Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Síða 25
FÖSTUDAGUR 5. ÁGUST 1994 33 DV LaxáíKjós: Veiddu 102 laxa á tveimur dögum Þaö þykja tíðindi að aðeins tókst að selja tvær stangir í maðkahollið það fyrsta eftir útlendinga í Laxá í Kjós sem lauk á hádegi í fyrradag. Þeir Þórarinn Sigþórsson, Egili Guðjohnsen, Pétur Þór Halldórs- son og Hjörtur Bergstad voru einir með ána en venjulega er veitt á 10 stangir þar. Tíminn eftir útlend- inga þykir mjög góður því þá er leyfður maðkurinn aftur eftir að flugan hefur ráðið ríkjum. Þeir fé- lagar veiddu á þessar tvær stangir 102 laxa sem má telja mjög gott og besta veiði á þessu sumri á tvær stangir. Yfir 700 laxar eru komnir úr ánni. Laxá í Kjós er ekki eina veiðiáin þar sem gengur illa að selja veiði- leyfi þessa dagana en það eru bændur sem selja sjálfir veiðileyf- in. Eins árs laxinn hefur ekki kom- ið í margar veiðiár og þá sérstak- lega fyrir norðan. Of dýr veiðileyfi og færri fiskar trekkja ekki þetta sumarið. „Við vorum fjórir með ána út af fyrir okkur og það gerist ekki á hverjum degi. Ég held að í næsta holli séu fáir að veiða líka,“ sagði Egill Guðjohnsen. „Þetta er besta veiði sem ég hef lent í, þetta er feiknalega gaman og að veiða svona fáir í allri ánni er nokkuð sérstakt," sagði Hjörtur Bergstad. Þórarinn Sigþórsson, Egill Guðjohnsen, Pétur Þór Halldórsson og Hjört- ur Bergstad með morgunveiðina úr Laxá t Kjós í fyrradag. Þeir veiddu alls 102 laxa á tveimur dögum og voru einir að veiða í allri ánni þessa tvo daga. DV-mynd G. Bender Tilkyimingar Málverkasýning Sólveig Eggerz Pétursdóttir er meö mál- verkasýningu í veitingaskálamun aö Þrastarlundi. Sumartónleikar 20. starfsári Sumartónleika í Skálholti lýkur núna um helgina. Flytjendur aö þessu sinni er sönghópurinn Hljómeyki og Guörún Óskarsdóttir semballeikari. Kvikmyndasýning í Árbæjarsafni gefst fólki kostur á á sunnudaginn að sjá kvikmyndir sem veita innsýn í lif og störf Reykvíkinga árið 1944. Tónleikar Sunnudagana 7., 14. og 21. ágúst heldur Vikivaka hópurinn tónleika í Perlunni. Allir hefjast þeir kl. 16.30 og eru haldnir á fimmtu hæð. Textíl-myndteppi Heidi Kristiansen mun sýna textil- myndteppi sín á 4. hæð í Perlunni út ágústmánuð. Myndlistarsýning Frá 5. ágúst til 25. ágúst mun bandaríska listakonan Olivia Petrides halda sýningu á kola- og krítarteikningum sínum í Menningarstofnun Bandaríkjanna, Laugavegi 26. Langur laugardagur Laugardaginn 6. ágúst nk. veröa verslan- ir á Laugaveginum opnar frá kl. 10-17. Kringlan Hið konunglega breska stórskotaliö mun halda sýningu í Kringlunni á laugardag- inn frá 12 til 13. Tónleikar Bandaríski sönghópurinn The Yale Whif- fenpoofs mun haida þrenna tónleika dag- ana 7.-8. ágúst. Á sunnudaginn í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 15 og Hard Rock Café kl. 18.45. Á mánudaginn á Café Sólon ísland- us kl. 21.00. Laugardagsganga Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Sýning Dagan 5.-25. ágúst sýnir Kristinn G. Harðarson sjö útsaumsverk í Galleríi Sævars Karls. Sýningin er opin á versl- unartímum á virkum dögum frá kl. 10-18. Félag eldri borgara Félagsvist spiluð í Risinu í dag kl. 14. í kvöld verður spiluð félagsvist að Fann- borg 8 kl. 20.30. Húsið öllum opið. Dagsferð eldri borgara Farin verður dagsferð á vegum Félags eldri borgara um Hreppa og Landssveit 17. ágúst nk. Brottíor verður kl. 9 frá Risinu og verða miðar afhentir á skrif- stofu félagsins til 12. ágúst. Sími er 28812. Námskeið Vikuna 8. til 12. ágúst mun íþrótta- og tómstundaráð Seltjamamesbæjar í sam- starfi við Seltjamameskirkju standa fyr- ir námskeiði fyrir unglinga á aldrinum 13 til 16 ára. Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað þeim unglingum sem enga vinnu hafa í ágústmánuði og hefst það kl. 13. alla daga og stendur til 17. Sýning Sunnudaginn 7. ágúst lýkur skiptisýn- ingu 3ja hollenskra hstamanna í Nýlista- safninu en þeir em: Patricia Spoelder, Marloes Hoogenstraten og Sander Do- erbecker. Um leið lýkur sýningu á verki eftir Margréti H. Blöndal í setustofu safnsins. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18. Fréttir Júlíus Guðmundsson með 23 punda flugulaxinn nokkrum mínútum eftir löndun sem tók hálftíma og var snörp. DV-mynd Heimir LaxáíNesjum: 23 punda flugulax „Það var meiriháttar gaman að fá fyrsta flugulaxinn svona stóran, 23 punda, en viöureignin tók hálf- tíma og fiskurinn tók fluguna Þing- eying," sagði Júlíus Guðmundsson á Höfn í Hornafirði í gærkvöld. Deginum áður veiddi hann sinn stærsta lax á ævinni en hafði áður veitt stærstan 16 punda lax og það „Núna hefur Selá í Vopnafirði gefið 330 laxa og hann er 17,5 punda sá stærsti. Orri Vigfússon og félag- ar veiddu 40 laxa," sagði Hörður Óskarsson í gærkvöldi er við spurðum frétta af Selá. „Orri og félagar slepptu mörgum löxum og þá sérstaklega fallegum hrygnum. Það eru tveir stórir straumar eftir og við vonum að við fáum góðar göngur í þær,“ sagði Höröur ennfremur. Yfir 60 laxar komnir úr Hvolsá og Staðarhólsá „Hollið veiddi 13 laxa, við vorum í tvo daga við veiðar en laxamir taka frekar illa eins og er í ánum,“ sagði Rögnvaldur Guðmundsson en hann var að koma úr Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum. „Það eru komnir yfir 60 laxar á land og helhngur af bleikjum, sum- ar eru vel vænar. í Staðarhólsánni í Laxá í Nesjum. „Þetta var hörkubarátta við lax- inn og ég gerði mér alls ekki grein fyrir aö fiskurinn væri svona rosa- lega stór. Hann stökk fimm sinnum og þessi viðureign var meiriháttar. Gaman að byrja svona eftirminni- lega með fluguna. Það eru komnir 8 laxar úr Laxá í sumar,“ sagði er sérstaklega mikið af laxi en hann er ljónstyggur," sagði Rögnvaldur í lokin. Fyrsti laxinn úr Prestbakkaá 16 punda „Fyrsti laxinn er kominn úr Prestbakkaá í Hrútafirði og það var Magnús Óskarsson, 11 ára, sem veiddi fiskinn. Þetta var 16 punda lax og hann tók maðkinn hjá stráknum," sagði Hrafnhildur Sig- urðardóttir í gærkvöldi en hún var að koma ásamt fleirum úr ánni. „Þetta var eini laxinn sem við sáum en áin var mjög vatnslítil þessa dagana. Magnús var með lax- inn í 15 mínútur og tókst að landa honum við erfiðar aðstæður inn í vík en hamrar eru þarna við töku- staðinn svo aö hvorki verður kom- ist upp úr eða niður úr á þessum stað við ána,“ sagði Hrafnhildur í lokin. Júlíus enn fremur. Það er reyndar kraftaverk að lax skuli veiðast í Laxá í Nesjum því að net hafa veriö girt fyrir ós henn- ar og því erfitt fyrir laxinn að kom- ast í ána. Um síðustu helgi var lögreglan send á staðinn til aö hirða net og tók nokkur þeirra í sína vörslu. Magnús Óskarsson, 11 ára, með fyrsta laxinn úr Prestbakkaá í Hrútafirði fyrir fáum dögum en þessi fyrsti lax var 16 punda og var landað við erfiðar aðstæður. DV-mynd HR SeláíVopnafirði: 330 laxar hafa veiðst - fyrsti kominn úr Prestbakkaá Allt í veiðiferðina Veiðileyfi í Kvíslárveitur Stórir urriðar %) LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.