Dagur - 24.08.1996, Síða 5

Dagur - 24.08.1996, Síða 5
Laugardagur 24. ágúst 1996 - DAGUR - 5 ,yið skrííum ekki í skugga Moggans“ - segir Stefán Jón Hafstein ritstjóri Dags-Tímans „Ýmislegt í nýja blaðinu verður les- endum Dags og Tímans kunnuglegt. Ákveðnir húsgangar halda sér og viss gildi sem í hávegum hafa verið höfð. Það, sem helst hefur valdið áhyggjum hér nýrðra, er að fréttir af Norðurlandi víki fyrir sunnlenskum áhrifum. Þetta þarfnast útskýringa. Þó við bætum inn efni víðar af landinu þarf það ekki að þýða að Norðlendingar verði afskiptir. Því fólki þjónar blaðið áfram - og eins og saga Ákureyrar og Þingeyjarsýslna sýnir hafa menn þar oft tekið menn- ingarlega forystu. Varðandi lesendur Tímans, sem komið hefur út á lands- vísu, er málið einfaldara. Það blað hefur til þessa verið í sambandi við Framsóknarflokkinn, sem lýkur nú.“ Það er Stefán Jón Hafstein, ritstjóri Dags-Tímans, sem hefur orðið. Fyrsta tölublaðið kernur út á fimmtudag í næstu viku, þann 29. ágúst. Síðustu tvær vikur hefur Stefán verið frum- mælandi á borgarafundum um landið, þar sem hið nýja blað hefur verið kynnt. - Stefán bætir við að hann hafi ekki komist til rakara lengi, og telur sig vera heppinn að eiga ferðaþolin jakkaföt til að geta verið sæmilega til fara. Frómt frá sagt „Enda þótt Dagur-Tíminn sé enn ekki kominn út fannst okkur nauðsyn að efna til þessara funda, sem hafa kost- að dýrmætan tíma og peninga. Með þessu höfum við náð jarðsambandi við fólkið í landinu áður en blaðið fer í pressuna. Við viljum heyra rödd þjóðarinnar og hvaða væntingar það hefur gagnvart því sem við ætlum að gera. Frómt frá sagt hafa þessir fundir verið mun gagnlegri en ég bjóst við. Á fögrum sumarkvöldum er auðvitað ekki fjölmenni á fundi. Það hafa þetta 20 til 50 manns mætt - og það er meira en nóg fyrir líflega kvöld- stund.“ Stefán Jón Hafstein segir að í mörg hom sé að líta þegar tvö dagblöð eru sameinuð, ekki síst þegar ritstjómir þess verða á tveimur stöðum; það er í Reykjavík og á Akureyri. Því til við- bótar verða blaðamenn í hlutstarfi víða um land. Heimilisfesti nýja blaðsins verður þó á Akureyri, þar sem það verður prentað sem og í Isa- foldarprentsmiðju í Reykjavík. Suður verður blaðið sent á ljósleiðara að kvöldi hvers dags; þegar blaðið hefur verið brotið um nyrðra. Síðla kvölds verður blaðinu svo dreift frá báðum prentstöðum svo það megi berast landsmönnum snemma morguns. Landsbyggðarfjölmiðillinn „Dagur-Tíminn verður fyrsti fjölmið- illinn á landsvísu sem ekki er með höfuðstöðvar í Reykjavík. Akureyri kemst nú inn á kotið sem heimabær fjölmiðils fyrir alla landsmenn. Það er jafnframt skemmtileg tilviljun að Dagur-Tíminn komi fyrst út á höfuð- dag, 29. ágúst, sem er afmælisdagur Akureyrarbæjar. Að þessu leyti vona ég að Akureyringar finni til sín, enda mega þeir það - svo mikið leggja þeir í púkkið. En svo er um fleiri staði. Okkar menn, víða um land, verða í beinu sambandi við ritstjóm í Dagsprenti. Okkur mun berast efni reglulega úr austri, vestri og suðri - og alla leið frá Vestmannaeyjum. Lesendur munu strax sjá og fmna að blaðið er ekki skrifað frá einum sjónarhóli. Þess vegna erum við svo djörf að kalla okkur landsbyggðarfjölmiðil. Við vini mína innan Elliðaáa vil ég segja að við verðum ekki síður blað þeirra, því í Reykjavík verður öflug ritstjómar- deild að störfum við fréttaöflun og þjóðmálaskrif. Dagur-Tíminn verður fullburða blað á landsvísu, með skír- skotun frá innstu dölum til ystu nesja - og ekki síður til breiðgatna Breiðholts og stíga Þingholta," segir Stefán Jón Hafstein. Milli morgunrisa og síðdegisjöfurs „Einhversstaðar sagði ég að svo liti ég ekki á málið að ég væri í samkeppni við nokkurn annan á fjölmiðlamark- aðnum. Eigendur blaðsins reka það í viðskiptasamkeppni við aðra, en rit- stjórinn stýrir sínu blaði á eigin for- sendum. Við emm með skýra nálgun og teljum að blað eins og við hugsum okkur eigi sinn tilvemrétt milli morg- unrisans og síðdegisjöfursins," segir Stefán og bætir því við að hvorki Morgunblaðið né DV endurspegli all- an vemleika líðandi stundar. Engu að síður leggist vel í sig að gefa út minna blað en Styrmi, Matthías og Jónas. Þeirra blöð - sem fylgi þekktri línu- „Dagur-Timinn verður fyrsti fjölmiðillinn á landsvísu sem ekki er með höfuðstöðvar í Reykjavík. Akureyri kemst nú inn á kortið sem heimabær fjölmiðils fyrir alla landsmenn," segir Stefán Jón Hafstein mcðal annars hér í viðtalinu. I gærkvöldi var í Vestmannaeyjum síðasti borgarafundurinn vegna útgáfu nýja blaðsins sem kemur út fyrsta sinni næstkomandi tunmtudag. Ljósm: - DV séu virðingarverð, en Dagur-Tíminn geti markað sér sérstöðu. „Hvort hún verður eftirsóknarverð fyrir nógu marga svo blaðið beri sig verður einfaldlega að koma í ljós. Við sjálf trúum því og skrifum ekki í skugga Moggans. Þó hann sé stór þá em sólskinsblettir á milli og þar mun- um við athafna okkur." fmningu. Fólk er bjartsýnt og áhuga- samt. Var það ekki Dylan sem sagði: „The times they are a changin !“ Tím- amir eru að breytast. Sá tími er runn- inn upp að ekkert er ómögulegt. Blað- ið okkar á að veita þessari tilfinningu farveg. Takist okkur það munum við sjá nýjan dag og nýja tíma í íslenskum fjölmiðlaheimi." - sbs. Nýjir dagar og nýir tímar Aðspurður segir Stefán Jón Hafstein að þegar sér hafi verið boðið að taka að sér ritstjóm Dags-Tímans hafi hann sagt við sjálfan sig að þetta væri síðasta útkall í íslenska blaðaheimin- um á þessari öld. Engin rök séu þó fyrir því að þessi tilraun takist, önnur en þau að bæði Dagur og Tíminn standa undir sér í dag með núverandi rekstrarfyrirkomulagi. Séu kraftar sameinaðir og bætt við hugmyndum, atgervi og áhuga þá kveðst Stefán Jón trúa því að kaupendur þessara tveggja blaða muni þakka fyrir eitt enn stærra og efnismeira blað. „Við erum síður en svo með neina óraunhæfa drauma um stórauknar auglýsingatekjur eða þúsundir nýrra áskrifenda. Það sem knýr rnig frekar áfram er sjötta skilningarvitið. Eg hefði ekki sagt þetta fyrir tveimur ár- um, en fmn ég á mér að nú er lag. Mér til mikillar gleði hafa fundir okkar um landið staðfest í huga mér þessa til- Jörð til sölu Jörðin Ytra-Dalsgerði I Eyjafjarðar- sveit er til sölu. Til greina kemur að leigja jörðina með sölu á bústofni og tækjum. Upplýsingarí síma 463 1276 eftir kl. 20.00. Geir Friðgeirsson, barnalæknir, verður á Heilsugæslustöðinni á Húsavík 5. september. Loftur Magnússon, augnlæknir, verður á Heilsugæslustöðinni á Húsavík 16.-20. september. Upplýsingar og tímapantanir í síma 464 0518. Heilsugæslustöðin á Húsavík. Fyrirhugað er að halda svæðaleiðsögunámskeið fyrir Norðausturland næstkomandi vetur. Allar nánari upplýsingar í síma 461 2399 hjá Stellu Gústafs milli kl. 19 og 21. Leiðsögumenn á Norðurlandi eystra.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.