Dagur - 03.02.1996, Side 4

Dagur - 03.02.1996, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 3. febrúar 1996 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 SÍMFAX: 462 7639 • SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir), BLAÐAM. HÚSAVÍK - SÍMI Á SKRIFST. 464 1585, FAX 464 2285. HS. BLM. 464 3521 LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Sælgætis- og gos- drykkjaþjóð Sú staðreynd að hver íslendingur borðar að jafnaði 22 kíló af sælgæti á ári og skolar svo þessum fádæm- um niður með 147 lítrum af gosdrykkjum er í raun eitt af hrikalegum heilbrigðisvandamálum þjóðarinn- ar. Árlegur tannverndardagur var í gær og væri ekki vanþörf á að þetta umræðuefni verði helgað fleiri dögum ársins því í raun bendir fátt til að við séum á réttri leið. Við eigum að sjálfsögðu heimsmet í sæl- gætis- og gosdrykkjaneyslunni eins og svö mörgu öðru enda eðlilegt að hér á landi mælist neyslan mikil því söluturnar eru hér fleiri miðað við íbúafjölda en í nokkru öðru landi. í grein í Degi í gær benti Magnús R. Gíslason á að aðrar þjóðir hafi náð betri árangri í tannheilbrigðis- málum þó svo að hér sé nægilegt framboð hæfra tannlækna. Þetta segir ekki annað en það að okkur miðar hvergi nógu langt í forvarnarstarfinu og þá hlýtur að vera horft til þess sem gerist í skólunum en fyrst og síðast er það neyslan inni á heimilunum sem vegur þyngst. Þó svo unglingum sé núið því um nasir að hanga tímum og dögum saman í sjoppum og neyta þar gosdrykkja og sælgætis í verulegu magni eru samt sem áður til dæmi um unglinga sem varla snerta gosdrykki og borða lítið sælgæti. Nær undan- tekningalaust er skýringin sú sama. Þetta fólk kemur frá heimilum þar sem ekki er neytt sælgætis og gos- drykkja. Það ungur nemur gamall temur og enn eina ferðina er hægt að leita skýringa í þjóðfélagsmynstr- inu í uppeldi fólks. Gallinn er sá að nú er að vaxa upp kynslóð sem að miklum meirihluta lítur á mikla neyslu gosdrykkja og sælgætis sem sjálfsagðan hlut. Þetta fólk breytir væntanlega lítið sínu neyslumynstri þegar það vex úr grasi og fer að ala upp börn. Á undanförnum árum hefur áróður verið rekinn gegn gosdrykkjum en í vikunni vöktu tannlæknar at- hygli á því að ýmsir ávaxtadrykkir aðrir fara ekki síð- ur illa með tennurnar. Eftir stendur, enn og aftur, að það er íslenska vatnið og mjólkurvörurnar sem eru besta leiðin í þessum efnum og sannanlega sú hag- kvæmasta fyrir þjóðina. í UPPÁHALDI Mjólkurgrautur og slátur Ragnhildur Hjaltadóttir hefur búið í Grímseyfrá ár- inu 1987 og gegnir ýmsum störfum þar. Eiginmaður hennar er Alfreð Garðarsson sjómaður og eiga þau t\’0 stráka, sjö og fjög- urra ára. Hún er umbosðmaður Flugfélags Norðurlands, Flugleiða og Sjóvá Al- mennra „ og er náttúru- lega í hreppsnefnd með tengdapabba og Láka oddvita, “ svo notuð séu orð hennar sjálfrar. Ragnkildur er í uppá- haldi að þessu sinni. Hvaða matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? Mjólkurgrautur og slátur. Uppálialdsdrykkur? Mjólk. Hvaða heimilsstörffinnst þér skemmtilegust - leiðinlegust? Skemmlilegast er að elda góðan mat, en leiðinlegast finnst mér að skúra. Stundar þú einhverja markvissa hreyfingu eða líkamsrœkt? Nei, ekki með neinum markviss- um hætti, þó ég fari stundum út að ganga. Ert þú í einhverjum klúbbi eða fé- lagasamtökum? Eg er í Kvenfélaginu Baugi hér í Grímsey. Karlarnir eru flestir í Kiwanisklúbbnum Grími, en bæði þessi félög eru mjög virk. Hvaða blöð og tímarit kaupirþú? Engin. Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? Sem stendur er það Náttúran hrópar og kallar - ævisaga Gulla í Karnabæ. Yfirleitt les ég þó einhverjar fljótlesnar ástarsögur. / hvaða stjörnumerki ert þú? Sporðdrekanum. Hvaða tónlistarmaður er í mestu uppáhaldi hjá þér? Eyjólfur Kristjánsson. Uppáhaldsleikari? Spaugstofuliðið. Hvað liorfirþú helst á í sjónvarpi? Fréttimar og síðan er ég með dellu fyrir þættinum Glæstum vonum á Stöð 2. Ég má ómögu- lega missa af þeim þætti. Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu mest álit? Þorláki Sigurðssyni, oddvita hér í Grímsey. Hver er að þínu mati fegursti staður á íslandi? Island er allt fallegt, en Grímsey er fallegust. Hvar vildirðu helst búa ef þú þyrftir að flytja búferlum nú? Inn á Akureyri, en slíkt yrði að ráðast af ýmsum þáttum svo sem atvinnu. Ef þú ynnir stóra vinninginn í lóttó- inu hvernig myndirþú eyða pening- unum? Fyrst myndi ég greiða allar rnínar skuldir og afgangnum myndi ég leyfa öðrum að njóta með mér. Hvernig vilt þú helst verja frístund- um þínum? Með fjölskyldunni og eins hef ég mjög gaman af ferðalögum. Hvað gerðir þú ífríinu sl. sumar? Við fórum í haustferð til London, sem við unnum í Bingólottóinu. Einnig fórum við til Reykjavíkur. Hvað œtlar þú að gera um helgina? Ég fer inn á Akureyri á sunnu- daginn til pabba og mömmu í heimsókn. -sbs. ÞRÉF ÚR BORCINNI SVANHILDUR HÓLM VALSDÓTTIR Að tapa sér Jæja, nú er liðinn rúmur mánuð- ur frá áramótum og heit þau sem strengd voru um tólfleytið á gamlárskvöld væntanlega farin að fölna í minningu flestra. Ég strengdi þess heit að strengja ekki áramótaheit frekar en venjulega og lét þar við sitja. Ég þekki annars engan sem hefur staðið við sitt heit það sem af er árinu, en miðað við örtröðina sem verið hefur í líkamsræktar- stöðvum borgarinnar undanfar- inn mánuð virðast einhverjir í það minnsta reyna. Loforðin sem flestir gefa sér eftir jólin hníga nefnilega, eins og alkunna er, oft og tíðum að lík- ams(of)vextinum. Danir hafa frábært orðasam- band yfir að grennast; at tabe sig, sem í þráðbeinni þýðingu útleggst að tapa sér. Ég held að við íslendingar ættum að taka upp þetta orðasamband, því lík- lega eru þeir mun fleiri sem tapa sér yfir aukakílóunum sem ekki tapast heldur en þeir sem í raun og veru grennast. Hreyfing er vissulega af hinu góða, en þar sem við erum þjóð hinna skjótu lausna og fyrirhafnalausu, vill heilsuátak janúarmánaðar gleymast yfir kreditkortareikn- ingum í febrúar, og við höldum áfram að tapa okkur í hvert sinn sem baðvogin verður fyrir fótun- um á okkur. Á mínu heimili leysti reyndar betri helmingur- inn baðvogarvandamálið með því að þvertaka fyrir að kaupa slíkt tæki. Tap eða sigur? Verkalýðsfélögin hér í Reykja- vík virðast ekki vera nein val- hoppandi vináttusamtök vinn- andi manna (stuðlað að stuðluð- um stuðlum...), ef marka má kosningabaráttu og önnur átök innan þeirra. Yfirleitt fer svo í kosningum þegar kosið er milli tveggja að annar tapar, en svo er ekki hér í borg Ingibjargar. Hér vinna menn sigur þótt þeir tapi, og láta engan bilbug á sér finna. Það er víst mikil list að kunna að tapa en nú lítur út fyrir að megi útrýma þeirri listgrein, í það minnsta í þeirri mynd sem við þekkjum hana. Skilja má af orð- um þeirra sem fengu færri at- kvæði í kosningunum sem um er rætt, að þeir sem fengu fleiri atkvæði hafi nefnilega í raun tapað. Ég hugsaði töluvert um þessi mál; útilokaði ungmenna- hreyfingarhugsjónina, því þar er aðalatriðið ekki að sigra heldur vera með, en komst síðan að þeirri niðurstöðu að verkalýðsfé- Iögin væru orðin kristilega þenkjandi, þ.e. að í þeim verði hinir síðustu fyrstir. Óflekkað mannorð(smorð) Þar sem Alþingi hefur lítið verið að störfum það sem af er árinu og veðrið hefur leikið við okk- ur, hafa fjölmiðlar og almenn- ingur þurft að finna sér ný um- ræðuefni. Flestir hafa fallið í forsetagryfjuna miklu, og nú geri ég það líka, fyrst ég er hvort sem er byrjuð að ræða um kosn- ingar, þrátt fyrir einlægan ásetn- ing um að láta það efni öðrum eftir. Annan eins sirkus og virð- ist vera í uppsiglingu hefur ekki rekið á fjörur landsins í langan tíma. Að vísu hefur yfirtrúðurinn sagt upp, vegna „óvægilegra“ ásakana nokkurra fjölmiðla, sem tóku þó, að því er kunnugir segja, ekki nema efsta lagið úr óhreinatauskörfu frambjóðand- ans fyrrverandi og breiddu fyrir alþjóð. Væntanlega hefur honum skilist, að það er alls ekki það sama að vera alræmdur og að vera þekktur (en hann stóð víst í þeirri trú að hann væri þekktur víða um land). Ég hef ekki hug- mynd um hvort manngreyið hef- ur tapað sér yfir öllu umtalinu, en hann virtist frá upphafi vera dæmdur til að tapa öðru hvoru; ærunni eða kosningum. Hann er sá fyrsti sem lenti verulega í kvörnum fjölmiðlanna en verður örugglega ekki sá síð- asti fyrir þessar forsetakosning- ar. Þeir sem hafa hug á að taka þátt í uppfærslu sirkussins ættu að velta fyrir sér hvort þeir hafi óflekkað mannorð, því það er eitt meginskilyrði kjörgengis samkvæmt stjórnarskránni, og við hin, sem ekki ætlum í fram- boð, annað hvort vegna aldurs eða áhugaleysis, ættum að velta fyrir okkur hvað felist í óflekk- uðu mannorði.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.