Dagur - 28.12.1995, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 28. desember 1995 - DAGUR - 9
Mysingssamloka
með sveppum
Annan dag jóla frumsýndi
Leikklúbburinn Saga leik-
ritið Mysingssamloka með
sveppum, sem samið er af Jóni St.
Kristjánssyni í samvinnu við ung-
lingadeild Leikfélags Hafnarfjarð-
ar árið 1992. Verkið er hópunnið
þannig, að Jón vann handritið úr
hugmyndum hópsins, sem þátt tók
í hugarsveiminu og síðan fyrstu
uppfærslu verksins í Hafnarfirði.
Mysingssamloka með sveppum
gerist á heimavistarskóla, þar sem
eingöngu eru stúlkur. Einungis ein
karlkynspersóna kemur fyrir í
verkinu; Jói, sonur skólastýrunnar,
Jófríðar. Stúlkumar, sem eru nem-
endur í heimavistarskólanum, eru
aðalpersónur verksins. Margar
þeirra eiga sér einhvern bakgrunn
vandamála, sem fléttast með ýsm-
um hætti inn í atburðarásina auk
þess sem lífið á heimavistinni og
viðfangið við skólastýruna em
miðlæg í verkinu.
Texti verksins er á margan veg
lipur og fer vel í munni ieikenda.
Hann er nokkuð skotinn unglinga-
máli, en ekki svo að úr hófi gangi,
eins á stundum kemur fyrir í verk-
um af svipuðum toga og Mysings-
samloka með sveppum er, þegar
höfundar reyna að færa sig á stig
unglinga, en skjóta í raun yfir
markið. Flutningur textans var
yfirleitt með miklum ágætum,
greinilegur og skýr. Einungis í
upphafsatriði var dálítið torvelt að
fylgjast með tali leikenda, en það
stafaði af því, að segulbandsstæki
var stillt heldur hátt og sem næst
yfirgnæfði texta leikritsins.
I langflestum tilfellum er fas
leikenda gott og vel í samræmi
við þær persónur, sem þeim er
ætlað að túlka. Þannig er hippinn
Stjama, sem leikin er af Silju Ein-
arsdóttur, iðulega vel í samræmi
við þá stefnu, sem hún á að fylgja
og Svabbi, hin svala og lífsreynda,
hæfilega losaraleg í háttum. Þann-
ig mætti áfram halda með aðrar
persónur úr hópi stúlknanna á
LEIKLIST
HAUKUR ÁCÚSTS50N
SKRIFAR
heimavistinni, en þær eru Sigga,
leikin af Dís Pálsdóttur,. Petra,
leikin af Söndru Hlíf Ocares,
Gerður, leikin af Þórdísi Steinars-
dóttur, Sara Lind, leikin af Lilju
Björk Vilhelmsdóttur, Sóley, leik-
in af Evu Signýju Berger, og
Harpa, leikin af Hörpu B. Birgis-
dóttur. Allar áttu góða spretti í
hlutverkum sínum, einkum í sam-
leik fárra.
Jói, eina karlpersónan í verk-
inu, er leikinn af Guðjóni
Tryggvasyni. Hlutverkið er nokk-
uð vandmeðfarið, þar sem persón-
an er annars vegar nokkuð kaldur
karl á yfirborði, en í raun vand-
ræðalegur unglingur í fansi
stúlkna, sem flestar reyna að sýn-
ast lífreyndari en þær eru. Guðjóni
tekst í heild nokkuð vel, en hefði
alltíðum mátt ná heldur meiri inn-
lifun í hlutverkið.
Jófríður, skólastýran, er leikin
af Kjartani Smára Höskuldssyni.
Honum tekst iðulega vel í þessu
hlutverki og nær tíðum kvenlegu
fasi og blæ, sem fellur að viðtekn-
um hugmyndum um persónu
hinnar dæmigerðu skólastýru.
Leikstjórinn hefur náð að skapa
lipurt heildarferli, sem almennt
rennur vel. Sviðhreyfingar ganga
yfirleitt vel upp hjá einstökum
persónum, þó að vissulega beri á
nokkrum stirðleika á stundum og
þá einkum í hópsenum, sem eru
gjaman uppstilltar og kyrrstæðar;
svo mjög á stundum, að þær verka
nálega sem hlé í atburðarásina.
Nokkur fámennisatriði mættu líka
vera heldur betur unnin, svo sem
þau, sem gerast niðri í kjallara
skólahússins. Þá eru leifturatriði,
sem eru mörg í verkinu, nokkuð
oft heldur snubbótt og ná ekki al-
veg vægi sínu fyrir vikið, þó að
þau séu vel flutt og skilmerkilega
hvað til dæmis skýran flutning
texta áhrærir.
Leikklúbburinn Saga hefur
marga hluti vel gert og verið
skemmtilegur og iðulega forvitni-
legur aðili í leiklistarlífi Akureyr-
ar. Svo er enn í uppsetningu
klúbbsins á Mysingssamloku með
sveppum. Þar reynir ungt fólk sig
á sviði og gefur innsýn inn í heim,
sem okkur ölluin er hollt að vita
af. Vonandi verður klúbburinn
lengi enn vettvangur, þar sem
ungt fólk með leiklistaráhuga get-
ur notið sín sjálfu sér og bæjarbú-
um til ánægju.
Æðarræktarfélag Skagfirðinga mótmælir
samdrætti í eyðingu refa og minka:
Minkur veiðir jafn mikið
af rjúpu og maður og
fálki til samans
Æðarræktarfélag Skagafjarðar
hefur mótmælt harðlega álykt-
un veiðistjóra þess efnis að
dregið verði úr eyðingu refa og
minka. Félagið álítur ályktunina
stórhættulega og hún stuðli að
miklu ójafnvægi í náttúru
landsins hvað varðar fuglalíf. Ef
þjóðin sé svo fáæk að fé skorti
til að halda niðri fjölgun mei-
dýra þá sé réttara að leggja nið-
ur embætti veiðistjóra og verja
þeim peningum sem þannig
Jólaball
í Hamri
íþróttafélagið Þór á Akureyri
stendur fyrir jólaballi í Hamri,
félagsheimili Þórs, á morgun,
föstudaginn 29. desember, kl.
17. Aðgangseyrir kr. 500 en frítt
fyrir 4 ára og yngri.
Að sjálfsögðu verður gengið í
kringum jólatréð, jólasveinarnir
láta sjá sig og hljómsveitin Ör-
vænting spilar jólalögin. Þá verður
boðið upp á kaffihlaðborð.
sparist til eyðingar refa og
minka auk vargfugla sem stöð-
ugt fjölgi og engin tilraun sé
gerð til að halda fjölgun þeirra í
skefjum.
Bent var á í samþykkt Æðar-
ræktarfélagins að árlega aflist tugir
milljóna í gjaldeyri fyrir æðdardún
og því væri æskilegra að veiði-
stjóraembættið hefði einhverja til-
burði til leiðbeininga varðandi
eyðingu refa og minka en hefði sig
minna í frammi sem rukkunar-
stofnun fyrir veiðileyfagjöld.
Gunnar Þórðarson, formaður
Æðarræktarfélags Skagafjarðar,
segir að alls ekki megi slaka á
sókninni varðandi eyðingu vargs-
ins, sérstaklega minksins, annars
sé lifríkið í hættu. Kannanir á
merktum rjúpum hafi leitt í ljós að
af heildarveiðinni hafi minkurinn
veitt 46%, fálkinn 27% og maður-
inn, þ.e. veiðimennirnir, einnig
27%. Þannig sé minkurinn eins
mikill skaðvaldur og maður og
fálki til samans og ef dragi eigi úr
eyðingu hans sé vegið að jafnvægi
í lífríki landsins.
„Þeir þingmenn og fleiri sem
vilja draga úr eyðingu refs og
minks þekkja ekki aðstæður og
mér finnst eins og nýr veiðistjóri
hreinlega þekki ekki málið nógu
ítarlega og okkur líst illa á upphaf
hans embættisferils. Framkvæmd
eyðingar minks og refs er í mikl-
um ólestri og fjármagni illa ráð-
stafað. Ráðinn er einn maður í
hverjum hrepp og sumir kunna lít-
ið sem ekkert til verka, heildarár-
angur í samræmi við það og mjög
ómarkviss. Það á auðvitað að hafa
í þessu fáa menn en duglega og
með hunda, sem eru sérþjálfaðir
til þessara verka, reka þetta skipu-
lega og af skynsemi," sagði Gunn-
ar Þórðarson. GG
Skilið vörum
fyrir áramót!
Að gefnu tilefni vilja Neyt-
endasamtökin minna neytendur á,
að ætli þeir að skila vörum nú eftir
jól, geri þeir það fyrir áramót.
Astæðan er sú að eftir áramót
hefjast útsölur í fjölmörgum versl-
unum og oftast miða þær við út-
söluverðið sé vöruin skilað þá.
(Fréttatilkynning)
VIÐSKIPTAMANNA
0G SPARISJÓÐA
Lokun 2. janúar og eindagar víxla.
Afgreiðslur banka og sparisjóða
verða lokaðar þriðjudaginn
2. janúar 1996.
Leiðbeiningar um eindaga
víxla um jól og áramót
liggja frammi í afgreiðslum.
Reykjavík, desember 1995
Samvinnunefnd banka og sparisjóða
Jóla-
harmoniku-
ball
Föstudaginn 29. desember ætla Þuríður formað-
ur og hásetarnir ásamt Jóni Árnasyni á Syðri-Á
að halda sprellfjörugan harmonikudansleik að
Laugarborg sem hefst kl. 22.
Gömlu, góðu lögin.
Þuríður formaður og hásetarnir.
Dægurlagakeppni
Kvenfélags Sauðárkróks
Kvenfélag Sauðárkróks efnir til
dægurlagakeppni í Sæluviku 2. maí 1996.
Hljómsveitarstjóri og umsjónarmaður verður Magnús Kjart-
ansson.
Öllum er heimil þátttaka og verk mega ekki hafa verið flutt
opinberlega.
Þátttakendur skili verkum sínum undir dulnefni og láti rétt
nöfn og heimilisföng fylgja með í vel merktu og iokuðu um-
slagi.
Síðasti skilafrestur er til og með 1. febrúar 1996.
Innsendar tillögur skulu merktar „Dægurlagakeppni Kven-
félags Sauðárkróks“, pósthólf 93, 550 Sauðárkrókur.
Kvenfélag Sauðárkróks áskilur sér allan rétt til þess að gefa
lögin út á hljómplötu og kassettu og einnig til þess að heim-
ila sjónvarp og útvarp frá keppninni.