Dagur - 30.12.1995, Page 16
16 - DAGUR - Laugardagur 30. desember 1995
Minnisverðustu atburðir ársins 1995
að friðurinn, sem virðist vera í
sjónmáli, væri ekki orðin tóm.
„Morðið á Rabin, forsætisráðherra
ísraels, snart mig. Skömmu áður
hafði ég hlýtt á hann flytja ræðu
og sitja fyrir svörum. Mér gast að
málflutningi hans og taldi friðar-
vilja hans ófalskan. Og í þing-
kosningum í Rússlandi fóru
kommúnistar með sigur af hólmi.
Sá tónn er falskur þar - eins og
hér. Sigur kommúnista kom mér
ekki sérlega á óvart, eftir að hafa
rætt við ýmsa stjómmálamenn í
gömlu austurblokkinni.“
Sigbjöm sagðist hafa trú á því
að bjartar horfur væru á íslandi
nú, en dökkar á annan hátt. Ytri
aðstæður væru hagstæðar, s.s.
uppsveifla á okkar helstu mörkuð-
um þar sem hagvöxtur fer vax-
andi. Þá hefði tekist að viðhalda
stöðugleika um nokkurt skeið. A
hinn bóginn væri nauðsynlegt að
deila bættum hag út til fólksins í
landinu, en Sigbjöm kvaðst óttast
að menn skorti vit og jafnvel vilja
til að slíkt mætti ná fram að
ganga. Hér ætti skattakerfið m.a.
hlut að máli; skattar væm of háir
og það dræpi niður frumkvæði
fólks.
Sigbjöm segir að verkalýðinn á
íslandi skorti körftugri baráttu-
menn. Hann segir jafnframt að
hann óttist kyrrstöðu í landinu.
Við stjómvölinn sitji flokkar og
menn sem vilji ekki ræða frekari
þróun í Evrópumálum, þeir vilji
ekki ræða um breytingar í land-
búnaðarmálum og veiðileyfagjald
sé bannorð. „Það má helst ekkert
ræða. Með slíka aðila við stjóm-
völinn í langan tíma verða engar
framfarir. Slíkt óttast ég og óttast
að ungt fólk muni flýja kyrrstöð-
una og hverfa til annarra landa,“
sagði Sigbjörn Gunnarsson.
Gylfi Þór Magnúsjon:
Atökin um UA og
flutningur norður
eftirminnileg mál
„Mér er efst í
huga flutningur
á hluta starf-
semi Sölumið-
stöðvar hrað-
frystihúsanna
úr Reykjavík og
hingað til Akur-
eyrar. Við Ilutt-
um hingað
síðsumars og skrifstofa okkar hér
var opnuð í september. í þessu
sambandi eru mér ekki síður eftir-
minnileg átökin um sölumál Út-
gerðarfélags Akureyringa í byrjun
ársins, sem meðal annars leiddi til
flutninga SH á um þriðjungi starf-
semi sinnar hingað," sagði Gylfi
Þór Magnússon, framkvæmda-
stjóri Akureyrarskrifstofu SH.
Niðurstöðu málsins segir hann
hafa verið jákvæða og afgerandi
fyrir stöðu ÚA, á innlendum sem
erlendum mörkuðum.
Gylfi Þór Magnússon sagði að
það að setja skrifstofu SH á Akur-
eyri á fót hefði verið einkar
skemmtilegt verkefni. „Ég sé fyrir
mér afar spennandi tíma, við að
marka þessari starfsemi enn fast-
ari sess. Þetta hefur gengið mjög
snurðulaust fyrir sig og aðfluttum
starfsmönnum okkar sem og nýj-
um, er fyrir bjuggu á Akureyri,
líkar vel hér held ég að megi
segja. Og talandi um Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna sé ég fyrir mér
áhugaverð verkefni, svo sem enn
frekari markaðssókn á innlendum
og erlendum mörkuðum," sagði
Gylfi Þór Magnússon.
Þegar horft var til komandi árs
sagði Gylfi að nýir friðarsamning-
ar ríkja á Balkanskaga bentu til
þess að friðsamlegra yrði í heim-
inum á næsta ári, að minnsta kosti
í Evrópu. „Fréttir um góðan
þorskafla af Vestfjarðamiðum að
undanfömu gefa nokkrar vonir um
betri stöðu bolfiskveiða og
vinnslu á komandi ári,“ sagði
Gylfi Þór Magnússon.
Svanfríður Jónasdóttir:
Ég byrja á gleði-
legu fréttunum...
„Ég byrja á
gleðilegu frétt-
unum. Þar
stendur upp úr
hve okkar fólk
hefur staðið sig
vel í því að gera
garðinn frægan
erlendis, - og
þar tala ég um
sjávarútvegsfyrirtækin okkar,
sölusamtökin og listamenn, eins
og hana Björku," sagði Svanfríður
Jónasdóttir á Dalvík, þingmaður
Þjóðvaka á Norðurlandi eystra,
þegar hún leit yfir farinn veg árs-
ins. „Dapurlegar minningar tengj-
ast hins vegar afleiðingum nátt-
úruhamfara og slysa og nú í lok
ársins berast fréttir af vaxandi
fíkniefnaneyslu og erfiðleikum
ungs fólks. Þar þurfum við að snú-
ast betur til vamar,“ bætti Svan-
fríður við.
„Það sem ég er þakklátust fyrir,
nú í lok ársins, er að fjölskylda
mín hefur verið hraust og mínu
fólki almennt farið fram. Hjá mér
persónulega stendur það uppúr að
ég skipti um starf á árinu og hafði
það nokkra röskun og breytingu á
mínum högum í för með sér. Ég
eignaðist líka marga góða vini á
árinu og met það miklis. Ég átti
þess kost nú á haustdögum að sitja
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna í New York og ég hygg að
það verði mér einna eftirminnileg-
ast frá árinu,“ sagði Svanfríður.
Svanfríður Jónasdóttir kvaðst
binda þær vonir við næsta ár að
áfram mætti rækta og treysta sam-
band dýrmætt við fjölskyldu og
vini. „Svo vona ég að ég hafi
rýmri tíma en verið hefur til hlýða
á tónlist og lesa; ...og þá á ég við
eitthvað annað en skýrslur," sagði
hún.
Kristján Aðalsteinsson:
Góð sveifla í
rekstri Sæplasts
„Góð sveifla
hefur verið í
rekstri Sæplasts
hf. allt þetta ár
og mikill upp-
gangur. Við
hugum nú að
því að auka
framleiðslugetu
verksmiðjunn-
ar, auk þess sem í gangi eru áætl-
anir um stækkun húsnæðis. Ein
helsta ástæða fyrir góðu gengi fyr-
irtækisins er gott og mikið mark-
aðsstarf, sem unnið hefur verið á
undanfömum árum. Þá tel ég að
ekki megi gera lítið úr þeim stöð-
ugleika sem náðst hefur í íslensku
efhahagslífi,“ segir Kristján Aðal-
steinsson, framkvæmdastjóri Sæ-
plasts hf. á Dalvík.
„Það sem stendur mér næst
þegar ég lít yfir atburði ársins em
þær hörmungar sem gengu yfir á
Vestfjörðum í tvígang. A þann
hátt stendur þetta mér nærri að ég
missti ættingja í snjóflóðinu í Nes-
kaupstað árið 1974 og því þekki
ég þær tilfinningar sem ég hygg
að Súðvíkingar og Flateyringar
lifi með - og eins hvemig þeir
syrgja ættingja sína. Af erlendum
fréttum koma mér í hug strfðs-
átökin á Balkanskaga og tilraunir
manna til að ná þar friði á ný,“
sagði Kristján.
Kristján sagði að tala mætti um
að íslensk fyrirtæki hefðu gert
innrás á erlenda markaði á sfðustu
misserum og væru nú í æ ríkari
mæli farin að leita fyrir sér um
fjárfestingarkosti erlendis. Á viss-
an hátt hefði þetta orðið Sæplasti
til góða enda hefðu nýir markaðs-
möguleikar skapast með þessu. Þá
væri það og ekkert leyndarmál að
fyrirtækið væri farið að huga að
möguleikum á að hefja fram-
leiðslu erlendis. Sagði Kristján að
því þætti sér það um margt skjóta
skökku við að erlendum fyrirtækj-
um væru þröngar skorður settar
um að starfa hér á landi og þeim
væri það í raun ekki mögulegt,
nema að ströngum skilyrðum upp-
fylltum.
„Við hjónin eignuðumst okkar
fjórða bam undir lok síðasta árs.
Því hefur mestur fritími farið í
bamauppeldi og eftir þeim stund-
um sé ég ekki. Þetta - ásamt vinn-
unni - tekur nær allan tíma manns.
Ég nefndi að uppgangur hefði ver-
ið í rekstri Sæplasts og við þyrft-
um að auka mjög framleiðslugetu
okkar. Á síðari hluta þessa árs
hófum við framleiðslu á fiskiker-
um úr endurvinnanlegu efni og lít
ég á það sem stórt framfaraskref.
Mikið þróunarstarf hefur verið í
gangi til að koma þessari fram-
leiðslu af stað og mörg stór verk-
efni bíða okkar henni samfara.
Markaður fyrir þessi ker er eink-
um í löndum þar sem umræða og
vitund um umhverfismál er komin
lengra á veg en hér á landi, svo
sem í Danmörku, Hollandi og
Þýskalandi.“
Vigfús B. Jónsson:
Hélt sonarsyni og
alnafna undir skírn
„Mér er eftir-
minnilegt þegar
ég hélt á ungum
sonarsyni mín-
um undir skím í
Húsavíkurkirkju
þann 17. júní í
sumar. Hann er
alnafni minn og
heitir Vigfús
Bjarni. Annar eftirminnilegur at-
burður var svo þegar sonarsonur
okkar hjóna, Vigfús Bjami, varð
dúx á stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Sund í Reykjavík.
Hann fékk 9,3 í aðaleinkunn og
fórum við hjónin suður og vorum
við útskriftarathöfnina. Það var
skemmtileg stund,“ sagði Vigfús
B. Jónsson, bóndi á Laxamýri í
Aðaldal.
„Eftir þetta ár er ég orðinn leið-
ur á stríðsfréttum. En það er ekki
fyrr en nú, undir lok ársins, sem
friðvænlegra er orðið í ríkjunum á
Balkanskaga. Foreldrar mínir
lifðu bæði fyrri heimsstyrjöldina
og þegar henni sleppti sögðu þau
að slíkur hildarleikur myndi ekki
aftur eiga sér stað. Annað kom á
daginn. Og ég var fimmtán ára á
friðardeginum, í maí 1945, og þá
hugsaði ég í svipaða veru og for-
eldrar mínir gerðu forðum. Það er
hörmulegt að svona hlutir gerist
aftur og aftur, slag í slag. En öll-
urn styrjöldum linnir - en aldrei þó
fyrr en um síðir og þá þegar viti
bornir menn setjast niður til samn-
inga.
Allt eigum við bændur svo
undir veðráttunni og því verður
mér hugsað til hennar þegar árið
er gert upp. Síðasti vetur var erfið-
ur, einkum á Vestfjörðum og
hörmulegir atburðir þar; í Súðavík
og á Flateyri, eru vafalítið það
sem hæst ber í fréttum af innlend-
um vettvangi. Ég nefni einnig
kennaraverkfallið, sem gekk nærri
mörgu ungu fólki. Með því fann
ég til. Það er ákveðin brotalöm í
hinu íslenska þjóðskipulagi að
verkföll, á borð við verkfall kenn-
ara, geti staðið svo lengi sem varð
og þau bitnað verst og mest á
þriðja aðila, sem til einskis ills
hefur unnið en mest er til miska
gert,“ sagði Vigfús.
Vigfús á Laxamýri nefndi
einnig umferðaróhapp sem hann
lenti í sl. sumar og sagði þann at-
burð sér afar minnisstæðan. „Ég
ók á opinni dráttarvél hér fram á
þjóðvegi og vissi ekki af mér fyrr
en stórum jeppa var ekið aftan á
dráttarvélina. Þetta var mikið
högg og ég stökk af henni og
flaug út í vegarkant og sjálfsagt
hefur það bjargað lífi mínu. Ég ef-
ast um að nokkur trúi því hve
margt bærðist í huga mínum á
þeirri örskotsstundu, á meðan ég
flaug af traktomum og út í kant-
inn. Verst var sú hugun, sem
bærðist með mér, að ef til vill
hlyti ég örkuml vegna þessa. Það
sem hlífði mér mikið var að ég
var í fóðruðum galla sem mildaði
höggið. Því var stórkostlegt að
finna tilfinningu í öllum líkama
sínum og geta staðið upp, óstudd-
ur,“ sagði Vigfús Jónsson.
Páll Guðmundsson:
Þegar ég synti
yfir Ólafsfjörð
„Þegar ég geri
upp árið 1995
nefni ég helst
það sem lýtur
að íþróttunum,
svo samofnar
eru þær lífi
mínu. Til að
mynda get ég
nefnt sund mitt
við fjórða mann yfir þveran Ólafs-
fjörð í apríl sl. Þetta sund var farið
til söfnunar áheitum fyrir knatt-
spyrnulið Leifturs,“ sagði Páll
Guðmundsson, knattspymumaður
í Ólafsfirði.
Lið Leifturs blandaði sér í
toppbaráttuna á íslandsmótinu í
knattspyrnu sl. sumar og náði 5,
sætinu. „Mér er eftirminnilegur
leikur okkar Leiftursmanna við
Akurnesinga þann 14. ágúst sl.
Þar töpuðu Skagamenn sínum
fyrstu stigum á mótinu, en leikn-
um lyktaði með jafntefli, 2-2. Mín
skoðun er sú að við hefðum getað
náð betri árangri í mótinu, hefðu
meiðsl nokkurra leikmanna ekki
komið til. Við lentum í fimmta
sæti, en raunhæft hefði verið - og
sanngjamt - að ná því þriðja,“
sagði Páll.
„Það hefur verið ný reynsla
fyrir mig, Sunnlendinginn, að vera
hér fyrir norðan. Síðasti vetur til
að mynda var mjög snjóþungur
hér í Ólafsfirði og slíku snjómagni
hef ég aldrei kynnst. Einnig get ég
nefnt þá nýju reynslu fyrir mig að
fara með nokkrum Ólafsfirðingum
á bát yfir í Héðinsfjörð til veiða.
Þessi eyðifjörður er nánast óspillt-
ur af mannanna verkum og sér-
stakt að koma þangað og renna
fyrir fisk,“ sagði Páll jafnframt.
Sem kunnugt er er Páll nú á
förum frá Ólafsfirði og hyggst
leika knattspyrnu með skandí-
navísku liði næsta árið. Mál þau
munu skýrast á næstunni. „Mér
hefur líkað vel hér í Ólafsfirði, en
ætla nú að takast á við ný verk-
efni. Það finnst mér nauðsynlegt
að gera og það að skipta um verk-
efni og viðfangsefni skapar manni
sjálfum skemmtilegra líf en ella.“
Steingrímur J. Sigfússon:
I tvennum
kosningum
„Því miður held
ég að náttúru-
hamfarimar á
Súðavík og
Flateyri sé það
sem efst er í
huga mínum
þegar litið er yf-
ir árið 1995.
Þetta kom illa
við mann, eins og sjálfsagt alla Is-
lendinga. Sjálfur er ég fæddur og
uppalinn í litlu byggðarlagi og
þekki þannig þá samkennd sem
býr með fólki á stöðum eins og
fyrir vestan. Þá er ég menntaður
jarðfræðingur og lærði í því námi
um snjóflóð og þeir litlu tilburðir
sem viðhafðir hafa verið hér á
landi til að verjast þeim hafa ein-
mitt verið, ekki síst á Flateyri.
Auðvitað verður aldrei komist hjá
því að nokkur áhætta felist í því
að búa á Islandi, en betur má gera
í vamaraðgerðum - ef duga skal,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon, al-
þingismaður.
Um erlenda atburði sagði
Steingrímur að styrjöldin á Balk-
anskaga væri sér efst í huga - og
jafnframt þær hörmungar sem
henni hefðu fylgt. „Það var ekki
fyrr en undir lok ársins sem friðar-
viðræður hófust - og þá eftir að
Bill Clinton Bandaríkjaforseti lét
til sín taka. Aðgerðir hans em þó
fyrst og fremst tilkomnar vegna
þess að nú styttist í forsetakosn-
ingar vestanhafs og Clinton þarf
að styrkja pólitíska stöðu sína, nú
þegar nær dregur kosningum,"
sagði Steingrímur.
„Ég gekk í gegnum tvennar
kosningar á þessu ári. Annars veg-
ar þingkosningar í apríl, þar sem
erfitt tíðarfar setti svip sinn á
ferðalög. Baráttan að hinum kosn-
ingunum stóð yfir nær allt árið og
hér á ég við formannskjörið í Al-
þýðubandalaginu. Mér finnst gott
að vita hve sársaukalaus sú barátta
var og eins hvé allir gengu sáttir
frá leik. Og þó ég hafi tapað í for-
mannskjörinu er ég persónulega
sífellt sáltari við niðurstöðuna,
þótt hún hafi vitaskuld verið
pólítísk vonbrigði fyrir mig sem
stjórnmálamann. Þetta var jafn-
framt ákveðið bakslag m.a. fyrjr
þau máíefni sem ég hef starfað að
sem stjómmálamaður. Því góða
fólki, m.a. á Norðurlandi, sem
studdi mig í formannskjörinu er
ég þakklátur. Burtséð frá niður-
stöðu kosninganna gaf það fólk,
sem þekkti mig best og ég hef
lengst unnið með, mér einkunn
sem mér þykir vænt um með
stuðningi sínum,“ sagði Stein-
grímur.
Um stöðu mála í íslensku sam-
félagi um þessar munir sagði
Steingrímur að þar blöstu við
bæði ljósar myndir og dökkar.
Hinar dökku væru alltof lág laun
og of mikið' atvinnuleysi væri ríkj-
andi. „Það er köflótt mynd sem
blasir við okkur,“ sagði hann. -
Hin ljósa mynd segir Steingrímur
að sé hins vegar hve íslensk fyrir-
tæki séu í æ ríkari mæli farin að
hasla sér völl erlendis - og standist
hinum erlendu fyllilega snúning. í
þessu sambandi megi nefna Sam-
herja og UA, sem rennt hafa sér
fótskriðu í þýskum sjávarútvegi,
Sæplast hf. á Dalvík, sé að hasla
sér völl í æ ríkari mæli á erlendum
markaði, og útgerðarmenn á Þórs-
höfn, hafa verið frumherjar í út-
hafsveiðum. „Allt þetta er mögu-
legt þegar dugnaður, kraftur og
þekking renna saman í einum far-
vegi.“