefni þó
margir séu á atvinnuleysisskrá og
margir væru meira en fúsir til að
þiggja vinnu hjá Slippstöðinni-
Odda hf. Vegna þeirrar einmuna
tíðar sem hefur verið ríkjandi hef-
ur verið hægt að vinná ýmis verk
utandyra sem að sumarlagi væri.
Flotkvíin er fullbókuð til loka
marsmánaðar, netið í bókuninni
hefur óðum verið að þéttast. í flot-
kvínni nú er Siglir SI-250 og lík-
lega verður einn þýsku Mecklem-
burger-togaranna næstur í flot-
kvína á eftir honum. GG
Síðustu tvö ár hefur rekstur
Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf.
verið réttu megin við strikið en
taprekstur tvö árin þar á undan.
Lítið hefur verið keypt af Rússa-
þorski nema rétt til þess að eiga til
uppfyllingar ef hráefni bregst.
Mikið framboð hefur verið af
þorski úr Barentshafi frá Rússum
en hann hefur verið á háu verði.
Vinnslu lýkur hjá HÓ á morgun,
föstudag, ekkert verður unnið
milli jóla og nýárs og vinnsla
hefst væntanlega ekki fyrr en um
miðjan janúarmánuð 1996. Það er
í samræmi við venjur undanfar-
inna ára. GG
Jólaljósin í Glerárgötu
framleidd á Akureyri
- ódýrari en innflutt Ijós frá Þýskalandi
Rafveita Akureyrar hefur séð
um öll jólaljós til skreytingar á
Akureyri mörg undanfarin ár og
bætt við á hverju ári umfram
það sem fer forgörðum. í ár
leggur Rafveitan til ljós í Glerár-
götu sem vakið hafa verðskuld-
aða athygli akandi sem
gangandi. A næsta ári er stefnt
að því að halda áfram með
samskonar lýsingar suður Gler-
árgötu og Drottningarbraut að
Höefpnersbryggju.
Til þessa hefur allt skraut verið
flutt inn, m.a. stjömur, ljósaseríur
og jólatré en nú eru ljósastjömum-
ar í Glerárgötu smíðaðar af Sand-
blæstri & málmhúðun hf. á Akur-
eyri en Ljósgjafinn hf. sá um að
setja á stjömumar ljós og greni.
Með þessu er verið að styrkja iðn-
að á Akureyri og jafnframt að
spara peninga því þessar stjömur
eru ódýrari en samskonar stjömur
innfluttar frá Þýskalandi. Hver
stjama með ljósabúnaði, greni og
pemm kostar um 16 þúsund krón-
ur og þá er eftir kostnaður við
uppsetningu, að sögn Svanbjöms
Sigurðssonar, rafveitustjóra. GG
Fjárhagsáætlun Framkvæmdasjóðs Akureyrarbæjar:
Eignasala
haldi áfram
Fyrri umræða um frumvarp að
íjárhagsáætlun Framkvæmda-
sjóðs Akureyrar fyrir árið 1996
fór fram á bæjarstjórnarfundi á
þriðjudaginn. Framkvæmda-
sjóður var stofnaður á sínum
tíma til að taka þátt í at-
vinnurekstri, þegar bærinn fór
að leggja verulega peninga í ÚA
og hefur síðan tekið lán og lagt
íjármuni í mörg fyrirtæki. Síðari
umræða fer fram á bæjarstjórn-
arfundi í janúar.
I fmmvarpinu kemur fram að
sala eigna muni halda áfram á
næsta ári þannig að sjóðurinn geti
staðið undir skuldbindingum sín-
um án utanaðkomandi aðstoðar.
Er talan 215 milljónir nefnd í því
sambandi. Fram kom í umræðun-
um hjá fulltrúum meiri og minni-
hluta að eðlilegt væri að stefna að
meiri eignasölu en við síðari um-
ræðu mun afstaða manna væntan-
lega koma betur fram. í bókun
meirihluta bæjarstjómar kemur
fram að söluandvirði hlutabréfa
sem bærinn á verði fyrst og fremst
notað til niðurgreiðslu skulda hjá
Framkvæmdasjóði og Bæjarsjóði.
Með sölu á hlutabréfum bæjar-
ins í Skinnaiðnaði og Krossanesi á
árinu hafa skuldir Framkvæmdas-
sjóðs lækkað um u.þ.b. 215 millj-
ónir. Hefði ekkert verið selt væru
þær ríflega 700 milljónir nú um
áramótin. Stærsta hlutabréfaeign
Framkvæmdasjóðs eða bæjarins
em hlutbréfin í Útgerðarfélagi
Akureyringa. HA
GEISLADISKAVEISLA
PállÓskar .....................1.595,-
Samlokugrill ...................2.990,-
Bubbi .........................1.695,-
Kaffikanna .....................2.190,-
Barnabros ......................1.590,-
Djúpsteikingarpottur ...........4.900,-
Reif í skóinn ..................1.595,-
Kenwood matvinnsluvél
m/ávaxtapressu og safapressu,
tilboð, áður 8.795, nú 7.900,-
Gott úrval
rafmagnsverkfæra
Emiliana Torrini .................1.595,-
Hárþurrkur ....................frá 990,-
Sixties ..........................1.595,-
Verkfærasett..................frá 1.990,-
Pottþétt 2 .......................2.490,-
Skrúfjárnasett ................frá 648,-
og fleira og fleira.
Frábærar jólagjafir