Dagur - 17.08.1996, Side 4

Dagur - 17.08.1996, Side 4
4- DAGUR - Laugardagur 17. ágúst 1996 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, Sl'MI: 462 4222 SÍMFAX: 462 7639 • SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1600 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 150 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir), BLAÐAM. HÚSAVÍK - GUÐRÚN K. JÓHANNSDÓTTIR SÍMIÁ SKRIFSTOFU 464 1585, FAX 464 2285. HEIMAS. BLM. Á HÚSAVÍK 464 1547 LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÓGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Að hafa skyndilega efni á hjólhýsi íslendingar hafa verið svo óskaplega blankir á undanförnum árum að þeir hafa ekki getað slegið lán til þess að kaupa nýja jeppa og hjólhýsi. Framkvæmdum við húsnæði hafa þeir slegið á frest og svo mætti lengi teija. Þetta hafa verið daprir dagar fyrir innflutningsfyrirtækin sem mokgræddu hérna um árið þegar góðærið gerði það að verkum, ásamt óðaverðbólgu, að landsmenn keyptu alla skapaða hluti út á krít og sögðu sem svo að þetta reddaðist. Nú hafa landsfeður af því stórar áhyggjur að landsmenn slái lán í stórum stíl til þess að kaupa nýja jeppa, tölvur, sjónvarps- tæki og guð má vita hvað. Á hagfræðimáli kallast þetta þensla og er að sögn heldur slæm tíðindi inni á Þjóðhagsstofnun og í Seðlabanka. Þórður Friðjónsson taldi á morgunverðarfundi Verslunarráðsins í vikunni að illt væri í efni og hann hallaðist að því að hækka bæri vexti við þessar aðstæður, ella færu menn allt of óvarlega með peningana sína. Og VSÍ sér að sjálfsögðu hættumerki á lofti og varar við kauphækkunum. Nú verður að treysta því að spakir menn í Þjóðhagsstofnun og VSÍ viti hvað þeir eru að segja og aukinn innflutningur landsmanna sé hið versta mál. Þetta hlýtur allt saman að vera satt og rétt. Ef svo er, þá er það hið mesta alvörumál ef íslenskt hagkerfi er svo vanþróað að það ráði ekki við batnandi efna- hag, að allt fari fjandans til ef kúrsinn fari eilítið upp á við eftir margra ára samdrátt og volæði. Kannski kunnum við ekki á batnandi efnahag í þjóðfélagi þar sem verðbólga er á sama báti og í samkeppnislöndunum? Sennilega þarf hagkerfið meiri tíma til að aðlagast efnahags- stöðu sem hefur þekkst til fjölda ára í nágrannalöndunum. í Noregi hefur allt frá því að olíuauðurinn kom til skjalanna verið efnahagslegur uppgangur og sagt er að Norðmenn viti vart aura sinna tal. Þeir hafa engu að síður fundið leið, þrátt fyrir alla þá fjármuni sem streyma um hagkerfið vegna olíuauðsins, til að halda verðbólgu í skefjum og jafnvægi í efnahagslífinu. Kannski kemur þarna fyrst og fremst til meðfædd sparsemi Norðmanna, sem íslendingar hafa aldrei verið þekktir fyrir. Sennilega ætti landinn að skreppa til Noregs á námskeið í sparnaði. í UPPÁHALDI Heftir mest dálæti á kúrekamyndum Jóhann Magnús Ólafs- son framkvœmdastjóri Fiskiðju Raufarhafnar hf og Jökuls hf á Raufarhöfn tók við því starfi 1. september 1994 en áður hafði hann gegnt starfi framkvœmdastjóra Kaldbaks hf. á Grenivík. Jóhann er mikill áhugamaður um hesta og þykir fátt skemmti- legra en að ríða út og scekja hestamannamót. Hann er giftur Þorbjörgu Stefáns- dóttur sem er lœrður nudd- frœðingur og eru þau hjón bœði fœdd og uppalin á Raufarhöfn. Hún hefur ver- ið á sjó á trillu með föður sínum af og til. Jóhann og Þorbjörg eiga eina dóttur, Laufeyju Maríu, sem er eins og hálfs árs gömul. Hvaða matur eru í mestu uppáhaldi hjá þér? „Kjöt í karrý er voðalegt gott.“ Uppáhaldsdrykkur? „Ferskt, íslenskt valn, en ég drekk óhemju mikið af vatni.“ Hvaða heimilisstörfflnnst þér skemmtilegust? En leiðinlegust? „Mér fmnst skást að vaska upp en af þeim heimilisstörfum sem ég sinni finnst mér leiðinlegast að ryksuga.“ Stundarþú einhverja markvissa hreyfingu eða líkamsrœkt? „Ég er í hestamennsku og svo stunda ég svolítið badminton, bæði með frúnni og nokkrum fé- lögum." Ert þú í einhverjum klúbb eða fé- lagasamtökum? „Ég er í félaginu „Neshestar" sem er félagsskapur hestamanna á Raufarhöfn og það dugar mér ágætlega.“ Hvaða blöð og/eða tímarit kaupir þú? „Engin, en ég sé Moggann, DV og Fishing News í vinnunni." Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? „Það er eiginlega aldrei nein bók á náttborðinu hjá mér.“ / hvaða stjörnumerki ertu? „V oginni.“ Hvaða tónlistarmaður er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Ég hef mjög gaman af því að hlusta á hljómsveitina Smokie." Hver er þinn uppáhalds íþróttamað- ur? „Sigurbjöm Bárðarson hesta- íþróttamaður." Hvað horfirþú mest á ísjónvarpi? „Fréttir og svo á bíómyndir. Ég hef sérstakt dálæti á kúreka- myndum og það hefur fylgt mér frá því ég var krakki.“ Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu mest álit? „Davíð Oddssyni.“ Hver er að þínu mati fegursti staður á íslandi? „Ég geri ekki upp á milli margra staða á Norðurlandi.“ Hvernig varðir þú þínu sumarfrn? „Ég fór til Reykjavíkur." Hvar vildir þú helst búa ef þú þyrftir að flytja búferlum nú? „Til Reykjavíkur eða til útlanda, ótiltekið.“ Hvernig vilt þú helst verja frístund- um þínum? „Með fjölskyldunni eða á hest- baki, og stundum get ég samein- að hvort tveggja." Hvað œtlar þú að gera um helgina? „Ég fer á hestamannamót að Svalbarði í Þistilfirði og síðan á hestamannaball að Svalbarði á eftir. Við förum saman héðan frá Raufarhöfn ríðandi á föstudegin- um og komum heim á sunnudeg- inum.“ GG MEP MORCUNKAFFINU____ ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON Af launakjörum og hagfræði Ég fékk inn á borð til mín í vik- unni merkilegt rit sem ber heitið „Tekjur 600 einstaklinga" - tekjukönnun Frjálsrar verslunar. Já, þetta er hið merkilegasta plagg og hefur að geyma afar fróðlegar upplýsingar um launa- kjör ýmissa mektarmanna í þjóð- félaginu. Ég komst strax að raun um það, sem reyndar ég vissi fyrir, að ég er langt frá því að teljast til fyrimianna þjóðfélagsins hvað launakjör snertir. Ég heyri senni- lega til þessa hóps í þjóðfélaginu sem sífellt öskrar á betri laun, en fær þau ekki vegna þess að al- mennir launamenn eru sagðir setja þjóðfélagið á hausinn ef þeir lyfta litlaputta og fara fram á nokkrar viðbótarkrónur í launaumslagið. Hin árlega, en sívinsæla plata Vinnuveitendasambandsins og Verslunarráðsins, um að þjóðfé- lagið þoli ekki hærri laun, er far- in að heyrast á útvarpsstöðvunum og hún mun klifra duglega upp vinsældalistann á næstu mánuð- um og ef að líkum lætur vermir hún toppsætið fyrstu mánuði næsta árs, þegar kjarasamningar í landinu verða lausir. Þórarinn Vaff, boðberi rispuðu plötunnar, sem nú heitir reyndar geisladisk- ur, bar það á borð fyrir hinn al- menna Jón Jónssón að það væri óðs manns æði að hækka launin í landinu um meira en 3 prósent eða svo. Annars færi allt til and- skotans. Þenslan færi enn frekar úr böndunum og verðbólgan myndi aftur fara af stað af fullum þunga. Þórarinn stundi og varð allt í einu föðurlegur á svipinn. Ég hef oft velt því fyrir mér hvemig Þórami hjá VSÍ líður þegar hann spilar þessa fölsku plötu. Kannski er hann svo lag- laus að hann skynjar ekki hversu illa söngur hans hljómar í eyrum almennings, í það minnsta þeirra sem hafa lageyra. En aftur að úttekt Frjálsrar verslunar. Ég stoppa fyrst við stjómendur fyrirtækja og tek eft- ir að Hörður Sigurgestsson í Eimskip er ókrýndur launakóng- ur með ríflega 1,3 milljónir króna í mánaðartekjur. Hann ætti að komast þokkalega af! Síðan kemur annar, sem oft er kenndur við Kolkrabbann, nefnilega Kristinn Bjömsson í Skeljungi með 1,1 miljón á mánuði. Síðan koma á þessum lista Frjálsrar verslunar Christian Roth, for- stjóri ISAL, Geir Magnússon, forstjóri ESSO, og Eyjólfur Sveinsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, allir með ríflega eina milljón króna. Sem betur fer eigum við norðanmenn góða fulltrúa á þessum forstjóra- lista; Þorstein Má í Samherja, Magnús Gauta í KEA, Þórarin í Sjóvá-Almennum, Sigurð Aðal- steins. hjá Flugfélagi Norður- lands, Jóhann Pétur Andersen í Krossanesverksmiðjunni, Aðal- stein Helga. í Strýtu og Bigga bakara í Kristjánsbakaríi. Halldór okkar Blöndal er ekki einu sinni hálfdrættingur á við flokksbróður sinn, Pétur H. Blön- dal. Pétur er með 1,2 millónir í mánaðartekjur en Halldór aðeins 351 þúsund. Líklega er skýringin sú að Pétur á drjúgt miklar eignir og það fleytir honum svo hátt. Agúst Einarsson í Þjóðvaka, sem hefur baimað sér þessi líka lif- andis ósköp fyrir hönd alþýðunn- ar í landinu, ætti að eiga fyrir salti í grautinn með sínar 680 þúsund á mánuði. Þingfararkaup- ið færir honum ekki þessi laun, svo líklega má rekja þau til út- gerðareigna Ágústs. Vilhjálmur Egilsson er með rétt um 600 þús- und krónur á mánuði, enda bæði þingmaður og framkvæmdastjóri Verslunarráðsins. Þeir sem ekki eiga ítök í útgerð eða Verslunar- ráði og verða að gera sér að góðu að lifa á þingfararkaupinu stríp- uðu eru með um 190 þúsund krónur. Þetta gildir t.d. um Svan- fríði á Dalvík, Steingrím Joð og Jóhönnu Sig. Næst í sveitarstjómarmanna- geirann. Þar trónir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á ísafirði, á toppnum með um 550 þúsund, ef ég man rétt sömu laun og könn- un okkar á Degi leiddi í ljós að Jakob bæjarstjóri vor á Akureyri hefði í mánaðarlaun. 1 öðru sæti í Frjálsri verslun er Árni Sigfús- son, fyrrverandi borgarstjóri, með 530 þúsund, en hins vegar er sjálfur borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún, með aðeins 370 þúsund. Títtnefndur Þórarinn Vaff í VSÍ, sem sér fram á að ekki verði hægt að hækka laun lands- manna að neinu marki í upphafi næsta árs, hefur samkvæmt Frjálsri verslun um 600 þúsund á mánuði, en Benedikt Davíðsson, fyrrverandi ASÍ-forseti, hefur ekki nema 320 þúsund. Það eru því greinilega til meiri peningar öðru megin samningaborðsins. Þá fyrst fara að sjást dágóðar upphæðir þegar við færum okkur í tannlækna- og lyfsalageirann. Gísli nokkur Vilhjálmsson, tann- réttir, hefur 1,7 milljón króna á mánaðalaun og sömu laun hefur ívar Daníelsson, fyrrv. apótekari í Reykjavík. Þegar svona launatölur sjást, er eðlilegt að spurt sé; hvernig má það vera að hálaunamenn komi fram með rispuðu plötuna sína ár eftir ár og segi sem svo að verkafólkið með hundraðþús- und kallinn geti í mesta lagi fengið sosum eins og þrjú pró- sent í launahækkun? Spyr sá sem ekki veit. Ég hef sennilega aldrei verið nægilega hagfræðiþenkjandi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.