Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Side 24
32 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1994 Meiming____________________________________ Mist Þorkelsdóttir Skálholtstónleikar voru um síðustu helgi. Þá voru flutt verk eftir Mist Þorkelsdóttur. Flytjendur voru Guðrún Birgisdóttir, flauta, Martial Nardeau, flauta, Matej Sarc, óbó, Svava Bemharðsdóttir, víóla, Elisabet Waage, harpa. Sú venja hefur skapast á Skálholtstónleikum að gefa tónskáldi kost á að dvelja þar eystra með öðru tónlistarfólki og taka þátt í undirbúningi flutnings verka sinna. Þetta er góður siður og vænlegur til góðs árang- urs. Má vænta þess að bæði tónskáld og flytjendur geti notið góðs af. Að þessu sinni varð Mist Þorkelsdóttir þessa heiðurs aðnjótandi. Á laugar- dag sl. voru tvennir tónleikar þar sem verk eftir hana voru flutt. Á fyrri tónleikunum, sem hér eru til umfjöllunar, voru flutt kammerverk eftir Misti. Alls voru flutt sex verk, fjögur einleiksverk, eitt dúó og eitt tríó. Verkin vom af ýmsum aldri en þrjú þeirra vom ný af nálinni og var þetta frum- flutningur þeirra. Vinnubrögð Mistar byggja á blöndu af gömlu og nýju. Tórúist Finnur Torfi Stefánsson Stefræn úrvinnsla í býsna hefðbundnum stíl er víða áberandi ásamt með fijálslegu tónmáli og áherslu á litríka notkun hljóðfæra. Nýju verkin voru efnisríkust og heilsteyptust. „Skálholtstríó" hljómaði einkar sann- færandi í litríkum einfaldleika sínum. „Tónstafir", einleiksverk fyrir hörpu, sýndu töluverðan metnað í þá átt að gera viðfangsefninu full skil. Verkið er í nokkrum köflum og em hljóðbrigði hörpunnar allrækilega könnuð í þessu verki. Flutningur á verkum þessum var vel og smekklega af hendi leystur á þægilega látlausan hátt. Spilamennskan bar þess greinileg merki að þátt- takendur þekktust vel og höfðu haft góðan umþóttunartíma við undirbún- ing. Það mátti finna eins konar sumarfrísanda í loftinu og greinilegt að allir ætluðu að njóta hans til fulls. Sviðsljós Árni Jóhannsson, Nikulás Þórðarson, Guðmundur Gunnarsson, Pétur Eiríksson, Guttormur Magnússon og Eirikur Pétursson fagna hér fertugs afmæli Eiríks Péturssonar, aöstoðarvarðstjóra slysarannsóknadeildar lögreglunnar. Eiríkur, sera er lengst til vinstri á myndinni, er sonur Pét- urs Eirikssonar, sem er fyrir miðju, en hann vann það afrek fyrir 58 árum aö synda út í Drangey. Þótti það mikið afrek og þykir reyndar enn. tugur sl fóstudag. Karl lauk kennaraprófl frá KÍ 1965 og meistaragráðu í kennsiuiræðum frá Univercitý of Cardiff í Wales 1989. Hann hefur með- al annars kennt við grunnskóla Reykjavíkur, verið dagskrárgerðarmaður hjá RÚV og kennt í Svíþjóð. Á myndinni er Karl ásamt konu sinnl, Sig- ríðl Hlíðar, þar sem þau tóku á móti gestum í tilefni afmælisins sl. föstudag. þrefaldur ísiandsmeistari í unglingaflokkum, voru verðlaunuð fyrir mestu framiarirnar á uppskeruhátíð borðtennisdeildar Víkings sem haid- in var fyrir stuttu. Guðmundur E. Stephensen var valinn borðtennismaö- ur ársins. Shhhh! Ekki segja neinum frá þessari mynd! Regnboginn: Svínin þagna: 0 Brennt beikon Kvikmyndin Svínin þagna tilheyrir sívaxandi flokki mynda með fáránleikahúmor að hætti Zaz-gengisins sem varð frægt fyrir myndir á borð við Kentucky Fried Movie, Airplane!, Top Secret!, Hot Shots! og Naked Gun. Eftirhermur voru óhjákvæmilegar en þeim hefur reynst erfltt að leika eftir hstir Zaz-mamja, jafnvel þótt uppskrift mynda þeirra virðist augljós. Þær gera grín að kvikmyndum og tengdu efni, nota „alvöru" leikara í stað gamanleikara og ekkert er svo fáránlegt að ekki sé ekki hægt að nota það í brandara svo lengi sem það er fyndið. Brandaramir eru það margir og koma það hratt að það er engin leið að gera stíganda eða fléttu án þess að hægja á myndinni því það er enga sögu eða persón- ur að treysta á. Svona myndir standa og faila með bröndurunum sínum. Þegar best tekst tíl mynda þeir keðjuverkun sem hreinlega ærir áhorfendur óstöðuga. Þótt einn og einn brandari bregðist þá er aUtaf stutt í þann næsta og litlar líkm- á að það myndist tóma- rúm. Hins vegar þegar þeir bregðast aUir með tölu þá verður tU mynd eins og Svínin þagna. Myndin er hreint út sagt ein sú aUra ófyndnasta gamanmynd sem ég hef nokkru sinni séð og hef ég séð margar, margar ófyndnar gamanmyndir. Forsprakki þessarar myndar, Ezio Greggio, er að sögn ítalskur sjónvarpsgrínisti sem hefur snúið sér að bíómyndum seinni árin og er þetta hans fyrsta mynd á ensku. Rammi Greggio utan um brandarana er samsuða söguþráðar tveggja tryUa: Psycho og SUence of the Lambs. Greggio togar síðan og teygir þráðinn tíl að koma að útúrsnúningum úr verkum eins og Basic Instinct, Twin Peaks og Addams-fjölskyldunni. Leikhópurinn flýtur með að feigðarósi og geta bara siálfum sér um kennt að vera orðinn svona örvænt- Siguijónssafn: Ljóðasöngur Tónleikar voru í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í gærkvöldi. Ljóðasöngur var á dagskrá. Margrét Bóas- dóttir sópran og Beate Echtler-Kaller mezzósópran sungu. Stephan Kaller annaðist undirleik á píanó. Á efnisskránni voru verk eftir Henry PurceU, Jórunni Viðar, Jón Hlöðver Áskelsson, Johannes Brahms, Leonard Bemstein, Erik Satie og Gioacchino Rossini. AUtaf er gaman að heyra verk eftir PurceU. StUl hans hefur hina markvissu formfegurð sem einkennir marga hina bestu barrokkhöfunda. Auk þess er þar jafnan neisti sniUigáfunnar sem PurceU hafði óneitan- lega. Fjórir söngvar úr ZigeunerUeder eftir Brahms hafa einnig þessa dýrmætu kosti, enda þótt stílbrögð séu aUt önnur. Þessi lög eru einfold og stflhrein og ná markmiðum sínum á faUega afslappaöan hátt. Það var gaman að heyra Tvo söngva Jakobínu Sigurðar- dóttur við lög Jórunnar Viðar. Lag Jóns Hlöðvers við ljóð Sigurðar Ingólfssonar, í garði, hljómaði einnig vel, þótt það spiUti heldur fyrir að endurtaka lagið með þeim hætti sem þama var gert. AthuguUr hlust- éndur skflja svo einfalda tónUst við fyrstu heym og endurtekning verður óþörf mælgi. Sópransöngkonan flutti nokkrar stuttar tölur þarna tíl kynningar efninu, sem einnig virtist óþarft, því fátt var á boðstólum sem ekki kynnti sig sjálft. Lýsti hún síðari hluta tónleikanna sem kaffihúsatónUst, sem er réttnefni ef með því er átt við gömul dægurlög. Þó Tónlist Finnur Torfi Stefánsson sýnist ekki sanngjarnt að fella lög Saties undir þessa skUgreiningu. Laghnur hans hafa töluverðan persónu- leika og sum verða að kaUast hreinar perlur, eins og t.d. La diva de L’Empire. Flutningur á þessu tónleikum var yfirleitt einkar þokkalegur og snyrtilegur en án mikiUa tUþrifa. Hinir erlendu gestir sem þama lögöu hönd á plóg virtust ekki hafa af miklu atgervi að taka. Söngur Margrétar Bóasdóttur var yfirleitt hreinn og faUegur en röddin ekki sérlega hljómmikil. ingafuUur. Þau era flest búin að leika svo lengi að þau hefðu bara átt að spara launin sín svo þau gætu sagt nei takk við svona myndum. Þær grunsemdir læddust að mér að hin afar sjald- séða Charlene TUton væri bara í myndinni tU þess að lauma að Dallas-brandara og viti menn það stóðst og hann var jafn lélegur og hinir. Ég hef reyndar aldrei heyrt eða lesið stakt orð um Kvilonyndir Gísli Einarsson þennan Greggio og veit ekki hvers vegna honum skýt- ur allt í einu upp á hvíta tjaldið núna. Eftir að hafa hugsað mikið um þetta er ég kominn á þá skoðun að Greggio sé ekki fll, hann sé aðeins dulnefni fyrir Zaz- gengið. Mig gmnar að þeir hafi í raun gert þessa mynd og gert hana eins lélega og þeir mögulega gátu til þess aö þeirra eigin myndir kæmu betur út í samanburði. Ég trúi því nefnflega ekki að hægt sé að gera svona misheppnaða mynd óviljandi. Ein kvikmyndaspurning í lokin: Dom DeLuise hefur einu sinni áður leikið per- sónu að nafni Pizza, en hvar? Silence of the Hams. (Band/itölsk. 1993) Handrit og leikstjórn: Ezio Greggio (Vacanze di Natale 1&2, Yuppies 1&2). Leikarar: Ezio Greggio, Dom DeLuise (Robin Hood: Men In Tights), Billy Zane (Sniper, Posse), Joanna Pacula (Marked for Death), Charlene Tilton (Problem Child 2), Martin Balsam (Cape Fear), Stuart Pankin, John Astin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.