Dagur - 24.08.1996, Page 13
Laugardagur 24. ágúst 1996 - DAGUR - 13
POPP
P o p
p K o
MA6NÚS CEIR CUÐMUNDSSON
r n
■ Rick Allen, trommari risarokksveitarinnar Def Leppard
frá Sheffield á Englandi, var fyrir skömmu fundinn sekur
um árás á eiginkonu sína, Stacy, fyrir rúmu ári. Hann fékk
þann nokkuð sérstæða dóm, að koma fram í auglýsingu á eigin
kostnað þar sem hann varar áhorfendur við að fara að for-
dæmi hans, vinna í 30 daga í samfélagsþjónustu, sem gæti orð-
ið honum býsna erfið þar sem hann er einhentur, og í þriðja
lagi ber Allen að sækja fundi hjá AA-samtökunum í eitt ár til
að vinna bug á áfengissýki sinni.
■ Eftir fráfall hljómborðsleikara og í kjölfarið brottvikningu
á trommaranum Chamberlin, virtist framtíðin ekki björt
hjá .rokksveitinni gríðarvinsælu Smashing Pumkins. En með
undraskjótum hætti er sveitin búin að rétta sig við og komin
með nýja liðskipan. Dennis Flemion, gamall vinur Pumpkins til
langs tíma, verður nýr hljómborðsleikari og Matt walker, sem
er í bandarísku sveitinni Filter, kemur í stað Chamberlins. Sá
Kim Thayil á yfir höfði sér dóm fyrir árás og
eignaskemmdir.
síðarnefndi verður þó varla nema tímabundið, eða þar til Pump-
kins lýkur tónleikaferðalagi sínu um Ameríku.
■ Eftir að borgarastríðinu í Beirút í Líbanon lauk fyrir um
þremur árum hefur þessi merka borg aftur verið að öðlast
hversdagslegri sess. Eitt merki um það er að popptónlistarmenn
og rokkarar streyma þangað nú til tónleikahalds. Dæmi um það
er hin geysivinsæla East 17, sem þar verður aðalnúmer á Dans 7
reifhátíð innan skamms.
■ Kim Thayil, gítarleikari Seattlerokksveitarinnar Soundgar-
den, sem fyrir skömmu var ákærður fyrir að hafa slegið til
18 ára kvenaðdáanda og ásamt tleirum hafði eitthvað verið að
hreyta í hann ónotum, hefur með hjálp góðra lögspekinga fengið
dómsmeðferðinni frestað eitthvað fram á haustið. Thayil, sem
einnig á að hafa skemmt myndavél fyrir einum vini stúlkunnar,
nær því að ijúka öllum tónleikaskyldum með Soundgarden, en nú
er t.d. nýlokið ferð sveitarinnar í Lollapaloozatónleikaröðinni.
Sniglaveisla
Undanfarin tíu ár eða svo hefur
Sniglabandið með breytilegum
mannskap verið einn af helstu
gleðigjöfunum í íslensku popp-
lífi. Það hefur auðvitað gengið
upp og niður hjá þeim eins og
flestum öðrum hljómsveitum, en
þeir hafa náð að sigla milli skers
og báru allan þennan tíma, sem
teljast verður frekar langur hvað
varðar líftíma íslenskra hljóm-
sveita. í sumar hefur flest leikið
Sniglunum í lyndi og mega þeir
þakka það hinum miklu vinsæld-
um lagsins, Eyjólfur hressist,
sem í þeirra nýja búningi er
ótvírætt einn helsti smellur
sumarsins. Nú er svo komin út
með Sniglabandinu ný plata þar
sem „Eyjólf sjálfan" er að finna
auk annarra góðra gesta á borð
við Brodda Broddason frétta-
mann o.fl. Þeir sem fylgst hafa
með Sniglabandinu og tekið ást-
fóstri við piltana, t.d. í gegnum
útvarpsþættina sem voru með
þeim á Rás tvö, fá á plötunni
ýmislegt fyrir sinn snúð og má
segja að platan sé sannkölluð
Sniglabandsgleði eins og. hún
gerist best.
Til viðbótar um
tónleika Blur
Til viðbótar því sem sagt var frá
hér á síðunni fyrir viku um tón-
leika Blur í Reykjavík 8. septem-
ber nk. er rétt að greina frá að
miðasala hér á Akureyri er í
Bókval - Hljómdeild og kosta
miðarnir 2.600 eða 2.300 eftir
því hvar í Laugardalshöllinni
menn vilja vera, í stúku eða
niðri á gólfi. Eins og fram kom
fyrir viku eru allar líkur á að
SSSól hiti upp fyrir Blur, en auk
Helga Björns og félaga er nú
einnig líklegt að fyrirbæri sem
kallar sig Jet Black, hiti upp.
Mun þar vera á ferðinni, eins og
nafnið ber glögglega með sér,
eitthvert nýtt afbrigði af Jet
Black Joe. Að lokum má svo þess
geta að nýja platan með Blur,
sem að hluta til hefur verið unn-
in hérlendis, kemur ekki út fyrr
en í upphafi næsta árs.
„Sá brjálaði" ffékk
ekki að koma fram
Eins og þeir sá sem fylgdust með
setningar- og lokahátíð Ólympíu-
leikanna nýafstöðnu, komu tón-
O/.zy karlinn Oshonrne inissti al'
giillinu, eða ölln lieldur gullna (a-ki-
fiei'inu á að koina fruiu á lokaliátíð
Ól\ inpíiileikaiina í Atlanta.
listarmenn af ýmsum stærðum
og gerðum þar mikið við sögu.
Má þar nefna stjörnur á borð við
Celine Dion, Gloriu Estefan,
Stevie Wonder, Little Richard,
B.B. King, sálarmeistarann Ai
Green og fleiri. Það vakti hins
vegar athygli að einn kappi sem
búið var að tilkynna að ætti að
koma fram á lokaathöfninni lét
ekki sjá sig, mörgum rokkaðdá-
andanum til mikillar mæðu. Er
þar átt við sjálfan „brjálæðing-
inn“ og rosaskelfinn Ozzy Osbo-
urne, sem þó á seinni árum hef-
ur rækilega snúið við blaðinu
hvað varðar vafasamt líferni og
framkomu, en er samt vinsæll
sem aldrei fyrr. Það var ekki
vegna þess að eitthvað amaði að
honum sjálfum, að hann kom
ekki fram, heldur var hann
neyddur til að hætta við í kjölfar
sprengingarinnar í Ólympíu-
garðinum nokkrum dögum áður.
Óttuðust skipuleggjendur að
gamli rokkboltinn drægi að all-
skyns öfgasinna sem gætu efnt
til óspekta og valdið enn meiri
vandæðum en orðið væri. Féllst
Ozzy á að hætta við, en ljóst er
að bæði hann og rokkaðdáendur
hans urðu af einstöku tækifæri
til að bæta ímynd sína.
É9. ég, ég
Erkitónlist er nafnið á hh'óm-
sveit/útgáfu, sem Kjartan Ólafs-
son tónskáld með meiru og Pét-
ur Jónasson gítarleikari á marg-
háttaðan máta standa að meðal
annarra. Hefur Erkitónlist víst
verið við lýði um allnokkurt
skeið, gefið út plötur, staðið fyrir
tónlistarhátíðum og tekið þátt í
að þróa tölvuhugbúnað til sköp-
unar á nútímatónlist. Nefnist
það CALMUS. Þeir Kjartan og
Pétur hafa í seinni tíð verið
þekktari fyrir klassíska tónlist,
sá fyrrnefndi fyrir verk sín, en
sá síðarnefndi fyrir leik sinn
með ýmsum öðrum tónlistar-
mönnum, m.a. með Guðrúnu S.
Birgisdóttur og Martial Nardeau,
en þau gáfu út saman á síðasta
ári geislaplötuna Serenade. í
popplegu tilliti eru þeir tveir
hins vegar líkast til þekkastir
fyrir að hafa verið saman í Pjétri
og Úlfunum, en fyrr í sumar
endurlífguðu Sixties þeirra vin-
sælasta lag, Stjána saxafón.
Smartbandið er líka minnisstætt
og þá sérstaklega fyrir lagið
hans Kjartans, Lalíf, sem var ef
manni skjátlast ekki, eitt alvin-
sælasta lag landsins um langt
skeið fyrir um áratug eða svo.
Þeir Kjartan og Pétur hafa nú
sem Erkitónlist sf., gefið út nýja
plötu sem þeir kalla Ég, ég, ég
og inniheldur hún 11 lög. Er
þetta hin sérstæðasta plata þar
sem þeir félagarnir blanda sam-
an klassík og poppi í ýmsum
myndum.
Leiðrétting
Nokkuð svo kúnstug mistök áttu
sér stað hér á síðunni fyrir viku í
umíjöllun um endalok Pogues,
sem rétt er að leiðrétta snarlega.
Það er að vísu rétt í greininni að
Johnny Marr, fyrrum gítarleikari
Smiths, sé nú meðlimur í Electr-
onic, en kappinn hefur hins veg-
ar aldrei komið við sögu Clash,
né verið í Pogues. Hér var að
sjálfsögðu átt við Joe Strummer.
Þeir Kjartan Ólafsson og Pétur
Jónasson taka upp samstarf
enn eina ferðina á plötunni,
Ég, ég, ég, sem nú er nýkomin
út. Fyrir nær 20 árum voru þeir
saman í hljómsveitinni Pjétri
og Úlfunum og gáfu þá út
a.m.k. tvær plötur.