Dagur - 25.07.1996, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 25. júlí 1996
Ein vika til flutnings grunn-
skólans til sveitarfélaganna
Efasemdaraddir hafa víða heyrst, frá því fyrst var
farið að ræða um að flytja grunnskólann alfarið frá
ríkinu til sveitarfélaga. Sumir vildu jafnvel taka
svo djúpt í árinni, að það væri ómögulegt, sveitar-
félögin gætu hreinlega ekki staðið undir rekstrin-
um, nema með svo mikilli hjálp ríkisins, að betur
væri heima setið en af stað farið. Kennarar uggðu
um sín mál, og töldu að réttindi þeirra og kjör
yrðu í hættu. Flestir voru sammála um að tíminn
sem ætlaður var fram að flutningnum væri alltof
skammur, en nú er ljóst að af flutningnum verður
og eftir nákvæmlega viku flyst grunnskólinn yfir
til sveitarfélaganna, á þeim degi sem áætlaður var.
Svo virðist sem enn hafi ekki allir endar verið
hnýttir, í það minnsta eru flestir þeir, sem tengjast
grunnskólaflutningnum á einhvern hátt, sammála
um að einhverjir hnökrar verði á í byrjun.
- ýmis sjónarhorn
Launamál
Hannes Þórsteinsson, launafulltrúi
hjá Kennarasambandi íslands,
segir menn á þeim bæ bera kvíð-
boga fyrir 1. ágúst og 1. október.
Þann fyrsta ágúst á að greiða út
föst laun, en 1. október koma
vinnuskýrslur kennara inn, og
flækja launavinnsluna til muna.
Hann hefur áhyggjur af því að
undirbúningur fyrir launaútreikn-
inginn sé ekki nægur, og nefnir
sem dæmi að gögn sem nota á við
útreikninginn hafi ekki verið kom-
in til sveitarfélaganna um síðustu
helgi.
„Undirbúningurinn er hálfu ári
á eftir því sem hann hefði þurft að
vera, þetta hefði allt þurft að ger-
ast á öðrum tíma, og hraðar. Ég
veit ekki hvort við einhvem einn
er að sakast, en þetta gegnur allt
saman hægar fyrir sig en við hefð-
um viljað. Forsvarsmenn sveitar-
félaganna hafa að vísu sagt að allt
verði klappað og klárt um næstu
mánaðamót, og ég vona að ég hafi
rangt fyrir mér um að svo verði
ekki.
Þegar launagreiðendum fjölgar
jafn mikið og nú, liggur í augum
uppi að nýtt fólk þarf að setja sig
inn í hlutina og ég held að það sé
fátt sem fari meira í taugamar á
fólki en að fá ekki rétt laun á rétt-
um tíma, og ég geri ráð fyrir að
það verði það fyrsta sem fólk
verður vart við eftir flutninginn.“
Sigurjón Pétursson, deildar-
stjóri grunnskóladeildar hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga, vill
lítið gera úr áhyggjum kennara af
launamálum. „Vafalaust verða
einhverjir hnökrar þegar svona
stórt verkefni flyst til, en í sjálfu
sér er ekkert flóknara að reikna út
laun kennara en annarra starfs-
manna sveitarfélaganna. Hins
vegar er tíminn nú, þegar flutning-
urinn á sér stað, óþægilegur, þar
sem margir eru í sumarfríi hjá
sveitarfélögunum. Það breytir þó
ekki því að allir kennarar fá út-
borgað 1. ágúst. Við verðum svo
að gera ráð fyrir því að búið verði
að undirbúa fólk fyrir 1. október,
þegar kemur að því að reikna út úr
vinnuskýrslum.“
Samningar
Annað áhyggjuefni kennara voru
samningamál, og hvemig færi um
réttindi þeirra og skyldur. Hannes
Þorsteinsson hjá KÍ segir þau mál
á lygnum sjó nú, sveitarfélögin