Dagur - 12.03.1996, Page 5

Dagur - 12.03.1996, Page 5
Þriðjudagur 12. mars 1996 - DAGUR - 5 FESYSLA éélKAUPÞING NORÐURLANDS HF Það snjóar alltaf á endanum Fjölmargir litu viö í Polarisumboöinu í tilefni 20 ára afmælisins. Frá vinstri: Jón Ingi Sveinsson, Tómas Sæmundsson, Gunnar Heigason og Gestur Jóns- son. Gegnt þeim sitja Tómas Búi Böðvarsson og Stefán Þengilsson. - segir Tómas Eyþórsson, sem hefur flutt inn vélsleda frá Polaris í 20 ár Um þessar mundir eru 20 ár frá því að Tómas Eyþórsson fékk einkaumboð fyrir Polaris vélsleða á Islandi. Sleðar af þessari gerð voru þá óþekktir hér á landi en hafa síðan heldur betur látið til sín taka. Þeir hafa til fjölda ára verið afar vinsælir um allt land og engin sleðategund á að baki viðlíka sigurgöngu í vélsleða- keppnum hér á landi. Tómas rek- ur fyrirtækið ásamt Eyþóri syni sínum og þeir héldu upp á 20 ára afmælið sl. föstudag. Mikið vatn hefur runnið til sjáv- ar síðan Tómas fyllti út blað sem kom í seriospakka og fékk senda myndabæklinga og fleira um Pol- aris vélsleða. Haustið 1975 komu fyrstu tveir sleðamir en árið eftir fóru hlutimir að rúlla fyrir alvöm, segir Tómas. Fyrsti sleðinn var Colt 250 og kaupandi var Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri á Ak- ureyri. Verðið var 371.300 krónur. Nokkum tíma tók fyrir forsvars- menn Polaris að sannfærast um að hægt væri að treysta einhverjum manni upp á Islandi fyrir að selja sleða, segir Tómas. En eftir að ísinn var brotinn hafi samskiptin við for- svarsmenn fyrirtækisins verið með eindæmum góð. Öll tuttugu árin ut- an eitt hefur hann farið til Banda- ríkjanna í heimsókn í Polarisverk- smiðjumar og ætíð fengið góðar viðtökur. Um síðustu helgi hélt hann einmitt utan en í mars á hverju ári er umboðsmönnum kynnt næsta árgerð af sleðum. „Polarisverksmiðjumar hafa vaxið gríðarlega síðan ég kynntist þeim fyrst. Þá störfuðu þar 400-500 manns en sá fjöldi hefur margfald- ast og nú em starfsmenn um 3.500,“ sagði Tómas. Nú framleiðir Polaris einnig fjórhjól, sexhjól og vatnaþotur, sem Tómas hefur að sjálfsögðu einnig á boðstólnum. Gríðarlegar breytingar hafa orðið á sleðunum sjálfum á þessum 20 ár- um og Tóms sagði að sig langaði oft að vera 20-30 ámm yngri. „Núna em að koma svo margir sleðar sem virkilega kitla mann.“ Vöxtur fyrirtækisins Fyrirtæki Tómasar Eyþórssonar hefur einnig vaxið svo um munar en hann hefur alla tíð rekið hjól- barðaverkstæði samhliða Polaris- umboðinu. Fyrst í litlu plássi bak Verðlœkkun á Mazda 323 Þú fœrð ekki betri bíl BSA Laufásgötu 9, Akureyri, sími 462 6300 Ingvar Grétarsson (t.v.) var um árabil ósigrandi á vélsleðamútum. Hann er hér að ræöa við Halldór Jóhannesson, umboðsmann Polaris á Suðvestur- landi. við Brunabót og Valprent. Síðan var flutt í húsnæði við Hvannavelli sunnan við Lindu og árið 1992 var flutt í hið glæsilega húsnæði þar sem starfsemin er nú, við Undirhlíð. Að sögn Tómasar em vélsleðamir um 90% af starfsemi fyrirtækisins í dag. „Mann óraði ekki fyrir því fyrir 20 ámm að þetta myndi vefja svona utan á sig. Mesta sleðasalan var 1991-92, yfir 200 sleðar á einum vetri. Það var ævintýri sem við vild- um hafa á hverju ári. Þessi vetur hefur ekki verið okkur hagstæður, en við vinnum okkur út úr því. Það kemur alltaf snjór á endanum, næsta vetur ef ekki núna.“ Tómas er skiljanlega stoltur af húsnæðinu við Undirhlíð. Ekki vom allir á eitt sáttir þegar honum var út- hlutað lóðinni á sínum tíma og sáu kannski fyrir sér óþrifalegt dekkja- verkstæði. Það er dæmigert fyrir Tómas að hann efldist allur við mótlætið og húsið sem reis var sér- lega glæsilegt. Það hefur vakið at- hygli margra, var m.a. tilnefnt til menningarverðlauna DV fyrir byggingalist og lýsingin í því hefur fengið sérstaka viðurkenningu. „Það verður reyndar að viður- kennast að húsnæðið er orðið í þrengra lagi. Polaris hefur oftast verið að framleiða 24-28 gerðir af sleðum en er núna með 46 gerðir. Við tökum auðvitað bara smá brot af þessu. Núna tókum við 13 gerðir og til að sýna þær þarf mikið pláss. En við skipuleggjum bara og nýtum húsið betur,“ sagði Tómas. Rosalega gaman Polarisumboðið er eina fyririrtækið utan Reykjavíkursvæðisins sem hefur haft aðalumboð fyrir vélknúin ökutæki samfleytt í þessi 20 ár. Ýmislegt hefur gerst þessi ár og Tómas segir margs að minnast. „Maður reynir alltaf að gera öllum til hæfis en það segir sig sjálft að aldrei eru allir ánægðir. Þessi 20 ár hafa ekki alltaf verið dans á rósum en mikið rosalega hefur þetta samt verið skemmtilegt,“ sagði Tómas. Hann sagist að lokum vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem átt hafa við hann viðskipti á þessum árum. „Sérstaklega langar mig að þakka þeim, sem verið hafa að keppa á Polaris," sagði Tómas Eyþórsson að lokum. HA Gamli og nýi tíminn. Tómas Eyþórsson við fyrsta sleðann sem hann flutti inn og sonur hans Eyþór við nýjustu gerðina af Polaris. Myndir: Halidór Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri, keypti fyrsta Polaris sleðann af nafna sínum Eyþórssyni. Hér eru þeir við gripinn, Colt 250, og lítur hann ótrúlega vel út. Vikuna 3.-9. mars voru viðskipti með hlutabréf 123,6 milljónir króna. Mest voru viðskipti með hlutabréf í eftirtöldum félög- um: Flugleiðum hf. fyrir 36,3 milljónir króna á genginu 2,50-2,60, íslenskum sjávarafurðum hf. fyrir 12,5 milljónir króna á genginu 2,80-3,0, Hlutabréfasjóðnum hf. fyrir 10,7 milljónir króna á genginu 2,08-2,10 og Árnesi hf. fyrir 9,5 milljónir króna á genginu 1,10. Viðskipti með Húsbréf voru 8 milljónir króna, Spariskírteini ríkissjóðs 148 millj- ónir, Ríkisvíxla 1.111 milljónir og Ríkis- bréf 360 milljónir. Ávöxtunarkrafa Hús- bréfa var í vikunni 5,68-5,70%. SPARISKÍRTEINI RÍKISSJOÐS Tegund K gengi K áv.kr. 92/1D5 1,3841 5,78% 93/1D5 1,2775 5,78% 93/2D5 1,2020 5,78% 94/1D5 1,0979 5,78% 95/1D5 1,0208 5,78% HÚSBRÉF Flokkur K gengi K áv.kr. 95/2 0,9665 5,68% 96/1 0,9529 5,70% 96/2 0,9259 5,68% 96/3 0,8978 5,66% VERÐBREFASJOÐIR Ávoxtun 1. mars. umfr. verðtxilgu síðustu: (%) Kaupg. Sölug. 6mán. 12 mán. Fjárfestingarfélagið Skandia hf. Kjarabrél 6,088 6,149 7,9 7,7 Tekjubréf 1,616 1,632 5,9 5,7 Markbréf 3,385 3,419 12,4 10,6 Skyndibréf 2,349 2,349 7,9 5,6 Fjölþjóðasjóður 1281 1,321 62 7,5 Kaupþing hf. Einingabréf 1 8,070 8,111 6,7 6,0 Einingabréf 2 4,466 4,489 62 4,2 Einingabréf 3 5,165 5,191 6,7 6,0 Skammtímabréf 2,792 2,792 6,7 5,3 Einingabréf 6 1,399 1,440 15,6 25,1 Einingabréf 10 1,140 1,163 112 14,4 Verðbréfam. Islandsbanka hf. Sj. 1 Vaxtarsj. 3,897 3,916 5,3 3,5 Sj. 2 Tekjusj. 2,072 2,093 4,8 4,7 Sj. 3 Skamml. 2,685 5,3 3,5 Sj. 4 Langt.sj. 1,846 5,3 3,5 Sj.5pgnask.lij. 1,762 1,774 5,1 3,4 Sj. 6 Island 1,512 1,557 40,2 34,4 Sj. 7 Pýsk hlbr. 1,009 1,014 Sj.10Evr.hlbr. Vaxtabr. 2,7463 5,3 3,5 Valbr. 2,5742 5,3 3,5 Landsbréf hf. islandsbréf 1,759 1,791 6,1 5,4 Fjórðungsbréf 1223 1,240 5,4 4,9 Þingbréf 2,086 2,112 10,5 7,4 Öndvegisbréf 1,837 1,661 6,0 4,5 Sýslubréf 1,916 1,940 18,7 12,0 Reiðubréf 1,660 1,660 3,5 4,1 Launabréf 1,092 1,108 7,9 5,0 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi á Verðbréfaþingi íslands: Hagst. tilboð Lokaverð Kaup Sala Alm. hlutabr.sj. hf. 1,41 1,41 Auðlindarbréf 1,55 1,54 1,60 Eignfél. Alþýðub. 1,42 1,39 1,43 Eimskip 6,00 5,65 6,00 Flugleiðir 2,64 2,63 2,65 Grandi hf. 3,44 3,22 3,40 Hampiöjan 3,90 3,57 3,90 Haraldur Böðv. 3,50 3,35 3,75 Hlutabréfasjóðurinn 2,10 2,11 2,15 Hlutabréfasj. Norðurl. 1,66 1,61 1,66 Hlutabréfasj. VIB 1,32 islandsbankí hf. 1,59 1,53 1,59 Isl. hlutabréfasj. 1,51 1,52 1,58 Jarðboranir hf. 2,68 2,55 Kaupfélag Eyf. 2,10 2,10 2,20 Lyfjaverslun Islands 2,80 2,70 2,85 Marel hf. 8,20 6,35 6,90 Olís 4,00 3,52 4,18 Olíufélagið hf. 7,00 7,00 9,00 Síldarvinnslan hf. 5,50 5,00 Skagstrendingur hf. 4,50 4,30 5,91 Skeljungur hf. 4,30 4,30 4,37 Skinnaiðnaður hf. 3,50 3,50 4,00 SR mjöl 2,45 2,46 2,65 Sæplast 4,40 4,42 4,85 Útgerðarfélag Ak. 3,80 3,68 3,80 Vinnslustöðin 1,26 1,26 1,28 Þormóðurrammihf. 5,00 3,90 4,30 Sölu- og kaupgengi á Opna tilboðsmarkaðinum: Armannsfell 1,00 0,89 1,05 Bifreiðaskoðun ísl. 2,15 Hraðfrystihús Eskifjarðar 3,30 3,20 isl. sjávarafurðir 3,00 3,02 3,25 isl. útvarpsfél. 4,00 Nýherji 2,15 2,13 2,15 Pharmaco 10,00 10,05 13,00 Samein. verktakar hf. 8,50 6,30 8,50 Samskip hf. 0,85 0,90 Sjóvá-Almennar hf. 6,85 7,80 12,00 Softís hf. 4,00 4,00 5,00 Sölusamb. fsl. fiskframl. 2,60 2,45 2,80 Tollvörugeymslan hf. 1,20 1,16 1,25 Tryggingamiðst. hf. 6,60 6,65 Tæknival hf. 3,00 2,90 4,10 Tölvusamskipti hf. 2,20 2,50 Þröunarfélag islands hf. 1,50 1,50 DRATTARVEXTIR Mars 16,00% MEÐ ALVEXTIR Alm. skuldabr. lán mars 12,90% Verðtryggð lán mars 8,90% LÁNSKJARAVÍSITALA Febrúar 3453 Mars 3459 VÍSITALA NEYSLUVERÐS Febrúar 174,9 Mars 175,2

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.