Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1994, Side 24
32
, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994
4
Meruung________________________
Laugarásbíó - A Bronx Tale: ★★★ lA
Barátta um sálina
Robert De Niro hefur um áratugaskeiö verið í
fremstu röð kvikmyndaleikara í Bandaríkjunum, einn
af fáum mönnum sem hægt var að stóla á. Hann hefur
um hríð átt fyrirtæki sem framleiðir kvikmyndir en
hefur loks látið verða af því að fara sjálfur á bak við
myndavélina og stjóma.
Það gefst ekki alltaf vel þegar frægir leikarar láta
leikstjóradrauma sína rætast en De Niro stenst prófið
með miklum sóma í frumraun sinni, Sögu úr Bronx,
þroskasögu ungs drengs sem veit ekki alveg hvorum
Kvikmyndir
Guðlaugur Bergmundsson
hann á að líkja meir eftir og treysta, föður sínum eða
glæpaforingja hverfisins.
Sagan er tvískipt. Hún hefst árið 1960 þegar Cologero
(Brancato/Capra) er níu ára gutti sem fylgist fullur
aðdáunar með öllu því sem Sonny (Palminteri), aðalb-
ófi og töffari hverfisins, aðhefst og reynir að apa eftir
látbragði hans í einu og öllu, Lorenzo, strætisvagnabíl-
stjóranum föður sínum (De Niro), og móður (Narducci)
til sárrar skapraunar. En það er sama hvað htli dreng-
urinn gerir, aldrei virðir bófinn hann viðlits, ekki fyrr
en Cologero virðir lögmál þagnarinnar og neitar að
segja löggunni að hann hafi orðið vitni að því þegar
Sonny drap mann úti á miðri götu. Upp frá því vill
Sonny allt fyrir drenginn gera, foreldrunum til enn
meiri skapraunar en áður.
Síðari hluti sögunnar gerist átta ámm síðar, árið
1968, en þá er Cologero orðinn handgenginn Sonny
þótt hann taki aldrei þátt í neinum glæpaverkum fyr-
ir hann. Reyndar hvetur Sonny drenginn til að vera
áfram í skóla en það era fremur félagar hans sem
hafa slæm áhrif. Engu að síður er togstreitan milli
bófalífsins og lífs hins vinnandi manns, sem faðir hans
er fulltrúi fyrir, áfram til staðar hja Cologero og þar
kemur að hann verður að gera upp við sig hvorum
lífsstílnum hann ætlar að fylgja.
Það var lán De Niros að fá frábærlega vel skrifað
handrit til að vinna með í þessari fmmraun sinni en
handbragð hans er engu síðra. Hann hefur gott vald
á sögunni og öllum þeim aragrúa skemmtilegra per-
Chazz Palminteri í hlutverki Sonnys, aðalbófans í
Bronx.
sóna sem þar koma fram, Jóa hval, Kaffikökunni,
Tony toppi og öllum hinum bófunum, heldur dampin-
um vel þannig að nánast hvergi er dauður punktur.
Þá er vert að geta tónlistarinnar, vinsælla slagara
frá 1960 annars vegar og 1968 hins vegar, sem setm-
mikinn svip á myndina og setur um hana skemmtileg-
an ramma.
A Bronx Tale.
Kvikmyndataka: Reynaldo Villalobos.
Handrit: Chazz Palminteri.
Leikstjóri: Robert De Niro.
Leikendur: Robert De Niro, Chazz Palminteri, Lillo Brancato,
Francis Capra, Taral Hicks, Kathrine Narducci, Joe Pesci.
FERÐIR
///////////////////////////
alltafá laugardögum
Ævintýraíerðir
í hverri viku
til heppinna
áskrifenda
DVi
Island
Askriftarsími DV er 63»27*00
Fréttir
Jóhann Sigurjónsson á skrifstofu sinni þar sem hann fær daglega upplýs-
ingar um ferðir stórhvelis sem er með sendi í bakinu. Von Jóhanns er sú
að kortleggja megi óþekktar vetursetustöðvar langreyðar. DV-mynd ÞÖK
Gervitimglasendum skotið 1 hvali:
Hafa náð merkjum frá
einu senditækjanna
„Þetta era merki sem við skutum
í bök hvalanna. Þau endast í ein-
hverja mánuði en trúlega losa þeir
sig við þau innan tveggja mánaða,
svona á svipaðan hátt og við losum
okkur við flís sem grefur undan. Við
skutum að nokkrum hvölum og höf-
um nú vissu fyrir þvi að eitt merkj-
anna sendir eðlilega. Við skutum
fimm merkjum, eitt misfórst, eitt er
í óvissu, tvö líkleg og eitt pottþétt.
Að baki þessu er margra ára þróun-
arstarf, það er þekkt að fuglar, ís-
bimir og selir hafa verið merktir á
þennan hátt. Þar er hægt að svæfa
dýrin og sauma eða líma merkið við.
í þessu tilviki verðum við að skjóta
dýrið á færi og hitta nákvæmlega í
bakið á því,“ segir Jóhann Sigurjóns-
son, sjávarlíffræðingur hjá Hafrann-
sóknastofnun, sem stóð fyrir leið-
angri til að skjóta merkj'um í hvah.
Þegar er ljóst að sending kemur frá
einum hval en ekki er vitað um hina
fjóra irieð vissu. Hafró hefur áður
staðið að merkingum með svipuðum
hætti. Munurinn var bara sá að þar
var um að ræða radíómerki og fylgja
varð dýrinu eftir á meðan á athugun-
um stóð.
„Við merktum langreyði 1980 og
fylgdum henni eftir í 10 daga. Það
sem kom á óvart var að hún tók strik-
ið þvert yfir Grænlandssund, þar
sem hún stoppaði í kuldaskilum til
að éta loðnu. Þama komumst við
m.a. að því að ferðahraðinn er 7,5
kílómetrar á klukkustund og í sprett-
um náði hún allt að 15 kílómetra
hraða," segir Jóhann.
Jóhann segir verkefnið unnið í
samstarfi við bandaríska vísinda-
menn við Hafrannsóknastofnunina í
Woods Hole. Merkin koma um
NOOA gervihnött í þjónustustöð í
Frakklandi. Þaðan berst það símleið-
is beint inn á tölvu Hafrannsókna-
stofnunar. Farið var í leiðangurinn
með skipinu Leifi Eiríkssyni í síðustu
viku.
„Aðalmarkmið okkar með þessum
merkingum er að finna út vetursetu-
stöðvar hvalsins en þær eru óþekkt-
ar. Ég er að vona að merkið haldist
í hvalnum næstu tvo mánuði og
þannig náist að kortleggja ferðir
hans. Þá eram við að sjálfsögðu að
kanna almennt hegðunarmynstur
hans. Með þessu opnast möguleikar
á að kanna þetta nákvæmlega. Þetta
er hvalkýr með kálf og það verður
spennandi að fylgjast með þessu.“
Hótel Tangi á Vopnafíröi:
Stof nlánasjóðurinn í
samkeppni við hótelin
- segir Svava Víglundsdóttir hótelstýra
„Við eram í bullandi samkeppni
við bændagistinguna. Við þekkjum
jafnvel dæmi þess að um er að ræða
vínveitingaleyfi í hlöðum og fjárhús-
um. Þessi litlu hótel, sem era að basla
við að halda uppi þjónustu allt árið,
mega illa við því að vera í samkeppni
við Stofnlánasjóð landbúnaðarins,"
segir Svava Víglundsdóttir, hótel-
stýra á Vopnafirði.
Svava visar þama til þess að
Stofhlánadeild landbúnaðarins láni
til bygginga á sveitabýlum sem síðan
séu nýtt til að reka gistiheimili og
greiðasölu í samkeppni við hótel á
landsbyggðinni.
Svava rekur ásamt manni sínum,
Bjama Magnússyni, Hótel Tanga
sem er heils árs hótel á Vopnafirði.
Auk þess að reka hótel era hjónin
með verslun með blóm og gjafavörur
og sjá um rekstur félagsheimilisins á
staðnum. Á vorin stundar Bjami
grásleppuveiðar auk þess að fara
með ferðamenn í sjóstangaveiði.
Svava lætur vel af ferðamannatím-
anum.
„Það hefur verið mikið að gera í
veitingunum. Það hefur gengið hæg-
ar með gistinguna. Átakiö „ísland,
sækjum það heim“ hefur leitt til þess
að íslendingar era meira á ferðinni
en áður. Veðurblíðan í sumar hefur
aftur á móti leitt til þess að fólk hefur
Hjónin Svava Víglundsdóttir og
Bjarni Magnússon fyrir utan hótel
sitt á Vopnafirði. DV-myndGVA
gist í tjöldum og ijaldvögnum um-
fram það sem venjulegt er. Þetta hef-
ur leitt af sér að færri sækja í gjst-
ingu,“ sagði Svava.
„Það er hægt að reka svona hótel
með góðu móti ef ekki hvíla miklar
skuldir á rekstrinum. Það er þó aðal-
atriði að reksturinn eigi í eðlilegri
samkeppni um gestina,“ segir Svava.