Dagur - 03.02.1996, Side 7

Dagur - 03.02.1996, Side 7
Laugardagur 3. febrúar 1996 - DAGUR - 7 Alíir bræðumir bakarar „Það er sagt að fyrsta kynlslóð byggi upp, sú næsta safni auði og sú þriðja komi öllu á hausinn. Við skulum vona að við verðum und- antekningin sem sanni regluna,“ segja bræðurnir og bakaramir Kjartan og Birgir Snorrasynir sem eiga og reka Kristjánsbakarí á Ak- ureyri. Reyndar virðist ekkert því til fyrirstöðu að bræðrunum verði að ósk sinni því bakaríið hefur blómstrað undir þeirra stjóm ekki síður en þegar faðir þeirra og afi voru við stjómvölinn. Afi Kjartans og Birgis, Krist- ján, stofnaði Kristjánsbakarí árið 1912. Snorri sonur hans og faðir bræðranna tók við rekstrinum þeg- ar Kristján settist í helgan stein og nú er þriðja kynslóðin sem sagt tekin við. Reyndar em Birgir og Kjartan ekki einu bakararnir í fjöl- skyldunni af þessari kynslóð því allir synir Snorra, fjórir að tölu, em lærðir bakarar. Fram til ársins 1989 unnu allir bræðurnir fjórir í bakaríinu en þá keyptu Birgir og Kjartan hlut bræðra ,'iinna og ári seinna keyptu þeir hlut föður síns. Þeir eru því tveir eigendur í dag og hinir bræður þeirra hafa snúið sér að öðru, annar er erlendis í námi í matvælatæknifræði en hinn vinnur sem húsasmiður. Á samning sextán ára Hvorugur bræðranna segist hafa ætlað sér að verða bakari. „Ég held ég hafi eiginlega ákveðið að verða ekki bakara þegar ég var ungur,“ segir Birgir og Kjartan bætir við að þetta hafi meira kom- ið af sjálfu sér. Þeir áttu heima í sama húsi og bakaríið var í, unnu þar oft á sumrin og í fríum og voru komnir á samning sextán ára. Þeir litu samt ekki á það sem sjálf- sagðan hlut að vinna við bakstur þó þeir færu á samning og fóm báðir í frekara nám. Arið 1973 veiktist hins vegar faðir þeirra skyndilega og bræðumir tóku við rekstrinum. „Þegar ég var kominn út í þennan daglega rekstur fór ég að fá meiri áhuga en ef pabbi hefði haldið heilsu á þessum tíma hefði ég alveg eins getað farið út í eitthvað annað þó ég hefði lært að baka,“ segir Birgir. Þegar Snorri er spurður hvað honum hafi fundist um að allir strákamir hans færu í bakaranám brosir hann og kveðst ánægður með það enda kemur upp úr kaf- Þrír ættliöir bakara. Birgir Snorrason (lengst til vinstri), Snorri og Kjartan Snorrason. í baksýn sést í mynd af ættföðurnum og stofanda Kristjánsbakarís, Kristjáni Jónssyni. Mynd: BG inu að það er ekki síst hann sem ber ábyrgðina á að synimir völdu þessa leið. „Það var viss pressa frá honum á sínum tíma. Ég bað alla vega ekki um að fá að fara á samning hjá honum heldur var það hann sem vildi fá mig,“ segir Birgir. Kjartan tekur undir orð bróður síns. „Þetta er svolítið bindandi starf og eðlilegt að pabbi hafi ýtt við okkur frekar en hitt til að geta létt á sjálfum sér. Nú er þetta orðið öðruvísi. Umsvifin eru önnur og meiri og við stöndum ekki sjálfir alla daga og bökum eins og pabbi gerði." Þegar Snorri var ungur var það þó ekki faðir hans sem ýtti á hann heldur ætlaði hann sér alltaf að verða bakari. „Ég er fæddur í bak- aríinu og hef aldrei gert ánnað en að vera í bakstri. Ég fór í verslun- arskólann og þegar ég kom heim bjóst pabbi alveg eins við að ég færi að vinna hjá Kaupfélaginu. Ég var ekkert kaupfélagslega sinnaður og fór í staðinn að vinna á móti Kaupfélaginu í bakstri en á þessum tíma voru þeir mun stærri í brauðgerðinni en við,“ segir Snorri. Af brauði ertu koniinn... Eins og áður sagði keyptu Kjartan og Birgir hlut föður síns í Krist- jánsbakaríi árið 1990. Snorri fylg- ist þó enn vel með rekstrinum. „Ég kem hingað á hverjum degi og þeir halda engu leyndu fyrir mér. Ég hef því ekki þá tilfinningu að ég hafi sleppt hendinni af bak- aríinu. Það skiptir í raun engu máli hvort ég á fyrirtækið eða ekki, bakaríið er hluti af mér og verður alla tíð,“ segir hann. Þeir bræður brosa að þessum orðum föður síns og Birgir segir að oft hafi verið sagt við föður sinn: „Af brauði ertu kominn, að brauði muntu verða.“ Snorra finnst þetta ekki vitlaust til orða tekið og seg- ist helst vilja deyja í bakaríinu. „Ég get ekki hugsað mér betri dauðdaga," segir hann. Hraði og fjölbreytni Rekstur bakarís er vissulega bind- andi en þeir bræður segja hann líka vera spennandi og skemmti- legan. „Það sem heillar mig í þessu er hraðinn og fjölbreytileik- inn,“ segir Kjartan. Hann bendir á að í bakaríinu sé á hverjum ein- asta degi framleidd vara úr grunn- hráefni, henni pakkað og hún seld í búð. „Allt þarf að gerast á einum degi,“ segir hann og Birgir bætir við: „Ef ekki næst að baka eitt- hvað í dag er það töpuð sala. Það þýðir ekkert að baka bara fleiri brauð næsta dag.“ Kristjánsbakarí framleiðir ekki aðeins heldur selur það bakaríis- brauð í eigin verslunum eða í endusölu í gegn um stórmarkaði. Kjartan segir að það felist tölu- verð áskorun í því að selja undir eigin merki. „Við erum ekki að selja pakkavöru sem á stendur Johnsons eða eitthvað annað vöru- merki og getum því ekki vísað á einhvem framleiðanda út í heimi. Það er enginn annar til að skýla sér bak við því við framleiðum vömna sjálfir sama daginn. Þetta gerir það að verkum að það þýðir ekki annað en að standa sig vel.“ - Bakið þið mikið sjálfir? „Já, við tökum helgarvaktir á móti hinum bökurunum og á virk- um dögum emm við oftast í fram- leiðslunni frá sex á morgnana til níu eða tíu en eftir það fer tíminn í stjómunarstörf.“ Þriðja kynslóðin hefur tekið við og fetað þar með í fótspor föð- urins. En hvað með þá tjórðu? Leynast einhverjir bakarar í næstu kynslóð? „Nokkrir af fjórðu kynslóðinni em byrjaðir að starfa hér,“ segir Kjartan, en vill láta framtíðina ieiða í ljós hver áhuginn verði seinna meir hjá hinum ungu. Það er vel við hæfi að enda samtalið á því að spyrja bakara- feðgana um hvaða sætabrauð þeir haldi mest upp á. Þeir eru ekki í vandræðum með svarið. „Sumir segja að maður fái leið á sæta- brauði ef maður vinnur í bakaríi en ég fæ aldrei leið á vínar- brauði,“ segir Birgir og Kjartan og Snorri taka heilshugar undir að vínarbrauðið standi alltaf fyrir sínu. AI A Feðginin og dýralæknarnir ^ Ágúst Þórleifsson og Elfa Ágústsdóttir ásamt hestinum Þór frá Höskuldsstöðum og hundinum Max. Mynd: BG útskýra fyrir fólki að þurfi að svæfa dýrin. „Þar sem ég þekki til annars staðar, t.d. í Noregi, er fólk farið að gera svo miklar kröfur um að halda dýrinu bara lifandi hvað sem það kostar en sem betur fer eru Islendingar ekki komnir á þetta stig. Aftur á móti er í raun- inni ekkert skemmtilegra í þessu starfi en að hjálpa fólki sem þykir virkilega vænt um dýrin sín og vill allt fyrir þau gera.“ Elfa er gift en á ekki böm en systkini hennar eru hins vegar sum komin með böm og þau koma oft á dýraspítalann og hafa mjög gaman af dýrunum. Getur verið að í einhverju þeirra leynist lítill dýralæknir? „Börnunum finnst þetta mjög spennandi starf og algengur draumur hjá þeim að verða dýra- læknir," svarar Elfa og segir fram- tíðina leiða í ljós hvort draumur- inn lifi hjá einhverju bamanna í næstu kynslóð. AI

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.