Dagur - 17.08.1996, Blaðsíða 7

Dagur - 17.08.1996, Blaðsíða 7
Laugardagur 17. ágúst 1996 - DAGUR - 7 Það var ákveðið metnaðar- mál hjá mér að fara í tón- smíðar fyrir kvikmyndir og sjónvarp því það orð fer af því aðalfagi að vera það erf- iðasta. Þar þarf að inna af hendi mestu vinnuna og þar af leiðandi hlýtur það að einhveiju leyti að vera besta menntunin. slíkri fór ég að spila með SSSól til að vinna mér inn einhverja pen- inga fyrir dýrum skólagjöldum úti í Bandaríkjunum. Sálin byrjaði aftur síðasta sumar og við spiluð- um fram á haust og á nokkrum böllum í sumar.“ Aðspurður um það hvemig sé að vera liðsmaður í einni þekktuslu hljómsveit landsins segir Atli að auðvitað sé það ótrúlega gaman. „Okkur hefur gengið rosalega vel og ég hugsa að það sem skipti öllu máli sé að við höfum haft mjög hæfa menn í sveitinni, lagahöfund, söngvara og hljófæraleikara. Það sem skiptir ekki síst máli og helst hefur komið sveitinni áfram er hins vegar ótrúlegur dugnaður og stað- festa liðsmanna hennar ásamt mik- illi vinnu sem við höfum innt af hendi. Þetta hefur verið gaman en erfitt og ég hef lært mjög mikið af þessari spilamennsku.“ Oft kemur það fyrir að heim- sóknir Atla til landsins eru nýttar til hins ýtrasta og nokkurra daga frí verða að mikilli vinnu með hljóm- sveitinni. „Það er ágæt tilbreyting að koma heim annað slagið og spila á nokkrum villtum böllum. Það er gjörólíkt því lífi sem ég lifi í Bandaríkjunum þar sem námið tekur allan minn tíma og spila- mennskan fer fram heima í stofu þegar ég er einn með sjálfum mér.“ Nám í kvikmyndatónlist sameinar mörg áhugamál Undanfarin 3 ár hefur Atli stund- að nám við Berklee College of Music í Boston í Bandarfkjunum og segir Atli að það hafi verið gamall draumur hjá sér að komast til útlanda í nám. „Eftir að ég lauk náminu í FIH var ég mjög tvístíg- andi hvað ég ætti að gera í fram- haldinu. Draumurinn hafði alltaf verið að komast í áframhaldandi nám en spurningin var hvar. Ég ákvað að lokum að fara til Banda- ríkjanna og Berklee varð fyrir val- inu því þar er boðið uppá svo margar mismunandi greinar og aðalfög og m.a. nám í tónsmíðum fyrir kvikmyndir og sjónvarp sem ég að lokum fór í. Það var mikill kostur fyrir mig að fara í skóla með alla þessa fjölbreytni því ég var svo óviss hvað mig nákvæm- lega langaði til að læra í tónlist- inni þegar ég fór út.“ Atli segir að upphaflega hafi aldrei staðið til að hann færi í það nám sem hann síðar valdi sér. „Þegar kom að því að velja aðal- fag varð það að lokum ákveðið metnaðarmál hjá mér að fara í tónsmíðar fyrir kvikmyndir og sjónvarp því það fer orð af því að- alfagi að vera það erfiðasta. Þar þarf að inna af hendi mestu vinn- una og þar af leiðandi hlýtur það að einhverju leyti að vera besta menntunin. Þar sem ég er að eyða gífurlegum tíma og fjármunum í þetta nám þá fannst mér um að gera að læra sem allra mest á þessum 3 árum. Nám í kvik- myndatónlist er mjög fjölbreytt og sameinar mörg áhugamál hjá mér sem eru m.a. að semja tónlist, út- setja hana og vinna tónlist á tölv- ur. Eftir að hafa farið í gegnum þetta allt þá sé ég að námið mun nýtast mér vel á mörgum sviðum þótt ég komi ekki til með að vinna við kvikmyndatónlist eingöngu." Og Atli bætir við: „Það er líka annað í þessu, og það er að í sjálfu sér hefur maður alla ævina til að æfa sig á hljóðfæri. Ég ákvað eftir ráðleggingar kennara að reyna að nýta þau tækifæri sem Berklee hefur uppá að bjóða og einblína ekki eingöngu á ákveðið hljóð- færi. Þess vegna fór ég í kvik- myndatónlistina því ég vissi ekki hvenær ég fengi tækifæri til þess að fara út í slíkt nám aftur.“ Græði á því að fara í skóla sem hefur á sér gott orðspor Berklee College of Music er þekktur tónlistarskóli og sérstak- íega á sviði alls konar dægurtón- listar. Þaðan hafa komið margir frægir popp- og jasstónlistarmenn en einnig er góð og vel metin tón- snn'ðadeild við skólann. Atli segir skólann hafa sterkt orð á sér hvort sem er í Bandaríkjunum eða á al- þjóðlega vísu og að því leytinu sé gott að hafa stundað nám þar. „Maður græðir alltaf á því að fara í skóla sem hafa á sér gott orð- spor. Námið á að taka 4 ár til BM náms, Bachelor of Music, en þar sem ég hafði góða tónlistarmennt- un að baki ásamt stúdentsprófi þá gat ég prófað mig úr ákveðnum áföngum þar sem ég taldi mig kunna námsefnið. Þess vegna tók ég námið á 3 árum því mér gekk vel í stöðuprófunum." Samhliða aðalfaginu í skólan- um þurfti Atli að velja sér eitt að- alhljóðfæri. „Ég valdi píanóið frekar en trompetinn því ég taldi að það myndi nýtast mér betur. Ahuginn á píanóinu er líka að verða meiri hjá mér og trompetinn hefur svolítið setið á hakanum upp á síðkastið.“ Hlaut heiðursorðu skólans fyrir að setja mark sitt á tónlistarlífíð Þann 6. júní síðastliðinn var haldin árleg útskriftarhátíð við Berklee skólann. Það var ekki ómerkari maður en gítarsnillingurinn Pat Metheny sem afhenti Atla prófskír- teinið og brautskráði hann sem kvikmyndatónskáld. En að auki var Atla við þetta tækifæri veitt heiðurs- og afmælisorða skólans. Aðspurður um viðurkenninguna segir Atli að hún sé mikill heiður fyrir sig. „Síðasta skólaár var fimmtíu ára afmælisár skólans og eitt af því sem gert var í tilefni af- mælisins var að útbúa sérstaka af- mælisorðu sem aðallega var veitt veitt kennumm og gömlum nem- endum sem þóttu hafa sett mark sitt á skólalíf Berklee. Meðal þeirra sem hlutu orðuna voru tónlistar- menn eins og Dizzy Gillespie, Her- bie Hancock og Howard Shaw. Orðan var veitt nokkmm sinnum á skólaárinu og á útskriftarhátíðinni fékk ég þessa afmælisorðu fyrir að vinna keppni sem haldin var í skól- anum um inngöngumars á útskrift- arhátíðinni." Tónsmíðakeppnin sem Atli sigr- aði var opin öllum nemendum skól- ans og settar vom nokkrar vinnu- reglur. Meðal annars þurfti marsinn að vera í ákveðnu göngumarsa- tempói og vera ákveðin lengd en annað var í höndum nemendanna. „Ég ákvað að reyna að endurspegla þá miklu breidd sem er í tónlistar- lífi skólans. 1 marsinum kemur fyr- ir kafli með jassívafi, stefið er í anda einhverskonar kvikmyndatón- listar og verkið er samið fyrir lúðrasveit og slagverk. Ég vildi hafa verkið hátíðlegt, alls ekki of þungt, því það vom 3000 manns á útskriftarhátíðinni og mér fannst ég þurfa að semja marsinn með allt þetta fólk í huga.“ Stundum hugsa ég með mér að ég geti ekki bent á hvað gefí tónlistinni svona mikið gildi en samt get ég alls ekki verið án hennar. Það vom um 30 nemendur sem tóku þátt í keppninni, fjögur verk komust í úrslit og vom flutt á tón- leikum og að loknum þeim flutn- ingi var það dómnefndar og áheyrenda úr sal að velja sig- urmarsinn. „Það vom tvö verk sem stóðu jöfn í fyrsta sætinu eftir val dómnefndar, þar á rneðal mitt verk, svo það voru atkvæðin úr salnum sem réðu úrslitum. Minn mars fékk fleiri atkvæði áheyr- enda svo ég stóð uppi sem sigur- vegari." Aðspurður um gildi við- urkenningarinnar segir Atli að hún sé mikill heiður fyrir sig. „Það að vinna keppnina og öll þessi góðu og efnilegu tónskáld var frábært en tilfinningin að ganga inn hátíð- arsalinn við eigin inngöngumars var enn betri.“ Framhaldsnám í tónsmíðum fyrir kvikmyndir og sjónvarp „Ég er að ganga frá síðustu lausu endunum við Berklee núna í ágúst Ég vil koma góðum þökkum til gömlu kennaranna minna í Tónlistarskólanum. Þeir eiga svo stóran þátt í minni tónlistarmótun, þetta eru menn sem ég minnist og höfðu mikil áhrif á það sem ég er að gera núna. en ég hef verið að hugsa urn það síðastliðið ár hvað ég ætti að gera í framhaldi af því,“ segir Atli. Og hann bætir við: „Ég sótti um nokkra skóla og komst inn í þann sem ég óskaði mér helst, sem er North Carolina School of the Arts í Norður-Carolínufylki í Bandaríkjunum. Astæða þess að ég vildi þann skóla er að hann er sá eini í Bandarikjunum sem býð- ur uppá mastersgráðu í kvik- myndatónlist. Við erunt 6 sem komumst inn í skólann nú í haust svo ég ákvað að grípa tækifærið og halda áfram námi. Þetta verða tvö ár í viðbót og er í raun frarn- hald af því sem ég hef verið að læra í Berklee, tónsmíðar, útsetn- ingar, hljómsveitarstjóm og tölvu- vinnsla á tónlist,“ Aðstaðan í Carolínuskólanum er eins og hún gerist best. Við skólann er starfrækt sinfóníu- hljómsveit og þar er verið að klára byggingu kvikmyndavers fyrir einn milljarð króna þar sem sett verður upp sérstakt upptökusvið fyrir kvikmyndatónlist. „Þetta er eins og maður sér frá Hollywood. Maður hefur hljómsveitina og kvikmyndina fyrir framan sig meðan maður stjómar. Sviðið tek- ur hundrað manna hljómsveit svo þetta er ekkert smáræði." Aðspurður um kostnað við skólavist sem þessa segir Atli að hann sé gífurlegur en hann fái styrk frá skólanum sem að vísu mætti vera hærri. „Vandamálið við þennan skóla er sá að hann er fylkisskóli og því er lítið af styrkj- um til útlendinga. Skólinn byrjar auðvitað á því að veita styrki til fólks úr fylkinu, þar á eftir koma Viðtal og myndir: Halla Bára Gestsdóttir aðrir Bandaríkjamenn og að lok- um eru það útlendingamir. Styrk- urinn sem ég fæ hjálpar auðvitað mikið til en afganginn verð ég að fá ífá Lánasjóðnum.“ Erfítt að segja til um framtíðina Atli segir að erfitt sé að velta framtíðinni mikið fyrir sér, það verði bara að sjá til hvað verði. „Það sem hefur gerst á síðustu tveimur ámm er talsvert annað en ég bjóst við og ég er allt annars staðar en ég gat ímyndað mér að ég yrði. Það er því voðalega erfitt að segja eitthvað til um hvað verður eftir þessi tvö ár sem em framundan í náminu núna. Ég gæti hins vegar hugsað mér að reyna fyrir mér um starf í Banda- ríkjunum að þessu loknu og fmnst ég ætti að gera það þar sem ég verð þama úti svo ég nagi mig ekki í handabökin síðar fyrir að hafa ekki reynt það.“ Atli segir of snemmt að segja til um það hvort hann muni búa á íslandi í framtíðinni. „Eins og er líður mér mjög vel í Bandaríkjun- um. Ég held að það sé hollt fyrir alla að fara burt í einhvem tíma því maður lærir að meta landið sitt svo miklu betur. Hins vegar sé ég það alveg fyrir mér í framtíðinni að koma til Akureyrar og vera hér í einhvem tíma. Ég hef lengi verið að hugsa um það en eins og staðan er í dag þá sé ég mig ekki búa hérna í nánustu framtíð. Gömlu kennararnir eiga stóran þátt í tónlistarmótuninni Atli þakkar gömlu tónlistarkenn- urunum sínum úr Tónlistarskólan- um á Akureyri hversu góðan gmnn hann fékk í tónlistinni. „Ég vil koma fram góðum þökkum til þeirra allra. Ég hitti þá sjaldan, en þeir eiga svo stóran þátt í minni tónlistarmótun. Þetta em menn eins og Roar Kvam, Atli Guð- laugsson og Edward Fredriksen. Ég er þakklátur þeim öllum því þetta eru menn sem ég minnist og höfðu mikil áhrif á það sem ég er að gera núna. Hjá þeim öðlaðist ég mikla reynslu því ég byrjaði svo ungur að spila í hljómsveitum Tónlistarskólans eins og big-band- inu, sinfóníuhljómsveitinni og blásarasveitinni. Þegar ég hugsa um þetta þá finnst mér maður vera éins konar samnefnari fyrir allt sem maður hefur reynt í gegnurn tíðina og þessi ár í skólanum em stór hluti af því.“ Atli bætir við: „Eins vil ég þakka Menningarsjóði KEA og Menningarmálanefnd Akureyrar- bæjar því þessir aðilar hafa styrkt mig í mínu námi. Ég vona svo sannarlega að ég geti gert eitthvað fyrir bæinn í staðinn síðar meir.“ Get ekki bent á það sem gefur tónlistinni gildi „Ég hef stundum hætt í tónlistinni því ég hef fengið nóg en komið aftur því hún gefur mér svo mikið. Það er ótrúlega margt sem er heillandi við þessa listgrein en hjá mér er það þannig að ég hef ein- hverja sköpunargáfu sem ég fæ út- rás fyrir í gegnum tónlistina. Það var ekki svoleiðis, en það er stærsti hlutinn af þessari ánægju af tónlistinni í dag, og ég er farinn að rækta þessa hlið af krafti. Tón- listin er orðin svo stór hluti af mínu lífi því ég hef lifað og hrærst með henni frá 5 ára aldri og hún er eitthvað sem mér fmnst ég verða að gera. Stundum hugsa ég með mér að ég geti ekki bent á hvað gefi tónlistinni svona niikió gildi en samt get ég alls ekki verið án hennar. Ég veit það hins vegar að ég er á réttri hillu í lífinu og það er ég ánægðastur með.“ Ég hlaut heiöurs- og afmæl- isoröu skólans fyrir sigur í keppni um inngöngumars á útskriftarhátíöinni. Það að vinna öll þessi góðu og efni- legu tónskáld var frábært en tilfínningin að ganga inn hátíðarsalinn við eigin inngöngumars var enn betri. Atli tekur við heillaóskum frá varaframkvæindastjóra Berklee, Gary Bur- ton, cftir að hafa verið sæmdur afmælisorðu skóians.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.