Dagur - 28.12.1995, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 28. desember 1995
MINNIN6
Þórir Jón Guðlaugsson
Fæddur 27. desember 1966 - Dáinn 14. desember 1995
Okkur setti hljóð þegar fregnin
barst um andlát vinar okkar og
fyrrverandi samstarfsmanns, Þóris
J. Guðlaugssonar, en hann lést á
heimili sínu að Voðmúlastöðum í
Austur Landeyjum, Rangárvalla-
sýslu, 14. desember s.l. Fregnin
kom okkur þó ekki alveg á óvart,
því Þórir hafði átt við veikindi að
stríða. Fylgdumst við öll með bar-
áttu hans og oft hvarflaði hugur-
inn til hans með bæn um að hann
hefði betur. Það er ávallt sárt þeg-
ar ungt fólk er kallað burt í blóma
lífsins.
Þórir hóf störf í Landsbankan-
um á Akureyi 1. júlí 1988, þá ný-
útskrifaður sem íþróttakennari frá
Laugarvatni. Þórir var einstaklega
geðfelldur ungur maður, góðum
gáfum gæddur og vann störf sín af
mikilli kostgæfni. Gerði bankinn
sér miklar vonir um áframhald-
andi störf hans og voru honum
falin ýmis trúnaðarstörf í bankan-
um, sem hann leysti öll vel af
hendi. Hann var glaðvær og vel
liðinn og varð fljótt vel til vina,
bæði meðal samstarfsfólks og við-
skiptavina. Verkin léku í höndum
hans og án fyrirstöðu greindi hann
hvers manns vanda. Síðustu tvo
vetur stundaði Þórir nám við Há-
skólann á Akureyri með vinnu
sinni í bankanum og útskrifaðist
síðastliðið vor sem rekstrarfræð-
ingur. Þó fór svo að hann ákvað
að hætta bankastörfum og gerast
bóndi að Voðmúlastöðum
Með Þóri er genginn góður
drengur og mun minning hans lifa
okkur til eftirbreytni. Eiginkonu
Þóris, Önnu Maríu Guðmann og
litlu dótturinni Þóreyju Lísu, svo
og öllum vandamönnum, vottum
við innilega samúð okkar og biðj-
um algóðan Guð að styðja þau og
styrkja í sorg þeirra og söknuði.
Þau Ijós sem skœrast lýsa,
þau Ijós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
ogfyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómurfellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið logaskœra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi Ijósið bjarta
þá situr eftirylur
í okkar mœdda hjarta.
(F.G.Þ.)
Samstarfsfólk í Landsbanka
íslands, útibúinu á Akureyri.
Okkur langar að minnast Þóris
Jóns með nokkrum orðum. Við
kynntumst honum er hann fluttist
ásamt Amí til Akureyrar að loknu
námi þeirra við íþróttakennarahá-
skólann á Laugarvatni. Strax við
fyrstu kynni var ljóst að þar fór
hinn mesti mannkostur. Hann var
ákaflega ljúfur og viðkunnanlegur
maður sem vildi allt fyrir alla gera
væri þess nokkur kostur. Við
fengum svo sannarlega að njóta
góðsemi hans og krafta. Því fljót-
lega eftir að þau fluttust norður
tók Amí við stjórn Fimleikaráðs
Akureyrar. Það var alveg sama
hvað þar var að gerast, alltaf var
Þórir mættur til að aðstoða hvort
sem þurfti að bera áhöld milli
húsa, vinna við mót eða annað.
Heimili þeirra hjóna var einnig
miðstöð fundahalda og nutum við
þar ómældrar gestrisni.
Elsku Amí, Þórey Lísa og fjöl-
skyldur. Missir ykkar er mikill.
Við sendum ykkur okkar dýpstu
samúðarkveðjur um leið og við
biðjum þess að guð veiti ykkur
styrk í sorg ykkar.
Hvert örstutt spor
var auðnuspor með þér
hvert andartak er
dvaldirþú hjá mér
var sólskinsstund
og sœludraumur hár
minn sáttmáli við guð íþúsund ár.
F.h. Fimleikaráðs Akureyrar,
Hanna Dóra Markúsdóttir,
Kristín Hilmarsdóttir.
Háskólinn á
Akureyri
óskar eftir að fá leigða 2ja-3ja herbergja íbúð frá
janúar til 1. júní.
Upplýsingar veitir forstöðumaður kennaradeildar í síma
463 0903.
LESEN PAHORN lt>
Uppsetning súrtanks í fiullu sam-
ráði við Vinnu- og Öryggiseftirlit
Af hverju mega kettir
ekki veiða fugla?
Símon Magnússon, starfsmaður viðkomandi stofnana. Þær upplýs- son getað fengið hefði hann eftir
Slippstöðvarinnar-Odda hf., segist ingar hefði Brynjólfur Brynjólfs- þeim leitað.
mótmæla þeim fullyrðingum
Brynjólfs Brynjólfssonar sem
fram koma í Lesendahorni
skömmu fyrir jól þar sem fullyrt
er að veruleg hætta stafi af stað-
setningu tanks sem geymi fljót-
andi súr og tengist noktun nýju
flotkvíarinnar. Það þarf mjög
marga keðjuverkandi þætti til þess
að áburðurinn verði sprengiefni
og svo sé fullyrðing um að vinnu-
svæði Slippstöðvarinnar-Odda hf.
sé nálægt íbúðarsvæði alveg út í
hött.
„Staðsetning tanksins og upp-
setning var í fullu samstarfi og
samþykki Vinnueftirlits ríkisins
og Öryggiseftirlits ríkisins auk
fulltrúa byggingamefndar Akur-
eyrarbæjar. Það hefði aldrei verið
farið af stað með uppsetninguna ef
ekki hefði legið fyrir samþykki
Svanhiidur hringdi og vildi taka
málstað katta í þeirri umræðu sem
verið hefur í bæjarkerfinu á Akur-
eyri um kattahald. Svanhildur
sagði að allt gott væri um það að
segja að farga villiköttum, en sú
hugmynd væri fáránleg að tjóðra
ketti. Það þekktu kattaeigendur að
slíkt byði heim þeirri hættu að
kettirnir hengdu sig. Það væri
varla ætlun bæjaryfirvalda á Ak-
ureyri.
/
FrsstrástA
FM 98.7
ÁRAMÓTASAGA
Skrifaðu stutta sögu um þaö hvernig Leppalúði og starfsfólk Radíónausts fara
að því að gera bestu áramótabrennuna í bænum. Þú skilar síðan sögunni
upp á Frostrás, Glerárgötu 34, efstu hæð. Skilafrestur rennur út 29. desember.
Glæsileg verðlaun í boði Radíónausts.
(Þessi frábæra Samsung Max 34S hljómtækjasamstæða að verðmæti 34.900,-)
Gteðileg jót!
y
„Það sjá allir að það gengur
ekki að loka ketti inni yfir varp-
tímann og í þessu sambandi vil ég
varpa fram þeirri spurningu af
hverju kettir megi ekki veiða
fugla. Það er gangur náttúrunnar
að kettir veiða fugla og hafa alltaf
gert. Hvað er ljótt við það? Menn-
imir skjóta rjúpur og gæsir sér til
matar, sumir til átu, aðrir til að
græða á því og enn aðrir sér til
skemmtunar. Er þá eitthvað at-
hugavert við að kettir veiði fugla
sér til matar?“
Héraðsnefnd
Eyjaíjarðar:
Ný marka-
skrá
undirbúin
Héraðsnefnd Eyjafjarðar mun
snemma á næsta ári gefa út nýja
markaskrá fyrir Eyjafjarðar-
sýslu. Undirbúningur útgáfunn-
ar er hafínn.
@Ferðafélag
Akureyrar
Almennur
félagsfundur
verður haldinn fimmtudaginn 28. desember kl. 20.30 að
Strandgötu 23 b.
Fundarefni:
Framtíðarstefna FFA.
Stjórnin.
Samkvæmt tilkynningu frá
Héraðsnefnd munu þeir sem eiga
skráð mark í síðustu skrá fá bréf
frá markaverði á næstu dögum þar
sem leitað verður staðfestingar á
áframhaldandi skráningu marks
eða breytingu þar á.
I tilkynningunni er einnig þeim
markaeigendum á svæðinu sem
ekki voru skráðir í síðustu marka-
skrá bent á að hafa samband við
markavörð, Eirík Björnsson, Hóls-
gerði 5 á Akureyri í síma
4624259.
Síðast kom út markaskrá fyrir
Eyjafjarðarsýslu árið 1988 en nýja
markaskráin verður komin út
tímalega fyrir sauðburð í vor. JÓH