Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1994, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994 Neytendur Sláturtíðin um það bil að hefjast: Verðlækkun á slátri frá því í fyrra - hægt að kaupa saumaðar vambir eða tilbúna keppi „í fyrra kostuðu fimm ófrosin slát- ur 2.546 kr. en kosta nú 2.445 kr. (489 kr. stk.). Það er því 4% verðlækkun hjá okkur frá því í fyrra. Svo er líka umtalsverð verðlækkun á innmat í lausu,“ sagði Árni Ingvarsson, inn- kaupastjóri kjötvöru hjá Hagkaupi, í samtali við DV. Slátrið var víða kom- ið í verslanir fyrir helgi en kemur í aðrar verslanir í dag. Ástæðu verðlækkunarinnar sagði Árni vera þá að nú yrðu sláturleyfis- hafar að afsetja allan þann innmat sem þeir taka inn á haustin og þeir aðlaga því verðin markaðinum til að selja sem mest ferskt. Það væri þeim í hag að losna við geymslu- og pökk- unarkostnaðinn sem fylgir því að selja slátrið á næsta ári. Börn hætt að borða blóðmör Sem dæmi um verðlækkanir hjá Hagkaupi má nefna að hjörtu voru seld á 512 kr. kg í fyrra en kosta nú 364 kr. (29% lækkun), lifur kostaði 226 kr. kg en kostar nú 207 kr. (8% lækkun) og nýru kostuðu 204 kr. en fara í 169 kr. kg (17% lækkun). „Það er mjög mikil sala í lausum innmat. Börn eru t.d. mörg hver hætt að borða blóömör og því er tölu- vert um að fólk kaupi 5 slátur og noti ekki blóðiö en taki aukalifur í staðinn til að búa til lifrarpylsu," sagði Árni. Einu slátri fylgir 1 vömb, 1 keppur, 1 lifur, 1 hjarta, 2 nýru, mör, einn haus og blóð. Algengt er að hægt sé að ná fimm sláturkeppum út úr einni vömb, eða alls sex kepp- um úr slátrinu, svo þar má reikna með þremur máltíðum fyrir meðal- íjölskyldu. Svo er að sjálfsögðu hægt að nota hjartað, nýrun og hausinn í aðrar máltíðir. „Við ætlum líka að vera með þrjú slátur tilbúin í kassa. í honum yrðu 15 tilbúnir keppir (fylltir og saumað- ir), þrír hausar, þrjár lifrar, þrjú hjörtu og sex nýru. Þá er búið að laga slátrið og það eina sem fólk ger- ir er að taka keppina úr kassanum og henda í pottinn. Svo getur það notað innmatinn í eitthvað annað,“ sagði Árni en slíkur kassi kostar 3.499 kr. í Hagkaupi. Fjarðarkaup ódýrast í verðkönnun DV í sex verslunum á höfuðborgarsvæöinu bauð Fjarðar- kaup lægsta verðið á fimm slátrum, 2.263 kr. Þar var einnig lægsta kíló- verð á lifur og nýrum í lausu. Reynd- ar bauð 10-11 sama verð og Fjarðar- kaup á lifur en Nóatún var með lægsta verðið á hjörtum í lausu. Kjöt og fiskur var með hæsta verðið í öll- um tilvikum en mestur var verð- munurinn á nýrum (52%) og minnst- ur á fimm slátrum í kassa (27%). Taka ber fram að Garðakaup er með tvenns konar verð á slátri. Það sem gefið er upp í grafinu hér á síð- unni gildir frá mánudegi til miðviku- dags en frá fimmtudegi til laugardags er kassi með fimm slátrum hundrað krónum dýrari, kostar 2.590 kr. Er þetta gert til að auka slátursölu á virkum dögum en hún er yfirleitt mest rétt fyrir og um helgar. Fjarðar- kaup býður upp á fimm slátur með saumuðum vömbum fyrir 2.753 kr. á meðan birgðir endast. Blóðmör og lifrarpylsa Fyrir þá sem ekki tilheyra fjöl- skyldum þar sem uppskrift að slátri gengur í erföir fengum við Áslaugu Kristjánsdóttur matreiðslukonu til að láta okkur í té uppáhalds- uppskriftir sínar að blóðmör og lifr- arpylsu. Að sögn þeirra sem smakk- að hafa er þetta einkar bragðgott slátur. Blóðmör 11 blóð /% 1 vatn 30 g salt Slátur og innmatur í lausu fæst spenntir eftir hinni hefðbundnu máltíðina. 1 kg rúgmjöl 1 kg mör 1 hnefi hveiti 1 hnefi haframjöl Hvar er besta verðið á slátri Hæsta Lægsta 5 slátur 27% Hjörtu 29% nú í verslunum landsins og bíða margir státurgerð, svo ekki sé minnst á fyrstu DV-mynd GVA Mælið blóðið og sigtið það. Hellið síð- an vatninu í gegnum sigtiö líka og saltið blóðið síðan. Bætið helmingn- um af mörnum út í og hrærið mjölinu saman við. Hrærið þar til það er jafnt. Best er að hræra með hend- inni. Setjið síðan afanginn af mörn- um saman við. Vambakeppirnir eru rúmlega hálf- fylltir, saumað fyrir þá og jafnað vel út í þeim. Keppirnir eru settir í sjóð- andi vatn og soðnir í 3 klst. en mun- ið að pikka þá vel áður með slátumá- linni svo að þeir springi ekki. Hafið salt í vatninu og snúið keppunum oft. Hagkaup 2.445 Garðakaup 2.490 Nóatún 2.399 10-11 2.395 Hagkaup 364 Fjarðarkaup 349 Garðakaup 438 10-11 389 Lifur 28% Nýru 52% iTh Hagkaup 207 Garðakaup 255 Nóatún 199 Hagkaup 169 Garðakaup 198 Nóatún 125 10-11 168 Lifrarpylsa 1 kg lifur 450 g rúgmjöl 150 g haframjöl 150 g hveiti 30 g salt % 1 mjólk 1 kg mör Lifrin er þvegin og himnurnar og allt slím tekið af þeim, skorin í bita og hökkuð í hakkavél 2-3 sinnum. Saltinu og mjólkinni hrært vel sam- an við. Mjölinu og mörnum hrært saman við þar til hræran er jöfn. Látið í keppina og soðið á sama máta og blóðmörinn en ekki jafn lengi. iMlfe - y.j't' 1 t£ Sértilboð og afsláttur: Tilboðin gilda til miðviku- dags. Þar fæst Óðals lambahvít- laukssteik á 799 kr. kg, Federici spaghetti, 500 g, á 39 kr„ Hunt’s spaghettisósa, 2 teg., 730 g, á 129 kr., Hversdagsís, 2 1, 4 teg., á 299 kr., heilhveitisamlokubrauð á 89 kr., Granini safi, 2 teg., á 99 kr. og Risco 3 korna súkkulaðikex á 149 kr. iiiiiimimii Sértilboð og afsláttur: 10—11 Tilboðm gilda til miðviku- dags. Þar fást nýbakaðir amerísk- ir kleinuhringir, 2 stk., á 98 kr„ blá og græn vinber á 198 kr. kg, Goða skinka á 798 kr, kg, Jacob’s pítubrauð á 98 kr„ kremkex, 500 g, súkkul. og vanillu, á 158 kr„ Batchelor’s pastaréttir, 7 teg., á 98 kr„ Stjömu kartöflukoddar á 98 kr„ stórir hraunbitar á 138 kr., salernispappír, 8 r„ á 149 kr. oghangikjöt, niðurs. framp., á 498 kr. kg. Bónus Tilboðin gilda til miðviku- dags. Þar fást K.F. vínarpylsur á 469 kr. kg, K.F. medisterpylsa á 357 kr„ K.F. bacon á 598 kr„ Heinz tómatsósa, 794 g, á 105 kr„ steikt- ur laukur, 200 g, á 59 kr„ Crakit kex, 300 g, á 89 kr„ 4 maisstönglar (frosnir) á 187 kr„ 12 maisstöngla- haldarar á 139 kr„ St. Ives sjampó og næring, 2x516 ml, á 387 kr„ Appalo lakkrískonfekt, 500 g, á 149 kr„ Finax rúgmjöl, 2 kg, á 65 kr„ plastdósasett, 40 stk., á 879 kr. og Johnson Klar gólfbón á 199 kr. Holtagarðar: Polobolir á 297 kr„ rúllukragabolir á 297 kr„ bamanáttföt á 397 kr„ skálasett, 3 stk„ á 227 kr. og kvennærbux- ur, 3 stk., á 229 kr. Kjötogfiskur Tilboðin gilda til fimmtudags. Þar fæst London lamb á 747 kr. kg, ný svið á 198 kr. kg, folaldasn- itsel á 698 kr. kg, Java kaffi, 400 g, á 195 kr„ Kellogg’s kornfleks, 750 g, á 278 kr„ Super þvottaefni, 3 kg, á 289 kr„ Shop Rite maí- skom, 450 g, á 54 kr„ Golden Val- iey örbylgjupopp á 89 kr. og Vend- elbo sultur, 900 g, á 159 kr. Garðakaup Tilboðin gilda til laugardags. Þar fást svínakótelettur á 799 kr. kg, folaldahakk á 330 kr. kg, fol- aldasnitsel á 630 kr. kg, ísl. tómat- ar á 125 kr. kg, hvítkál á 35 kr. kg, kínakál á 39 kr. kg, rófur á 35 kr. kg, ísl. kartöflur á 48 kr. kg, Jogginggallar, bláir/gráir: buxur á 1.445 kr. og peysur á 1.658 kr„ Vel Ultra uppþvottalögur á 149 kr. og Þykkvabæjarflögur, 3 teg„ 250 g, á 258 kr. Fjaröarkaup Tilboðin gilda til fóstudags. Þar fást svínasíður í ! og 'h á 415 kr. kg, 20% afsl. af vöram frá Kjarnafæði: London Iamb á 799 kr. kg, kjötbúðingur á 389 kr. kg, paprikubúðingur á 389 kr. kg. Smákökudósir, 454 g, á 99 kr„ salernispappír, 12 r„ á 180 kr„ eldhúsrúllur, 4 stk„ á 149 kr„ klementínur á 99 kr. kg, Twist pokar á 169 kr„ hafrakex, 500 g, á 139 kr„ pastaskrúfur, 500 g, á 59 kr. og Uncle Ben’s fijótsoðin hrísgijón, 500 g, á 139 kr. KEA-Nettó ** Tilboðin gilda til sunnudags. Þar fást gróf samlokubrauö á 99 kr„ Pepperoni búðingur á 427 kr. kg, Nemli komfleks, 500 g, á 155 kr„ Mahng sveppir, 184 g, á 46 kr„ Happi Quiek, 800 g, á 235 kr„ Eva eldhúsrúllur, 2 stk„ á 89 kr„ kindabjúgu frá 356-463 kr. kg, Leysi Geisli, 0,51 m/sprautu, á 166 kr. og Leysi Geisli, 0,5 1 án sprautu, á 110 kr. Kynriing fóstu- dag og laugardag á Eyfisk hvít- lauksýsu og Nettó sælu. Tilboðin gilda til miðviku- dags. Verðið miðast við stað- greiðslu. Þar fæst Ariel þvotta- lögur, 5 1, á 1.290 kr„ Kellogg’s kornflögur, 750 g, á 245 kr„ 10 kerti á 159 kr„ Noels jarðarberja- síróp, 790 g, á 258 kr„ Charles appelsínuþykkni, 3 1, á 299 kr„ Timotei Mineral sjampó, 400 ml, á 225 kr„ dj úpsteikingarpottur, 500 ml, á 3.590 kr„ 6 glös á 359 kr. og Snickers, 36 stk„ á 1.199 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.