Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1994, Síða 25
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994
33
dv__________________Menning
Hafið brennur
Þessi súrrealíski titill er á ljóðaúrvali lettnesku skáldkonunnar Vizma
Belsevica en það birtist nýlega á íslensku. Þetta eru sex tugir ljóða auk
stutts eftirmála með helstu upplýsingum um feril skáldsins.
Þrátt fyrir titilinn, sem sýnir ósættardegar andstæður, er bókin ekki
súrrealísk né á annan hátt módem aö marki. Þar sem lengst er gengið í
þá átt eru djarfar persónugervingar umhverfisins, t.d. í „Brunnurinn sem
hvarf'.
Ó, nei.
Aðeins skapandi fatan á gegnþurri möl.
Og þá stirðnið þið skyndilega - brunnurinn brýtur sér leið
upp úr jörðinni, önugur dregur hann veggi sína upp rif fyrir rif
styður sig við lyftistöngina og gengur haltrandi burt úr garðinum.
Þvílíkar persónugervingar virðast mér mestmegnis til að sýna ljóðmæl-
anda einan og einmana, mikið fer fyrir ástarsorg. En þetta er einfóldun,
lítum á dæmi þess hvemig hún sýnir þvílíkar tilfinningar:
Bókmenntir
Örn Ólafsson
Hrædd við augnablikið
er sannleikurinn verður ei lengur umflúinn,
fel ég augun bak við kastaníublómið
sem þú gafst mér eitt sinn,
treð ég í eyrun fuglahópnum
sem sveif yflr okkur þá,
og þek hjartað mildu kvöldunum okkar saman,
við tvö alein við fjólublátt hafið,
og ég held mér fast í glóðina sem slokknar við sjónarrönd,
hrædd við augnablikið,
er sannleikurinn verður ei lengur umflúinn.
Hér vekja líkingarnar athygli. Einstök atriði sem hún minnist frá sam-
verustund með ástmanninum eru kunnugleg rómantík, hann gaf henni
blóm, fuglar svifu yfir þeim við sólarlag á mildu kvöldi. En þessu er öllu
líkt viö teppi eða sæng, sem hún dregur yfir skilningarvitin! Þannig eru
rómantískar minningar tif þess eins að blekkja sjálfa sig, loka augunum.
Annað stutt ljóð sýnir mikla samþjöppun. Fyrsta ljóðmyndin, af óhreyf-
anlegum veiðifugli, gefur góða hugmynd um óvirka þrá. Regluleg endur-
tekning orðsins alda sýnir nánast ölduganginn sem lýst er. Og það er fín-
leg skynjun að taka fiðrildisvæng sem dæmi um lífveru sem verður fyrir
áföllum og nær sér aftur. Einmitt svo smágert dæmi vekur í senn samúð
með varnarlausri veru og skarpa skynjun hverfuls andartaks:
Alda
og sem mávur
á steininum í hafinu
þrá til þín.
alda
aöeins sorg
sár
eins og votur fiðrildisvængur
í sandi við fjöruborð
alda
salt
einmana tár
í eilífð hafsins
alda
hverfur óþekkjanleg
eftir að hafa skolað
sandinn af fiðrildisvængnum
alda.
Útkoma þessarar bókar sætir engum stórtíðindum í íslenskum bók-
menntum. En þetta er ágætt, vel þess virði að kynna sér fyrir áhugafólk
um ljóð. Ekki hefi ég getað borið þýðingarnar saman við þær dönsku og
sænsku þýðingar sem þýtt var eftir.
Vizma Belsevica: Haliö brennur.
Óðr 1994, 79 bls.
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt verður
af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10.
Nýlagað molakaffi.
Vitni óskast
Fyrir stuttu var ekiö á bíl í Mjóddinni
fyrir framan Bíóhöllina. Atvikið átti sér
staö kl. 23.30 og var sá grunaði á gulbrún-
um bíl af gerðinni Chevrolet sem ætti
núna aö vera með laskað vinstra fram-
bretti. Ökumaður þess bíls stakk af og
hefur ekki fundist síöan. Honum er lýst
sem ljóshærðum karlmanni, um 185 cm
á hæð og um 25 ára gömlum. Þeir sem
kannast við lýsinguna, annaðhvort á
bílnum eða manninum, eru beðnir að
hringja í lögregluna í Reykjavík í s.
699000.
Þakkarávarp
Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts og jarðarfarar móður minnar, Erlendsínu
Helgadóttur, sem lést 2. ágúst síðastliðinn. Sérstakar
þakkir til hreppsnefndar Vatnsleysustrandarhrepps og
Kvenfélagsins Fjólu.
Lifið heil.
F.h. vandamanna, Guðrún Lovísa Magnúsdóttir
Tilkyiiningar
Félag eldri borgara
Guðmundur stjómar félagsvistinni í Ris-
inu kl. 14 í dag. Göngu-Hrólfar fara í sína
venjulegu göngu kl. 10 á laugardagsmorg-
un.
Ferð aðfjallabaki
Oddafélagiö efnir til dagsferðar að Fjalla-
baki laugardaginn 27. ágúst nk. Lagt
verður af stað frá BSÍ í fjallabíl frá Aust-
urleið hf. kl. 9 árdegis og frá Hvolsvelli
kl. 11. Frekari upplýsingar veita Elsa G.
Vilmundardóttir í s. 91-41424 og Pálmi
Eyjólfsson á Hvolsvelli í s. 98-78129.
Fréttir
Silungsveiðin hefur gengið vel í sumar en það sama er kannski ekki hægt að segja um laxveiöina. Vænar
bleikjur hafa glatt unga veiðimenn. DV-mynd Þorsteinn
Þegar laxveiðin er slöpp víða:
Silungsveiðin
gengur mjög vel
„Ég er búinn að fylgjast með sjó-
bleikjuveiðinni í mörg ár og þetta
veiðiár er einstakt. Bleikjan er
geysilega væn, 5 til 9 punda eru
margar þeirra í veiðiánum þessa
dagana. Þá á ég sérstaklega við
veiðiárnar fyrir norðan eins og
Eyjaijarðará og Fnjóská,“ sagði
veiðimaður sem mikið veiðir silung
í ám og vötnum landsins.
Það er mál manna aö sjóbleikjan
komi vel undan vetri þetta sumariö
og bleikjur yfir 10 pund hafa sést í
veiðiánum. Bleikjan er líka feit og
vel haldin.
„Þetta hefur gengiö vel fyrir vest-
an og ætíi það séu ekki komnar um
500 bleikjur úr Gufudalsá og
Skálmardalsá til samans. Stærstu
bleikjumar eru 5 pund,“ sagði Pét-
ur Pétursson sem.hefur veitt mikið
bleikju. Hvað segir hann um þetta
sumar:
„Bleikjan er mjög góð þetta árið
og margar mjög vænar veiðast,
þetta eru samt árssveiflur í bleikj-
unni eins og laxinum. Rúnar Mar-
vinsson kokkur var fyrir skömmu
og veiddi 80 fiska. Veiðimaður var
fyrir fáum dögum í Gufudalnum
og hann fór inn í fossa og veiddi
15 fiska. Þetta voru bleikjúr frá 4
og 5 pundum," sagði Pétur.
Stærsti silungurinn
í Svínadalnum 12 pund
„Laxveiðin hefur verið frekar
döpur hjá okkur í Svínadalnum í
sumar og era aðeins komnir 12 á
land. í fyrra á sama tíma voru
komnir yfir 40 laxar," sagði Búi
Gíslason í Svínadal, en þar eru
Eyrarvatn, Geitabergsvatn og Þór-
isstaðavatn.
Veiðikeppni félags sumarbústaðaeigenda við Meðalfellsvatn var haldin
fyrir skömmu og verðlaunahafar eru, frá vinstri: Kristján R. Kristjáns-
son, Sigurður Magnússon, Valgerður Ósk Sigurjónsdóttir, Þór Guð-
mundsson, dóttir Þórs Guðmundssonar, sem tók við bikar fyrir hans
hönd, og Jóna Lilja Guðjónsdóttir. 50 veiðimenn kepptu og sá sem
veiddi flesta fiskana fékk 18.
„Þaö er heilmikið af laxi í vötnun-
um en hann tekur mjög illa. Sil-
ungsveiðin var góð framan af en
hefur dottið niöur núna. Stærsti
urriðinn er 12 pund. Það hafa
margir veitt hjá okkur í sumar, fjöl-
skyldur hafa mikið komið hingað,"
sagði Búi enn fremur.
Meðalfellsvatn
hefur gefið 20 laxa
„Núna eru komnir 20 laxar úr
Meðalfellsvatni og stærsti laxinn
sem ég hef frétt af er 10 pund,“ sagði
Sigurþór Gíslason á Meðalfelh, er
viö spurðum um Meðalfellsvatn í
Kjós.
„Silungsveiöin hefur verið ágæt --
og urriðin er vænni en oft áður, en
auðvitað veiðast þeir htlu líka,“
sagði Sigurþór.
Það er alltaf eitthvaö skemmtilegt
sem gerist í veiðinni og fyrir fáum
dögum var veiðimaður að veiða í
Meðalfellsvatni. Hann veiddi ágæt-
lega og fékk einn lax. Menn voru
því spenntir að taka mynd af
manninum, en það var alls ekki
hægt, maðurinn var í veikindafríi
og myndataka ekki æskileg í þeirri
stööu.
Allt í veiðiferðina
Felunet - gervigæsir
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751