Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1994, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1994, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1994 Spumingin Ætlar þú að spila í Bingó-lottói? Rósa Gunnarsdóttir: Já, ég ætla að athuga það. Hannes Kristinsson: Já, ætli maður prófi það ekki. Arnar Guðjónsson: Nei, þaö held ég ekki. Elísabet Kristjánsdóttir: Nei, ég held ekki. Anna Pálsdóttir: Nei, það er svo dýrt. Kjartan Vilhjálmsson: Nei, ég ætla ekki að gera það. Lesendur Mútugreiðslur til knattspymudómara: Ósmekklegar aðdróttanir Dómarar starfa af heilindum og þiggja ekki mútugreiðslur, segir m.a. í bréfinu. H. Jóh. skrifar: Ég er búinn að bíða eftir því að ein- hver svari grein Óláfs Halldórssonar, sem á ósmekklegan hátt gefur í skyn að mútugreiðslur séu í gangi innan íslenskrar knattspyrnu. Það er stundum sagt að þögnin sé besta svarið við vanhugsuðum óhróðurs- austri manna en einnig að þögn sé sama og samþykki. Það að enginn úr dómarastéttinni skuli vera búinn að svara greininni sýnir best um- burðarlyndi og þolinmæði þeirra. Það var ekki ætlun mín að taka upp hanskann fyrir einn eða neinn í þess- um mútumálsskrifum Ólafs en hon- um hefur eitthvað gengið til með svona róttækum skrifum. Þetta eru lágkúrulegustu skrif sem ég hef lesið um langan tíma. Það er heilagur rétt- ur hvers manns að verða reiður og tjá sig um tilfmningar sínar en ekki ausa aðra menn skít og óhróöri, hvað þá að bera þeim á brýn óheiðarleika sem þennan. Ólafur ætti að taka þjálfara Breiða- bliks sér til fyrirmyndar en hver ætti að vera sárari en hann yfir gengi liðsins. Hvað sagði hann eftir leik- inn? Hann kallaði dómarann einfald- lega heigul. Þarna er langt bil á milli en þjálfarinn segir þetta í hita augna- bliksins en Ólafur ritar þessa ó- smekklegu grein, greinilega eftir yf- irvegun og nokkra umhugsun. Ég legg ekki að jöfnu orð sem falla á heitasta augnabliki kappleikja og þau sem sett eru fram eftir langa íhugun, líkt og Ólafur gerir. Það jaðr- ar við að þessar aðdróttanir hans séu meiðyrði, ekki bara í garð dómara heldur og í garð þess félagsliös sem þarna er gefið í skyn að hlut eigi að máli. Ekki veit ég hvort Ólafur er mennt- aður dómari en hann ætti að geta skilið undir hvaða pressu þessir menn starfa. Inni á vellinum jagast leikmenn í þeim allan leiktímann og á áhorfendapöllunum er baulað á þá ef þeim verður á að flauta og dæma auka- eða vítaspyrnu. í þessum um- rædda leik voru önnur atriði sem orkuðu tvímælis hjá dómaranum og hallaði þar stundum á Framara. Ekki datt mér þó i hug að dómarinn væri á launum hjá Breiðabliki. Þetta er sem betur fer svo fjarri okkur að slík skrif sem fram komu í grein Ólafs ættu að dæmast ómerk. Jafnvel væri ástæða til afsökunarbeiðni af hans hálfu til viðkomandi dómara. Nei, Ólafur, ég tel islenskt íþrótta- fólk það heilbrigt að það vinnur eða tapar leikjum með sæmd en ekki mútugreiðslum. Þetta sama gildir um dómarana, þeir starfa af heilind- um. Því hvaða hvatir eru það aðrar en áhugi á starfinu að dæma kvöld eftir kvöld og láta mörg hundruð manns kasta skít í sig. Hneykslið hjá Sjómannasambandinu Sjómaður skrifar: Ég átti bágt með að lesa fréttina um kaup Sjómannasambands ís- lands á glæsilegum sumarbústað fyr- ir meira en átta milljónir króna. Og þetta hús, sem væri reyndar nær lagi að kalla höll, er aðeins til afnota fyr- ir toppana í félaginu. Við sjómenn erum ýmsu vanir og oft hef ég séð furðulegar fréttir þegar ég hef komið í land en þessi um- rædda frétt í DV fyrir helgi sló nú samt öll met. Hvað í ósköpunum halda þessir menn eiginlega að þeir séu? Það að halda því fram að yfir- mennirnir geti ekki notað sömu hús og undirmennirnir er algjör fjar- stæöa. Sjómenn hafa ekki legið á skoðunum sínum þegar bruðliö í þjóöfélaginu er annars vegar og hér verður heldur ekki dregið neitt und- an þótt í hlut eigi Sjómannasam- bandið. Einstaklingar, fyrirtæki og félög verða að sníða sér stakk eftir vexti og það sama gildir um Sjómanna- samband íslands. Útlitið og aðstæður í fiskveiðimálunum eru ekki það góð- ar að menn geti leyft sér svona fram- komu. Ég dreg ekkert í efa að topp- arnir þurfi að geta slakað á í huggu- legu umhverfi frá amstri hversdags- leikans en að þeir séu ekki undir sama hatti og aðrir er fráleitt. Mestir og bestir ast. Hann hefur bara sinn launa- taxta, segir m.a. í bréfinu. Hringið í síma milli kl. 14 og 16 -eóa skrifið Nafn og s í manr. verður að fyígja bréfu m Baldur Guðmundsson skrifar: íslendingar hafa löngum viljað vera mestir og bestir á öllum sviöum. Gjarnan er gripið til þeirrar „stað- reyndrar'* að með tilliti til íbúafjölda sé engin önnur þjóð sem standi okk- ur á sporði í einu eða neinu. Við segjumst geta haldið heims- meistaramót í handbolta og það að byggja höll, sem taki nokkur þúsund manns í sæti, sé bara formsatriði. Þegar við vinnum ekki sigur í söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva er það vegna vafasamra bragða sem hinar þjóðimar beita eins og fulltrúi okkar í síðustu keppni benti „réttilega" á. Þaö er sama hvert er litið, alls stað- ar eru íslendingar í fremstu röð. í landinu sjálfu er líka allt fullkomið. Vegakerfið á að vera pottþétt og jarð- göng skal byggja fyrir milljarða þótt aðeins sé um fáeina íbúa að ræöa. Skólar eiga að vera á hveija strái og helst félagsmiðstöðvar líka. Á listasviðinu duga ekki minni mannalæti. Þar á allt að vera flott og fínt. Þjóðleikhúsið, sem berst við láta enda ná saman eins og fjölmarg- ar aðrar stofnanir, setur upp óperu og kallar heim óperusöngvara sem getið hefur sér gott orð erlendis. Þar er hann vanur að fá einhver hundmð þúsunda fyrir hverja sýningu og auð- vitað getur Þjóðleikhúsiö ekki borg- að minna en heimsfrægu óperuhúsin úti í heimi. Gildir þá einu þótt hér sé sáralítill áhugi á þessari tónlist og vitað mál að sýning sem þessi getur aldrei borgað sig upp. Það er ekkert viö Kristján að sakast í þessum efnum. Hann hefur bara sinn launataxta en það er við hina að sakast sem borga brúsann. Fjárútlát þeirra eru lýsandi dæmi um þann flottræfilshugsunar- hátt sem hér ríkir. Sveiþér,borg- aðu nrteira Skattgreiðandi skrifar: Mig langar að leggja orð í belg varðandi hátekjuskattinn. Það er þannig að þeir sem hafa þokka- legar tekjur og svíkja ekki undan skatti bera meginþungann af því að halda þessu þjóðfélagi uppi með því að dæla fé í formi skatta til þeirra athafna sem yfirvöldum þóknast og hinir ýmsu þrýstíhóp- ar hafa stofnað til. Ekki dettur fólki í hug að þakka þessum mátt- arstólpum fyrh framlög þeirra. Nei, heldur segja menn: „Svei þér, borgaðu meira!“ og meina hátekjuskattinn. Það er þá orðið ljóst að heiðarleikiim borgar sig ekki og er lítils metinn. Þá er bara að vona að hinir heiðarlegu átti sig ekki á þessu og fari ekki að reyna að þoka sér undan þessum álögum með skatt- svikum því að þá hækka skattar hjá þeim sem minna hafa milli handanna en geta ekki bjargað sér á þennan hátt. Ríkið tekur nefnilega alltaf sitt. Þetta er kannski það sem fólk vill. Eða hvað? Peningum kastaðáglæ Viðskiptavinur hringdi: Hafa íslandsbanki, Landsbanki íslands, Búnaðarbanki Islands, Samband islenskra sparisjóða, Seðlabanki íslands, Sjóvá- Almennar, Olíufélagið hf. - Essó og Eimskip ekkert betra við pen- ingana sína að gera heldur en að kasta þeim í glæ. Öll þessi fyrirtæki taka þátt í að styrkja einhverja ómerkilega óperusýningu í Þjóðleikhúsinu. Aðalsöngvarixm fær hundruð þúsunda fyrir hvert kvöld og á meðan geta menn leyft sér að ríf- ast yfir því hvort fáeinir hljóð- færaleikarar eigi að fá nokkur hundruð króna launahækkun. Já, þetta þjóðfélag er orðið ansi skrítið þegar fyrirtækin henda peningunum í tóma vitleysu. Ensku knatt- spyrnunastrax Páll og Hannes hringdu: Af hverju í ósköpunum er Sjón- varpið ekki byijaö að sýna beint frá leikjum í ensku knattspyrn- unni. Úrvalsdeildin hófst í síðasta mánuði en ekkert bólar á sjón- varpsútsendingunum hér heima. Við vitum að Islandsmótinu er ekki lokið hér heima en þar er engin spenna og því óþarfi að bíða eftir að mótið klárist. Flestar HM-stjörnunar leika á Englandi í vetur og það eru marg- ir orðnir spenntir aö beija goðin augum. Er virkilega ekki hægt að byija á þessum útsendingum strax? Góðir sænskir þættir Sólveig Magnúsdóttir skrifar: Ég vil vekja athygli á frábærum sænskum sakamálaþáttum sem sýndir hafa verið í ríkissjónvarp- inu undanfarin þriðjudagskvöld. Þarna eru á ferð ótrúlega vel gerðir þættir sem afsanna þá út- breiddu kenningu að frá Svíþjóð komi ekkert nema hundleiðinleg- ir vandamálaþættir. Það eru fleiri en Bretar sem framleiða gott sjónvarpsefhi. Frelsarinn Jóhanna Guðjón hi'ingdi: Enn og aftur sýna skoðana- kannanir að Jóhanna Sigurðar- dóttir er vinsælasti stjórnmála- maður landsins. Hún er sá frels- andi engill sem þjóðin þarf. Ef Jóhanna býður fram vinnur hún yfirburðasigur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.