Dagur - 17.08.1996, Síða 10

Dagur - 17.08.1996, Síða 10
10- DAGUR - Laugardagur 17. ágúst 1996 Lystigarður Akureyrar er á suður- brekkunni milli Fjórðungssjúkra- hússins og Menntaskólans á Akur- eyri og var hann opnaður almenn- ingi vorið 1912 en Grasagarðurinn var stofnaður árið 1957. Flestir Akureyringar hafa komið í garð- inn en þó mættu heimamenn heimsækja gróðursældina oftar að sögn Björgvins Steindórssonar, forstöðumanns Lystigarðsins. Að- sókn gesta hefur engu að síður aukist verulega síðustu árin enda er garðinum vel við haldið og margar forvitnilegar plöntu- og trjátegundir þar að finna. Áætlað er að 70-100 þúsund manns heim- sæki garðinn á hverju sumri. Lystigarður Akureyrar er 3,7 hektarar að stærð og var síðast stækkaður árið 1994 til vesturs upp að Þórunnarstræti. Á sumrin vinna þar 13 starfsmenn og auk þeirra vinna þar 4-5 krakkar frá unglingavinnunni í senn. Starfs- fólk garðsins er að langstærstum hluta vanir sumarstarfsmenn enda er algengt að skólakrakkar vinni 6-8 sumur í garðinum. Björgvin Steindórsson er eini fastráðni starfsmaðurinn við Lystigarðinn allt árið um kring. Hann kom fyrst þangað sem verk- stjóri árið 1987 en frá árinu 1993 hefur hann verið forstöðumaður og yfirumsjónarmaður garðsins. Hann segir áhugann á gróðurrækt vera í blóðinu en Björgvin er fæddur og uppalinn í Hólakoti í Hörgárdal þar sem móðir hans var með garð og ræktaði m.a. fallegar rósir. Selfoss Borgarafundur Borgarafundur á Hótel Selfossi mánudaginn 19. ágúst kl. 20.30 Selfyssingar og aðrir nærsveitamenn! Rabbfundur um nýja morgunblaðið Dag-Tímann, Stefán Jón Hafstein, ritstjóri blaðsins, mun kynna helstu áherslur blaðsins og svara fyrirspurnum. Komið og látið í ljós ykkar ábendingar og skoðanir ásamt því að heyra hverjar helstu áherslur verða í hinu nýja blaði! Kaffi og kökur. Sjáumst! -besti tími dagsins! Algeng sjón, ferðamaður að lesa á eina af fjölmörgum skrám yfir plöntur í garðinum. Mynd: mgh Andri Már Þórarinsson hefur unnið mörg sumur í garðinum, hann er hér við vegginn sem klifurjurtirnar munu teygja sig upp eftir. Mynd: mgh Anna María Ingþórsdóttir við hefðbundin sumarstörf í Lystigarðinum. Mynd: mgh Fræsöfnun - fræskipti „Gárðurinn hefur breyst mikið á þessum árum sem ég hef verið héma. Tegundum hefur fjölgað síðustu árin en hér em í dag rúm- lega 6000 tegundir og tegundaaf- brigði. Við höfum einnig fjölgað beðum og stækkað önnur og í dag eru áhugaverð beð í öllum garðs- homum.“ Björgvin segir starfið bæði heilbrigt og gefandi enda mjög krefjandi og fjölbreytt. „Vinna unglinganna yfir sumarið felst að- allega í almennri umhirðu, hreins- un beða, klippingum og kant- skurði auk annarra viðhaldsverk- efna. Við rekum einnig gróðrar- stöð Lystigarðsins þar sem við öl- um upp plöntur bæði í gróðurhús- inu og í útireitum og síðustu ár höfum við verið að bæta 7-900 tegundum út í beð garðsins árlega. Við prófum ýmis afbrigði og þá sérstaklega plöntur sem vaxa á norðlægum slóðum og hátt til fjalla en fyrst og fremst erum við að leita að harðgerum og góðum garðplöntum." Á haustin þarf að skýla plönt- um og taka þær viðkvæmustu inn. Frá því í byrjun ágúst er unnið að fræsöfnun fyrir fræskiptin sem fram fara á milli Lystigarðsins og annarra grasagarða. Fylgjast þarf Garðinum er vel við haldið og að sögn Björgvins er fátt sem þeir þurfa að óttast nema kannski ef gerir sunnan rok og rigningu því þá vilja fjölærar plöntur láta undan. Mynd: mgh

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.