Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1994
Neytendur
Eiríkur Sigurðsson, eigandi 10-11 verslananna:
Samkeppni aldrei meiri
en færri um hana
- leggur áherslu á afgreiðslutíma, hagstættvöruverð og hreinlæti
Áskriftargetraun DV:
Kom
þægilega
áóvart
Enn á ný er dregið í áskriftarget-
raun DV og í þetta sinn er það Hauk-
ur Björnsson sem hlýtur 30 þúsund
króna úttekt hjá 10-11.
„Þetta kemur þægilega á óvart. Við
erum nú eiginlega bara oröin tvö í
heimili hjónin því ungarnir eru
flognir úr hreiðrinu. Ég er ekki alveg
klár á því hvar konan hefur verslað
en líst vel á þessa úttekt hjá þeim í
10-11,“ segir Haukur Bjömsson,
áskrifandi að DV til fjölda ára.
Haldið verður áfram að draga út
vinningshafa úr hópi skuldlausra
áskrifenda DV.
Eirikur Sigurðsson hóf kaupmennsku sina í fjölskyldufyrirtækinu Viði en á nú og rekur 10-11 verslanirnar. Þær
verða bráðum fimm talsins og hefur viðskiptavinahópurinn aldrei verið stærri. DV-mynd GVA
játti Eirikur því. „Jú, samkeppnin
hefur aukist gífurlega og þetta hefur
færst yfir á færri hendur, sem ég tel
mjög hættulegt. Kosturinn við 10-11
er að við vinnum með innlendum
birgjum í landinu og erum að versla
við mjög marga aðila. Þeir aðilar sem
viö keppum við eru hins vegar að
reyna að gera allt sjálfir sem þýðir
um leið að það fer á færri hendur,
bæði framleiðsla, innflutningur og
sala. Ef einn aðih verður þaö stór að
hann bæði einokar framleiðslu, inn-
flutning og smásölu þýðir það að
hann stjórnar markaðinum.
Viö sjáum t.d. þróunina nú þegar
Hagkaup er að eignast gosdrykkja-
verksmiðju. Ég tel þetta mjög hættu-
lega þróun fyrir svona lítið land.
Hagkaup er vissulega stór og verðug-
ur keppinautur og það er gaman að
takast á við það, en á sama tíma erf-
itt. Það þarf að vera ákveðið jafn-
vægi á markaðinum og það þarf að
vera dreifðari samkeppni. Það væri
t.d. gott ef nýir aðilar kæmu inn eða
fleiri aðilar yrðu sterkari," sagði Ei-
ríkur.
Vari skráir
reiðhjól
í tilefni umfiöhunar DV um reið-
hjólaþjófnað vilja forráöamenn
Öryggisþjónustunnar Vara ítreka
að þar sé boðið upp á ókeypis
skráningu á reiöhjólum þannig að
ef reiðhjól týnist eða því er stohð
er auðvelt að koma því til skráðs
eiganda þegar og ef það finnst.
Skráningin fer fram á höfuð-
stöðvum Vara hf. að Þóroddsstöð-
um við Skógarhlíö, hjá Vara-örygg-
isvörum í Skipholti 7 og hjá
slökkvitækjaþjónustu Vara að
Smiöjuvegi 72a.
ts33
|;V.7AtV
Haukur Björnsson með ávísun aö 30 þúsund króna úttekt hjá 10-11.
„Okkar keppikefli er bara að selja
vörur. Við framleiðum ekki og flytj-
um ekkert inn sjálf sem þýðir að við
vinnum bara með innlendum birgj-
um. Ég legg rosalega mikið upp úr
einfaldleika. Viö notum ekki þetta
vöruvíxlakerfi sem almennt tíðkast
í þessum bransa heldur greiðum vör-
urnar mjög fljótt sem þýðir að hring-
rásin er hröð. Við keyrum á 2500
vörutegundum sem eru bara þær
vörur sem fólkið vantar. Það er ekki
mikið af umframfreistingum og því
ekki verið að selja viðskiptavinunum
neinn óþarfa," sagði Eirikur Sigurðs-
son, eigandi 10-11 verslananna, í
samtali við DV en verslunarkeðjan
opnar fimmtu verslun sína í Hafnar-
firði þann 10. nóvember næstkom-
andi og fiölgun viðskiptavina hefur
aldrei verið meiri en á þessu ári, eða
25%.
Fyrsta verslunin
í Engihjalla
Eiríkur, sem rak verslunina Víði í
gamla daga, opnaði fyrstu verslun
sína í Engihjalla þann 10.11. fyrir
þremur árum. Nú eru þær fiórar og
starfsmennirnir 40 talsins. Hver
verslun er frekar lítil og mjög tölvu-
vædd. „Við byggjum upp á kerfi sem
er ekki ólíkt Bónus-hugsuninni en á
aht öðru sviði miðað við afgreiðslu-
tima, vöruval og ferskleika. Alveg frá
byrjun var hugsunin sú að byggja
10-11 upp sem keðjuverslun. Það
hefur vissa kosti í for með sér varð-
andi innkaupakerfið, þ.e. þú nærð
betri innkaupum og þ.a.l. betra út-
söluverði. í dag er fyrirtækið rekið
með mjög htilli yfirbyggingu og mik-
ið lagt upp úr góðu og ábyrgu starfs-
fólki,“ sagði Eiríkur.
Ódýrari en Hagkaup
Hann sagði lága verðstefnu, hrein-
læti og langan afgreiðslutíma verða
að fylgjast að. „Ég hef sagt aö verð-
stefna 10-11 sé að vera ekki dýrari
en stærsti aðilinn á matvörumarkað-
inum, þ.e. Hagkaup, og mér finnst
við hafa staðið okkur vel í því. Síöan
veröur maður bara að gera enn bet-
ur. Þetta byggist m.a. á því að fylgj-
ast grannt með verðlagi á markaðin-
um og standa sig í samkeppninni,
vera á varðbergi bæði fyrir okkur
sjálfa og neytandann."
Hættuleg þróun
Aðspurður hvort ekki hefði orðið
mikh breyting á rekstrinum sl. 10 ár
-----7—■-----------------
Islenskir
tómatar
H Hæsta □ Næst □ Lægsta
lægsta
Garöa-
kauP ftif
Bónus
65l
Verslanir í könnuninni
Hagkaup(139)
Bónus(65)
Fjaröarkaup (98)
Garöakaup (198)
Nóatún (98)
10-11 (68)
Kjöt og fiskur (84)
-- BS3J
10-11
DV
Borginbjóði
úttrjá-
plöntukaup
Samkeppnisráð hefur mælst til
þess aö Reykjavíkurborg efni til
útboða í samræmi viö almennar
útboðsreglur sem borgin starfar
eftir við kaup á vörum og þjón-
ustu þegar hún eða stofnanir
hennar kaupa trjáplöntur. Þetta
kemur fram í fréttabréfi Sam-
keppnisstofnunar og er gert með
hliðsjón af samkeppnisaðstæðum
á markaönum og samskiptum
borgarinnar og Skógræktarfélags
Reykjavíkur.
Einnig mæhst Samkeppnisráð
til þess að fiárhagur þeirrar starf-
semi Skógræktarfélagsins og
Skógræktar ríkisins sem er í
samkeppni við einkareknar
gróðrarstöðvar veröi aðskihnn
frá annarri starfsemi þeirra svo
að ekki sé hægt að niðurgreiða
þá starfsemi sem er í samkeppni
við aöra starfsemi.
Beinþynning
ungra stúlkna
Óttast er að þær unglingsstúlk-
ur sem nú sitja löngum stundum
fyrir framan myndbandstækin og
sötra kók, í stað þess að vera úti
að leika sér og boröa mjóikurmat
sér til uppbyggingar, séu bein-
þynningarsjúklingar framtíðar-
innar. Þetta kemur fram í frétta-
bréfi Mjólkursamsölunnar þar
sem vitnað er í Ingvar Teitsson,
sérfr æðing í gigtarsjúkdómum og
lyflækningum við Fjórðungs-
sjúkrahúsiö á Akureyri, en hann
stjórnar rannsókn sem stendur
yfir th að meta beinþéttni og nið-
urbrotshraða beina hjá 100 norö-
lenskum konum um tiðahvörf.
í fréttabréfinu segir aö vanda-
máhð sé þeim mun erfiðara eftir
því sem bein kvenna séu við-
kvæmari á breytingarskeiöinu en
styrkleiki þeirra fer eftir kalk-
neyslu og áreynslu á beinin.
Að sögn Ingvars tengist bein-
þynning þvi að konur missa
kvenhormóniö östrogen. Þaö ger-
ist eftir að konur hætta aö hafa á
klæðum, yfirleitt um fimmtugt.
Flestar konur tapa töluverðum
hluta af beinstyrk sinum á þeim
tíraa en þaö fer eftir styrkleika
beinsins við upphaf breytingar-
„skeiðsins og Qeiri þáttum hvað
beinþynningin verður alvarlegt
vandamál. Erlendis er tahð að
u.þ.b. fióröa hver kona fái á efri
árum slæma beinþynningu sem
leitt getur til beinbrota.
Verslaniropn-
aðarvið
Holtagarða
Senn líður að formlegri opnun
í gamla Miklagarði en þar ætla
Bónus, Rúmfatalagerinn, IKEA
og ÁTVR að hafa aðsetur um
ókomna framtíð. Fyrirhugaö er
að opna verslanimar með pomp
ogpraktþann 18. ágústnæstkom-
andi en eins og flestir vita hefur
ÁTVR þegar veriö starfrækt þar
um tima.
Að sögn Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar hjá Bónusi verður Bón-
usverslunin í Holtagörðum meö
svolítið nýju sniöi því fyrir utan
matvöruna verður einnig boðiö
upp á fatnað og búsáhöld. „Viö
fórum hægt af staö hvað fatnað-
inn snertir og bjóðum í fyrstu
einungis upp á hluti eins og sokka
og nærfatnað en munum hugsan-
lega færa út kvíamar í framtíð-
inni.“
IKEA, sem stendur 1 flutning-
um þessa dagana, hefur stærstan
hluta hússins til afnota, eöa um
11 þúsund fermetra, á meðan
Bónus hefur um eitt þúsund fer-
metra, Rúmfatalagerinn 8-900 og
ÁTVR um 700 fermetra.