Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1994
9
Utlönd
10 óbreyttir borgarar létust 1 hefhdarárás Israela á Líbanon:
Árásirnar geta spillt
fyrir friðarviðrædum
- ísraelar báðust afsökunar á mannfalli óbreyttra borgara
flugskeyti okkar villtist af leiö í ann-
ars-árangursríkri hefndarárás okkar
á hryðjuverkamenn Hizbollah hreyf-
ingarinnar. Það er alls ekki ætlan
okkar að hefndaraðgerðir komi nið-
ur á almennum borgurum og við
biðjumst afsökunar á afleiðingun-
um,“ segir í yfirlýsingu frá ísraelska
hernum.
Herinn lætur fara fram rannsókn
á því hvað fór úrskeiðis í árásinni.
Afsökunarbeiðni ísraela kom nokk-
uð á óvart því þeir biðjast mjög sjald-
an afsökunar á hefndaraðgerðum
sínum gegn hryðjuverkamönnum.
Reuter
Tíu óbreyttir borgarar létust í
loftárás ísraelsmanna í Suður-Líban-
on í gær. ísraelsmenn báðust afsök-
unar á því að hafa orðið óbreyttum
borgurum að bana í árásinni en búist
er viö hefndaraðgerðum vegna árás-
anna. ísraelar höfðu áður hótað
hefndaraðgerðum vegna árása Hiz-
bollahskæruliða og sprengjuárása á
ísraela í Buenos Aires og London á
síðustu vikum.
Talið er að þessi árás ísraelsmanna
geti spillt fyrir friðarviðræðum ísra-
ela við nágranna sína. Warren Chri-
stopher, utanríksráðherra Banda-
ríkjanna, er að hefja för um Mið-
Austurlönd í þeirri viðleitni að koma
á friðarviðræðum milh ísraels-
manna og Sýrlendinga.
Flugskeyti frá ísraelskri herflugvél
eyðilagði tveggja hæða hús og versl-
un í þorpinu Deir az-Zahrani í Líban-
on og kostaði 4 börn og 6 fullorðna
lffið. Áður höfðu herþotur skotið
þremur flugskeytum að búðum
skæruliða Hizbollahreyfingarinnar
40 km frá höfuðborginni Beirút. Árás
ísraela, sú 28. á þessu ári, var sú
fyrsta síðan ísraelar hótuðu hefndar-
aðgerðum vegna árása Hizbollah
skæruhða á ísraelskar hersveitir í
suðurhluta landsins í síðustu viku.
ísraelar viðurkenndu að árásin á
íbúðarhúsið hefði verið mistök. „Eitt
slasaðist í árás ísraelsmanna. Tíu
óbreyttir borgarar létust i hetndará-
rás ísraela á skæruliða Hizbollah I
Líbanon. Símamynd Reuter
Sjöáradrengur
framdi
sjálfsmorð
Sjö ára gamall drengur fannst
i gær látinn með mittisól um háls-
inn nærri heimili sínu í Árósum
i Danmörku.
Lögreglan teiur líklegast að
drengurinn hafi svipt sig lffi því
óhn var hnýtt um trjágrein og
hékk líkið þar í. Ekki er þó tahð
útilokaö að drengurinn hafi verið
að leik. Likið fannst aöeins um
500 metrum frá heimili drengsins.
Drengsins hafði verið leitað
undanfarna daga. Ekki er vitað
hvað varð til þess að hann framdi
sjálfsmorð en máhð hefur valúð
óhug í Danmörku enda fátítt aö
svo ung börn svipti sig lffi.
Sjúkraflug
meðfugl
Þota var í gær send með særðan
kólibrífugl frá Alaska th Kali-
forníu. Fuglinn var vængbrotinn
og fjaðralaus en var í þvílíku
uppáhaldi hjá eiganda sínum að
verjandi þótti aö senda hann um
langan veg á virt fuglasjúkrahús.
Ritzau og Reuter
Svölunar leitað í gosbrunni
Parísarbúar hafa líkt og annað fólk á meginlandi Evrópu verið að stikna i sumarhitunum undanfarnar vikur. I
Paris náði hitinn 35 stigum í gær og leituðu hundruð borgarbúa svölunar i gosbrunnum borgarinnar. Ekki sér enn
fyrir endann á hitabylgjunni. Símamynd Reuter
Á kvöldin stenst
enginn
freistinguna
Þá hringja flestir í
emn+einn
99 18 30
39,90 mín.
Kvöldveröartilboö
vikuna 5/8 - 11/8
*
Bakaður slétthali
á sítrusengifersósu
*
Grísahryggsneið
með karrísósu
*
ísdúett á ensku kremi
Kr. 1.950
^ Borðapantanir í síma 88 99 67 ^
Fallequ brúðarkorsdettin komin aftur
í stærðum 34-40, A-B-C oq D skálar,
litir hvítt oq húðtitur.
Hinir frábæru, vinsælu, fylltu undra brjósta-
haldarar komnir aftur. Litir: hvítt, svart oq
I ferskju í stærðum 32-38 AogBskálum.
Ath. Þær sem koma og versla með úr- j
klippuna fá hlátt eóa hvítt sokkahand frítf
Verð 5.800 kr.
Sími 12211