Dagur - 30.12.1995, Qupperneq 19
Laugardagur 30. desember 1995 - DAGUR - 19
Minnisverðustu atburðir ársins 1995
Jónína Óskarsdóttir:
Vænti árs
friðar og hamingu
á Islandi
„Mér er ofar-
lega í huga sú
afdankaða
þjóðemis-
hyggja, sem
formaður
stærsta stjóm-
málaflokks
landsins virðist
vera haldinn. Hann heldur allri
umræðu um ísland og samskipti
þess við Evrópusambandið nánast
í herkví, enda þótt við Islendingar
eigum mikið undir þessum málum
- ætlum við þá ekki að verða al-
gjört útsker þjóða á meðal,“ sagði
Jónína Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi
Alþýðuflokks í Ólafsfirði.
Líkt og margir aðrir viðmæl-
endur Dags sagði Jónína að sér
væri ofarlega í huga sú mikla
samkennd Islendinga með þeim
sem um sárt áltu að binda vegna
snjóflóðanna á Flateyri og í Súða-
vík. Af erlendum atburðum nefndi
Jónína friðarsamningana í Júgó-
slavíu - sem hún kvaðst innlega
vona að fram næðu að ganga.
„Ef ég nefni eitthvað sem teng-
ist mér sjálfri, persónulega, er mér
ofarlega í huga hve fjölskyldan
hefur staðið vel við bakið á mér í
þessu pólítíska brölti mínu. Einnig
eru einnar viku hátíðarhöld hér í
Ólafsfirði, vegna 50 ára kaupstað-
arafmælis, mér ofarlega í minni.
Ibúafjöldinn hér þrefaldaðist og
öll dagskráin heppnaðist afar vel.
Um komandi ár el ég þá von í
brjósti að þjóðarframleiðslan auk-
ist, atvinnuleysi minnki, að friður
verði á vinnumarkaði og slysum
fækki. í stuttu máli segi ég því að
ég vænti að 1996 verði ár friðar
og hamingju meðal allra Islend-
inga,“ sagði Jónína Óskarsdóttir í
Ólafsfirði.
Haukur Halldórsson:
Frumhlaup
verkalýðshreyí-
ingarinnar
„íslendingar
búa í harðbýlu
landi og eru
vamarlitlir
gagnvart nátt-
úruöflunum. Á
þetta vorum við
minnt í upphafi
árs og síðan t
lok þess. Snjóflóðin á Vestfjörð-
um hrifu með sér mannvænlega
einstaklinga og ollu ótrúlega
miklu tjóni á eignum. Um leið og
ég vil nota þetta tækifæri til að
votta aðstandendum látinna sam-
úð mína vil ég minnast þess að
umræddar hörmungar löðuðu
einnig fram það besta í fari Islend-
inga. Samstaða fólks, hjálpsemi
og greiðvikni mun lengi í minnum
höfð,“ segir Haukur Halldórsson,
framkvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins.
„Fréttir undanfamar vikur
benda ótvírætt til að efnahagslíf
landsmanna sé á uppleið eftir of
langa vist í öldudal. Þannig virðist
atvinnuleysi á undanhaldi og
þjóðartekjur vaxa á nýjan leik.
Þjóðhagsstofnun og Efnahags- og
framfarastofnun Evrópu, spá hag-
vexti og erlendir fjárfestar hafa
sýnt landinu áhuga á nýjan leik.
Oróleiki á vinnumarkaði hefur
hins vegar neikvæð áhrif og má
rekja óánægjubylgjur ekki síst til
verkalýðsleiðtoga sem hafa magn-
að upp meiri óánægju en þeir
virðast menn til að stýra. Laun eru
vissulega lág hér á landi, mun
lægri en ásættanlegt er, en stað-
reyndin er hins vegar sú að samn-
ingar hafa verið gerðir og dómur
Félagsdóms í máli Baldurs á ísa-
firði segir sitt um frumhlaup
verkalýðshreyfmgarinnar. Við bú-
um í landi sem gjaman kennir sig
við lýðræði. Það þýðir einfaldlega
að menn verða að standa við
gerða samninga en reyna að ná
meim fram þegar næst er sest að
samningaborði.
Að sjálfsögðu er sameining
Búnaðarfélags íslands og Stéttar-
sambands bænda mér ofarlega í
huga. í mörg ár vann ég að því að
þetta yrði að veruleika enda er ég
sannfærður um að sameinaðir
munu bændur ná mun meiri ár-
angri.
Hvað mig sjálfan varðar þá var
árið viðburðaríkt. Um langt skeið
hafði ég starfað sem formaður
Stéttarsambands bænda en er nú í
forsvari fyrir afar áhugavert verk-
efni sem snýr að vömþróun, fram-
leiðslu og markaðssetningu vist-
og lífrænna landbúnaðarvara. Hér
er á ferðinni gæðastjórnunarverk-
efni í íslenskum landbúnaði. þar
sem stefnt er að sjálfbæru og vist-
vænu íslandi. Færa má rök fyrir
því að trúlega er fátt eins mikil-
vægt í menguðum heimi og hollar
og hreinar landbúnaðarafurðir. Þar
eigum við góða möguleika ef rétt
er á málum haldið.
Trúlega fer fyrir mér eins og
fleimm að minnast þess að loks
virðist friður vera í augsýn í fyrr-
um ríkjum Júgóslavíu. Um langt
skeið hafa þjóðir heims fylgst með
hryllingi með fréttum af átökum
og hryðjuverkum frá þessum slóð-
um. Menn skulu minnast þess að
umræddir atburðir hafa átt sér stað
innan Evrópu og héldu þó margir
að tvær heimsstyrjaldir hefðu átt
að vera víti til vamaðar.
Nú minnast þjóðir heims að
liðin eru 50 ár síðan herflugvél
varpaði kjarnorkusprengjum á
tvær borgir í Japan. Það er því
dapurlegt til þess að vita að tvær
menningarþjóðir, Frakkar og Kín-
verjar, séu enn að gera tilraunir
með helsprengjur.“
Valdimar Guðmannsson:
„Sjaldan er góð
vísa...“
„Þegar litið er
til baka og yfir
það ár sem nú
er senn horfið í
aldanna skaut
stendur uppúr
sú mikla um-
ræða um launa-
kjör og kjara-
mál almennt sem verið hefur í
gangi á þessu ári. Nú síðast var til
umræðu uppsögn kjarasamninga
og þar ákvað launanefnd Alþýðu-
sambands íslands að þiggja des-
emberuppbót, fremur en að krefj-
ast raunverulegrar leiðréttingar
launa þorra almennings,“ sagði
Valdimar Guðmannsson, formað-
ur Alþýðusambands Norðurlands.
Valdimar sagði það ekkert
launungamál af sinni hálfu að
myndun ríkisstjómar sl. vor hefði
valdið sér vonbrigðum. „Ég hefði
viljað sjá stjómarmynstur allra
annarra flokka en þessara tveggja
sem nú stjórna landinu. Taldi
Framsóknarflokkinn eiga að hafa
forystuhlutverk í stjóm vinstri
flokka landsins. Hægri stjóm, sem
nú situr, er versti kosturinn sem
hægt var að hugsa sér fyrir stjóm-
málin og þar með líf fólksins í
landinu,“ sagði Valdimar.
Taldandi um sjálfan sig sagðist
Valdimar á árinu hafa hætt búskap
í Bakkakoti í Engihlíðarhreppi og
helgað sig alfarið verkalýðsmál-
um. Verið svo kosinn formaður
Alþýðusambands Norðurlands á
haustmánuðum. Þetta hefðu óneit-
anlega verið viðbrigði. „Við í
verkalýðshreyfingunni höfum
heitið okkur því taka daginn
snemma, ef svo má að orði kom-
ast, og hefja mjög fljótlega undir-
búning fyrir gerð næstu kjara-
samninga, en þeir sem nú standa,
losna eftir rúmt ár. Það hljómar
eins og ofkveðin vísa að þar ætlum
við að krefjast bættra kjara hinna
lægst launuðu, en meðan það
brýna verkefni er ekki í höfn mun-
um við áfram hafa vísu þessa yfir.
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin."
Sigfús Jónsson:
Veruleikafirring
bænda-
forystunnar
„Fyrir mér
stendur veru-
leikafirring
bændaforyst-
unnar upp úr
þegar litið er á
atburði líðandi
árs. Þegar
Bændasamtök
Islands og landbúnaðarráðuneyti
sammæltust um að efna til kjötút-
sölu í lok sláturtíðar til að losa sig
við á annað þúsund tonn af gömlu
umframkjöti. Þetta varð jú auðvit-
að til að létta á gömlum birgðum,
en nýtt kjöt hefur ekkert selst í
haust. Kjötmarkaðurinn er í upp-
námi. Hér hafa menn stofnað til
algjönar hringavitleysu og sami
vandi verður uppi á borðinu næsta
haust þegar fara á að selja kjöt
þess árs. Þá þarf fyrst að losa sig
við kjötið frá í haust. Vandinn
verður áfram hinn sami,“ sagði
Sigfús Jónsson, sláturhússtjóri
Ferskra afurða ehf. á Hvamms-
tanga.
Sigfús Jónsson sagði að vita-
skuld minntust allir íslendingar
snjóflóðanna miklu í Súðavík og á
Flateyri. Þau hefðu snert streng í
brjósti hvers manns. „En maður
gerir greinarmun á þeim atburðum
sem enginn sér fyrir eða ber
ábyrgð á og aftur þeim sem menn
stofna sjálfviljugir til. Vil ég
nefna til dæmis skattakerfið,
kvótakerfi til lands og sjávar, hús-
næðiskerfi og fleira. í þessum
málaflokkum sýndist mér stefna í
algjöra blindgötu," sagði Sigfús.
Af sínum persónulegu högum
sagði Sigfús að hann hefði, sem
kunnugt er, skipað þriðja sætið á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
í Norðurlandskjördæmi vestra fyr-
ir kosningar á liðnu vori. Hann
væri því fyrsti varaþingmaður
flokksins í kjördæminu. „Ég hef
enn ekki tekið sæti á þingi, en á
jafnvei von á því að svo verði
fljótlega eftir áramót - þegar um
fer að hægjast hér í sláturhúsinu.
Og ég ætla að vinna vel og skyn-
samlega á þingi og koma
einhverju góðu til leiðar fyrir þjóð
mína,“ sagði Sigfús.
Um erlenda atburði sagði Sig-
fús að sér væri eftirminnileg helg-
arferð út til Noregs um miðjan
júní á þessu ári. Þar hefði hann átt
kost að ferðast um Upplönd og
Guðbrandsdal í sannkallaðri sum-
arblíðu. Sama dag og heim var
komið sagðist Sigfús hafa ekið
norður og farið beint á bænda-
fund, sem haldinn var í Ásbyrgi í
Miðfirði.
„Vorið var hart hér norðan-
lands og um þetta leyti var varla
farið að grænka. Því fylltist maður
vonleysi gagnvart íslenskum
sveitum, að minnsta kosti þegar
maður bar saman andstæðumar -
það er í Noregi og hér á Islandi.
Og ég veit reyndar ekki hvernig
íslenskir bændur geta keppt við
þessar þjóðir í verðum. Munurinn
á rekstrarkostnaði búa íslenskra
og norskra bænda er svo mikill að
erfitt er fyrir okkur að keppa við
þá á jafnréttisgrundvelli, svo ekki
sé talað um bændur sunnar í Evr-
ópu. Ef ég gæti jafnað þennan að-
stöðumun eða haft svör á reiðum
höndum hvað skuli til bragðs taka
væri ég sjálfsagt heldur ekki slát-
urhússtjóri hér á Hvammstanga,
heldur hefði samfélagið án efa lyft
mér á hærri stall,“ sagði Sigfús
Jónsson.
Birgitta Halldórsdóttir:
Ljósir punktar
„Öllum hljóta
að vera hörm-
ungamar á
Vestfjörðum
efstar í huga.
Þær eru þyngri
en tárum taki.
Hins vegar
leynast ævin-
lega ljósir punktar í myrkrinu og
það er hin mikla samstaða sem
þjóðin sýndi með Súðvíkingum og
Flateyringum í þeirra miklu erfið-
leikum og sorg,“ segir Birgitta
Halldórsdóttir, skáldkona og hús-
móðir á Syðri-Löngumýri í Húna-
þingi.
„Við ritstörf hafði ég mörg
skemmtileg verkefni með höndum
á árinu. Skrifaði tvær bækur, ann-
ars vegar ævisögu Guðrúnar Ól-
afsdóttur reikimeistara og svo
skáldsögu. Enn önnur skáldsagan
er í smíðum og hún kernur út á
næsta ári. Maður er alltaf með
fullt af hugmyndum í kollinum.
Síðan er mér vitaskuld minnis-
stæður hinn þungi vetur hér norð-
anlands, sem setti t.d. samgöngur
mikið úr skorðum," sagði Birgitta
á Syðri- Löngumýri.
Sr. Svavar A. Jónsson:
Skipti tvisvar um
starf á árinu
„Eftir að hafa
verið prestur í
Ólafsfirði í á
níunda ár skipti
ég tvisvar sinn-
um um starf á
líðandi ári. I
vor tók ég við
starfi héraðs-
prests á Norðurlandi eystra og
lluttist aftur til Akureyrar. í haust
kom svo til að staða aðstoðar-
prests við Akureyrarkirkju losnaði
eftir hið sviplega andlát sr. Þór-
halls Höskuldssonar, sem var öll-
um mikið áfall. Um þetta starf
sótti ég og hlaut löglega kosningu
til,“ sagði sr. Svavar Alfreð Jóns-
son, aðstoðarprestur við Akureyr-
arsókn.
„En auðvitað hljóta eftirminni-
legustu atburðimir að vera snjó-
flóðin vestra. Það voru reiðarslög
sem alla þjóðina snertu. En gleði-
leg var þó hins vegar sú samstaða
sem landsmenn sýndu Vestfirð-
ingum - samhug í verki, í bestu
merkingu. Af erlendum vettvangi
minnist ég síðan friðaisamning-
anna sem gerðir voru í Júgóslavíu
milli þeirra sem þar hafa barist
svo lengi. Vissulega eru samning-
ar þessir ótryggir, en engu að síð-
ur eygir maður von um að varan-
legur friður komist á,“ sagði
Svavar.
Um komandi ár sagði sr. Svav-
ar að ærinn starfi væri að setja sig
inn í nýtt starf. „Ég verð að leggja
mig allan fram við það verkefni
sem er spennandi og krefjandi."
Elín Sigurðardóttir:
Sveitarstjómar-
máliní
lausu lofti
„Það sem allir
hafa á orði og
allir minnast
þegar litið er yf-
ir árið 1995 eru
náttúruhamfar-
irnar á Vest-
tjörðum. Nei,
ég minnist fárra
annarra markverðra atburða á
þessu ári - að minnsta kosti
einskis slæms. Það er gott á með-
an svo er,“ sagði Elín Sigurðar-
dóttir, oddviti Lýtingsstaðahrepps
í Skagafirði.
Um sveitarstjórnarmál sagði
Elín að allir einblíni nú á flutning
verkefna frá ríki til sveitarfélaga,
en grunnskólinn fer þá leið í byrj-
un ágúst á næsta ári. „Það mál er
allt í mjög lausu lofti og sveitar-
stjómarmenn bíða með allar
ákvarðanir, til dæmis um fram-
kvæmdir. Þannig er allt í biðstöðu
hjá okkur hér í Lýtingsstaðahreppi
og engar framkvæmdir á stefnu-
skránni í bili,“ sagði Elín Sigurð-
ardóttir.
Bjöm Rögnvaldsson:
Afrnælishátíðin er
minnisstæð
„Mér eru ofar-
lega í huga há-
tíðarhöld hér í
Ólafsfirði, þann
8. júlí, þegar
forseti íslands,
Vigdís Finn-
bogadóttir,
heimsótti okkur,
á 50 ára afmæli kaupstaðarins,"
segir Bjöm Rögnvaldsson, sýslu-
maður í Ólafsfirði.
„Hvað varðar minnisstæða at-
burði úr fréttum hljóta snjóflóðin
á Vestfjörðum að standa uppúr -
og eins mikil snjóþyngsli hér á
Norðurlandi sl. vetur. Og úr er-
lendum fréttum get ég nefnt frið-
arsamkomulagið sem gert var
milli stríðandi aðila í Bosníu. Nei,
ég minnist reyndar einskis sér-
staklega eftirminnilegs úr mínu
einkalífi frá líðandi ári,“ sagði
Bjöm.
Samantekt:
Sigurður Bogi
Sævarsson.