Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Side 18
26 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1994 íþróttir Tom Wargo, sigurvegari á British open eldri kylfinga: Sjálfmenntaður Spjótkast karla á EM: Steve Backley mætir til leiks - eftir löng og erfið flögur ár Einn besti spjótkastari heims, Bretinn Steve Backley, er mættur í slaginn á nýjan leik eftir langvar- andi meiðsli. Backley hefur átt við erfið meiðsl í öxl að stríða síðustu fjögur árin en er óðum að ná sér. Flestir hafa þegar afskrifað Back- ley og hann er ekki ánægður með það, enda Evrópumeistari í grein- inni. „Ég get varla komið orðum að því hve vonsvikinn ég er þegar ég heyri fólk afskrifa mig, 25 ára gamlan manninn. Sumt af þessu fólki þekki ég reyndar mjög vel,“ segir Backley og er allt annað en ánægður. „Ég veit að margir hafa afskrifað mig og telja að minn tími sé liðinn. Það sem skiptir þó mestu máli er að ég veit að mér er ekki öllum lokið og löngunin til að sanna að þetta fólk hafi rangt fyrir sér er mjög sterk.“ Andvaka Evrópumeistari Steve Backley varð Evrópumeist- ari fyrir fjórum árum og vann einn- ig gullverðlaun á síðustu góögerð- arleikum. Hann setti heimsmet og var kosinn fijálsíþróttamaður árs- ins hjá alþjóða frjálsíþróttasam- bandinu. „Ég var yngri þá og fullur af sjálfstrausti, enda besti spjótkast- ari heimsins á þeim tíma. Ég hef átt erfiða tíma en þó aldr- ei liðið meiri kvalir en síðasta sum- ar og þá var ég mjög langt niðri. Allan veturinn þar á undan kvald- ist ég gríðarlega og gat ekki lyft hendinni yfir öxlina. Ég var and- vaka nótt eftir nótt. Ég var útkeyrð- ur á líkama og sál. Það hvarflaði þó aldrei að mér að hætta.“ Enginn stuðningur Þrátt fyrir mikla erfiðleika hefur Backley ekki notiö mikils stuðn- ings frá breska fijálsíþróttasam- bandinu. „Mörgum kynni að þykja eðlilegt að þeir heíðu haft áhuga á að vita hvemig einn þeirra besti fijálsíþróttamaður stæði sig í bar- áttu við mjög erfið meiðsl. í því eina símtali, sem ég hef fengið frá sambandinu, var ég hins vegar spurður af hveiju ég ætlaði ekki að keppa í Evrópubikarkeppninni í júní sl.“ Nú er Backley óðum að ná sér og mun reyna að veija Evrópu- meistaratitfiinn í næstu viku í Helsinki. „Ég boða ekki neina flug- eldasýningu en ég stefni á verð- laun. Kannski gullverðlaun ef Jan Zelezny verður ekki upp á sitt besta. Ég veit að góður árangur hjá mér er rétt handan við hornið," segir Steve Backley sem aðeins er 25 ára gamall. sveifla hans er getur hann fremstu röö þar til hann verður 60 eða 70 ára. Sveifla hans er sérstök fyrir þær sakir helstar hve vel og skynsamlega hann beitir bakinu. Lítum á Severiano Ballesteros til samanburðar. Á dögunum varð hann að hætta leik á opna hol- lenska mótinu vegna bakmeiðsla. Þessi bakmeiðsli orsakast fyrst og fremst af því hvemig hann og margir aðrir heimsfrægir kylfingar sveifla kylfunni," segir Murray. Tom Wargo var vitanlega ham- ingjusamur með sigurinn á opna breska mótinu: „Það að sigra kylf- inga eins og Palmer, Player og Charles veitti mér ánægju. Það sem veittiméreftilvillmestuánægjuna Tom Wargo kyssir verðlaunagripinn eftir opna breska meistaramótið á var að sigrast á vellinum erfiða í dögunum. Wargo þennan verður að telja til undrabarna í golfinu ef Royal Lytham," sagði Wargo. bakgrunnur hans er hafður í huga. Steve Backley hefur liðið miklar kvalir síðustu fjögur árin en Evrópu- meistarinn ætlar að gera góða hluti á komandi Evrópumeistaramóti. Hingað til hefur sú skoðun verið ríkjandi á meðal áhugafólks um golfiþróttina að lykilatriði til að ná árangri væri að leita eftir kennslu hjá golfkennurum. Nú er kominn fram á sjónarsviðið kylfingur sem gefur þessum bollaleggingum langt nef. Tom Wargo frá Bandáríkjun- um sigraði á dögunum á opna breska meistaramótinu fyrir kylf- inga eldri en 50 ára og í fyrra sigr- aði hann á opna bandaríska meist- aramótinu. Wargo þessi er sjálf- menntaður golfsnillingur og hefur aldrei til golfkennara komið. Margir heimsfrægir atvinnu- menn, sem gert hafa garðinn fræg- an í golfinu á undanfórnum árum og áratugum, keppa í flokki eldri kylfinga. Þar má nefna Jack Nick- laus, Gary Player, Arnold Palmer og Bob Charles. Það sem gerir ár- angur Wargos enn áhugaverðari er að hann hefur aldrei keppt á meðal þeirra bestu í heiminum áð- ur, aldrei slegið bolta á bandarísku né evrópsku móti þeirra bestu í heiminum. Þeir sem bestir hafa verið í eldri flokknum hafa undan- tekningalaust verið í fremstu röð í keppnum atvinnumanna yngri en 50 ára svo áratugum skiptir. Tom Wargo verður að teljast undrabarn í golfinu. Ewen Murray, heimsfrægur og fróður kylfingur, segir um Wargo: „Miðað við hvem- ig golf hann leikur og hvernig UnfieMsigraði N-írska liöið Linfield, sem mæt- ir FH-ingum í UEFA-keppninni í knattspyrnu á Kaplakrikavelli á þriðjudaginn, vann 2-1 sigur á enska úrvalsdeildarliðinu Sout- hampton á dögunum. Anderson í Krikanum Framkvæmdastjóri félagsins Trevor Anderson var á meðal áhorfenda á leik FH og Vals í Krikanum í gærkvöldi. FashanutilVaia John Fashanu, miðheiji Wimbledon til margra ára, var í gær seldur til Aston Villa fyrir 1.350 milljónir punda. Margir með frjálsa sölu Alls fengu 279 knattspymu- mennhjá enskum knattspyrnufé- lögum frjálsa sölu á þessu sumri. Sumarið í fyrra voru þeir 302 og hafa aldrei verið fieiri. Reiknað er með að helmingur þessara leikmanna hafi komist aö hjá nýjum félögum. David Batty leikur ekki með Blackbum næstu þrjá mánuði. Battylengifrá Varnarmaðurinn David Batty, sem leikur með Blackbum Ro- vers í ensku knattspyrnunni, míssir af fyrstu þremur mánuð- um keppnistímabilsins. Hann er með tvö bein brotin i fæti. í sum- ar hefur hann veriö í umbúðum en brotin vilja ekki gróa. MauratilQPR? Sterkar líkur em á þvi að mið- vallarleikmaðurinn Massimo Maura, sem leikið hefur meö Napolí í itölsku knattspyrnunni, gangi tíl liðs viö QPR. Kostaboð Tottenham Forráðamenn Tottenham liafa boðiö Sol Campbell nýjan samn- ing til fjögurra ára, Campbell, sem leikið hefur með u-21 árs liöi Englendinga, var óánægður með 30 þúsund króna vikulaun sín. Aftur í hattaborgina? Mal Donaghy er liklega aftur á leiðinni til Luton Town eftir stutta dvöl hjá Chelsea. Donaghy er meö fijálsa sölu og lék um 400 leiki með Luton. Dómstóllinnákveður Sérstakur dómstóll mun ákveða hve mikið markvörður- inn Jan Stejskal kostar en hann er á fórum frá QPR tíl liðs í Prag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.