Dagur - 03.02.1996, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 3. febrúar 1996
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
SÍMFAX: 462 7639 • SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir),
BLAÐAM. HÚSAVÍK - SÍMI Á SKRIFST. 464 1585, FAX 464 2285. HS. BLM. 464 3521
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Sælgætis- og gos-
drykkjaþjóð
Sú staðreynd að hver íslendingur borðar að jafnaði
22 kíló af sælgæti á ári og skolar svo þessum fádæm-
um niður með 147 lítrum af gosdrykkjum er í raun
eitt af hrikalegum heilbrigðisvandamálum þjóðarinn-
ar. Árlegur tannverndardagur var í gær og væri ekki
vanþörf á að þetta umræðuefni verði helgað fleiri
dögum ársins því í raun bendir fátt til að við séum á
réttri leið. Við eigum að sjálfsögðu heimsmet í sæl-
gætis- og gosdrykkjaneyslunni eins og svö mörgu
öðru enda eðlilegt að hér á landi mælist neyslan mikil
því söluturnar eru hér fleiri miðað við íbúafjölda en í
nokkru öðru landi.
í grein í Degi í gær benti Magnús R. Gíslason á að
aðrar þjóðir hafi náð betri árangri í tannheilbrigðis-
málum þó svo að hér sé nægilegt framboð hæfra
tannlækna. Þetta segir ekki annað en það að okkur
miðar hvergi nógu langt í forvarnarstarfinu og þá
hlýtur að vera horft til þess sem gerist í skólunum en
fyrst og síðast er það neyslan inni á heimilunum sem
vegur þyngst. Þó svo unglingum sé núið því um nasir
að hanga tímum og dögum saman í sjoppum og
neyta þar gosdrykkja og sælgætis í verulegu magni
eru samt sem áður til dæmi um unglinga sem varla
snerta gosdrykki og borða lítið sælgæti. Nær undan-
tekningalaust er skýringin sú sama. Þetta fólk kemur
frá heimilum þar sem ekki er neytt sælgætis og gos-
drykkja. Það ungur nemur gamall temur og enn eina
ferðina er hægt að leita skýringa í þjóðfélagsmynstr-
inu í uppeldi fólks. Gallinn er sá að nú er að vaxa upp
kynslóð sem að miklum meirihluta lítur á mikla
neyslu gosdrykkja og sælgætis sem sjálfsagðan hlut.
Þetta fólk breytir væntanlega lítið sínu neyslumynstri
þegar það vex úr grasi og fer að ala upp börn.
Á undanförnum árum hefur áróður verið rekinn
gegn gosdrykkjum en í vikunni vöktu tannlæknar at-
hygli á því að ýmsir ávaxtadrykkir aðrir fara ekki síð-
ur illa með tennurnar. Eftir stendur, enn og aftur, að
það er íslenska vatnið og mjólkurvörurnar sem eru
besta leiðin í þessum efnum og sannanlega sú hag-
kvæmasta fyrir þjóðina.
í UPPÁHALDI
Mjólkurgrautur og slátur
Ragnhildur
Hjaltadóttir
hefur búið í
Grímseyfrá ár-
inu 1987 og
gegnir ýmsum störfum
þar. Eiginmaður hennar
er Alfreð Garðarsson
sjómaður og eiga þau
t\’0 stráka, sjö og fjög-
urra ára.
Hún er umbosðmaður
Flugfélags Norðurlands,
Flugleiða og Sjóvá Al-
mennra „ og er náttúru-
lega í hreppsnefnd með
tengdapabba og Láka
oddvita, “ svo notuð séu
orð hennar sjálfrar.
Ragnkildur er í uppá-
haldi að þessu sinni.
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
Mjólkurgrautur og slátur.
Uppálialdsdrykkur?
Mjólk.
Hvaða heimilsstörffinnst þér
skemmtilegust - leiðinlegust?
Skemmlilegast er að elda góðan
mat, en leiðinlegast finnst mér að
skúra.
Stundar þú einhverja markvissa
hreyfingu eða líkamsrœkt?
Nei, ekki með neinum markviss-
um hætti, þó ég fari stundum út
að ganga.
Ert þú í einhverjum klúbbi eða fé-
lagasamtökum?
Eg er í Kvenfélaginu Baugi hér í
Grímsey. Karlarnir eru flestir í
Kiwanisklúbbnum Grími, en
bæði þessi félög eru mjög virk.
Hvaða blöð og tímarit kaupirþú?
Engin.
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
Sem stendur er það Náttúran
hrópar og kallar - ævisaga Gulla
í Karnabæ. Yfirleitt les ég þó
einhverjar fljótlesnar ástarsögur.
/ hvaða stjörnumerki ert þú?
Sporðdrekanum.
Hvaða tónlistarmaður er í mestu
uppáhaldi hjá þér?
Eyjólfur Kristjánsson.
Uppáhaldsleikari?
Spaugstofuliðið.
Hvað liorfirþú helst á í sjónvarpi?
Fréttimar og síðan er ég með
dellu fyrir þættinum Glæstum
vonum á Stöð 2. Ég má ómögu-
lega missa af þeim þætti.
Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mest álit?
Þorláki Sigurðssyni, oddvita hér í
Grímsey.
Hver er að þínu mati fegursti staður
á íslandi?
Island er allt fallegt, en Grímsey
er fallegust.
Hvar vildirðu helst búa ef þú þyrftir
að flytja búferlum nú?
Inn á Akureyri, en slíkt yrði að
ráðast af ýmsum þáttum svo sem
atvinnu.
Ef þú ynnir stóra vinninginn í lóttó-
inu hvernig myndirþú eyða pening-
unum?
Fyrst myndi ég greiða allar rnínar
skuldir og afgangnum myndi ég
leyfa öðrum að njóta með mér.
Hvernig vilt þú helst verja frístund-
um þínum?
Með fjölskyldunni og eins hef ég
mjög gaman af ferðalögum.
Hvað gerðir þú ífríinu sl. sumar?
Við fórum í haustferð til London,
sem við unnum í Bingólottóinu.
Einnig fórum við til Reykjavíkur.
Hvað œtlar þú að gera um helgina?
Ég fer inn á Akureyri á sunnu-
daginn til pabba og mömmu í
heimsókn. -sbs.
ÞRÉF ÚR BORCINNI
SVANHILDUR HÓLM VALSDÓTTIR
Að tapa sér
Jæja, nú er liðinn rúmur mánuð-
ur frá áramótum og heit þau sem
strengd voru um tólfleytið á
gamlárskvöld væntanlega farin
að fölna í minningu flestra. Ég
strengdi þess heit að strengja
ekki áramótaheit frekar en
venjulega og lét þar við sitja. Ég
þekki annars engan sem hefur
staðið við sitt heit það sem af er
árinu, en miðað við örtröðina
sem verið hefur í líkamsræktar-
stöðvum borgarinnar undanfar-
inn mánuð virðast einhverjir í
það minnsta reyna. Loforðin
sem flestir gefa sér eftir jólin
hníga nefnilega, eins og alkunna
er, oft og tíðum að lík-
ams(of)vextinum.
Danir hafa frábært orðasam-
band yfir að grennast; at tabe
sig, sem í þráðbeinni þýðingu
útleggst að tapa sér. Ég held að
við íslendingar ættum að taka
upp þetta orðasamband, því lík-
lega eru þeir mun fleiri sem tapa
sér yfir aukakílóunum sem ekki
tapast heldur en þeir sem í raun
og veru grennast. Hreyfing er
vissulega af hinu góða, en þar
sem við erum þjóð hinna skjótu
lausna og fyrirhafnalausu, vill
heilsuátak janúarmánaðar
gleymast yfir kreditkortareikn-
ingum í febrúar, og við höldum
áfram að tapa okkur í hvert sinn
sem baðvogin verður fyrir fótun-
um á okkur. Á mínu heimili
leysti reyndar betri helmingur-
inn baðvogarvandamálið með
því að þvertaka fyrir að kaupa
slíkt tæki.
Tap eða sigur?
Verkalýðsfélögin hér í Reykja-
vík virðast ekki vera nein val-
hoppandi vináttusamtök vinn-
andi manna (stuðlað að stuðluð-
um stuðlum...), ef marka má
kosningabaráttu og önnur átök
innan þeirra. Yfirleitt fer svo í
kosningum þegar kosið er milli
tveggja að annar tapar, en svo er
ekki hér í borg Ingibjargar. Hér
vinna menn sigur þótt þeir tapi,
og láta engan bilbug á sér finna.
Það er víst mikil list að kunna að
tapa en nú lítur út fyrir að megi
útrýma þeirri listgrein, í það
minnsta í þeirri mynd sem við
þekkjum hana. Skilja má af orð-
um þeirra sem fengu færri at-
kvæði í kosningunum sem um
er rætt, að þeir sem fengu fleiri
atkvæði hafi nefnilega í raun
tapað. Ég hugsaði töluvert um
þessi mál; útilokaði ungmenna-
hreyfingarhugsjónina, því þar er
aðalatriðið ekki að sigra heldur
vera með, en komst síðan að
þeirri niðurstöðu að verkalýðsfé-
Iögin væru orðin kristilega
þenkjandi, þ.e. að í þeim verði
hinir síðustu fyrstir.
Óflekkað mannorð(smorð)
Þar sem Alþingi hefur lítið verið
að störfum það sem af er árinu
og veðrið hefur leikið við okk-
ur, hafa fjölmiðlar og almenn-
ingur þurft að finna sér ný um-
ræðuefni. Flestir hafa fallið í
forsetagryfjuna miklu, og nú
geri ég það líka, fyrst ég er hvort
sem er byrjuð að ræða um kosn-
ingar, þrátt fyrir einlægan ásetn-
ing um að láta það efni öðrum
eftir. Annan eins sirkus og virð-
ist vera í uppsiglingu hefur ekki
rekið á fjörur landsins í langan
tíma. Að vísu hefur yfirtrúðurinn
sagt upp, vegna „óvægilegra“
ásakana nokkurra fjölmiðla, sem
tóku þó, að því er kunnugir
segja, ekki nema efsta lagið úr
óhreinatauskörfu frambjóðand-
ans fyrrverandi og breiddu fyrir
alþjóð. Væntanlega hefur honum
skilist, að það er alls ekki það
sama að vera alræmdur og að
vera þekktur (en hann stóð víst í
þeirri trú að hann væri þekktur
víða um land). Ég hef ekki hug-
mynd um hvort manngreyið hef-
ur tapað sér yfir öllu umtalinu,
en hann virtist frá upphafi vera
dæmdur til að tapa öðru hvoru;
ærunni eða kosningum.
Hann er sá fyrsti sem lenti
verulega í kvörnum fjölmiðlanna
en verður örugglega ekki sá síð-
asti fyrir þessar forsetakosning-
ar. Þeir sem hafa hug á að taka
þátt í uppfærslu sirkussins ættu
að velta fyrir sér hvort þeir hafi
óflekkað mannorð, því það er
eitt meginskilyrði kjörgengis
samkvæmt stjórnarskránni, og
við hin, sem ekki ætlum í fram-
boð, annað hvort vegna aldurs
eða áhugaleysis, ættum að velta
fyrir okkur hvað felist í óflekk-
uðu mannorði.