Dagur - 25.07.1996, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 25. júlí 1996
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Ævintýri Mumma.
13.10 Skot og mark.
13.35 Heilbrigð sál i hraustum lík-
ama.
14.00 Maður þriggja kvenna. (Man
With Three Wives) Sannsöguleg mynd
um skurðlækninn Greyson sem var
veikur fyrir kvenfólki og vissi það ekki
fyrr en hann var orðinn þrígiftur.
Aðalhlutverk: Beau Bridges og Johanna
Kems. 1993.
15.35 Handlaginn heimilisfaðir.
16.00 Fréttir.
16.05 Frimann.
16.35 Glæstar vonir.
17.00 Aftur til framtiðar.
17.25 Jón spæjó. Sniðugur teikni-
myndaflokkur um Jón Spæjó og afrek
hans.
17.30 Unglingsárin.
18.00 Fréttir.
18.05 Nágrannar.
18.30 Sjónvarpsmarkaðurinn.
19.00 19>20.
20.00 Babylon 5.
20.55 Örlagadans. (Naked Tango) At-
hyglisverð mynd um ástríðurnar sem
gera elskendum kleift að draga andann.
Sagan greinir frá Stephanie, eiginkonu
forríks dómara í Buenos Aires, sem leið-
ist hjónabandið og setur á svið sjálfs-
morð til að öðlast frelsi. En gæfan brosir
ekki við henni því hún dregst inn í ver-
öld vændis og hvítrar þrælasölu. Við
nöturlegar aðstæður kynnist hún Cholo,
blóðheitum einfara sem lifir fyrir tang-
ódansinn. Aðalhlutverk: Vincent
D'Onofrio, Mathilda May, Esai Morales
og Fernando Rey. Leikstjóri: Leonard
Schrader. 1991. Stranglega bönnuð
bömum.
22.35 Djöflaeyjan. (Papiliion) Ein af
frægustu kvikmyndum áttunda áratug-
arins. Steve Mac Queen og Dustin Hoff-
mann leika tvo ólíka menn sem dæmdir
hafa verið til ævilangrar þrælkunar í
fanganýlendu. Örlagasaga um vináttu
og harða lifsbaráttu og síðast en ekki
síst, ævintýralegan flótta. Leikstjóri:
Franklin J. Shaffner. Maltin gefur þrjár
stjörnur. 1973. Stranglega bönnuð
bömum.
01.05 Landsmótið í golfi.
01.25 Hvítir sandar. (White Sands) Lik
af velklæddum manni finnst í eyðimörk-
inni. í annarri hendi mannsins er
skammbyssa en hin heldur um tösku
sem inniheldur hálfa milljón dollara í
reiðufé. Þetta er sannarlega dularfull
gáta sem lögreglumaðurinn Ray Dolezal
fær að glíma við. Var þetta morð eða
sjálfsmorð? Aðalhlutverk: Willem Dafoe,
Samuel J. Jackson, Mimi Rogers og Mic-
key Rourke.1992. Stranglega bönnuð
bömum.
03.05 Dagskrárlok
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ
09.00 Baraaefni.
11.30 Listaspegill.
12.00 NBA-molar.
12.30 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Dieppe. Nú verður sýndur fyrri
hluti sannsögulegrar kanadískrar fram-
haldsmyndar um einhverja blóðugustu
orustu seinni heimsstyrjaldarinnar. í
myndinni eru atriði sem ekki eru við
hæfi ungra bama. Seinni hlutinn er á
dagskrá á morgun.
14.35 Andrés Önd og Mikki mús.
15.00 Blaðburðardrengimir. (The
News Boys) Þegar valdamiklir blaðaeig-
endur New York borgar ákveða að
hækka verðið á blöðum sínum á kostnað
blaðburðardrengjanna. Disney myndir
svíkja ekki nú, frekar en fyrri daginn.
Aðalleikarar: Bill Pullman, Ann-
Margret, Robert Duvall, Michael Lerner.
Leikstjóri Kenny Ortega. 1992.
17.05 Blaðið. (The Paper) Bráðskemmti-
leg mynd um einn sólarhring í lífi rit-
stjóra og blaðamanna á dagblaði í New
York. Við kynnumst einkalifi aðalper-
sónanna en fyrst og fremst því ægilega
álagi sem fylgir starfinu og siðferðiieg-
um spumingum sem kvikna. Blaða-
mennimir leita sannleikans en prenta
síðan það sem þeir komast upp með að
prenta. Aðalhlutverk: Michael Keaton,
Glenn Close, Marisa Tomei, Randy
Quaid og Robert Duvall. Leikstjóri: Ron
Howard. 1994.
19.00 Fréttir og veður.
19.35 Fyndnar fjölskyldumyndir.
(America's Funniest Home Videos).
20.05 Góða nótt, elskan. (Goodnight
Sweetheart).
20.40 Tónlistarhátiðin á Wight Eyju.
(Isle Of Wight) Sögulegir rokktónleikar
sem haldnir vom árið 1970. Meðal
þeirra sem fram koma em Jimi Hendrix,
The Doors, The Who, Joni Mitchell og
Jethro Tull.
22.40 Frankenstein. (Mary Shelley’s
Frankenstein) Útgáfa Kenneths Bran-
agh af sögunni um vísindamanninn
Frankenstein og skrímsli hans. Þetta er
tilkomumikil og vönduð kvikmynd. Auk
þess að leikstýra leikur Branagh aðal-
hlutverkið en í öðram stómm hlutverk-
um em Robert De Niro, Tom Hulce og
Helena Bonham Carter. 1994 Strang-
lega bönnuð bömum.
00.45 Blaðið. (The Paper).
02.35 Dagskrárlok
SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ
09.00 Bamaefni.
12.00 Fótbolti á fimmtudegi (e).
12.25 Neyðarlinan (e) (Rescue 911).
13.15 Lois og Clark (e) (Lois and
Clark: The New Adventures).
14.00 New York löggur (e) (N.Y.P.D.
Blue).
15.00 Dieppe. Seinni hluti sannsögu-
legrar kanadískrar framhaldsmyndar
um einhverja blóðugustu omstu seinni
heimsstyrjaldarinnar. í myndinni em at-
riði sem ekki em við hæfi ungra barna.
16.30 Sjónvarpsmarkaðurinn.
17.00 Saga McGregor-fjölskyldunnar.
(Snowy River: The Mcgregor saga).
18.00 í sviðsljósinu. (Entertainment
This Week).
19.00 Fréttir og veður.
19.35 Morðsaga. (Murder One).
20.25 Vinurinn Joey. (Pal Joey) Víð-
frægur gamansöngleikur þar sem Frank
Sinatra syngur mörg af sínum frægustu
lögum. Aðalhlutverk: Frank Sinatra,
Rita Hayworh, Kim Novak og Barbara
Nichols. Leikstjóri: George Sidney.
Maltin gefur þrjár stjömur. 1957.
22.20 Listamannaskálinn. (South
Bank Show 1995-1996) Ný syrpa Lista-
mannaskálans þar sem Melvyn Bragg
fjallar ítarlega um nokkra helstu lista-
menn þessarar aldar og þau áhrif sem
þeir hafa haft á samtíðina.
23.15 Grein nr. 99. (Article 99) Gaman-
mynd sem gerist á sjúkrahúsi í Kansas
þar sem regluveldið er að drepa allt í
dróma. Myndin minnir um margt á
gamanþættina MASH en læknarnir em
ekki á vígvellinum að þessu sinni. Aðal-
hlutverk: Ray Liotta, Kiefer Sutherland
og Forest Whitaker. 1992.
00.55 Dagskrárlok
MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Sesam opnist þú.
13.30 Skot og mark.
14.00 Flodder-fjölskyldan á Manhatt-
an. (Flodder Does Manhattan) Hin
drepfyndna og vinsæla Flooder fjöl-
skylda er mætt til leiks á ný en fyrri
myndin bar einfaldlega nafn fjölskyld-
unnar. Fooder-liðið býr nú í tjaldi í rúst-
um síns fyrra heimilis í Sunny Dale.
Vegna félagslegs verkefnis á vegum
Sameinuðu þjóðanna er fjölskyldunni
boðið að fltyjast til Bandaríkjanna. 1992
Bönnuð bömum.
16.00 Fréttir.
16.05 Núll 3 (e).
16.35 Glæstar vonir.
17.00 Ferðir Gúllivers.
17.25 Kisa Utla.
18.00 Fréttir.
18.05 Nágrannar.
18.30 Sjónvarpsmarkaðurinn.
19.00 19>20.
20.00 McKenna fjölskyldan.
(Mckenna).
Föstudagur kl. 20.55:
■ ■
Orlagadans
Þema júlímánaðar á Stöð 2
eru eldheitar suðrænar kvik-
myndir. Nú er röðin komin að
argentínsku kvikmyndinni Ör-
lagadans, eða Naked Tango.
Sagan greinir frá Stephanie,
eiginkonu forríks dómara í
Buenos Aires, sem leiðist
hjónabandið og setur á svið
sjálfsmorð til að öðlast frelsi.
En gæfan brosir ekki við
henni því hún dregst inn í
veröld vændis og hvítrar
þrælasölu. Við nöturlegar að-
stæður kynnist hún Cholo,
blóðheitum einfara sem lifir
fyrir tangódansinn, og takast
með þeim ástir. Aðalhlutverk
leika Vincent D Onofrio, Mat-
hilda May, Esai Morales og
Fernando Ray. Leikstjóri er
Leonard Shrader.
Föstudagur kl. 22.35:
Papillon
Stöð 2 sýnir hina víðfrægu og sígildu kvikmynd, Djöflaeyjuna (Pap-
illon). í myndinni leika Dustin Hoffmann og Steve McQueen með
eftirminnilegum hætti tvo samfanga í refsinýlendu Frakka í Guin-
eu. Charrieré hefur verið dæmdur til 25 ára þrælkunarvistar á eyj-
unni fyrir glæp sem hann neitar að hafa framið. Allt frá upphafi
vistarinnar kemst ekkert annað að en flótti í huga Charrierés.
Flóttatilraunir hans mistakast í fyrstu og afleiðingin er aukið harð-
ræði og einangrun í refsingarskyni. Charrieré vingast við sam-
fanga sinn að nafni Dega. Sá er liinn mesti væskill sem Charrieré
tekur undir sinn verndarvæng. Maltin gefur myndinni þrjár stjörn-
ur. Hún er frá árinu 1973 og leikstjóri er Franklin J. Shaffner.
Laugardagur kl. 21.05:
Sögufrægir rokktónleikar
Stöð 2 sýnir í kvöld mynd frá frægum rokktónleikum, sem haldnir
voru undir berum himni á Wight-eyju við suðurströnd Bretlands
árið 1970. Þetta var á blómaskeiði hippatímabilsins og andrúms-
loftið á þessari tónlistarhátíð bar þess merki. Gríðarlegur fjöldi
fólks var þarna samankominn, sumir í leit að ást og vináttu, aðrir
til að komast í eiturlyfjavímu, en flestir komu til að njóta tónlistar-
innar. Meðal þeirra hljómsveita og tónlistarmanna sem koma fram
eru Jimi Hendrix, Emerson Lake and Palmer, Jethro Tull, The
Doors, The Who og Joni Mitchell.
Sunnudagur kl. 20.50:
Sígildur Sinatra
Stöð 2 sýnir kvikmyndina Vinurinn Joey (Pal Joey). Þetta er sígild
söngvamynd frá árinu 1957. Frank Sinatra leikur aðalhlutverkið og
syngur mörg af sínum þekktustu lögum í myndinni. Skemmtikraft-
urinn Joey Evans kemur til San Fransisco, staðráðinn í að slá í
gegn þar. Hann kynnist ríkri fegurðardís að nafni Vera Simpson og
hugsar sér gott til glóðarinnar með sambandi sínu við hana. Joey
dreymir um að stofna sinn eigin næturklúbb og ætlar þar að njóta
fulltingis Veru. En yngismærin Linda setur strik í reikninginn og
flækir málin fyrir Joey. í öðrum aðalhlutverkum eru Rita Hayworth
og Kim Novak. Leikstjóri er George Sidney.
Mánudagur kl. 21.45:
íranskeisari og byltingin
Stöð 2 sýnir athyglisverða breska heimildarmynd um Mohammed
Reza Pahlavi, síðasta keisarann í íran sem var steypt af stóli árið
1979 eftir að Khomeini erkiklerkur og fylgismenn hans gerðu bylt-
ingu í landinu. Keisarinn hafði með stuðningi vestrænna ríkja unn-
ið að því að nýta olíuauðinn til að gera íran að nútímaríki að jap-
anskri fyrirmynd. Jimmy Carter, Bandaríkjaforseti, hét Reza Pa-
hlavi stuðningi sínum, enda var keisarinn eins konar varðmaður
vestursins í ólgandi suðupotti Mið-Austurlanda. En það var langt
því frá að íranska þjóðin væri sátt við einræði keisarans, leynilög-
reglu hans og það hvernig hann barði miskunnarlaust niður alla
stjórnarandstöðu. Khomeini erkiklerkur átti þvr greiðan aðgang að
þjóðarsálinni með prédikanir sínar um íslamskt ríki og hatursáróð-
ur gegn Vesturlöndum.
Þriðjudagur kl. 20.00:
Faxaflóasund og Karíbahaf
Anna Björk Birgisdóttir er umsjónarmaður þáttarins Sumarsport á
Stöð 2, þar sem fjallað er um sumaríþróttir, útivist og tómstunda-
iðju íslendinga. Fólk tekur sér margt skrýtið fyrir hendur og að
þessu sinni verður meðal annars synt í ísköldum Faxaflóanum og
siglt um ylvolgt Karíbahafið. Við fylgjumst með ellefu krökkum í
Sundfélagi Akraness synda svokallað Faxaflóasund og kynnumst
síðan stemmningu af öðrum toga í ævintýraferð sem tveir íslend-
ingar fóru um Karíbahafið á dögunum. Auk þessa verður farið í
Keiluhöllina í Öskjuhlið, þar sem við hittum fyrir hressa krakka á
ævintýranámskeiði, spjallað verður við Jón Örn Bergsson um
fjallahjól og við fylgjumst með lögreglunni kenna 6 ára krökkum
umferðarreglurnar. Kolbrún Jarlsdóttir sér um dagskrárgerð.
Laugardagur kl. 23.05:
Frankenstein í útgáfu
Kenneths Branagh
Kvikmyndin Frankenstein (Mary Shelley's Franken-
stein) er á dagskrá Stöðvar 2. Fáar sögur hafa verið
kvikmyndaðar oftar en þessi sígilda hrollvekja um vís-
indamanninn Frankenstein sem vekur liðið lík til lífsins.
Útkoman er hins vegar ekki það afburðamenni sem
Frankenstein hugðist skapa heldur vangefið og hættu-
legt skrímsli sem þó er ekki gjörsneytt hlýju. Þessari
nýjustu kvikmyndaútgáfa sögunnar um Frankenstein er
leikstýrt af Kenneth Branagh og leikur hann jafnframt
aðalhlutverkið. í öðrum stórum hlutverkum eru Robert
De Niro, Tom Hulce og Helena Bonham Carter. Myndin
er frá árinu 1994.
20.50 Lögreglustjórinn. (The Chief).
21.45 Síðasti íranskeisarinn. (The
Last Shah) Heimildarmynd frá BBC um
síðasta keisarann í Iran sem flúði land
um það. leyti sem Komeini erkiklerkur
var að ná völdum.
22.45 Flodder-fjölskyldan á Manhatt-
an. (Flodder Does Manhattan).
00.40 Dagskrárlok
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Sesam opnist þú.
13.30 Skot og mark.
14.00 Hold og blóð. (Flesh and Bone)
Arlis er maður sem kvahnn er af fortíð-
inni. Hann starfar við að ferðast á milli
smábæja og fylla á vörusjálfsala. Hann
kynnist hinni fögm Kay sem líka er á
flótta undan dökkri fortíð. Þau dragast
hvort að öðra en í ljós kemur að þau
geta ekki flúið fortíðina til lengdar. Að-
alhlutverk: Dennis Quaid, Meg Ryan og
James Caan. 1993. Stranglega bönnuð
bömum.
16.00 Fréttir.
16.05 Matreiðslumeistarinn (e).
16.35 Glæstar vonir.
17.00 Ruglukollamir.
17.10 Dýrasögur.
17.20 Skrifað í skýin.
17.35 Krakkamir í Kapútar.
18.00 Fréttir.
18.05 Nágrannar.
18.30 Sjónvarpsmarkaðurinn.
19.00 19>20.
20.00 Sumarsport.
20.30 Handlaginn heimilisfaðir.
(Home Improvement).
21.00 Matglaði spæjarinn. (Pie In The
Sky).
21.55 Stræti stórborgar. (Homicide:
Life on the Street).
22.45 Hold og blóð. (Flesh and Bone).
00.50 Dagskrárlok
MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Skot og mark.
13.30 Sesam opnist þú.
14.00 Percy og Þraman. (Percy and
Thunder) Ungur blökkumaður sem þyk-
ir mjög efnilegur hnefaleikari yfirgefur
heimabæ sinn í Pennsylvaníu ásamt
þjálfara sínum og hyggst freista gæf-
unnar meðal atvirmumanna í Los Ange-
les. Aðalhlutverk: James Earl Jones,
Billy Dee WiUiams, Gloria Foster og
Zakes Mokae. 1993. Bönnuð bömum.
15.35 Handlaginn heimilisfaðir.
16.00 Fréttir.
16.05 Sumarsport (e).
16.35 Glæstar vonir.
17.00 í Vmaskógi.
17.25 Mási makalausi.
17.45 Doddi.
18.00 Fréttir.
18.05 Nágrannar.
18.30 Sjónvarpsmarkaðurinn.
19.00 19>20.
20.00 Beverly Hills 90210.
20.55 NúU 3.
21.30 Sporðaköst (e) Veiðivötn.
22.00 Brestir (e) (Cracker).
22.55 Percy og Þmman. (Percy and
Thunder).
00.25 Dagskrárlok
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Sjónvarpsmarkaðurinn.
13.00 Sesam opnist þú.
13.30 Skot og mark.
13.55 Sjóræningjaeyjan. (George's Is-
land) Sjóræningjaeyjan er æsispenn-
andi, bráðskemmtileg og dálítið drauga-
leg ævintýramynd. George er 10 ára
gamall drengur sem býr hjá afa sínum.
Afinn er gamall sjómaður og man tím-
ana tvenna. Hann segir George dular-
fullar sögur um Sjóræningjaeyjuna þar
sem fjársjóður er grafinn og dauður sjó-
ræningjar ganga aftur.
15.20 Embættistaka forseta íslands.
Samsending Stöðvar 2 og RÚV.
16.35 Glæstar vonir.
17.00 í Erilborg.
17.25 Vinaklíkan.
17.35 Smáborgarar.
18.00 Fréttir.
18.05 Nágrannar.
18.30 Sjónvarpsmarkaðurinn.
19.00 19>20.
20.00 Blanche.
20.55 Hjúkkur.
21.25 99 á móti 1.
22.20 Taka 2.
22.55 Fótbolti á fimmtudegi.
23.20 Einn á móti öllum. (Hard Target)
Háspennumynd með Jean-CIaude Van
Dmme um sjóarann Chance sem bjarg-
ar ungri konu úr klóm blóðþyrstra fanta
en þeir gera sér leik að því að drepa
heimilislausa í New Orleans. Maltin
gefur tvær og hálfa stjörnu. Aðalhlut-
erk: Jean-Claude Van Damme og Lance
Henriksen. Leikstjóri John Woo. 1993
Stranglega bönnuð bömum.
01.00 Dagskrárlok.