Dagur - 03.02.1996, Blaðsíða 8

Dagur - 03.02.1996, Blaðsíða 8
Hann hefur slegið í gegn í aðalhlutverkinu f Gauragangi. Hann er framkvæmdastjóri sjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinn- ar ú Húsavík og hann er orðinn Þingeyinqur. Hann leikur Orm Oð- insson en heitir Frið- finnur Hermannsson. Hverra manna er hann? „Það sem |»arf er meira loft" „Foreldrar mínir eru Hermann Amason, löggiltur endurskoðandi, hann rekur Bókend, bókhalds- og endurskoðunarskrifstofu á Akur- eyri. Þar starfar líka móðir mín, Guðríður Sólveig Friðfinnsdóttir. Við fórum saman í viðskiptafræði í Háskóla íslands áður en ég fædd- ist. Ég var því tvisvar á fyrsta ári í viðskiptafræði fyrst í móðurkviði og svo aftur einn og sjálfur tuttugu árum seinna. Móðir mín lauk hins vegar ekki náminu en hefur starfað við bókhald alla tíð. Allir í meistaraflokki KA Ég á þrjá bræður, Áma, sem er í viðskiptafræði í Háskólanum, Tómas, tryggingasala og tónlistar- mann, hann gaf út plötuna „Endist varla“ ásamt sambýliskonu sinni Ingunni Gylfadóttur og svo er það yngsti bróðir minn, hann Jóhann Gunnar. Hann er 16 ára og er á kafi í boltanum hjá KA eins og við bræðumir höfum allir verið. Hann spilar bæði handbolta og fótbolta en er í landsliði unglinga í fótbolta og ég spái því að hann velji fót- boltann. Hann hefur fylgt okkur bræðrunum á meistaraflokksæf- ingar hjá KA alveg frá barnæsku svo hann gæti örugglega slegið mætingamet á æfingar hjá meist- araflokki KA. Ættin úr eyjum og djúpum Ég er ættaður úr Gnmsey og Vest- mannaeyjum. Afi minn í föðurætt hét Árni Guðmundsson, oftast kallaður Ámi úr Eyjum. Hann samdi texta við mörg lög Oddgeirs Kristjánssonar, texta eins og Blítt og létt og Kveikjum eld. Eigin- kona hans heitir Ása Torfadóttir og starfaði hjá SÍBS en býr nú í Reykjavík. Ég heiti hins vegar eft- ir hinum afa mínum, Friðfinni Ól- afssyni, sem var lengi bíóstjóri í Háskólabíói, hann var úr Isafjarð- ardjúpi. Móðuramma mín Hall- dóra Sigurbjömsdóttir var hins vegar úr Grímsey. Stuttur strúkur í Mývatnssveit Ég er fæddur í Reykjavík en á bamsaldri lá leiðin í Mývatnssveit. Foreldrar mínir bjuggu þar um tíma og ég var auk þess í sveit þar í nokkur sumur. Ég á því margar góðar minningar þaðan og mitt annnað heimili hjá þeim Guðnýju og Snæbirni í Reynihlíð. Ég bjó hjá þeim en var í sveit hjá Ár- manni Péturssyni, sem er bróðir Snæbjöms. Hann var þá með stórt fjárbú í Reynihlíð. Foreldrar mínir fluttu til Akur- eyrar þegar ég var sjö ára. Ég gekk í Bamaskóla íslands, Gagnfræða- skólann á Akureyri og Mennta- skólann á Akureyri. Þaðan lá leið- in í viðskiptafræði í Háskólanum. Ég kom norður á vorin því að á þessum árum spilaði ég með meistaraflokki KA í fótbolta. Meiri og meiri Þingeyingur Það er því svoh'tið flókið að svara - segir Friðfinnur Hermcmnsson, sem er orðinn Þingeyingur spumingum eins og; hvaðan ertu? En í dag er ég Þingeyingur, og verð alltaf meiri og meiri Þingey- ingur eftir því sem dagamir líða. Hér á Húsavík hef ég búið í rúm- lega sex ár og kann ljómandi vel við mig. Mér hefur alltaf liðið sér- staklega vel í Þingeyjarsýslu, það er bæði loftið og fólkið. Að duga eða drepast Ég verð samt að segja það að ég hef svolitlar áhyggjur af því að það vanti loft í Þingeyinga. Það sem þarf núna er einmitt loft. Við erum að koma að nýjum aldamót- um og ég held að Þingeyingar nú- tímans þurfi að taka af skarið eins og Þingeyingar gerðu fyrir hundr- að árum síðan. Þá vom þeir sem hér bjuggu frumkvöðlar, einfald- lega á undan öðrum í menningar-, félags- og verslunarmálum. Nú er annað hvort að duga eða drepast og ég held að framtíðin byggist á því að Þingeyingar standi saman. Að við séum öll fyrst og síðast Þingeyingar, styðjum hvert annað og berjumst saman fyrir framför- um í sýslunni, til dæmis í samgöngu-, skóla- og heilbrigðis- málum. Ég held að framtíðin sé svaka- lega björt einmitt hér ef menn standa saman. Ég er viss um að Þingeyingar geta orðið leiðandi á í franska bollanum og kaþólskum skóla Við Berglind útskrifuðumst bæði í Háskólanum árið 1989. Þá lögðum við land undir fót og fórum til Lyon í Frakklandi í kaþólskan frönskuskóia, þar átt- um við ógleymanlegan vetur. Það voru margar nunnur og kaþólskir prestar með okkur í skólanum, fólk allsstaðar að úr heiminum. Eftirminnilegast var þó að kynnst prestinum og meðhjálp- aranuin í skólanum. Við hjónin fórum með þeim í gönguferð einn daginn og eftir það áttum við margar skemmtilegar stund- ir ineð þeim. Ég hef aldrei rætt eins mikið uni trúmál eins og þennan vetur enda rnjög gaman að ræða við þetta fólk um trú. Þó fannst mér þessar umræður stundum fara út í öfgar. Til dæmis þegar við ræddum heilt kvöld um það hvort María mey hefði verið hrein mey eftir að hún fæddi Jesú. Þennan vetur spilaði ég svo í sjöttu deildinni í franska fótboltanum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.