Dagur - 28.12.1995, Side 1
Rússneski togarinn Toros landaði 300 tonnum á Dalvík:
Vilja kaupa ódýra bíla
Rússneski togarinn Toros,
sem er 2.721 tonn, kom til
Dalvíkur að morgni annars dags
jóla með tæp 300 tonn af þorski
sem fara að mestu til vinnslu á
Dalvík en einnig fer lítils háttar
til Bolungarvíkur. Það er Fisk-
miðlun Norðurlands hf. sem hef-
Idag kl. 14.00 hittast Jakob
Björnsson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, borgarstjóri í Reykjavík,
og Finnur Ingólfsson, iðnaðar-
ráðherra, í Rúgbrauðsgerðinni í
Reykjavík. Tilefnið er bréf Ingi-
bjargar Sólrúnar, þar sem hún
óskar eftir að ræða um stöðu og
framtíð Landsvirkjunar.
Fyrirtækið er sem kunnugt er í
Gáfust upp
Fyrir jól var frá því greint í Degi að
peruþjófar væru í essinu sínu á Ak-
ureyri. Þessa orðsendingu hafa
starfsmenn í Myndbandahöllinni og
Jóni sprett við Skógarlund á Akur-
eyri sett upp og skýrir hún sig sjálf.
óþh/Mynd: BG
ur milligöngu um kaupin en fyr-
ir skömmu kom rússneskur tog-
ari til Hafnarfjarðar á vegum FN
með um 300 tonn til Sjólastöðv-
arinnar og síðan kemur annar
togari í fyrstu viku janúarmán-
aðar sem landar á Sauðárkróki
og er stefnt að 300 tonnum þar.
eigu ríkisins, Reykjavfkurborgar
og Akureyrar en nokkuð hefur
verið rætt um hugsanleg kaup rík-
isins á hlut sveitarfélaganna
tveggja. Jakob vildi á þessu stigi
ekki tjá sig um neitt slíkt. Hann
sagði fundinn þann allra fyrsta
sem haldinn er og hann færi ekki
til hans með mótaðar hugmyndir
um framtíð Landsvirkjunar. HA
Utgerðar- og fiskvinnslufyrir-
tækið Árnes hf. í Þorláks-
höfn keypti nýlega fasteignir og
tæki þrotabús Fiskverkunar Jó-
hannesar & Helga hf. að Ránar-
braut á Dalvík og verður fisk-
vinnslan rekin sem útibú frá
Þorlákshöfn og undir sama
nafni. Gestur Matthíasson hefur
verið ráðinn yfirverkstjóri yfir
vinnslunni á Dalvík en hann
hefur verið skipstjóri og stýri-
maður á Blika EA-12 frá Dalvík
og eins bjó hann um nokkurt
skeið í Frakklandi og starfaði
þar að sölu á íslenskum fiski.
Allt bókhald og laun verða
unnin á skrifstofu Ámes hf. í Þor-
lákshöfn. Vinnslan verður svipuð
og verið hefur, aðallega koli og
aðrar tegundir aukfisks, þó fyrst
og fremst flatfisks. Hráefnið verð-
ur keypt af bátum fyrir norðan auk
Sá fiskur fer til vinnslu hjá Fisk-
iðjunni-Skagfirðingur hf.
í áhöfn Toros er 60 manns og
hefur hún falast eftir 35 bflum til
kaups, ekki aðeins Lödum heldur
öllum tegundum, en þeir mega ekki
kosta meira en sem svarar 1000
dollurum, eða 65 þúsund krónur. I
gær var aðeins byrjað að höndla
með bíla við Dalvíkurhöfn. Skipið
fer héðan heim til Murmansk en
Rússamir hafa verið að falast eftir
karfa til kaups og jafnvel sfld og
loðnu til að taka með sér héðan.
Um borð er hægt að sjóða niður lif-
ur og bræða mjöl en Rússamir fara
líklega með þá vöru til Murmansk.
Verð á Rússaþorski hefur heldur
verið að lækka og segir Ásgeir
Arngrímsson, framkvæmdastjóri
FN, að nú sé að skapast grundvöll-
ur að kaupa þorsk af Rússunum og
eiga eitthvað í afgang miðað við
markaðsverð sem fæst fyrir afurð-
imar í dag, sem ekki er eingöngu
blokk heldur einnig t.d. bitar sem
auka möguleika landvinnslunnar
hér. GG
þess sem um miðlun verður að
ræða milli fiskvinnsluhúsanna í
Þorlákshöfn og á Dalvík. Gestur
Matthíasson segir stefnt að því að
vinna milli 1500 og 2000 tonn á
ári og starfsmannafjöldi verði
svipaður og var er vinnsla hætti
um miðjan nóvembermánuð, eða
um 20 manns. Á næstu dögum
verður farið að ráða starfsfólk en
Gestur reiknaði með að reynt yrði
að ráða sem flesta af þeim sem þar
störfuðu áður hjá Fiskverkun Jó-
hannesar & Helga hf. Með þeim
kæmi sú reynsla sem nauðsynleg
væri. Stefnt er að því að hefja
vinnslu kringum 15.janúarnk.
GG
Gestur Matthíasson, nýráðinn yfir-
verkstjóri, við eina fiskvinnsluvél-
ina sem nú fer aftur í gang eftir
nokkurra vikna hlé. Mynd: GG
Fundað um framtíð
Landsvirkjunar
Vinnsla hefst hjá Arnesi hf.
á Dalvík um miðjan janúar
‘'lpaðu okkur.
...að hjálpa
öðrum
Undanfarna daga hefur legið hrímþoka yfir Pollinum, eins og sjá má á þess-
ari mynd sem tekin var í gær. Mynd: BG
Horfur á góðu áramótaveðri:
Kuldaboli ræður
áfram ríkjum
að verður ekki annað séð en
að umtalsvert frost verði um
norðanvert landið fram undir
áramót, en þá ætti að hlýna lít-
ilsháttar. Engu að síður verður
talsvert frost um áramótin,“
sagði Hörður Þórðarson, veður-
fræðingur á Veðurstofu íslands,
í gær.
Hörður sagði að skýringin á
þessum langvarandi kuldakafla
væri sú að lægðirnar næðu ekki
upp að suðurströndinni og því
væri hlýtt loft víðs fjarri. Há-
þrýstisvæði væri allsráðandi á
landinu og ekki væru horfur á um-
talsverðum breytingum á því
næstu daga.
Um áramótaveðrið hafði Hörð-
ur þau orð að allar líkur væru á
því að það yrði mjög gott um allt
Íand, stillt og bjart veður, en eins
og fyrri daginn, kalt, einkum þó
um norðanvert landið. óþh
Gífurlegar frosthörkur á Norðurlandi valda fólki umtalsveröum erfiðleikum:
„Það er eins og loftið sé þykkt"
- segir Anna Birna Snæþórsdóttir í Möðrudal en þar hefur frostið farið yfir 30 stig
Við reynum að þíða með gasi eða einhverju, en það
hafa ekki skemmst pípur eða lagnir ennþá,“ sagði
Þorsteinn Sigurgeirsson á Gautlöndum í Mývatnssveit,
einn þeirra bænda sem glímir við afleiðingar mikillar
frosthörku þessa dagana. Frost hefur farið um og upp
fyrir 30 stig nokkuð víða í uppsveitum og inn til lands
á Norðausturlandi síðustu dagana.
Þorsteinn sagði að það minnkaði í kúnum í kuldanum.
Það væri mun kaldara þar sem frostið kæmi á auða jörð.
Einu teljandi vandræðin eru við að halda vatnsleiðslum í
útihúsin ófrosnum, en í íbúðarhúsum er hitaveita. Þor-
steinn er rúmlega sextugur og segist ekki muna eftir svo
miklum kuldum á þessum árstíma, langvarandi frost komi
frekar í febrúar eða mars. Hann sagði að golu legði af
heiðinni og veðriö væri því frekar leiðinlegt. Ekki er það
langt á milli húsa að húfur og snjósleðagallar duga mönn-
um, en frostið var 28 stig við Gautlönd í gærmorgun.
„Það er mjög kalt, hafði farið í 31,5 stig í nótt,“ sagði
Anna Bima Snæþórsdóttir, Möðrudal á Fjöllum í gær-
morgun, en þá var 27,5 stiga frost í Möðrudal. Mjög kalt
var síðustu dagana fyrir jól í Möðrudal og síðan hefur
smáharðnað. Anna segir að svipaður kuldi hafi komið í
janúarlok 1988. „Menn verða að gera ýmsar ráðstafanir,
því það er t.d. hætta á að vatn frjósi í leiðslum og fjárhús-
um. Við göngum vel frá og látum valnið renna, það er það
eina sem dugar. Við erum með díselrafstöð og getum ekki
látið hana taka olíu beint úr tanknum, olían verður þykk í
kuldanum og við verðum að bera hana inn,“ sagði Anna.
Sjö manns eru í heimili á Möðrudal um hátíðamar, en
fólk fer ekki út að gamni sfnu í þennan kulda. Aðspurð
hvernig væri að fara út í svo mikið frost sagði Ánna
Birna: „Það er dálítið sérstakt. Það er eins og loftið sé
þykkt og það sest svo í vitin á manni að nef og öndunar-
færi hríma. Þó það sé bjart og heiðríkt er eins og loftið sé
þykkt þegar andað er að sér, ef gola væri með þessu væri
það alveg voðalegt."
Anna Bima sagði að dálílil umferð væri og gengi vel. í
gænnorgun kom bíll í hlað vegna vandræða með þykka
olíu í kuldanum. Talsvert er um að fólk leiti aðstoðar í
Möðrudal og á Þorláksmessu biðu þrír ferðalangar þar
meðan vonskuveður var á Vopnafjarðarheiði. IM