Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1994, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1994
35
©KFS/Distr. BULLS
)1993 King Features Syndicate, Inc. World rights reserved.
iStr
R&neR
Þú ert í kviðdómi, Lína.. .ég efast um að þeir
biðjiþig að leika á harmonikuna.
a.
Lalli og Lína
___________Spakmæli______________
Bókelskan mann skortir aldrei tryggan
vin, hollan ráðgjafa, kátan félaga né
áhrifaríkan hughreystanda.
I. Barrow
r>v Fjölmidlar
Sviðsett
rútuslys
Það er oft þannig yfir suraar-
tímarra að lítill tími reynist til að
horfa á dagskrá sjónvarpsstöðv-
anna. Við yfirlit undirritaðs á þvi
sem boðið var upp á í gær þótti
ekki koma að sök þótt hugur
stefndi til annarra hluta en að
sitja við sjónvarp. í dagskránni
var ekkert sem heillaöi ef undan
er skilinn sá fasti punktur í til-
verunni sem fréttimar eru. Það
sem eftir stendur aö loknu frétta-
glápi er frammistaöa Ómars
Ragnarssonar á Stöð 2. Ómar
hefur að undanfórnu verið að
velta upp flötum á tildrögum þess
að rúta full af ferðamönnum valt
norður í landi á dögunum. Með
aðstoð tveggja rútubílstjóra svið-
setti hann kringumstæðurnar of-
an við Bólstaðarhlíðarbrekkuna
þegar rútan valt. Við sviðsetning-
una kom í ljós aö bilúm af þess-
ari stærðargráðu er nánast
ókieift að mætast án þess að grípa
til sérstakra ráðstafana, svo sem
að leggja inn spegla. í fréttatíma
kvöldið áður reyndi hann með
ótrúiegum tilburðum að sýna
hvað gerist inni í rútu sem velt-
ur. Ómar hefur oftar en ekki
bjargað fréttatímum með ein-
lægri og skemmtilegri umfjöllun.
í samkeppni þeirra útvarps-
stöðva sem halda uppi hvað
metnaðarfyllstri dagskrá síðdeg-
is, stendur að mati undirritaös
rás 2 með pálmann í höndunum.
Fólk þar á bæ hefur verið dugiegt
við að ná sér í áhugaverð umfjöll-
unarefni. í gær var t.d. ágæt
umfjöllun um örlög máls sem var
mjög ofarlega á baugi 1 umræð-
unni fyrir nokkrum árum, þ.e.
flúorblöndun vatns. Þetta brann
svo mjög á talsmönnum þessarar
biöndunar að helst átti að blanda
aUt drykkjarvatn landsmanna
með þessum efnum.
Reynir Traustason.
Andlát
Ágúst Andrésson, andaðist á héraös-
sjúkrahúsinu á Blöndósi 4. ágúst sl.
Þorgerður Jónsdóttir, Byggðarholti
21, Mosfellsbæ, andaöist á Landspít-
alanum 3. ágúst.
Eyrún Jóna Axelsdóttir, Heimahaga
10, Selfossi, lést á sjúkrahúsi Suður-
lands 3. ágúst sl.
Páll H. Asgeirsson, flugumferðar-
stjóri, Smáraflöt 9, Garðabæ, andað-
ist á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, 3.
ágúst.
Gunnar Jónasson, Grund, Hamars-
götu 8, Fáskrúðsfirði, lést á Land-
spítalanum 3. ágúst.
Gestur Gíslason trésmiður, Voga-
tungu45,Kópavogi,andaðistáhjúkr- .
unarheimilinu Sunnuhlíð 4. ágúst.
Jarðarfarir
Sigríður B. Ólafsdóttir, Ásbrú, Fá-
skrúðsfirði, verður jarðsungin frá
Fáskrúðsfjarðarkirkju 6. ágúst kl. 14.
Guðjón Ólafsson vélstjóri, Selja-
landsvegi 56, ísafirði, verður jarð-
sunginn frá ísafjarðarkapellu 6. ág-
úst kl. 14.
J. Margrét Haraldsdóttir frá Haga,
Víðilundi 13, Garðabæ, verður jarð-
sungin frá Garðakirkju 5. ágúst kl.
13.30.
Lýtingur Jónsson frá Lýtingsstöðum
í Holtum, Mávahlíð 39, verður jarð- ]
sunginn frá Marteinstungukirkju í1
Holtum 6. ágúst kl. 15.
Amdór Jóhannesson, fyrrv. bóndi í
Skálholtsvík í Bæjarhreppi, verður
jarðsunginn frá Prestbakkakirkju 6.
ágúst kl. 14.
Hólmsteinn Guðmundsson, Traðar- I
landi 18, Bolungarvík, verður jarð-
sunginn frá Hólskirkju í Bolungar-
vík 6. ágúst kl. 14.
Sigurjón Sigurjónsson, Hvolsvegi 7,
Hvolsvelli, verður jarðsunginn frá !
Stórólfshvolskirkju 6. ágúst kl. 14.
Sæmundur Björnsson, Ránarbraut
9, Vík í Mýrdal, verður jarðsunginn
frá Víkurkirkju 6. ágúst kl. 14.
Slökkvilið-lögregla
Reykjavík: Lögreglan sími 11166 og
0112, slökkvilið og sjúkrabifreið sími
11100.
Seltjarnarnes: Lögreglan s. 611166,
slökkvilið og sjúkrabifreið s.11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 41200,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100.
Hafnarflörður: Lögreglan sími 51166,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100.
Keflavík: Lögreglan s. 15500, slökkvilið
s. 12222 og sjúkrabifreið s. 12221.
Vestmannaeyjar: Lögreglan s. 11666,
slökkvilið 12222, sjúkrahúsið 11955.
Akureyri: Lögreglan s. 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið s.
22222.
ísaijörður: Slökkvilið s. 3300, brunas.
og sjúkrabifreið 3333, lögreglan 4222.
Apótek
Nætur- og helgidagaþjónusta apótekanna í
Reykjavík 5. ágúst til 11. ágúst, aö báðum dögum
meðtöldum, verður í Garðsapóteki, Sogavegi
108, sími 680990. Auk þess verður varsla í Lyfla-
búðinni Iðunni, Laugavegi 40a, simi 21133, kl.
18 til 22 v.d. og kl. 9 til 22 á laugardag. Uppl. um
læknaþj. eru gefnar í síma 18888.
Mosfellsapótek: Opið virka daga frá
kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12.
Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga-
fóstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl.
11-14. Sími 651321.
Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá
kl. 9-19, laugardaga kl. 9-12.
Hafnarfjörður: Norðurbæjarapótek
opið mánud. til fimmtud. kl. 9-18.30,
Hafnarfjarðarapótek ki. 9-19. Bæði hafa
opið föstud. kl. 9-19 og laugard. kl. 10-14
og til skiptis helgidaga kl. 10-14. Upplýs-
ingar í símsvara 51600 og 53966.
Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19
virka daga, aðra daga frá kl. 10-12 f.h.
Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opiö virka
daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka
daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokaö laugar-
daga og sunnudaga.
Akureyrarapótek og Stjörnuapótek,
Akureyri: Á kvöldin er opið í því apó-
teki sem sér um vörslun til kl. 19. Á
helgidögum er opið kl. 11-12 og 20-21. Á
öðrum timum er lytjafræðingur á bak-
vakt. Upplýsingar í síma 22445.
Heilsugæsla
Slysavarðstofan: Sími 696600.
Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur
og Seltjarnames, sími 11100,
Hafnarfjörður, sími 51328,
Keflavík, sími 20500,
Vestmannaeyjar, sími 11955,
Akureyri, sími 22222.
Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé-
lagsmálafulltrúa á miðvikudögum og
fimmtudögum kl. 11-12 í síma 621414
Læknar
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-
^rnes og Kópavog er í Heilsuvemdar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl.
17 til 08, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingar og tímapantanir í
sími 21230. Upplýsingar um lækna og
lyfjaþjónustu í símsvara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla
virka daga fyrir fólk sem ekki hefur
heimilislækni eða nær ekki til hans (s.
696600) en slysa- og sjúkravakt (slysa-
deild) sinnir slösuðum og skyndiveik-
um allan sólarhringinn (s. 696600).
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er
opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar-
daga kl. 10-11. Sími 612070.
Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes:
Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta
morgun og um helgar, sími 51100.
Keflavík: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8
næsta morgun og um helgar. Vakthaf-
andi læknir er í síma 20500 (sími Heilsu-
gæslustöðvarinnar).
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í
síma 11966.
Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heiisu-
gæslustööinni í síma 22311. Nætur- og
helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far-
sími) vakthafandi læknis er 985-23221.
Upplýsingar hjá lögreglunni 1 síma
23222, slökkviliðinu í síma 22222 og
Akureyrarapóteki í síma 22445.
Heimsóknartími
Landakotsspítali: Alla daga frá kl.
15-16 og 18.30-19. Bamadeild kl. 14-18,
aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör-
gæsludeild eftir samkomulagi.
Borgarspítalinn: Mánud.-föstud. kl.
18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18.
Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og
18.30-19.30.
Fæðingardeild Landspítalans: Kl.
15-16 og 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Heimsóknartími
frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30.
Fæðingarheimili Reykjavíkur: kl.
15-16.30
Kleppsspítalinn: Kl. 15-16 og 18.30-
19.30.
Flókadeild: Kl. 15.30-16.30.
Grensásdeild: Kl. 16-19.30 virka daga
og kl. 14-19.30 laugard. og sunnud.
Hvítabandið: Frjáls heimsóknartími.
Kópavogshælið: Eftir umtali og kl.
15-17 á helgum dögum.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug-
ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga
og aðra helgidaga kl. 15-16.30.
Landspitalinn: Alla virka daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16.
Sjúkrahúsið Akureyri: Ki. 15.30-16 og
19-19.30.
Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Kl.
15-16 og 19-19.30.
Sjúkrahús Akraness: Kl. 15.30-16 og
19-19.30.
Hafnarbúðir: Kl. 14-17 og 19-20.
Vífilsstaðaspítali: Kl. 15-16 og 19.30-20.
Geðdeild Landspítalans Vífilsstaða-
deild: Sunnudaga kl. 15.30-17.
Tilkyimingar
AA-samtökin. Eigir þú við áfengis-
vandamál að stríða, þá er sími samtak-
anna 16373, kl. 17-20 daglega.
Söfnin
Ásmundarsafn við Sigtún. Opið dag-
lega kl. 13-16.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74: Op-
ið daglega nema mánudaga kl. 13.30-16.
Árbæjarsafn: Opið í júní, júli og ágúst.
Upplýsingar í síma 84412.
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155.
Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s.
79122.
Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814.
Ofangreind söfn eru opin sem hér segir:
mánud.-fimmtud. kl. 9-21, föstud. kl.
9-19, laugard. kl. 13-16.
Aðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið
mánud.-laugard. kl. 13-19.
Grandasafn, Grandavegi 47, s.27640.
Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud.-fóstud.
kl. 15-19.
Seljasafn, Hólmaseli 4-6, s. 683320.
Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir víðs
vegar um borgina.
Sögustundir fyrir börn:
Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgar-
bókasafnið í Gerðubergi, fimmtud. kl.
14-15. Bústaðasafn, miðvikud. kl.
10-11. Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12.
Lokað á laugard. frá 1.5.-31.8.
Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 11-18.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7:
er opið daglega nema mánud. kl. 12-18.
Listasafn Einars Jónssonar. Opið alla
daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Högg-
myndagaröurinn er opinn alla daga.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar á
Laugarnesi er opið mánud.-fimmtud.
kl. 20-22 og um helgar kl. 14-18. Kaffi-
stofan opin á sama tíma.
Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg:
Opið sunnud., þriðjud., fimmtud. og
laugard. kl. 13.30-16.
Norræna húsið við Hringbraut: Sýn-
ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19.
Bókasafn Norræna hússins: mánud. -
laugardaga kl. 13-19. Sunnud. kl. 14-17.
Sjóminjasafn íslands er opið daglega
kl. 13-17 júní-sept.
J. Hinriksson, Maritime Museum, Sjó-
og vélsmiðjuminjasafn, Súðarvogi 4, S.
814677. Opið kl. 13-17 þriðjud. - laugard.
Þjóðminjasafn íslands. Opið daglega
15. maí - 14. sept. kl. 11-17. Lokað á
mánudögum.
Stofnun Árna Magnússonar: Hand-
ritasýning í Árnagarði við Suðurgötu
opin virka daga kl. 14-16.
Lækningaminjasafnið í Nesstofu á Sel-
tjamamesi: Opið kl. 12-16 þriðjud.,
fimmtud., laugard. og sunnudaga.
Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58,
sími %-24162, fax. 96-12562. Opnunar-
tími 1. júní-15. sept. alla daga frá 11 til
17.15. sept. til 1. júní sunnud. frá 14-16.
Bilanir
Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og
Seltjamames, sími 686230.
Akureyri, sími 11390.
Keflavík, sími 15200.
Hafnarfjörður, sími 652936.
Vestmannaeyjar, sími 11321.
Hitaveitubilanir:
Reykjavík og Kópavogur, sími 27311,
Seltjamames, sími 615766.
Vatnsveitubilanir:
Reykjavík sími 621180.
Seltjamarnes, sími 27311.
Kópavogur, sími 985 - 28078
Akureyri, sími 23206.
Keflavík, sími 11552, eftir lokun 11555.
Vestmannaeyjar, símar 11322.
Hafnarfjörður, sími 53445.
Símabilanir: í Reykjavík, Kópavogi,
Seltjamarnesi, Akureyri, Keflavík og
Vestmannaeyjum tilkynnist í 05.
Bilanavakt borgarstofnana, sími
27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17
síðdegis til 8 árdegis og á helgidögum
er svarað allan sólarhringinn.
Tekið er við tilkynningum um bilanir á
veitukerfum borgarinnar og í öðmm
tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa
að fá aðstoð borgarstofnana.
________Vísir fyrir 50 árum_________________
Laugardaginn 30. júií:
Söngvari á heimsmælikvarða:
Guðmundi Jónssyni spáð glæsilegum
söngvaraferli.
Ummæli blaða eftir hljómleika í Hollywood
Stjömuspá
Spáin gildir fyrir laugardaginn 6. ágúst.
Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.):
Þú þarft að taka ákvörðun vegna ákveðins verkefnis sem þú vinn-
ur að. Það dregur úr andstöðu sem þú hefur mætt og tafir eru
úr sögunni.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars.):
Taktu á málum með opnum hug þvi hið ólíklegasta getur gerst.
Treystu ekki eingöngu á hugboð þitt. Kannaðu möguleika á nýjum
samböndum.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
Þú hefur mikið að gera og gefur því eftir í ákveðnu máli úl þess
að koma í veg fyrir vandræði. Sumir líta á það sem veikleika-
merki. Láttu aðra ekki nota þig.
Nautið (20. apríl-20. mai):
Það er spenna meðal þeirra sem þú umgengst þótt hún beinist
varla að þér. Það er ekki ráðlegt að taka upp mál sem kunna að
valda deilum.
Tvíburarnir (21. mai-21. júní):
Farið verður fram á milligöngu þína í ákveðnu máli. Þú reynir
að aðstoða án þess að flækjast um of í málið.
Krabbinn (22. júní-22. júlí);
Þú ert eirðarlaus og óþolinmóður gagnvart þeim sem standast
ekki kröfur þínar. Þér gengur betur ef þú ert einn.
Ljónið (23. júlí-22. ágúst):
Sambönd þín við aðra ganga í gegnum breytingar. Þú verður því
að taka ákvörðun. Árangur þinn fer eftir því hversu vel þú undir-
býrð þig. Happatölur eru 6,17 og 27.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.):
Þú gleðst yfir þeim tíma sem gefst til þess að sinna eigin málum.
Þú verður að taka á einkamálunum og breyta áætlunum þínum.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Dagurinn verður hefðbundinn. Mikilvægast er að ljúka þeim
málum sem eru í gangi. Byrjaðu því ekki á neinu nýju. Aðrir eru
talsvert hörundsárir.
Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.):
Þú ert að ná takmarki þínu í ákveðnu máli. Mikilvægt er að hafa
stjóm á því sem er að gerast. Þú getur leyst vandamál með vtðræð-
um.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.):
Óvissuástand sem var er nú liðið hjá. Góður andi ríkir meðal
manna. Því gefst tími til að sinna nauðsynlegum verkefnum.
Steingeitin (22. des.-19. jan.):
Þú færð misvísandi skiiaboð. Þú færð tilboð en átt erfitt með að
metahvortþúáttað taka því eða ekki. Happatölur eru 11,15 og 29.
Ævintýraíerðir í hverri viku Áskriftarsíminn er 63*27«00
til heppinna
áskrifenda lsland
DV! Sækjum þaö heim!